Morgunblaðið - 25.10.2001, Page 1
244. TBL. 89. ÁRG. FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 25. OKTÓBER 2001
LJÓST er að tíu manns að minnsta
kosti fórust snemma í gærmorgun
þegar tveir vöruflutningabílar rákust
saman í St. Gotthards-jarðgöngunum
í Sviss. Hluti þaks ganganna er talinn
hafa hrunið. Óttast var að fórnarlömb
slyssins væru fleiri, en eldur varð laus
í bílunum og breiddist út um 300
metra kafla af göngunum.
Slysið varð klukkan 7.45 að stað-
artíma um hálfan kílómetra frá syðri
munna ganganna. Þykkur reykur
barst um göngin frá öðrum vöruflutn-
ingabílnum sem var með hjólbarða-
farm. Um 150 slökkviliðsmenn og
björgunarmenn fóru þegar á staðinn
frá bænum Airolo og Ticino-kantónu
en komust ekki strax að bílflökunum
vegna hita og reyks. Reykjarbólstrar
sáust koma út um syðri munnann og
loftræstingarop á göngunum.
Svissneska sjónvarpið sagði að
annar bílstjórinn hefði farist en hin-
um hefði tekist að komast út og snúa
mörgum öðrum bílstjórum frá slys-
staðnum en hægt er að nota hliðar-
göng við aðalgöngin í neyðartilfellum.
Lögreglumenn sögðu að mörgum
hefði þegar verið bjargað út en er síð-
ast fréttist komust björgunarmenn
ekki að fimm eða sex bílum sem
lokast höfðu inni vegna eldsins. Var
ekki ljóst hvort farþegar þeirra náðu
að komast út í tæka tíð.
Vitað var að auk vörubílstjórans
fórust að minnsta kosti níu manns í
öðrum bílum og virtist fólkið hafa
kafnað. Átta voru fluttir á sjúkrahús
með reykeitrun og nokkrir fengu
áfallahjálp.
Að sögn yfirvalda hafa St. Gott-
hards-göngin verið talin mjög örugg
en ekki eru vegrið milli gagnstæðra
akbrauta til að draga úr árekstra-
hættu. Fyrir tveim árum varð mann-
skætt slys í Mont Blanc-göngunum
milli Frakklands og Ítalíu og fórust
39 manns. Ekki eru neyðargöng til
hliðar við aðalveg Mont Blanc-gang-
anna. Göngin hafa verið lokuð síðan
en ætlunin er að opna þau aftur fyrir
næstu áramót.
Um St. Gotthards-göngin liggur
aðalhraðbrautin í Sviss milli norðurs
og suðurs. Þau voru lögð árið 1980,
eru um 16,9 kílómetrar á lengd og
meðal lengstu ganga í heimi. Um þau
fer mikið af flutningum milli Þýska-
lands og Ítalíu og um 18.700 bílar á
dag að jafnaði.
Að meðaltali verða um fimm alvar-
legir eldsvoðar árlega í St. Gotthards-
göngunum. Mun umferðin aukast
hratt á næstu árum vegna samninga
sem Svisslendingar hafa gert við Evr-
ópusambandið eftir langt þóf. Þak
hefur verið á umferðarþunganum og
ekki leyft að meira en 100.000 vörubíl-
ar af stærstu gerð færu um göngin á
ári en íbúar í borgum á svæðinu
kvarta víða yfir hávaða og mengun frá
vörubílunum.
Minnst tíu manns fórust í
St. Gotthards-göngunum
Reuters
Vöruflutningabílar brenna í St.
Gotthards-göngunum í Sviss í gær.
Eldsvoði í kjöl-
far áreksturs
tveggja bíla
Airolo. AFP.
BANDARÍSK herþota varpaði
sprengjum á höfuðborg Afganistan,
Kabúl, í gærkvöldi og ráðist var á
stöðvar talibana um 50 kílómetra
norðan við borgina fyrr um daginn.
Staðfest var í gær að 22 pakistanskir
sjálfboðaliðar í her talibana í Kabúl
féllu í árásunum á þriðjudag.
Talibanar fullyrða að meira en
1.000 óbreyttir borgarar hafi þegar
fallið í loftárásum Bandaríkjamanna
sem vísa þeim staðhæfingum á bug
og segja rétta tölu mun lægri.
Afganskur flóttamaður í Pakistan,
Abdul Maroof, sagði að bandarískar
þotur hefðu sl. sunnudag gert árás á
flóttafólk á leið frá bænum Tirin Kot.
Fyrst hefði verið ráðist á bæinn.
