Morgunblaðið - 25.10.2001, Page 57

Morgunblaðið - 25.10.2001, Page 57
BRÉF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 57 TILLAGA um að leyfa eiturlyf var lögð fram á síðasta landsfundi Sjálf- stæðisflokkins, en náði ekki fram að ganga. Mörgum fannst þó ástæða til að þakka flutningsmönnum fyrir til- löguna, í henni væri fólgin „frumleg hugsun“ og gott til þess að vita að „ferskir vindar“ blási enn um sali Sjálfstæðisflokksins. Á sama fundi var rætt um orkumál og var þá flutt tillaga um að flokkurinn færi sér hægt í virkjunarmálum og landi væri ekki raskað á óbætanlegan hátt. Til- lagan fékk heldur óblíðar móttökur. Ræðumenn vönduðu flutningsmanni ekki kveðju sína, uppnefndu hann og kváðu hann nánast rækan úr flokkn- um fyrir skoðanir sínar, hlutu mikið klapp fyrir og var tillagan kolfelld. Ég get þó ekki gert að því þótt ég hafi smávægilegar áhyggjur af sam- flokksmönnum mínum þegar hluti þeirra klappar á kollinn á þeim sem vilja lögleiða eiturlyf og líkja skoð- unum þeirra við „ferska vinda“ og „frumlega hugsun“. Um leið er sá sem haldið hefur hvað mest fram viðhorfum umhverfismála og nátt- úruverndar innan flokksins úthróp- aður sem „hermdarverkamaður“, „öfgamaður“, „talibani“, „mann- fjandsamlegur“ og svo framvegis. Sá viðsnúningur að halda því fram að eiturlyf séu aðeins efnahagslegur vandi og gera að engu skaðsemi efn- anna, er meiri en svo, að ég hafi út- hald til að skilja, enda þótt ég þekki fullvel rökin sem að baki liggja. Hafi einhvern átt að atyrða fyrir tillögu- flutning þá var það ekki sá, sem hafði það eitt til sakar unnið að vilja verja landskika fyrir ánauð stór- virkra vinnuvéla. Þó þekki ég fullvel málefnalegu rökin gegn tillögu um- hverfissinnans. Lítill sómi var að láta að því liggja að reka ætti umhverfissinnann úr flokknum, það gerði þó einn ræðu- maðurinn sem hvað ákafast hélt fram ágætri tillögu um orkumál. Heiftin í málfutningi hans verður þó nokkuð undarleg fyrir þá staðreynd að hann er háttsettur starfsmaður Landsvirkjunar. Austfirðingur nokkur lét sér sæma að nefna um- hverfissinnann „hermdarverka- mann“ en er sjálfur í forsvari fyrir félagi gegn umhverfisvernd. Annar Austfirðingur skoraði á umhverfis- sinnann að reyna að halda fram skoðunum sínum á Reyðarfirði – sem er varla hægt að skilja öðru vísi en hótun. Af áberandi hroka lét þingmaður nokkur af Vesturlandi sér sæma að gera lítið úr umhverf- issinnanum og þessum „örfáu gæsa- hreiðrum“ hans á hálendinu fyrir austan. Kom það ekki á óvart, enda hefur hann ekkert látið sig umhverf- ismál varða á ferli sínum. Út af fyrir sig er ekkert að því að takast á um málefni á lýðræðislegri samkomu, það er þó sárt að vera vitni að óþolandi kjafthætti, enn sárar svíður dúndrandi lófatakið og hæðnishlátur þeirra sem taka undir með rakalausum upphrópunum og ávirðingum. Um leið bulla menn um þá „frumlegu hugsun“ og hina „fersku vinda“ sem felast í tillögu um lögleiðingu eiturlyfja. Ég er þó sannfærður um að stuðningur sjálf- stæðismanna við umhverfismál og náttúruvernd er miklu meiri en fram kom á landsfundinum, einnig veit ég að álit landsfundarins gegn eiturlyfj- um er í góðu samræmi við vilja sjálf- stæðismanna almennt og reyndar landsmanna allra. SIGURÐUR SIGURÐARSON, skrifstofumaður á Blönduósi. Eiturlyf á lands- fundi Frá Sigurði Sigurðarsyni: MEÐGÖNGUFATNAÐUR fyrir mömmu og allt fyrir litla krílið Þumalína, Pósthússtr. 13, s. 551 2136

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.