Morgunblaðið - 25.10.2001, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 25.10.2001, Qupperneq 28
ERLENT 28 FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ BROTIÐ var blað í sögu átakanna á Norður-Írlandi í fyrradag þegar Írski lýðveldisherinn (IRA) hóf af- vopnun í fyrsta sinn frá því að hann hóf vopnaða baráttu sína gegn breskum yfirráðum fyrir 30 árum. Þessum tíðindum var fagnað sem mikilvægum áfanga í áttina að var- anlegum friði en fréttaskýrendur bentu á að enn væri mörgum stórum spurningum ósvarað. Til að mynda er enn óljóst hversu mörg vopn Írski lýðveldisherinn tók úr notkun, hvernig það var gert og hvort hann hyggst halda afvopnun- inni áfram. Nokkrar hreyfingar mót- mælenda, sem berjast fyrir því að Norður-Írland verði áfram hluti af Bretlandi, tóku tíðindunum fálega og bendir það til þess að enn sé langt í að varanlegur friður verði tryggður á Norður-Írlandi. Alþjóðleg afvopnunarnefnd stað- festi að IRA hefði tekið ótiltekinn fjölda vopna „algjörlega og sannan- lega úr notkun“ en sagði ekkert um hvernig það hefði verið gert. David Trimble, fyrrverandi for- sætisráðherra heimastjórnarinnar á Norður-Írlandi, kvaðst hafa verið fullvissaður um að IRA gæti aldrei notað vopnin aftur. „Þetta er dag- urinn sem okkur var sagt að myndi aldrei koma, en ég trúði því alltaf að hann kæmi,“ sagði hann. Talið er að annaðhvort hafi verið hellt steypu inn í neðanjarðarvop- nabúr IRA eða að vopnin hafi verið eyðilögð. Trimble neitaði því að IRA hefði aðeins steypt yfir innganga vopnabúranna. „Beitt var aðferð sem fullnægir lagalegu skilgreining- unni á afvopnun og ég tel það afar mikilvægt.“ Fyrir nokkrum árum var talið nánast útilokað að Írski lýðveldis- herinn myndi afvopnast, enda leit hann þá á afvopnun sem algjöra upp- gjöf ef hún væri ekki liður í sam- komulagi um að Norður-Írland sam- einaðist Írlandi. Margir fréttaskýrendur telja að IRA hafi fallist á afvopnunina vegna óbeitar almennings á hryðjuverkum eftir árásina á Bandaríkin 11. september. The New York Times sagði í gær að stuðningsmenn Írska lýðveldishers- ins í Bandaríkjunum hefðu lagt fast að honum að „rjúfa öll tengsl við hryðjuverk“. 30 ára vopnaðri baráttu IRA lokið? „Við eigum langa göngu fyrir höndum en við höfum náð mjög mik- ilvægum áfanga,“ sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands, tók í sama streng og sagði engan vafa leika á mikilvægi tilslökunar IRA. „Ég veit að þetta skref hefur verið stórmál fyrir leiðtoga IRA og ég viðurkenni að þetta var ekki auð- veld ákvörðun fyrir þá.“ Nokkrir forystumenn lýðveldis- sinna sögðu að ákvörðun IRA mark- aði í raun endalok 30 ára vopnaðrar baráttu lýðveldishersins. Harðlínu- menn, sem hafa klofið sig út úr Írska lýðveldishernum, sökuðu hann um uppgjöf og svik við málstað lýðveld- issinna. Nokkrir af þingmönnum flokka mótmælenda á Norður-Írlandi höfn- uðu hins vegar yfirlýsingu Írska lýð- veldishersins og sögðu hann verða að halda afvopnuninni áfram undir eft- irliti afvopnunarnefndarinnar. Gregory Campbell, þingmaður Lýðræðislega sambandsflokksins, flokks klerksins Ians Paisleys, sagði að fólk ætti ekki að „einblína á orða- gjálfur“ Írska lýðveldishersins og krafðist þess að hann eyðilegði öll vopn sín. Trimble hyggst endurreisa heimastjórnina Írski lýðveldisherinn hóf afvopn- unina að beiðni leiðtoga Sinn Fein sem sögðu hana nauðsynlega til að bjarga heimastjórninni sem flokkar mótmælenda og kaþólskra mynduðu samkvæmt friðarsamningnum frá 1998. Ráðherrar flokka mótmælenda höfðu sagt af sér vegna tregðu IRA til að afvopnast og breska stjórnin stóð frammi fyrir því að þurfa að leysa heimastjórnina upp endanlega ef samkomulag næðist ekki. Búist er við að ákvörðun IRA verði til þess að David Trimble dragi í dag til baka afsagnir ráðherra flokks síns, Sambandsflokks Ulster (UUP). Hann hefur