Morgunblaðið - 25.10.2001, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 59
DAGBÓK
„EKKI veit ég hvað þér
finnst, en ég hef húmor fyr-
ir frumlegum sögnum sem
eru svolítið á móti salnum.“
Íslandsmeistarinn í ein-
menningi rifjar upp spil frá
móti helgarinnar, þar sem
Haraldur Ingason bjó til
topp með óvenjulegri notk-
un á Stayman-hálitaspurn-
ingunni.
Suður gefur.
Norður
♠ G94
♥ G62
♦ D8753
♣76
Vestur Austur
♠ ÁK52 ♠ D1083
♥ K54 ♥ Á987
♦ 62 ♦ G104
♣10543 ♣G9
Suður
♠ 76
♥ D103
♦ ÁK9
♣ÁKD82
Vilhjálmur var í suður,
Haraldur í norður, en í AV
voru Sigurjón Tryggvason
og Björn Friðriksson, sem
enduðu í 4. og 5. sæti:
Vestur Norður Austur Suður
Björn Haraldur Sigurjón Vilhjálmur
-- -- -- 1 grand
Pass 2 lauf Pass 2 tíglar
Pass Pass Pass
Vilhjálmur valdi að opna
á grandi, þrátt fyrir 18
punkta og veikt tvíspil í
spaða, en í sameiginlegu
Standard-kerfi mótsins er
grandið 15-17. Síðan tekur
Haraldur Ingason ákvörð-
un um að stýra spilinu í
trompsamning í gegnum
Stayman, annað hvort tvo í
hálit á 4-3 samlegu, eða tvo
tígla.
Vilhjálmur fékk níu slagi
í tveimur tíglum. Vörnin
tók tvo slagi á spaða og
spilaði þriðja spaðanum,
sem Vilhjálmur trompaði.
Hann tók ÁK í tígli og
þurfti nú að komast inn í
borð til að taka tíguldrottn-
ingu án þess að upphefja
gosa austurs í leiðinni. Vil-
hjálmur spilaði hjartatíu. Í
reynd tóku AV tvo efstu í
hjarta, svo gosinn varð inn-
koma, en ef sagnhafi fær
fyrsta hjartaslaginn, spilar
hann næst ÁKD í laufi og
hendir hjarta úr borði. Níu
slagir eru þannig alltaf til
staðar..
Margir spiluðu tvö grönd
í suður eftir laufopnun og
tígulsvar, en í grandi á
vörnin sex fyrstu slagina.
Og sumir spiluðu eitt lauf,
sem ekki gaf vel, svo Vil-
hjálmur og Haraldur fengu
nánast topp fyrir 110.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert skjótráður og stað-
fastur og lætur fátt aftra þér
frá því að ná settu marki.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Láttu ekki sérkennilega
framkomu manna slá þig út
af laginu. Sjáðu hvað hún
þýðir og lestu í það sem á bak
við býr. Skildu brosið aldrei
við þig.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þótt þér finnist sumar fréttir
af vinum þínum á skjön við
það sem þú vilt máttu ekki
láta þær setja skugga á sam-
band ykkar. Sýndu þolin-
mæði.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er engin ástæða til þess
að láta hugfallast þótt hlut-
irnir gangi ekki nákvæmlega
eins og þú helst vilt. Sýndu
nauðsynlegan sveigjanleika.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Gættu þess að halda útgjöld-
unum innan skynsamlegra
marka og bíddu heldur með
kaupin en að stofna til erfiðra
skulda. Nægjusemi er kostur.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Vertu opinn gagnvart tillög-
um samstarfsmanna þinna og
leyfðu þeim að velta upp sem
flestum flötum þeim til stuðn-
ings. Tillitssemi er dyggð.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er óþarfi að stökkva upp
á nef sér, þótt samstarfs-
mönnum verði eitthvað á.
Mundu að það getur líka hent
þig að gera mistök hvenær
sem er.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Reyndu að lífga svolítið upp á
tilveru þína. Það er undravert
hvað smátilbreyting getur
breytt miklu ef menn ganga
til hennar með opnum hug.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Vinir og vandamenn vilja ná
athygli þinni en það er ekki
auðvelt. Reyndu að finna
tíma fyrir þá, því þeir hafa
reynst þér vel þegar þú átt
erfitt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Athugaðu vel þinn gang áður
en þú leitar eftir vináttu við
einhvern. Það er betra að
fara sér hægt en lenda í
slæmum afleiðingum fljót-
færninnar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þótt hlutirnir freisti skaltu
skoða það vandlega hvort þú
hafir einhverja þörf fyrir þá
og ekki kaupa nema þörfin sé
brýn. Gerðu þér dagamun.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú verður að finna upp á ein-
hverju til að fá útrás fyrir at-
hafnaþörf þína. Gönguferðir
geta gert kraftaverk. Og þær
kosta ekki neitt.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Eitthvað kemur upp á og
veldur þér mikilli undrun sem
aðallega stafar af hrekkleysi
þínu. Verndaðu sjálfan þig og
láttu engan ráðskast með þig.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 25.
október, er sjötugur Hörður
Felixson, Sævargörðum 9,
Seltjarnarnesi. Hörður er
að heiman á afmælisdaginn.
