Morgunblaðið - 25.10.2001, Side 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 23
GASTROLUX pönnur og pottar eru
nú fáanleg á Íslandi. Gastrolux vör-
urnar eru húðaðar með glerkeramiki
sem gerir að verkum að ekki þarf að
nota feiti við matreiðsluna og matur
brennur ekki við.
Pottarnir og pönnurnar þola allt
að því 260 gráða hita, eru með fimm
ára ábyrgð vegna notkunar í heima-
húsum og ævilangri ábyrgð gegn
vindingi. Hægt er að nota málm-
áhöld við eldamennskuna þar sem
áhöldin eru húðuð með glerkeramiki.
Innflytjandi er Gastrolux á Íslandi,
Smiðjuvegi 11. Vörurnar eru ekki
seldar í verslunum.
Viðskiptavinur Hagkaups í Skeifunni spyr hvers
vegna rúnnstykki og vínarbrauð hafi hækkað
um 30–40% á einni nóttu?
Sigurður Reynaldsson, innkaupastjóri mat-
vöru hjá Hagkaupi, segir að rúnnstykki hafi
hækkað úr 50 krónum í 60 krónur og vínarbrauð
úr 85 krónum í 115. „Að vísu var vitlaust verð á
rúnnstykkjum einn dag þar sem þau voru seld á
70 krónur en það var strax leiðrétt,“ segir hann.
„Meginskýringin á þessum hækkunum er sú
Vínarbrauð
hækkuð um
29% í Hagkaupi
að við höfum ekki hreyft mikið við verðlaginu í
bakaríum okkar síðustu misserin. Vínarbrauð
hafa til að mynda ekki hækkað síðan 1999 og
svo gildir um fleiri vörutegundir, til dæmis
snúða. Undanfarna mánuði hafa orðið tvær
hækkanir hjá Myllunni, í október í fyrra og í
júlí á þessu ári, sem ekki hafa leitt til verð-
hækkana hjá okkur, fyrr en nú, en Myllan bak-
ar brauð og kökur fyrir allar verslanir Hag-
kaups.
Ástæður sem framleiðendur gefa eru þær að
launakostnaður og kostnaður við framleiðslu
hafi aukist,“ segir Sigurður Reynaldsson, inn-
kaupastjóri matvöru hjá Hagkaupi.
Ýmsar brauðvörur og sætmeti hafa hækkað nokkuð í verði.
NÝTT
Gastrolux
matreiðslu-
áhöld
FJÖGUR ný afbrigði Comodynes-
línunnar eru komin á markað.
Fyrstir komu hreinsiklútar og nú
hafa bæst í hópinn klútar sem fram-
kalla brúnan húðlit, eyða svitalykt
og hreinsa af augnfarða, sem og fyr-
ir húðina eftir sólbað.
Comodynes-klútarnir fást í apó-
tekum og stórmörkuðum. Umboð:
i&d ehf.
Morgunblaðið/Ásdís
Fleiri klútar
frá Comodynes
VEITINGASTAÐURINN Energia
Bar verður opnaður í Vetrargarð-
inum í Smáralind í lok næsta mán-
aðar. Energia Bar verður 100 fer-
metrar að stærð og mun taka um
70 manns í sæti, samkvæmt til-
kynningu. Eigendur staðarins eru
Júlía Margrét Jónsdóttir og Guð-
mundur Friðrik Matthíasson.
Boðið verður upp á létta og
ferska rétti fyrripart dagsins, svo
sem súpu og salatbar, auk rétta
dagsins. Þá verður áhersla lögð á
„orkumikla rétti“ og boðið upp á
„orkuríka ávaxta- og mjólk-
urhristinga“, að sögn. Afgreiðslan
er hröð fyrri partinn, en þegar líð-
ur á daginn tekur rólegri bar- og
kaffihúsastemmning við. Þá er
boðið upp á ítalska rétti svo sem
pasta, brauðrétti, osta og léttvín.
Þeir sem eru á hraðferð geta kom-
ið við og sótt mat til þess að taka
með sér, segir loks í tilkynningu.
Vetrargarðurinn er aust-
anmegin í Smáralind.
Nýr veitinga-
staður í
Smáralind
SPURT OG SVARAÐ UM NEYTENDAMÁL