Morgunblaðið - 25.10.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.10.2001, Blaðsíða 6
Lára, Maríanna, Elín og Ágústa í Borgarholtsskóla lögðu sitt af mörkum við söfnunina í gær og hreinsuðu tyggjó- klessur af gangstéttum við skiptistöðvar Strætó bs. FJÖLDI framhaldsskólanema lagði skólabækurnar til hliðar í gær og fór út á vinnumarkaðinn til að safna peningum fyrir rekstri skóla fyrir stéttleysingja á Ind- landi. Alls tóku 19 framhalds- skólar á öllu landinu þátt í verk- efninu Íslenskt dagsverk sem Félag framhaldsskólanema og Iðn- nemasamband Íslands stóðu fyrir. Skólinn var byggður fyrir íslenskt fé sem safnaðist í dagsverki nem- enda árið 1997, en þá söfnuðust um 5 milljónir króna. Frá árinu 1997 hafa um 300 stéttleysingjar fengið menntun við skólann sem annars hljóta enga menntun. Fyrir heilsdagsverk voru greiddar 5.000 krónur og 3.000 fyrir hálfsdagsverk. Eftir helgina mun skýrast hversu mikið fé hefur safnast í þetta skiptið. Meðal starfa sem nemendur reyndu fyrir sér í var að gera við bíla, selja gömlum konum hárrúllur, þvo glugga, uppvarta á kaffihúsum, undirbúa ráðstefnu og sjá um haustverkin í garðinum. Þeir nem- endur sem unnu dagsverk fengu frí í skólanum, en hinir mættu í skólann. Lofar ekki góðum árangri í strípum og klippingum Frosti Ólafsson, sem er á síðasta ári í Menntaskólanum í Kópavogi, vann á hárgreiðslustofunni Hárkó í Kópavogi í gær. Þegar Morg- unblaðið ræddi við hann var hann búinn að svara í símann, sópa gólf- ið, þvo hár og raða hárlitum. Hann bjóst ekki við hann ætti eftir að klippa hár eða setja strípur, „nei, ekki nema ég verði beðinn um það. Ég er alveg til í það, ég lofa bara ekki neinum rosalegum árangri“, sagði Frosti. Hann sagði að honum litist ágætlega á þessa vinnu þótt hann myndi líklega ekki leggja hárgreiðsluna fyrir sig. Frosti fékk vinnuna í gegnum nemendafélagið í MK. „Ég spurði hvort ekki væri vinnustaður sem ég gæti farið að vinna á, sem væri öðruvísi en að moka sand eða eitt- hvað. Þá hafði verið beðið um strák á Hárkó,“ segir Frosti. Kon- urnar sem vinna þar sögðu að það hefði verið kominn tími til að fá karlmann á staðinn, en oft hafa stelpur komið þangað í starfs- kynningu. Frosti sagði þetta ljóm- andi fínt framtak, flestir vina hans hefðu einnig ætlað að taka þátt. Einn vinur hans fékk vinnu við járnabindingar, tveir ætluðu að taka til á lager og ætlaði einn þeirra að biðja mömmu sína um að kaupa af sér vinnu og t.d. taka til á heimilinu í staðinn. Skárra en skólinn Mekkín Sæmundsdóttir og Elsa Rún Erlendsdóttir, sem eru á fyrsta ári í Borgarholtsskóla í Grafarvogi, unnu við að flokka sorp hjá Sorpu í Gufunesi. Þær sögðu að þetta væri ágætis til- breyting frá skólanum og alltaf væri gaman að prófa eitthvað nýtt, auk þess sem málefnið væri gott. Þær sögðu vinnuna í Sorpu öðru- vísi en það sem þær hafa prófað hingað til, erfiðast væri að umbera lyktina. Þótt þær stöllur sögðu vinnuna skárri en skólann sögðust þær frekar vilja vera í skólanum alla daga en í Sorpu. Þær höfðu tínt rusl, þvegið hjálma og skoðað vinnustaðinn þegar Morgunblaðið bar að garði í gær. Þrír krakkar úr Borgarholts- skóla unnu í Sorpu í gær, auk Mekkínar og Elsu Rúnar vann Ólafur Atli Ólafsson við að taka á móti spilliefnum og flokka þau. Þau sögðu öll að hugsanlega myndi þessi reynsla þeirra í Sorpu verða til þess að þau flokkuðu sorpið betur heima hjá sér og litu það öðrum augum. Aðeins ein kona vinnur í flokkunarstöðinni í Gufunesi að staðaldri og sögðu Mekkín og Elsa Rún bara fínt að vinna með öllum körlunum. Þær sögðust örugglega alveg vera til- búnar að vinna þarna í framtíð- inni, fengju þær gott kaup. Tekið til hendinni í þágu stéttleysingja á Indlandi Morgunblaðið/Ásdís Mekkín og Elsa Rún, sem hér flokka sorp með skólabróður sínum, Ólafi Atla, sögðu það fínt að fara í einn dag út á vinnumarkaðinn. Erfiðast væri þó að umbera lyktina. Frosti í Menntaskólanum í Kópavogi vann á hárgreiðslustofu í gær og virtist bera sig fagmannlega að við hárþvottinn. Hann bjóst