Morgunblaðið - 25.10.2001, Síða 8

Morgunblaðið - 25.10.2001, Síða 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Félag ferðamálafulltrúa ársgamalt Mikilvægt samstarf í ferðaþjónustu FÉLAG ferðamála-fulltrúa á Íslandi(FFÍ) er ársgamalt um þessar mundir. Í félag- inu eru nú um 30 félagar sem starfa víðs vegar um landið. Félagsmenn hafa mismunandi starfsheiti, þeir eru ferðamálafulltrú- ar, forstöðumenn upplýs- ingamiðstöðva og markaðs- og upplýsingafulltrúar. Þeir eiga það allir sameig- inlegt að vinna að ferðamál- um svæða eða sveitarfé- laga. Ásborg Arnþórsdótt- ir, ferðamálafulltrúi upp- sveita Árnessýslu, er ritari félagsins. Aðrir í stjórn eru Jón Halldór Jónasson, ferðamálafulltrúi Hafnar- fjarðar, formaður og Aur- óra Friðriksdóttir, ferða- málafulltrúi Vestmannaeyja, gjaldkeri. Morgunblaðið spurði Ásborgu út í hlutverk og tildrög að stofnun félagsins. – Hvað leiddi til stofnunar Fé- lags ferðamálafulltrúa á Íslandi? „Ferðamálafulltrúar höfðu um nokkurra ára skeið haft með sér óformlegt samstarf. Þeir höfðu haldið samráðsfundi og einnig hist á ýmsum ráðstefnum og fundum um ferðamál. Í framhaldi af þess- um samskiptum var ákveðið að stofna félag, þannig að með skil- virkari hætti mætti vinna að ákveðnum markmiðum án þess þó að verða of formleg. Félagsmönnum var tíðrætt um mikilvægi þess að viðhalda léttleik- anum í samstarfinu og er móttó fé- lagsins „gaman saman“. Vísar það annars vegar til þess hve samvinna okkar í milli er mikilvæg og hins vegar til þess hvað það er ævinlega gaman þegar við hittumst.“ – Hvert er hlutverk félagsins? „Félaginu er ætlað að vera vett- vangur fyrir samstarf, faglegrar umræðu og fræðslu. Hlutverk þess og markmið eru m.a.: Að vera þátt- takandi í þróunarstarfi í ferðaþjón- ustu sem í gangi er í landinu hverju sinni sem og á alþjóðlegum vett- vangi. Efla samstarf ferðamálafull- trúa við stofnanir og samtök innan ferðaþjónustunnar og vera upplýsingabanki fyrir starfandi ferðamálafulltrúa. Vera ráðgef- andi um endurmenntun og halda saman upplýsingum um starfsvett- vang og starfsskipan ferðamála- fulltrúa. Vinna í nánu samstarfi við ferðamálafulltrúa annars staðar í heiminum til að styrkja tengsl, þekkingu og hæfni félagsmanna.“ – Hafið þið verið í samskiptum við sambærileg félög erlendis? „Á stofnfundi okkar félags var ákveðið að sækja um aðild að EUTO (European Tourist Offic- ers) sem er félag ferðamálafulltrúa í Evrópu. EUTO heldur árlega ráðstefnu í tengslum við aðalfund og í ár var hún haldin í Týról í Austurríki í byrjun október. Ráð- stefnuna sóttu rúmlega 100 manns víðs vegar að úr Evrópu og þar á meðal tveir fulltrúar frá Íslandi. Ráðstefnan var mjög fróðleg, farið var í skoð- unarferðir á fjölsótta ferðamannastaði og erindi flutt um ýmis verkefni á sviði ferðaþjón- ustu. Íslensku fulltrúarnir komu heim með ýmsar hugmyndir og góða tengingu við kollega um alla Evrópu sem býður upp á áfram- haldandi samstarf í framtíðinni og er þegar farið að huga að sam- starfsverkefnum.