Morgunblaðið - 25.10.2001, Page 41

Morgunblaðið - 25.10.2001, Page 41
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 41 NOKKUR umræða hefur orðið um húsnæðismál öryrkja og fleiri í kjölfar kærumáls ungs manns sem vill kalla borgaryfirvöld til ábyrgð- ar vegna umkomuleysis síns. Það vill svo til að vegna starfa minna hef ég nokkur kynni af mál- efnum verst setta hluta þessa fólks vegna þess að þjónustuembætti mitt er með starfstöð í miðborginni þar sem það er fremur að finna en annarsstaðar og er það víðkunn saga. Þessu tengjast hagir þeirra sem hafa lent illa út af sporinu í þjóðfélaginu, svo sem fanga sem lokið hafa afplánun og þess fólks sem kemur úr meðferð eftir lang- varandi neyslu. Allt á þetta fólk það sameiginlegt að eiga undir högg að sækja á þröngum og uppsprengdum leigu- markaði. Það getur ekki greitt markaðsverð fyrir húsnæði og sumt hefur fortíð sem vinnur gegn því. Það er í vondri aðstöðu til þess að stunda húsnæðisleit og getur ekki lagt út fyrirframgreiðslu. Það þarfnast þess að hafa gildan leigu- samning sem leigusalar eru tregir til að gera, ella fær það ekki styrk vegna leigukaupanna. Á þessu þarf að ráða bót þótt erfitt kunni að reynast. Það er mik- ið í húfi því öryrkjarnir þurfa af mörgum ástæðum fremur á því að halda en flestir aðrir að búa við ör- yggi í húsnæðismálum. Við megum til að styðja fyrrverandi fanga og fólk sem lokið hefur meðferð til þess að fóta sig í lífinu á ný, því ella er hætt við að vont verði verra með miklum tilkostnaði fyrir samfélagið. Hreinlega getur oltið á þessu hvort umrætt fólk verður nýtir þjóðfélagsþegnar sem borga sitt til samneyslunnar og reynist unnt að kosta uppeldi barna sinna eða hvort við tek- ur langvarandi ófremd- arástand með kostnaði við meðferðar- eða fangavist um árabil að viðbættum meðlögum sem falla þá á sameig- inlega sjóði lands- manna. Það verður að auka framboð á húsnæði á leigumarkaði, það verð- ur að koma því svo fyr- ir að þetta fólk eigi góða valkosti. Ég fagna því þeim úrbótum sem ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir með fé- lagsmálaráðherra í broddi fylkingar. En fleira þarf að koma til. Ef til vill væri framkvæmdasjóður lausnin fyrir þetta fólk eins og eldri borgara. Hugsanlega mætti fela stofnunum og líknarsamtökum, þess vegna einkaað- ilum, að byggja og reka leiguhúsnæði þar sem hið opinbera tryggði með einhverj- um hætti reksturinn. Þá þyrfti að kanna hvort ekki mætti koma því svo fyrir að húsnæðisstyrkur yrði skilinn frá örorkubótum og ráðstafað með öðr- um hætti en öðrum bótum. Oft er það nefnilega svo að í þröngri stöðu sinni freistast sumir öryrkjar til þess að draga að greiða húsaleiguna og lenda í vandræðum þegar húsnæðinu er sagt upp. Með þessum kosti væri hægt væri að greiða húsaleiguna beint til leigu- sala og hann yrði þá ekki í hættu með leigutekjur sínar þótt skatt- skyldar yrðu að fullu. – Kannski þyrftu þær þó ekki að verða það. Svo er nokkuð sem ekki má ger- ast en gerist samt hvert vor, að hópar fólks missi húsnæði sitt á vorin. Gistiheimilin leysa vanda stórs hluta þessa fólks þannig að þau heimila vetursetu en senda svo blessað fólkið á götuna yfir sum- arið. Það getur verið frískandi fyrir ungt og hraust fólk að búa í tjaldi nokkra daga yfir hlýjasta sumar- tímann en þetta fólk er ekki allt ungt og fæst sérlega hraust. Það dregur sig því í hitann í kjöllurum, sorpgeymslum og auðum bygging- um. Slíkt fyrirkomulag er okkur til rakinnar vansæmdar. Að lausn þessa vanda verður að vinda bráðan bug og af myndar- skap því eins og hér er sýnt fram á er mikið í húfi og réttlætismál að auki. Borgaryfirvöld og félagsmála- yfirvöld þurfa að koma með ráð hið fyrsta og önnur yfirvöld að veita stuðning svo að þessu böli og hneisu linni hið fyrsta. Húsvillt fólk Jakob Ágúst Hjálmarsson Húsnæðismál Öryrkjarnir þurfa af mörgum ástæðum frem- ur á því að halda en flestir aðrir, segir Jakob Ágúst Hjálmarsson, að búa við öryggi í hús- næðismálum. Höfundur er sóknarprestur í Dómkirkjunni. www.ef.is Skoðaðu þessa frábæru pönnu! Fást grunnar eða djúpar og sem grillpönnur. 24-26-28-30 sm. Feitislaus steiking. Hagstætt verð! 3 viðurk enningar „Frábær“ hjá þýskum neytenda samtöku m Besta steikarpannan í Evrópu.... samkvæmt dómi þýskra neytendasamtaka

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.