Morgunblaðið - 25.10.2001, Page 30
LISTIR
30 FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í GARÐI við Ártún 3 á Selfossi
er einn þriðji hluti sýningarrýmis
Gallerísamfélagsins GUK sem
stendur fyrir Garður, Udhus,
Kukke, eða garður, útihús, eld-
hús. GUK býður jafnan einum
listamanni að sýna á öllum þrem-
ur stöðunum samtímis en þar sýn-
ir nú Hildur Jónsdóttir. Sökum
þess að útihúsið er við Kirkebak-
ken 1 í Lejre í Danmörku og eld-
húsið í heimahúsi við Callinst-
rasse 8 í Hannover í Þýskalandi
átti gagnrýnandi þess einungis
kost að sjá þriðjung sýningarinn-
ar, eða þann hluta sem er í garð-
inum á Selfossi. Allir þrír hlutarn-
ir eru þó aðgengilegir á Netinu á
slóðinni www.simnet.is/guk. Þar
eru þeim þó því miður ekki gerð
það góð skil á að gesturinn nái að
upplifa þau til fulls. Ýmis ráð og
tækni er til svo að sýningar fái að
njóta sín vel á Netinu og vona ég
að sýningarhaldarar leggi rækt
við þann hluta af sýningarhaldinu.
Ekki er hægt að horfa fram hjá
því að langflestir sjá sýningarnar
eingöngu þar, hvort sem sýning-
arhöldurum líkar það betur eða
verr.
Í garðinum hefur Hildur komið
fyrir einu verki í tveimur hlutum.
Á grasinu liggur útbreitt sér-
saumað pils, skreytt með litlum
teikningum og orðinu „Velkom-
in“. Pilsið er undir plasthimni
væntanlega til að vernda það gegn
veðri og vindum. Það rýrir upplif-
unargildi verksins, einfaldlega
vegna þess að erfiðara er að skoða
það í gegnum plast. Hinn hluti
verksins er á þvottasnúrum heim-
ilisins. Þar hefur Hildur hengt
upp ljósmyndir með þvottak-
lemmum og spjald með lítilli sögu
á. Ljósmyndirnar eru teknar af
gjörningi sem hún hélt í Þýska-
landi þar sem hún gengur út á gólf
klædd í pils (sama pils og sýnt er
undir plasthimninum), krýpur
níður og aðstoðarmaður festir
pilsið við gólfið. Þá klæðir hún sig
svo úr því og gengur í burtu.
Sagan á spjaldinu er af draumi
sem Hildi dreymdi. Hana
dreymdi að heimili hennar væri
flík sem hún var klædd í. Þetta
sýndi hún á myndlistarsýningu og
allt í kring stóðu kvenkyns ætt-
ingjar. Ein konan kom til hennar
og sagði að þetta væri ekki mynd-
listarsýning heldur jarðarför. Þá
byrjaði hún að sauma nöfn ein-
staklinga úr fjölskyldunni á flík-
ina.
Draumurinn er greinilega
kveikjan að verkinu á sýningunni
því pilsið er flíkin sem táknar
heimilið, eða hugmyndina um
heimilið. Hildur klæðir sig í heim-
ilið, festir það vandlega niður og
gengur svo út úr því. Þetta er fal-
legt og persónulegt verk hjá Hildi
þar sem hún er að skoða stöðu
sína í samfélaginu. Heimilið getur
orðið heimavinnandi fólki svo ná-
tengt að það hverfur aldrei úr
huga þess. Í gjörningnum gerir
Hildur hins vegar tilraun til að
skilja sig og heimilið að, festir það
niður og fer á brott. Í draumi
Hildar kemur fram að „þetta sé
ekki myndlistarsýning heldur
jarðarför“, sem gæti táknað að
verið sé að kveðja eða endurskoða
einn hlut og ný stefna verði tekin í
framhaldinu. Þannig má lesa í
þessa sýningu, næstum því eins
og draumráðandi, en eitt er víst
að Hildi eru ofarlega í huga hvers-
dagslegir hlutir og samfélagsleg-
ar vangaveltur.
Sýningin er að mörgu leyti vel
upp sett og verkin njóta sín ágæt-
lega þarna á snúrunum og gras-
inu. Skemmtilegra hefði þó verið
að sjá Hildi takast á við staðinn
sjálfan í stað þess að bjóða upp á
endurvinnslu eða framhald á eldri
verkum sem kannski eiga betur
heima annars staðar.
