Morgunblaðið - 25.10.2001, Síða 26

Morgunblaðið - 25.10.2001, Síða 26
ERLENT 26 FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ EFTIR að hafa farið árás- arflugferð yfir Afganistan sl. þriðjudag sagði undirlautinant Sara að sér þætti ekki rétt að kast- ljósinu væri beint sérstaklega að sér og öðrum kvenflugmönnum – né heldur þykir henni að það sem hún er að gera sé eitthvað sögu- legt. Og raunin er sú, að lítil athygli hefur beinst að kvenkyns orrustu- flugmönnum og vopnasérfræð- ingum í stríðinu gegn hryðju- verkamönnum, jafnvel þótt þetta sé einungis í annað sinn sem Bandaríkjaher tekur þátt í um- fangsmiklum hernaðaraðgerðum síðan flotinn ákvað að konur fengju að fljúga herflugvélum 1993. Kosovo var fyrsta tilvikið. „Mér hefur aldrei fundist það neitt merkilegt að ég sé flug- maður, ég bara sinni mínu starfi,“ sagði Sara. Hún er 25 ára, frá Bill- ings í Montana. „Mér finnst bara yfirleitt ekki rétt að það sé talað um konur sérstaklega.“ Af öryggisástæðum er einungis leyfilegt að gefa upp fornafn henn- ar, og kallmerki, sem er „Goalie,“ eða „Markmaður“. Sara varð undrandi á beiðni fjöl- miðla um viðtal. Hún segist stolt af því fordæmi sem Bandaríkin hafi sett með því að leyfa henni að fljúga árásarferðir. Hún er eini kvenkyns orrustuflugmaðurinn um borð í flugmóðurskipinu Theo- dore Roosevelt. Hin konan, sem er flugmaður á skipinu, flýgur að- stoðarflugvélum. Í Persaflóastríð- inu 1991 flugu konur vélum sem voru orrustuflugvélum til að- stoðar, og var mikið fjallað um þær í fjölmiðlum. Umræða vaknaði um þátttöku kvenna í orrustum, sérstaklega eftir að íraski herinn tók þyrluflugkonu til fanga. Nú fljúga konur háþróuðustu herflug- vélum og varpa sprengjum á stöðvar talibana og al-Qaeda á meðan loftvarnaskothríð dynur. Kvenhermenn í flotanum fengu fyrst leyfi til að læra að fljúga 1976, og voru þá settar í að fljúga eftirlits- og flutningavélum. Liðsforinginn Diana Cangelosi var ein af fyrstu konunum sem gekk í flotann beinlínis sem flug- maður. Hún gekk til liðs við flot- ann 1981 og ákvað að fljúga njósnavél. Samkvæmt öryggis- reglum hersins má nefna foringja fullu nafni ef þeir vilja það. Cangelosi er 46 ára, frá Wil- mette í Illinois. „Ég flaug því sem komst næst því að vera orrustu- flugvélar og konum var leyft að fljúga á sínum tíma,“ segir Cange- losi, sem nú er yfirmaður orr- ustustjórnstöðvar USS Roosevelt. „Það sem þær eru að fljúga núna er dálítið meira spennandi.“ Cangelosi er komin það langt í tignarröðinni að hún flýgur ekki lengur, en hún nýtur þeirrar stöðu sem hún er í núna, að stjórna vörn- um skipsins. „Þetta er nú eiginlega flottara starf vegna þess að það hefur með vopnakerfi að gera.“ Frá Roosevelt hafa verið gerðar næturárásir í um það bil viku, og hafa farið þaðan á loft F-14 Tom- cat orrustuvélar, EA-6B Prowler eftirlitsvélar og FA-18C Hornet árásarvélar. Þoturnar eru á lofti í fimm til átta klukkustundir í senn og taka eldsneyti á flugi. Þeim er stýrt frá flugumferðarstjórn og eftirlits- flugvélum, og mörgum af þeim vél- um er flogið af konum. Sara flýgur F-14 orrustuþotu og er siglingafræðingur og vopna- sérfræðingur vélarinnar. Hún stýrir leysigeislastýrðum sprengj- um og flugskeytum að skotmarki. Cangelosi kveðst „afar stolt“ af nýju flugkonunum og segist öf- unda þær. „Hlutirnir hafa breyst mikið á 20 árum,“ segir hún. Sara hrósaði konum eins og Cangelosi, sem hefðu varðað veg- inn og sýnt öðrum konum gott for- dæmi. „Mér hefur alltaf liðið vel sem konu meðal flugfólks, allar götur síðan ég fór fyrst í flug- skóla,“ sagði Sara. „Við erum að vísu ekki margar, en ég held að skapgerð okkar allra sé sú rétta. Annars værum við ekki að þessu.“ „Ég sinni bara mínu starfi sem flugmaður“ Konur fljúga árásarferðir yfir Afganistan Um borð í USS Theodore Roosevelt. AP. AP Undirlautinant Sara fyrir framan F-14 Tomcat-orrustuþotu í flugskýlinu á USS Theodore Roosevelt. TVEIR af hverjum þrem Banda- ríkjamönnum telja að besta leiðin til að koma í veg fyrir að hryðjuverk verði unnin í Bandaríkjunum sé sú, að Bandaríkin láti til sín taka við að leysa vandamál á alþjóðavettvangi, samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar. Hefur afstaða bandarísks almennings hvað þetta varðar breyst verulega. Könnunin var unnin af Pew-rann- sóknarmiðstöðinni og leiðir enn- fremur í ljós aukið fylgi við að tekið sé tillit til hagsmuna bandalagsþjóða þegar tekist er á við alþjóðleg hryðjuverkasamtök. Þá kom fram lítið eitt minnkandi traust á aðgerð- um Georges W. Bush Bandaríkja- forseta gegn hryðjuverkum, þótt fjórir af hverjum tíu séu enn þeirrar skoðunar að forsetinn standi sig mjög vel. Þá hefur stuðningur við eldflaugavarnakerfi aukist lítillega, þótt í því efni séu skýr skil eftir flokkslínum. Áður en hryðjuverkin voru unnin í Bandaríkjunum 11. september sl. taldi rétt tæplega helmingur þeirra sem Pew spurði álits að Bandaríkja- menn ættu að taka mikið tillit til hagsmuna bandalagsþjóða sinna við mótun utanríkisstefnu sinnar. Sex af hverjum tíu aðspurðra sögðu að leið- togar Bandaríkjanna ættu að hafa mjög í huga hagsmuni bandamanna sinna þegar stríðið gegn hryðju- verkamönnum væri skipulagt. Einnig kom fram í könnuninni að nærri tveir þriðju höfnuðu þeirri fullyrðingu að átökin væru á milli íslamskra þjóða annars vegar og vestrænna þjóða hins vegar. Töldu þeir um að ræða átök við lítinn hóp öfgamanna. Meirihluti aðspurðra, 56 af hundr- aði, taldi að Bandaríkin ættu áfram að taka málstað Ísraela með sama hætti og verið hefur. Breytt afstaða bandarísks almennings til utanríkisstefnu Meirihlutinn hlynntur afskiptum erlendis Washington. AP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.