Morgunblaðið - 25.10.2001, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 25.10.2001, Qupperneq 18
SUÐURNES 18 FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ SKATTTEKJUR í sveitarfélögunum á Suðurnesjum eru hlutfallslega mestar í Sandgerði og bæjarstjórn Sandgerðis eyðir einnig mest allra í rekstur málaflokka. Sandgerðisbær fékk um 230 þús- und króna tekjur á hvern íbúa á árinu 2000, eins og sést á meðfylgjandi yf- irliti, en það eru liðlega 20% meiri skatttekjur en í Reykjanesbæ. Reykjanesbær er raunar eina sveit- arfélagið á Suðurnesjum sem er með tekjur aðeins undir meðaltali sveitar- félaga sem eru með 1.000 íbúa eða fleiri. Þessi niðurstaða fæst þótt útsvar- stekjur á hvern íbúa séu mestar í Reykjanesbæ en þær eru einnig háar í Grindavík. Sveitarfélögin á Suður- nesjum leggja á hámarksútsvar nema Sandgerði sem gefur íbúum sínum smáafslátt. Hins vegar hefur Sandgerðisbær margfalt meiri tekjur af fasteignagjöldum en hin sveitarfélögin, til dæmis þrefalt meiri fasteignagjöld á hvern íbúa en Reykjanesbær. Það skýrist væntan- lega af fasteignasköttum sem Sand- gerðingar fá af Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar á Keflavíkurflugvelli og fleiri byggingum á flugstöðvarsvæð- inu en það er innan bæjarmarka Sandgerðis. Þá fá sveitarfélögin afar misjöfn framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, Reykjanesbær lang- minnst en Vatnleysustrandarhrepp- ur langmest. Útgjöld til málaflokka eru hjá flestum sveitarfélaganna í nokkrum takti við tekjurnar. Þannig eyðir Sandgerðisbær áberandi mest og langt yfir meðaltali, eins og sést á meðfylgjandi töflu, útgjöld hans á hvern íbúa voru þannig 30% meiri en hjá Gerðahreppi á síðasta ári. Rekst- ur málaflokka hjá Gerðahreppi er að- eins um 78% af skatttekjum sem er undir landsmeðaltali á meðan hin sveitarfélögin ráðstafa 84–88% af skatttekjum jafnóðum til góðra mála. Skuldir yfir viðmiðunarmörkum Skuldastaða sveitarfélaganna á Suðurnesjum er afar misjöfn og þar með greiðslubyrði lána. Mestu skuld- ir á íbúa eru í Vatnsleysustrandar- hreppi, liðlega 420 þúsund, og í Reykjanesbæ, 366 þúsund kr. Vatns- leysustrandarhreppur hefur staðið í uppbyggingu sem miðar að stór- felldri fjölgun íbúa sveitarfélagsins og Reykjanesbær hefur lokið miklu átaki við uppbyggingu grunnskóla bæjarins, meðal annars vegna ein- setningar þeirra. Meðaltal yfir landið er 257 þúsund. Aftur á móti skulda Grindvíkingar lítið þrátt fyrir um- talsverðar framkvæmdir á undan- förnum árum. Skuldastaða Grinda- víkurbæjar hefur því verið enn betri fyrir fáeinum árum. Sem hlutfall af skatttekjum eru heildarskuldir Vatnsleysustrandar- hrepps og Reykjanesbæjar nokkuð háar eða 190–200%. Meðaltal sveitar- félaga með yfir 1.000 íbúa er 130% og hefur gjarnan verið miðað við þá þumalfingursreglu að stjórnendur sveitarfélaga þyrftu að fara að gá að sér þegar þetta hlutfall væri komið yfir 150%. Það ætti að vera viðvörun til stjórnenda Vatnsleysustrandar- hrepps og Reykjanesbæjar. Það skal tekið fram að skuldir félagslega íbúðalánakerfisins og hafnasamlags eru fyrir utan þessar skuldatölur. Aðstæður geta stundum réttlætt verulegar skuldir. Þannig hefur íbú- um allra sveitarfélaganna á Suður- nesjum fjölgað á undanförnum árum og virðist sú þróun halda áfram. Það leiðir til aukinna tekna og léttir skuldabyrðina á hvern íbúa. Þá þarf að líta til þess að oft skuldsetja sveit- arfélög sig tímabundið til að koma þörfum framkvæmdum í höfn og nota síðan