Út af heimilinu
MYNDLIST
G a l l e r í G U K
Opið fyrsta sunnudag hvers mán-
aðar og á lokadegi, annars eftir
samkomulagi. Til 28. október.
BLÖNDUÐ TÆKNI
HILDUR JÓNSDÓTTIR
Þóroddur Bjarnason
HAUSTSÝNING Íslenska dans-
flokksins verður á Nýja sviði Borg-
arleikhússins, sem tekið var í notkun
fyrir skömmu, í kvöld kl 20. Katrín
Hall, listrænn stjórnandi flokksins,
segir það einkar spennandi að takast
á við þessa fyrstu uppfærslu Ís-
lenska dansflokksins á Nýja sviðinu.
„Um er að ræða allt annars konar
rými en t.d. Stóra sviðið. Það er mun
hrárra og kallar á óhefðbundnari
sviðsetningu. Allar skiptingar og til-
færslur milli atriða fara til dæmis
fram fyrir opnum tjöldum, og ná-
lægðin við áhorfandann er mun
meiri. Þetta hefur að mörgu leyti
kallað á ólíka nálgun við verkin og
hefur haldist vel í hendur við þá ný-
sköpun og ögrun sem við höfum lagt
okkur eftir við dansuppfærslur á
nýjum íslenskum verkum,“ bendir
Katrín á.
Samspil dansara og tónlistar
Dansverkin þrjú sem haustsýn-
ingin samanstendur af eru öll frum-
flutt og verður lifandi tónlist á svið-
inu í tveimur þeirra. „Da“ eftir Láru
Stefánsdóttur er samið við sam-
nefnda fantasíu fyrir sembal eftir
Leif Þórarinsson, og mun Guðrún
Óskarsdóttir flytja tónverkið á svið-
inu. „Þetta dansverk er einkar áferð-
arfallegt, samið út frá ákveðnum
hughrifum og er mjög skemmtilegt
að geta sett það upp með lifandi tón-
list. Þannig verður til beint samspil
milli dansarans og hljóðfærleikarans
og nálgunin á verkið verður önnur.“
Verk Katrínar Hall, Milli heima, er
samið við tónlist eftir finnsku raf-
sveitina Pan Sonic og breska tónlist-
armanninn Barry Adamson. Hljóm-
eyki flytur tónlistina sem gefin
verður út hjá Eddu miðlun á næst-
unni á hljómdisknum „The Hymn of
the 7th Illusion“. Það var Tilrauna-
eldhúsið sem pantaði upphaflega
tónverkið af listamönnunum, og er
Milli heima samvinnuverkefni Ís-
lenska dansflokksins og Tilraunaeld-
hússins. „Nafn verksins vísar að
miklu leyti til tónlistarinnar í verk-
inu, en þar kallast á mjög sterkar
andstæður. Annars vegar er um að
ræða þrettán manna kór Hljómeykis
sem syngur á sviðinu, og hins vegar
raftónlist sem leikin er af bandi, og
mynda þessir flutningar mjög ólíka
hljóðheima. Þannig fjalla ég um and-
stæður í verkinu og hin óljósu skil
milli veruleika og blekkingar,“ segir
Katrín og bendir jafnframt á að um-
ræddur hljómdiskur verði kynntur
sérstaklega í nokkurs konar útgáfu-
teiti að lokinni sýningu annað kvöld,
24. október.