„Þegar árásin hófst varð fólk
dauðhrætt og hljóp fram og aftur í
leit að skjóli,“ sagði Maroof. „Eftir
árásina var ryk og brak alls staðar
vegna þess að veggir og þök leirkof-
anna okkar höfðu hrunið og margir
lokuðust inni.“ Nokkrir tugir manna
hefðu ákveðið að flýja en þá hefði
verið gerð árás á flóttafólkið og 20
fallið. The Washington Post hefur
hins vegar eftir flóttamönnum frá
Kabúl að þar fagni margir íbúar loft-
árásunum og voni að þær verði til að
binda enda á völd talibana.
Talibanar eru sagðir hafa gripið til
þess ráðs að koma skriðdrekum og
öðrum öflugum vopnum og búnaði
fyrir í moskum og skólum í Kabúl til
að koma í veg fyrir að þeim verði
grandað með loftárásum. Einnig feli
hermenn þeirra sig meðal óbreyttra
borgara og noti þá þannig sem
„mannlegan skjöld“.
Sjálf-
boðalið-
ar felldir
Kabúl, Islamabad, Washington. AP, AFP.
Telja þrengt/25
TVEIR ungir Norður-Írar á grind-
verki við veggmynd sem sam-
bandssinnar hafa málað á húsvegg í
Belfast. Breska stjórnin skýrði frá
því í gær að hafist hefði verið
handa við að rífa niður fjórar varð-
stöðvar breska hersins í héraðinu í
kjölfar þess að Írski lýðveldisher-
inn (IRA) hóf afvopnun í fyrradag.
John Reid, Norður-Írlands-
málaráðherra bresku stjórn-
arinnar, sagði að stjórnin hygðist
„fækka hermönnum og varð-
stöðvum á Norður-Írlandi eftir því
sem ástandið í öryggismálum batn-
ar“. Tveir menn sem grunaðir eru
um að vera í hópi er ekki sættir sig
við neinar tilslakanir af hálfu IRA
voru handteknir í gær fyrir að vera
með vélbyssur í fórum sínum. Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands,
sagði í gær að ógnin frá slíkum
hópum væri áfram mikil.
Leiðtogar Bretlands, Írlands,
Bandaríkjanna og fleiri ríkja fögn-
uðu ákvörðun IRA.
Reuters
Búa sig undir frið
Mikilvægur áfangi/28
TALIÐ er að minnst sex Palestínu-
menn hafi fallið í átökum við ísr-
aelska hermenn er þeir réðust á
þorpið Beit Rima, skammt frá borg-
inni Ramallah á Vesturbakkanum, í
fyrrinótt. Ariel Sharon, forsætisráð-
herra Ísraels, sagði að herliðið hefði
handtekið mikilvæga liðsmenn
hryðjuverkasamtaka í þorpinu. Ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna, Col-
in Powell, hvatti í gær Ísraela til að
kalla her sinn á brott frá sex borgum
Palestínumanna sem þeir hafa lagt
undir sig en stjórn Sharons hefur
hunsað fyrri óskir bandarískra ráða-
manna um brottflutninginn.
Powell sagði ástandið mjög
ótryggt og að Ísraelsstjórn ætti
„strax“ að flytja her sinn frá palest-
ínskum svæðum. Einnig ætti stjórn
Yassers Arafats Palestínuleiðtoga að
handtaka liðsmenn herskárra sam-
taka sem standa fyrir hermdarverk-
um.
Aðalsamningamaður Palestínu-
manna í viðræðum um frið, Saeb Er-
ekat, sagði í gær að George W. Bush
Bandaríkjaforseti yrði að sýna Shar-
on hörku og segja skýrt og undan-
bragðalaust að mælirinn væri fullur.
Nokkur hundruð hermenn og 15
skriðdrekar voru í liðinu sem réðst
inn í Beit Rima. Talsmaður Sharons,
Raanan Gissin, sagði að 11 félagar
samtakanna Alþýðufylkingin til
frelsunar Palestínu, PLFP, hefðu
verið handteknir. Sex liðsmenn sam-
takanna og fleiri hryðjuverkahópa
hefðu fallið og þrír særst þegar þeir
gripu til vopna. Gissin sagði að
stjórnvöld hefðu fengið upplýsingar
um að tveir af banamönnum ráð-
herra sem myrtur var í Jerúsalem í
liðinni viku hefðu verið frá þorpinu.
„Fyrst Arafat handtekur þá ekki
þá tökum við þá,“ sagði Sharon for-
sætisráðherra. „Ísrael hefur sama
rétt og önnur ríki til að verja borgara
sína og við munum halda áfram að
nota okkur réttinn til sjálfsvarnar.“
Palestínustjórn fordæmdi árásina á
þorpið og sagði að tíu manns hefðu
fallið. Hún bað heimsbyggðina um
hjálp gegn Ísraelum og „ríkishryðju-
verkum“ þeirra. Ísraelsher lokaði
þorpinu í gær og hvorki sjúkrabílar
Palestínumanna né fréttamenn kom-
ust þangað.
Powell vill
brottflutn-
ing herja
Jerúsalem, Washington. AP, AFP.
Sex Palestínumenn felldir