“ – Hvað er það sem vakti athygli ráðstefnugesta EUTO á Íslandi? „Ísland fékk þar mikla, jákvæða athygli þar sem við vorum að ganga í EUTO og kynna okkar fé- lag, en áhugi manna á Íslandi er greinilega mikill í Evrópu. Strax var spurt hvenær við gætum hald- ið ráðstefnuna, því menn brunnu í skinninu að koma og var ákveðið að stefna á árið 2005 á Íslandi. Það kom skemmtilega á óvart að evrópsku ferðamálafulltrúarnir höfðu mikinn áhuga á gaman sam- an-mottóinu okkar og ætla félögin í Bretlandi og Skotlandi að taka upp umræðu á þessum nótum í sínum röðum, töldu það skipta máli og kannski væri þetta það sem þyrfti til að blása lífi í sína félagsmenn. Skotarnir gengu svo langt að læra orðin og gera þau að sínum en þeir halda ráðstefnu EUTO að ári í Stirling þar sem yfirskriftin verð- ur „Regeneration and sustain- ability“ en undirtitillinn gaman saman.“ – Er talið að atburðirnir 11. september hafi mikil áhrif á ferða- þjónustu hérlendis? „Þetta hefur mikið verið rætt hér að undanförnu og sannarlega hafa þegar orðið áhrif, en erfitt er að spá um framtíðina. Á ráðstefnu EUTO voru umræður og var mál manna að þó áfallið væri stærra og meira en fyrr hefði þekkst hefði ýmislegt dunið á áður. Rifjuðu menn upp ýmsa atburði í ljósi sög- unnar og reynslu af þeim, flugrán, hryðjuverk, náttúru- hamfarir og kjarnorku- slys. Menn voru ótrú- lega bjartsýnir og töldu ekki líkur á miklum langtímaáhrifum á ferðaþjónustu í Evrópu. Í Evrópu- löndum verður gert átak „Visit Europe“ og aukin áhersla lögð á innanlandsmarkað og nágranna. Ímynd Íslands sögðu þeir vera hreinleika og öryggi og töldu að Ís- lendingar þyrftu ekki að óttast svo mjög. Einhverja mánuði tæki þó að komast yfir flughræðsluna, en svo færðust hlutirnir væntanlega aftur í átt til fyrra horfs.“ Ásborg Arnþórsdóttir  Ásborg Arnþórsdóttir er fædd í Reykjavík 1957. Hún er stúdent frá MH 1977 og lauk síðar BA- prófi í uppeldis- og mennt- unarfræði og námi í náms- og starfsráðgjöf frá HÍ. Ásborg hef- ur starfað á ýmsum sviðum ferða- þjónustu í gegnum tíðina, lengst af á Ferðaskrifstofu ríkisins og Íslands og sem ferðamálafulltrúi uppsveita Árnessýslu síðastliðin 5 ár. Ásborg er gift Jóni K.B. Sig- fússyni, veitingamanni í Mat og menningu, Þjóðmenningarhús- inu. Þau eiga börnin Daníel Mána, 18 ára, og Guðrúnu Gígju, 10 ára. Áhugi á Ís- landi greini- lega mikill Vonandi fara landsfeðurnir að öllu með gát, líkurnar á smiti eru kannski ekki eins stjarnfræðilegar og landlæknir vill vera láta. ÁKÆRA lögreglustjórans í Reykja- vík gegn sjö piltum á aldrinum 17–19 ára, sem sakaðir eru um innbrot í fjölda bifreiða, var þingfest í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær. Misjafnt er hve stóran þátt í inn- brotunum piltarnir eru sakaðir um að eiga en samkvæmt ákærunni voru þeir viðriðnir innbrot í 14 bifreiðar á höfuðborgarsvæðinu. Þrír piltanna eru sakaðir um að hafa brotist inn í fimm bíla sem stóðu á bifreiðastæði við flugstöðina í Reykjavík aðfaranótt laugardagsins 14. apríl. Piltarnir brutu rúður í bif- reiðunum og stálu þeim verðmætum sem þeir fundu, yfirleitt geislaspil- urum og hátölurum. Tveimur sólar- hringum síðar kom einn piltanna ásamt tveimur öðrum félögum sínum en þá var brotist inn í sjö bíla. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins hafa fjórir piltanna nokkurn sakaferil að baki. Sjö piltar ákærðir fyrir innbrot í bíla SÁ árstími er nú runninn upp að flokkar manna leita til heiða og veiða rjúpur í jólamatinn. Rjúpum bjóðast þá fá skjól í sínum nátt- úrulegu heimkynnum en hópur rjúpna hefur hins vegar séð sér leik á borði og dvalist undanfarna daga í Lindahverfi í Kópavogi og spíg- sporað þar um án teljandi ótta. Rjúpnaskjól í Lindum ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.