næstu ár til að greiða skuldirnar niður. Það er til dæmis yf- irlýst markmið stjórnenda Reykja- nesbæjar. Sandgerði og Gerðahrepp- ur eru í verulegum framkvæmdum við skólamannvirki á árinu 2001 og koma þær ekki inn í þessar tölur. Á móti þessum skuldum eiga sveit- arfélögin á Suðurnesjum miklar eignir, til dæmis verðmæta eignar- hluta í Hitaveitu Suðurnesja hf. Hafa sumir talið að sveitarfélögin væru að framkvæma út á þau verðmæti. Þótt enn hafi ekki myndast neitt verð á hlutabréfin telja menn að góður markaður verði fyrir þau þegar að því kemur að einhverjir vilji selja. Eftir því sem næst verður komist hefur þó ekkert sveitarfélaganna lýst því yfir að það muni selja hlutabréf í Hitaveitu Suðurnesja hf. Greiðslubyrði sveitarfélaganna af lánum er mismunandi eins og skuld- irnar. Öll eru þau yfir landsmeðaltali nema Grindavík. Afborganir og vext- ir lána eru þannig meiri en sem nem- ur afgangi af skatttekjum hjá Reykjanesbæ og Sandgerði og lítill eða enginn afgangur er hjá Gerða- hreppi og Vatnsleysustrandarhreppi. Það þýðir að til dæmis Reykjanes- bær myndi auka skuldir sínar þótt hann legði ekki krónu í fjárfestingar. Staðan er litlu betri hjá hinum sveit- arfélögunum á Suðurnesjum, auðvit- að að Grindavíkurbæ undanskildum. Öll sveitarfélögin fjárfestu veru- lega á síðasta ári og þurftu að taka meginhlutann eða allt fjármagnið að láni. Þannig námu fjárfestingar Vatnsleysustrandarhrepps 80% af skatttekjum, svo dæmi sé tekið, en það er vegna stækkunar Voga í kjöl- far markaðsátaks sem hreppsyfir- völd stóðu fyrir. Hefur hreppsnefnd- in tekið nokkra áhættu til þess að ná markmiðum sínum á stuttum tíma og má lítið út af bera til þess að vand- ræði skapist. Sveitarfélögin á Suðurnesjum önnur en Grindavík eru skuldug og sum þurfa að fara að gá að sér Lítill eða eng- inn afgangur til fjárfestinga Sveitarfélögin á Suðurnesjum eru frekar skuldug og fjárfesta þótt þau hafi lítinn af- gang. En skuldabyrðin léttist með fjölgun íbúa og þau eiga verðmætar eignir. Helgi Bjarnason gluggaði í Árbók sveitarfélaga. Suðurnes                                  ! "  #  $  !" # $ % # &''# ( ) * + ,      -             %" %  "'# . # "' # /   #   ! #  !&# $ 0 # & 0#   !! && #! #! &"# ' # /  *  11 ' %& #$ #  # "''# 0"# 2 )  !& &' #' & "&# 30# 3.# 4*    5               ! "          (  )   *++ , * -    . (    /  #  6    '&/ '%/ ''/ %'/ '$/ ' / / &/ $/ !/ &/ #/ !/ %'/ #/ !/ / #/ helgi@mbl.is BYRJAÐ var að frysta síld hjá Sam- herja hf. í Grindavík í gær eftir að Grindvíkingur landaði þar 150 tonnum. Síld hefur ekki verið fryst á staðnum í sjö eða átta ár. Samherji hefur verið að búa sig undir síldarfrystingu í húsum sem kennd eru við Hraðfrystihús Þór- kötlustaða. Þar hafa verið settar upp fjórar flökunarvélar. Fyr- irtækið rekur flokkunarstöð við bræðsluna en hún hefur aðeins ver- ið notuð vegna loðnufrystingar. Óskar Ævarsson rekstrarstjóri seg- ir að hægt sé að flaka 200 tonn á sólarhring. Einhver síldveiði var á Eldeyj- arsvæðinu í fyrrinótt eftir heldur dapran tíma og kom Grindvíkingur sem er eitt af skipum Þorbjörns- Fiskaness hf., með fyrstu síldina til Grindavíkur um hádegið. Bátur frá Samherja er nú einnig kominn á veiðisvæðið. Um 30–40 manns fá vinnu við síldarfrystinguna og segir Óskar að betur hafi gengið að fá fólk í vinnsl- una í vetur en oft áður. Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Síld fryst eftir margra ára hlé Grindavík
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.