Morgunblaðið - 25.10.2001, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 25.10.2001, Qupperneq 55
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 55 SUÐURLANDSBRAUT 54 (BLÁA HÚSIÐ Á MÓTI SUBWAY) SÍMI 533 3109 ATH! Nýr opnunartími: Mán.-fös. kl. 12-18, lau. kl. 10-16 FIMMTUDAGSTILBOÐ Herragötuskór - leður Teg.: SAB 7205 Stærðir: 41-46 Litir: Svartir Verð áður 5.995 Verð nú 3.595 Sandlar - leður Teg.: SAB 6090 Stærðir: 36-46 Litir: Svartir og brúnir Verð áður 5.995 Verð nú 2.995 VARÐBYRGIÐ, forvarnarverðlaun Tryggingamiðstöðvarinnar, voru afhent í þriðja sinn í gær, miðviku- daginn 24. október. Verðlaunin voru veitt Umslagi ehf. í Reykjavík fyrir framúrskarandi framgöngu í forvarnarmálum. Jafnframt fengu Ísfiskur hf. í Kópavogi og Tandur hf. í Reykjavík sérstakar við- urkenningar fyrir öflugar for- varnir. „Þrátt fyrir að slysahætta í fyr- irtækjum sé mismikil eftir umfangi þeirra og eðli reksturs, skipta for- varnir miklu máli í rekstri allra fyr- irtækja. Góðar forvarnir lágmarka tjónatíðni og stuðla almennt að auknu rekstraröryggi. Forvarnir skipta starfsmenn fyrirtækja einnig mjög miklu máli og geta ráðið úr- slitum hvað varðar öryggi þeirra og um leið haft áhrif á líðan þeirra á vinnustað og tengst vinnu- framlagi einstakra starfsmanna. Starfsmenn fyrirtækjatrygg- ingadeildar TM eru í nánum tengslum við viðskiptavini og fylgj- ast markvisst og reglubundið með aðbúnaði og öryggismálum fyr- irtækjanna. Sérfræðingar félagsins veita í auknum mæli ráðgjöf um forvarnir til viðskiptavina. Vá- tryggingaiðgjöld taka mið af þeirri áhættu sem til staðar er hverju sinni og því hafa forvarnir talsvert mikið vægi við útreikning ið- gjalda,“ segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Verðlaunagripurinn, VARÐ- BERGIÐ, er hannaður og unninn af Gabríelu Friðriksdóttur, myndlista- manni. Tryggingamiðstöðin óskar Um- slagi ehf., Ísfiski hf. og Tandri hf. til hamingju, segir í fréttatilkynn- ingu. Morgunblaðið/Ásdís Sveinbjörn Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Umslags ehf., og Gunnar Felixson, forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar. Umslag ehf. fær for- varnarverðlaun Trygg- ingamiðstöðvarinnar FRÆÐSLUDAGUR nemendaráða var haldinn á vegum Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur (ÍTR) í Laugardalshöll 18. október sl. Á fundinn mættu 92 fulltrúar úr nemendaráðum 25 grunnskóla í Reykjavík. Dagskráin hófst á því að Soffía Pálsdóttir æskulýðs- fulltrúi bauð hópinn velkominn og ræddi um hve mikilvægu hlutverki nemendaráðin gegna og hvatti þau til dáða. Því næst tóku við léttir leikir til að hrista hópinn saman. Meistarar úr spurningakeppn- inni Gettu betur kynntu hugmynd sína að spurningakeppni grunn- skólanna. Keppnin myndi verða með nokkuð svipuðu sniði og Gettu betur en þó löguð að grunnskól- anum. Nemendaráðin greiddu síð- an atkvæði á milli þess hvort ÍTR héldi mælsku- og rökræðukeppni eða spurningakeppni fyrir grunn- skólana veturinn 2001–2002. Spurningakeppnin hlaut fleiri stig eða 18 af 25 og því mun efnt til spurningakeppni í stað mælsku- og rökræðukeppni í ár. Af því tilefni verða öllum skólum send bréf og þeim boðin þátttaka í spurninga- keppninni. Efnt til spurn- ingakeppni í grunnskólum HRAFNISTUHEIMILIN í Reykjavík og Hafnarfirði efna til sameiginlegs haustfagnaðar í hátíð- arsal Fjölbrautaskóla Garðabæjar laugardaginn 27. október frá klukk- an 14 – 