Verk Ólafar Ingólfsdóttur, Plan B,
segir Katrín verða mjög ólíkt dans-
verkunum sem á undan fara. Því
megi lýsa sem kæruleysislegu með-
an hin tvö séu tilfinningalegri. „Þetta
er mjög skemmtilegt verk, við prufu-
keyrðum það í Salsbury á Englandi í
sumar og fengum góðar viðtökur. Í
verkinu er Ólöf dálítið að fjalla um
það að eiga alltaf eitthvað „varaplan“
í lífinu, því maður veit aldrei hvort
hlutirnir gangi upp eins og maður
ætlaði. Óvæntir hlutir geta alltaf átt
sér stað, en þeir opna bara nýja
möguleika og ný tækifæri,“ segir
Katrín og bendir jafnframt á að um-
fjöllunarefni verkins kallist á marg-
an hátt á við sköpunarferlið við þró-
un dansverka. „Þó svo að höfundur
fari af stað með ákveðnar hugmynd-
ir, endar hann ekkert endilega með
það verk sem hann hafði í huga. Þró-
unin og vinnan með dönsurum getur
til dæmis leitt höfundinn í allt aðra
átt en hann ætlaði í upphafi. Þetta er
það sem gerir sköpunina svo spenn-
andi, þegar ný heild verður hrein-
lega til í gegnum samvinnu.“
Ólík verk í samræmdri umgjörð
Katrín segir verkin spennandi fyr-
ir uppfærslu á borð við þessa, þar
sem þau séu öll mjög ólík, en myndi
engu að síður mjög skemmtilega
heild. „Við höfum leitast við að skapa
þessari heild sterka, samræmda um-
gjörð í rýminu sem um ræðir. Þannig
hefur Stefanía Adolfsdóttir hannað
búninga fyrir öll þrjú verkin og Stíg-
ur Steinþórsson hannað sviðsmynd-
ina. Þá er lýsingarhönnun, sem unn-
in er af Elfari Bjarnasyni, nokkuð
frábrugðin því sem við höfum venju-
lega unnið með, enda kallar rýmið á
aðrar lausnir en við höfum unnið
með á Stóra sviðinu.“
En hvers vegna hafa þessi tilteknu
verk valist saman til uppfærslunnar?
„Ég hef leitast við á undanförnum
árum að viða að mér dansverkum
eftir íslenska danshöfunda, því þeir
þurfa að fá tækifæri til að þroskast
og vaxa sem danshöfundar og þróa
sinn persónulega stíl. Í þessu starfi
hefur flokkurinn sýnt verk eftir
Láru og Ólöfu og hefur þeim verið
mjög vel tekið, bæði hér á Íslandi og
erlendis. Eftirspurnin eftir íslensk-
um verkum hefur verið að aukast, og
kallar það auðvitað á að við fram-
leiðum krefjandi íslensk dansverk.
Þannig vildi ég gjarnan kalla til og
vinna með höfunda sem mér finnst
vera í stakk búnir að vinna á ögrandi
hátt til þess að viðhalda og skapa
dansflokknum þá sérstöðu sem hann
hefur byggt upp,“ segir Katrín og
bætir því við að nú séu ánægjulegir
tímar fyrir Íslenska dansflokkinn og
íslenska danshöfunda, þar sem eft-
irspurn eftir sýningum flokksins er-
lendis hafi farið mjög vaxandi und-
anfarið „Það er mjög ánægjulegt
fyrir okkur að finna fyrir árangri
þess starfs sem við höfum unnið und-
anfarin ár“.
Dansarar Íslenska dansflokksins
sem fram koma á sýningunni eru
Guðmundur Helgason, Guðmundur
Elías Knudsen, Hildur Óttarsdóttir,
Hlín Diego Hjálmarsdóttir, Jesus
De Vega, Katrín Ingvadóttir, Katrín
Ágústa Johnson og Trey Gillen. Að-
stoðarmaður danshöfundar í verkun-
um var Lauren Hauser.
Íslensk dansverk með lif-
andi og rafrænum tónum
Morgunblaðið/Golli
Íslenski dansflokkurinn frumsýnir Haust, þrjú dansverk eftir íslenska höfunda, í kvöld.
Haustsýning Íslenska dansflokksins 2001
verður frumsýnd á Nýja sviði Borgarleik-
hússins í kvöld. Flytur flokkurinn þrjú
frumsamin dansverk eftir íslenska höfunda.
Heiða Jóhannsdóttir heimsótti Katrínu
Hall, listrænan stjórnanda flokksins, á æf-
ingu og fékk dálitla innsýn í verkin.
heida@mbl.is
Á SÚFISTANUM, bókakaffi í versl-
un Máls og menningar, Laugavegi
18, verða kynntar dekur- og heilsu-
bækur í kvöld kl. 20. Útgefendur eru
Mál og menning, Forlagið og Al-
menna bókafélagið. Þá verður leikin
tónlist af nýjum slökunardiski sem
Ómi gefur út.
Kynntar verða bækurnar Jóga
fyrir byrjendur eftir Guðjón Berg-
mann; Láttu þér líða vel eftir Jane
Alexander; Hefðbundnar og nátt-
úrulegar lækningar, sem er í bóka-
flokknum Handhægu heilsubækurn-
ar, og Karlmannahandbókin eftir
Barböru Enander.
Dekurbækur
á Súfistanum