Morgunblaðið - 25.10.2001, Síða 39
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 39
Sjávaréttaveitingastaður
við Reykjavíkurhöfn
Október - Nóvember - Desember
Þín villibráð
Mitt jólahlaðborð
Okkar skötuveisla
Hennar humar-
og ostruveisla
Mömmu hádegisverður
Opnunartími:
Hádegi mán. - fös.t 12.00 - 14.30
Kvöld alla daga frá 18.00
stjörnubarinn
veitingasalurinn
(við Reykjavíkurhöfn)
Geirsgötu 9,
101 reykjavik,
sími 511 3474
netfang restaurant@restaurant.is
heimasíða www.restaurant.is
ÞEGAR Lyfjastofn-
un var sett á laggirnar
í fyrra, ákvað stjórn
Byggðastofnunar að
rita heilbrigðisráð-
herra bréf og vekja at-
hygli á því ákvæði
gildandi Byggðaáætl-
unar að leitast yrði við
að staðsetja nýja starf-
semi hins opinbera úti
á landsbyggðinni. Af
þessu hlaust nokkur
opinber umræða. Varð
niðurstaðan sú, að þá-
verandi heilbrigðis-
ráðherra ákvað að
beina því til yfirmanns
stofnunarinnar að öll
verkefni stofnunarinnar sem hægt
væri að vinna utan höfuðborgarsvæð-
isins yrðu unnin úti á landi.
Í fyrirspurnartíma á Alþingi á dög-
unum gekk ég eftir því við heilbrigð-
isráðherra hvaða árangur þetta hefði
borið. Í ljós kom, að eftir nokkra at-
hugun hafi það verið mat stjórnenda
stofnunarinnar að unnt væri að vinna
ýmis verkefni Lyfjastofnunar á
landsbyggðinni. Dæmi um þetta voru
eftirlit með starfsemi lyfjabúðar
sjúkrahúsa og hjúkrunarheimila.
Þetta er fróðlegt, vegna þess að því
hafði verið haldið fram að eðli þess-
arar starfsemi væri slíkt, að ekki væri
unnt að vinna hana nema í Reykjavík;
svo trúlegt sem það nú annars er. Nú
liggur það sem sé fyrir að
mat þeirra sem gerst
mega vita er að unnt sé að
vinna ýmis verk sem stofn-
uninni eru falin utan henn-
ar og á landsbyggðinni.
Þetta er athyglisvert og
ber að undirstrika.
Leiðu tíðindin eru hins
vegar þau, að ekki var í
neinni alvöru látið reyna á
þetta. Eðlilegast hefði það
verið, úr því að niðurstað-
an lá fyrir um að unnt væri
að vinna þessi verkefni úti
á landsbyggðinni, í sam-
ræmi við stefnumótun Al-
þingis, að tekin hefði verið
um það afdráttarlaus ákvörðun.
Þannig hefði verið unnið vendilega í
samræmi við byggðaáætlunina og
eitt skref stigið í áttina að því að op-
inberum störfum fjölgaði ekki minna
hlutfallslega á landsbyggðinni en á
höfuðborgarsvæðinu, eins og byggða-
áætlunin stefnir að.
Þess vegna er nú eðlilegt að taka
þetta mál upp að nýju. Það er ástæða
til þess að hvetja þá sem þessum mál-
um ráða, til þess að ákveða staðsetn-
ingu þessara verkefna úti á landi, svo
sem byggðaáætlun kveður á um og
búið er að sýna fram á að vel er fram-
kvæmanlegt.
Verkefnin út á land
Einar K.
Guðfinnsson
Byggðaþróun
Það er ástæða til þess
að hvetja þá sem þess-
um málum ráða, segir
Einar K. Guðfinnsson,
til að ákveða staðsetn-
ingu þessara verkefna
úti á landi.
Höfundur er alþingismaður.
Dúkar og teppi
Ármúla 23, sími 533 5060