einnig boðað til fundar í framkvæmdastjórn flokks- ins á laugardag til að leita eftir stuðningi hennar við að flokkurinn gangi aftur í stjórnina. Einn þingmanna UUP, Jeffrey Donaldson, sagði að flokkurinn ætti að áskilja sér rétt til að slíta stjórn- arsamstarfinu aftur haldi IRA ekki afvopnuninni áfram. Trimble sagði af sér embætti for- sætisráðherra heimastjórnarinnar í júlí og búist er við að hann leggi til á fundi framkvæmdastjórnarinnar að hann taki aftur við embættinu. Mikill ágreiningur er enn innan flokksins um hvort treysta eigi lýð- veldissinnum en talið er mjög líklegt að framkvæmdastjórnin fallist á að- ild að heimastjórninni. Hreyfingar mótmælenda afvopnist Tony Blair sagði að hryðjuverka- hreyfingar mótmælenda þyrftu nú að fara að dæmi IRA og afvopnast. Ekkert benti hins vegar til þess í gær að hreyfingarnar myndu láta vopn sín af hendi á næstunni. Mikil spenna er enn í Norður-Bel- fast og átök hafa blossað upp milli mótmælenda og kaþólskra íbúa borgarinnar. Margir óttast að slík átök geti stefnt friðarsamningnum í hættu þrátt fyrir sögulega ákvörðun Írska lýðveldishersins. IRA, Írski lýðveldisherinn, samþykkir að hefja afvopnun í fyrsta sinn Mikilvægur áfangi en margt óljóst Reuters Veggmynd í Belfast til minningar um fallna liðsmenn IRA, Írska lýð- veldishersins. Nú hafa forystumenn hans ákveðið að afvopnast. BANDARÍSKT könnunar- geimfar, Mars Odyssey, komst í fyrrakvöld á sporbraut um- hverfis Mars en bandarísku geimferðastofnuninni, NASA, hefur mistekist tvívegis á síð- ustu misserum að koma könn- unarfari á braut um plánetuna. Vísindamenn NASA segja að upplýsingar sem staðfesta þetta hafi borist. Geimfarið verður þó ekki komið á endan- lega braut um Mars fyrr en í janúar og mun þá svífa yfir plánetunni í um 400 km fjar- lægð. Tilgangurinn með leið- angrinum er að rannsaka yfir- borð Mars og kanna hvort þar sé að finna frosið vatn. Hálft ár er frá því geimfarinu var skotið á loft. Aftaka í Missouri MAÐUR sem dæmdur var fyr- ir að myrða 17 ára ungling árið 1982 var tekinn af lífi í Missouri í Bandaríkjunumn í gær. Stephen K. Johns var tekinn af lífi með banvænni sprautu laust eftir miðnætti að staðar- tíma. Johns, sem var 55 ára, rændi bensínstöð 17. febrúar 1982 og skaut starfsmann hennar, hinn 17 ára gamla Don D. Voepel, þrisvar sinnum í hnakkann af stuttu færi. John hafði 248 dali, um 25.000 ísl. kr., upp úr krafsinu. Þetta er sjöunda aftakan í Missouri á þessu ári og sú 53. frá því að dauðarefsingar voru teknar þar upp að nýju árið 1989. Johns hafði verið á dauða- deildinni frá í janúar 1983. Ræða breytta stjórnarskrá í Makedóníu MAKEDÓNSKA þingið hóf í gær umræður um drög að stjórnarskrárbreytingum, sem gera þarf í tengslum við sam- komulag um frið í landinu. Breytingarnar miða að því að bæta stöðu albanska minnihlut- ans. Fyrstu blönduðu lögreglu- sveitir Makedóna og Albana hafa tekið til starfa í Makedón- íu. Er það liður í friðarsam- komulagi sem náðist fyrir milli- göngu vestrænna sendimanna fyrr í haust og litið er á stofnun sveitanna sem mikilvægt skref í átt til friðar og sátta í landinu. Marklaus rannsókn BRESK vísindarannsókn, sem benti til þess að kúariða hefði borist í sauðfé, hefur verið lýst marklaus vegna þess að í ljós kom að vísindamennirnir rann- sökuðu heila nautgripa en ekki sauðfjár eins og þeir héldu. „Þetta virðast vera hræðileg mistök,“ sagði Peter Smith, formaður breskrar ráðgjafar- nefndar sem stjórnaði rann- sókninni. „Ég tel enn of snemmt að draga þá ályktun að rannsóknin hafi verið algjör tímasóun, en mér sýnist að svo hafi verið.