16. Í boði verða skemmtiatriði sem endurspegla þá félagsstarfsemi sem er við lýði hjá heimilisfólki á Hrafn- istuheimilunum. Á efnisskrá er m.a. gamanvísnasöngur, upplestur, kór- söngur, kínversk leikfimi, spilað á sög og upplestur frumsaminna ljóða. Í hléi verður gestum boðið upp á kaffi og konfekt. Miðaverð er kr. 1.000, en 500 krónur fyrir eldri borgara. Miðar eru seldir á skrifstofu Hrafnistu- heimilanna og við innganginn á há- tíðarsalnum fyrir haustfagnaðinn. Allir velkomnir, húsið opnað klukkan 13.15, segir í fréttatilkynningu. Haustfagnaður Hrafnistuheimilanna AÐALFUNDUR Ferðamálasam- taka Vestfjarða árið 2001 verður haldinn í Reykjanesi við Djúp laugardaginn 27. október kl. 13. Á dagskrá verða fyrirlestrar um markaðsmál, menningartúrisma og yfirlit verður gefið um hvað sé á döf- inni í ferðaþjónustu á Vestfjörðum. Ferðamálafulltrúi Vestfjarða gefur yfirlit um starf sumarsins og fjallað verður um dagskrá komandi vetrar og fleira. Að loknum fundi verður kvöldmáltíð og síðan skemmta fund- armenn sér saman, segir í fréttatil- kynningu. Aðalfundur Ferða- málasamtaka Vestfjarða KYNNINGARFUNDUR fyrir ung- linga sem áhuga hafa á borgaralegri fermingu vorið 2002 og aðstandend- ur þeirra verður haldinn laugardag- inn 27. október kl. 11 – 12.15. Fund- urinn verður í Kvennaskólanum, Fríkirkjuvegi 9, nýbyggingu 1. hæð stofum 3 og 4. Námskeið Siðmenntar til undir- búnings borgaralegri fermingu verða kynnt. Gerð verður grein fyrir efnisþáttum námskeiðsins og um- sjónarkennarar verða kynntir, segir í fréttatilkynningu. Fundur um borg- aralega fermingu AÐALFUNDUR FSS, félags sam- kynhneigðra og tvíkynhneigðra stúdenta, verður haldinn föstudag- inn 2. nóvember kl. 18 í Odda stofu 204. Dagskrá: skýrsla stjórnar, laga- breytingar, kosning stjórnar og end- urskoðenda og fl. Aðalfundur FSS AÐALFUNDUR HK verður hald- inn fimmtudaginn 1. nóvember kl. 20 í Hákoni digra. Dagskrá: Venjuleg aðalfundar- störf, lagabreytingar ofl. Aðalfundur HK HEIMSÞORP – Samtök gegn kyn- þáttafordómum á Íslandi halda spjallkvöld undir yfirskriftinni ,,Eins og frábrugðin – ungir Íslendingar segja frá“ þar sem ungir aðfluttir Ís- lendingar segja frá reynslu sinni af því að setjast að hér á landi. Fundurinn verður í Miðbergi fé- lagsmiðstöð við Gerðuberg, gegnt Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í kvöld fimmtudag kl. 20. Allir eru velkomnir. Boðið upp á kaffi og veitingar. Heimsþorp með spjallkvöld KYNNINGARFUNDUR um MBA- nám Háskólans í Reykjavík verður haldinn á þriðju hæð HR í dag, fimmtudaginn 25. okt., kl. 17.15. Á fundinum munu núverandi nemend- ur í MBA-náminu kynna námið og kennarar í náminu vera á staðnum til skrafs og ráða yfir léttum veitingum. Allir umsækjendur um námið og þeir sem hafa áhuga á að kynna sér það nánar eru boðnir velkomnir. MBA-nám Háskólans í Reykjavík er þróað í samvinnu við níu aðra við- skiptaháskóla í Evrópu og Norður- Ameríku. Námið er hagnýtt stjórn- unar- og viðskiptanám fyrir fólk með háskólagráðu og talsverða reynslu af stjórnunar- og sérfræðistörfum. Við þróun námsins var sérstaklega tekið mið af þeim breytingum sem orðið hafa á síðastliðnum árum á við- skiptaumhverfinu, segir í fréttatil- kynningu. Kynning á alþjóðlegu MBA-námi Rangt föðurnafn Fréttaritari Morgunblaðsins í Ólafsvík var rangfeðraður í blaðinu í gær, beðist er velvirðingar á því. Rétt nafn er Helgi Kristjánsson. LEIÐRÉTT RÆTT verður um