þó ekki við því að hann myndi klippa eða lita. FRÉTTIR 6 FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra átti í gær óvæntan fund með Junichiro Koizumi, forsætisráð- herra Japans, á þriðja degi opinberr- ar heimsóknar sinnar til Japans. Ekki var gert ráð fyrir fundinum í dagskrá heimsóknarinnar, en á hon- um ræddu ráðherrarnir tvíhliða sam- skipti ríkjanna, opnun sendiráða í Reykjavík og Tókýó, fiskveiðimál, hvalveiðar og baráttuna gegn hryðjuverkum. Halldór sótti heim ríkisstjóra Sait- ama ríkis, Yoshihiko Tsuchiya, í ná- grenni Tókýóborgar í gær og fyrir milligöngu ríkisstjórans var komið á fundi með japanska forsætisráð- herranum. „Ég þekki ríkisstjórann frá fornu fari,“ sagði Halldór við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Hann var forseti þingsins þegar ég kom í opinbera heimsókn sem sjávarút- vegsráðherra til Japans árið 1990. Hann er mikill Íslandsvinur og mikill áhugamaður um land og þjóð,“ bætti hann við. Mikil áhersla á hvalveiðar Að sögn Halldórs hafði ríkisstjóri Saitama milligöngu um fundinn með japanska forsætisráðherranum. Hann hafi setið hann ásamt dóttur sinni, sem er þingmaður á japanska þinginu. „Við ræddum vitaskuld þá stöðu sem komin er upp í alþjóðamálum, en mest ræddum við þó gagnkvæm samskipti þjóðanna og opnun sendi- ráðs Íslands í Tókýó. Við vorum sam- mála um mikilvægi sjávarútvegs á al- þjóðavettvangi og forsætis- ráðherrann fagnaði því sérstaklega að Íslendingar hefðu gengið að nýju í Alþjóðahvalveiðiráðið,“ sagði Hall- dór ennfremur. Hann sagðist ekki hafa gefið Jap- önum neinar tímasetningar um hve- nær Íslendingar hyggjast hefja hval- veiðar að nýju. „Ég sagði þeim hins vegar að við ættum ekki aðra kosti en að hefja þær að nýju innan tíðar. Hvalveiðar eru hluti af fiskveiði- stefnu beggja þjóða og ráðherrann upplýsti, eins og raunar hefur komið fram áður, að Japanir eru reiðubúnir að kaupa af okkur hvalkjöt þegar við hefjum hvalveiðar.“ Utanríkisráðherra sagðist skynja mikla áherslu Japana á rétt þjóða til hvalveiða. Bæði utanríkisráðherrann og nú forsætisráðherrann hefðu lagt þunga áherslu á þennan rétt í máli sínu og kvaðst hann fagna stuðningi við sjónarmið sem íslensk stjórnvöld hefðu lengi haldið fram. Gaman að verða vitni að þeirri athygli sem land og þjóð fær Með utanríkisráðherra og eigin- konu hans, Sigurjónu Sigurðardótt- ur, eru með í för ríflega fimmtíu fulltrúar viðskiptalífsins hér á landi, auk fjölda listamanna og íþrótta- fólks. „Þetta er viðamesta opinbera heimsóknin sem ég hef tekið þátt í. Ísland er mjög áberandi í Tókýóborg og í Japan almennt. Það er reglulega gaman að verða vitni að þeirri at- hygli sem land og þjóð fær hér um þessar mundir,“ sagði Halldór Ás- grímsson ennfremur. Hann bætti því við að gjörningur listamannsins Hall- dórs Ásgeirssonar í gær hefði vakið mikla athygli, en hann fólst í því að bræða saman tvo steina, annan jap- anskan úr Fuji-fjalli frá árinu 847og hinn íslenskan úr Heklu frá því 1194. Þá hefði mikið fjölmenni sótt tón- leika Kammersveitar Reykjavíkur í gærkvöldi, en sveitin flutti einkum íslensk verk eftir Atla Heimi Sveins- son, Þorkel Sigurbjörnsson og Pál Pampichler Pálsson og sveitinni á eftir verið ákaft fagnað. Opinber heimsókn utanríkisráð- herra heldur áfram í dag og verður þá formleg opnun sendiráðs Íslands í Tókýó. Sendiherra Íslands í Japan er Ingimundur Sigfússon. Á laugardag heldur ráðherrann í opinbera heim- sókn til Kína, en síðar í næstu viku heldur hann í opinbera heimsókn til Rússlands. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra átti óvæntan fund með forsætisráðherra Japans í gær „Viðamesta opinbera heim- sókn sem ég hef tekið þátt í“ Morgunblaðið/Lárus Karl Ingason Myndlistarmaðurinn Halldór Ásgeirsson bræðir saman steina úr Fuji-fjalli og Heklu við Hikawa-hofið í Saitama í gærmorgun. Utanríkisráðherrahjónin fylgjast með, en verkið verður á myndlistarsýningu í Tókýó. Sendiráð Íslands í Tókýó formlega opnað í dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.