“ Rannsóknin stóð í fimm ár og kostaði 217.000 pund, andvirði 32 milljóna króna. Ruglingurinn er rakinn til vísindamanna í Edinborg sem söfnuðu heilum úr kúm og sauðfé vegna tveggja rann- sókna. STUTT Á sporbraut um Mars TALIÐ er, að nígerískir her- menn hafi skotið meira en 100 manns til að hefna 19 félaga sinna, sem drepnir voru fyrir hálfum mánuði á mörkum níg- erísku héraðanna Benue og Taraba. Fundust lík þeirra mjög illa útleikin. Hermennirnir voru bornir til grafar á mánudag og þá fyrir- skipaði forseti landsins, Olus- egun Obasanjo, að morðingjar þeirra skyldu fá makleg mála- gjöld. Samdægurs réðust her- menn inn í þorpin Anyiin, Gbeji, Iorja og Vaase og myrtu meira en 100 manns að því er talsmaður nígerísku ríkis- stjórnarinnar skýrði frá. Hermennirnir, sem myrtir voru fyrir tveimur vikum, höfðu verið sendir á vettvang til að stilla til friðar milli tveggja andstæðra fylkinga en talsmað- ur hersins neitar því, að ætl- unin hafi verið að hefna morð- anna með árásum á þorpin. Fyrir tveimur árum voru meira en 300 manns drepin í bænum Odi til að hefna dauða 12 lögreglumanna þar. Lögðu hermenn bæinn í rúst og Obas- anjo forseti hefur enn ekki séð ástæðu til að biðjast afsökunar á framferði þeirra. Mikil vargöld er í Nígeríu, annars vegar milli sumra ætt- flokka, sem eru alls 250 í land- inu, og hins vegar milli múslíma og kristinna manna. Fjölda- morð í Nígeríu Lagos. AFP. DAVID Blunkett, innanríkisráð- herra Bretlands, lýsti því yfir á þriðjudag að endurskoða ætti flokk- un kannabisefna og lækka þar með viðurlög við neyslu og vörslu þeirra. Kannabisefni eru nú flokkuð í B- flokk fíkniefna í Bretlandi, sem þýðir að viðurlög við vörslu þeirra geta numið allt að fimm ára fangelsi. Blunkett leggur hins vegar til að kannabisefni verði færð í flokk C, en honum tilheyra efni á borð við anab- ólíska stera og valíum. Varsla á efn- um í C-flokki til einkanota varðar í mesta lagi tveggja ára fangelsisvist og gefur ekki tilefni til handtöku. Í flestum tilfellum er auk þess aðeins beitt viðvörunum eða sektum, en ekki fangelsisrefsingum. Innanríkisráðherrann lýsti þess- ari skoðun sinni á fundi með þing- nefnd er fjallar um fíkniefnamál, en þingið þarf að samþykkja breyting- arnar áður en þær geta tekið gildi. Blunkett sagði að markmiðið með slíkum breytingum væri að gefa lög- reglunni svigrúm til að einbeita sér að baráttunni gegn hörðum fíkniefn- um, en lagði áherslu á að hann boðaði ekki lögleyfingu kannabisefna. „Kannabisefni yrðu áfram bönnuð og neysla þeirra ólögleg ... en skýrari greinarmunur yrði gerður á kannab- isefnum og fíkniefnum í A-flokki, eins og heróíni og kókaíni,“ sagði Blunkett. „Það er kominn tími til að nálgast þessi mál með heiðarlegum og skynsamlegum hætti og beina sjónum fyrst og fremst að þeim efn- um sem valda mestum skaða.“ Ráðherrann benti á að 68% af tíma bresku fíkniefnalögreglunnar færi í að fást við mál tengd kannabisefn- um, sem skilaði þó litlum árangri. Sagði hann að tillaga sín nyti stuðn- ings yfirmanns Lundúnalögreglunn- ar og margra lögreglustjóra víða um landið. Þess má geta að lögreglan í Brix- ton-hverfinu í suðurhluta Lundúna hefur gripið til þess ráðs að hætta handtökum vegna neyslu kannabis- efna, vegna mikils álags. Mikil umræða hefur átt sér stað í Bretlandi undanfarin misseri um hvort lögleyfa eigi kannabisefni. Talsmenn lögleyfingar fögnuðu yfir- lýsingu Blunketts sem skrefi í rétta átt, en margir baráttumenn gegn fíkniefnum lýstu áhyggjum af því að breytingarnar gætu leitt til aukinnar neyslu efnanna. Blunkett lýsti sig einnig fylgjandi því að leyfa notkun kannabisefna í lækningaskyni ef tilraunir, sem nú er unnið að, gefa góða raun. Kannab- isefni eru sögð virka vel til að lina þjáningar og minnka ógleði, sem oft fylgir töku sterkra lækningalyfja. David Blunkett, innanríkisráðherra Bretlands Flokkun kannabis- efna verði breytt London. AFP, AP. Reuters Kannabisræktun í Bekaa-dal í Líbanon. Stjórnvöld þar hafa stundum reynt að halda aftur af henni en yfirleitt með litlum áranguri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.