sýkla- og eitur- efnavopn á fræðslufundi læknaráðs Landspítala á morgun, föstudag. Fundurinn hefst kl. 13 í Eirbergi við Eiríksgötu 34. Fyrirlesarar verða Gísli H. Sig- urðsson, prófessor á svæfinga- og gjörgæsludeild LSH, og Haraldur Briem sóttvarnalæknir. Ræða um sýkla- og eiturefnavopn SABURO Kase, kunnur listamaður frá Japan, heimsækir nokkra skóla í Reykjavík auk leikskóla í Hafnar- firði og kynnir fyrir þeim origami- listina. Öll japönsk börn læra origami en það er ævagömul japönsk list sem felst í því að brjóta saman litskrúð- ugan pappír og búa þannig til fugla og önnur dýr. Saburo kynnir listina fyrir börn- um Ísaksskóla og Fossvogsskóla á morgun, föstudag. Á mánudags- morgun heimsækir hann leikskólann Norðurberg í Hafnarfirði og Tjarn- arskóla. Saburo Kase er blindur. Hann var varaformaður japanska blindra- félagsins í 25 ár og mun sækja opið hús hjá Blindrafélaginu við Hamra- hlíð á fimmtudag. Kynning á klippimyndum FERÐAFÉLAGIÐ Útivist verður með opið hús í kvöld, fimmtudag kl. 20 í Vídalín í Aðalstræti. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjun- ar, flytur erindi um sambúð manns og náttúru. Umræður verða á eftir. Fundurinn er öllum opinn. Opið hús hjá Útivist KENNARAHÁSKÓLI Íslands út- skrifaði kandídata föstudaginn 19. október síðastliðinn. Kandídatar úr grunndeild B.Ed.- gráða í grunnskólakennarafræði Dagný Guðmundsdóttir Elísabet Sif Helgadóttir Gunnhildur Una Jónsdóttir Kristrún Lilja Daðadóttir Ólína Inga Björnsdóttir Óskar Birgisson Sigrún Eggertsdóttir B.Ed.-gráða í leikskólakennara- fræði Hallgerður Gunnarsdóttir Pálína Hildur Sigurðardóttir BA- gráða í þroskaþjálfun Bjargey Una Hinriksdóttir Finnbjörg Skaftadóttir Helga Dögg Teitsdóttir Kennsluréttindanám Auður Leifsdóttir Geir Rögnvaldsson Hjörleifur Herbertsson Kandídatar úr framhaldsdeild Dipl.Ed.-gráða í uppeldis- og menntunarfræði með áherslu á sér- kennslufræði (30 einingar) Arnheiður Helgadóttir Ágústa Kristjánsdóttir Áslaug Berta Guttormsdóttir Ásta Einarsdóttir Ásta María Hjaltadóttir Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir Gígja Árnadóttir Guðbjörg Ragnarsdóttir Hanna Halldóra Leifsdóttir Helga Gísladóttir Ólöf Guðmundsdóttir Steinunn Sigurþórsdóttir Dipl.Ed.-gráða í uppeldis- og menntunarfræði með áherslu á stjórnun (30 einingar) Guðbjörg Halldórsdóttir Guðlaug Erla Gunnarsdóttir Guðmundur O. Ásmundsson Guðni Kjartansson Guðrún Vala Elísdóttir Halldóra Vanda Sigurgeirsdóttir Hilmar Már Arason Hreiðar Sigtryggsson Jóhanna Thorsteinson Jónína Ólöf Emilsdóttir Sæunn Elfa Karlsdóttir Dipl.Ed.-gráða í uppeldis- og menntunarfræði með áherslu á tölvu- og upplýsingatækni (15 ein- ingar) Guðfinna Guðrún Guðmundsd. Guðfinna Emma Sveinsdóttir Jóhanna Ásdís Þorvaldsdóttir Lovísa Sigurðardóttir Páll Erlingsson Dipl.Ed.-gráða í uppeldis- og menntunarfræði (30 einingar) Anna Magnea Hreinsdóttir Hildur Kristjánsdóttir Jarþrúður Ólafsdóttir Kolbrún Vigfúsdóttir Kristín Guðmundsdóttir Lilja Sesselja Ólafsdóttir Margrét Guðmundsdóttir Þóranna Rósa Ólafsdóttir M.Ed.-gráða í uppeldis- og menntunarfræði (60 einingar) Anna Þóra Einarsdóttir Helga Sigurmundsdóttir Helga Magnea Steinsson Hilmar Hilmarsson Hrönn Pálmadóttir Jóhanna Karlsdóttir Jónína Sæmundsdóttir Kristín Karlsdóttir Kristín Norðdahl Sesselja Hauksdóttir Vilborg Jóhannsdóttir Útskrift í Kennaraháskóla Íslands DILBERT mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.