60 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 25.
október, er sextugur Valur
Guðmundsson sem er bú-
settur í Edmonton í Kan-
ada. Heimilisfang hans og
sími er: 109 8515 83 Street,
Edmonton, Alberta, Can-
ada. Sími 001 780 462 3517.
Gsm: 001 780 914 0891.
LJÓÐABROT
VIÐLÖG
Ég hefi róið um allan sjó
og ekki fiskað parið.
Landfallið bar mig upp í varið.
Fagurt syngur svanurinn
um sumarlanga tíð.
Þá mun lyst að leika sér,
mín liljan fríð.
Fagurt syngur svanurinn.
Blítt lætur veröldin,
fölnar fögur fold.
Langt er síðan yndið mitt
var lagt í mold.
1. c4 e5 2. g3 Rc6 3. Bg2 g6
4. Rc3 Bg7 5. Hb1 f5 6. b4
Rf6 7. b5 Re7 8. d4 e4 9.
Ba3 O-O 10. e3 d6 11. Rh3
Be6 12. Db3 h6 13. O-O g5
14. Kh1 De8 15. Rg1 Dh5
16. f3 exf3 17. Rxf3 Rg4 18.
Hbe1 Hae8 19. Bc1
Staðan kom upp í Haust-
móti T.R. sem lauk fyrir
stuttu. Björn Þorsteinsson
(2245) hafði svart gegn Júl-
íusi Friðjónssyni (2220).
19... f4! 20. exf4 20. gxf4
var væntanlega skynsam-
legra þótt eftir 20...gxf4
væri frumkvæðið í trygg-
um höndum hvíts. 20...Rf5!
21. Re2 Bd7!? 22. Kg1
Rxd4! 23. Rexd4 Bxd4+ 24.
Kh1 Rf2+ 25. Hxf2 Bxf2
26. c5+ Df7 27.
Hxe8 Hxe8 28.
Dc2 Bxc5 29.
fxg5 Bf5 30.
Dd2 Be4 31.
Dc3 Bxf3 og
hvítur gafst
upp. Minning-
armót Jóhanns
Þóris stendur
nú yfir í Ráð-
húsi Reykja-
víkur. Teflt er
kl. 17.00 á
hverjum degi
til 2. nóvember
en þá hefst tafl-
ið kl. 13.00. 26.
október er frí-
dagur. Jóhann Þórir var
driffjöður í íslensku skák-
lífi um áratugaskeið en
hann lést langt fyrir aldur
fram árið 1999. Hann hefði
orðið sextugur í ár. Á sinni
stuttri ævi kom hann ótrú-
lega miklu í verk. Bæði rak
hann Tímaritið Skák til
fjölda ára og hélt ótal skák-
mót, þar á meðal hin
ógleymanlegu helgarskák-
mót. Sjálfur var hann lið-
tækur skákmaður og kunn-
ur fyrir kynngimagnaðar
fléttur.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 25.
október, er sjötug Þóra
Benediktsdóttir frá Ísa-
firði, Ásgarði 24 í Reykja-
vík. Eiginmaður hennar er
Jónatan Arnórsson. Hjónin
verða að heiman í dag.
GULLBRÚÐKAUP. 2. október sl. héldu upp á 50 ára hjú-
skaparafmæli sitt hjónin Margrét Árnadóttir og Aðal-
steinn Hjálmarsson, Laugarásvegi 7, Reykjavík.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Brúðhjón
A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r
HAUST Í
FLASH
FLAUELSJAKKAR
með og án hettu 5.990
Litir: Svart og ljóst
Stærðir 10-16
Laugavegi 54,
sími 552 5201
VEFJAGIGT
-SÍÞREYTA
Í sjúkraþjálfuninni Styrk í Stangarhyl 7
mun Sigrún Baldursdóttir, sjúkraþjálfari,
halda fræðslunámskeið í vetur um vefjagigt/
síþreytu og leiðir til bættrar heilsu.
Fyrsta námskeiðið hefst miðvikudaginn 31. október.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 587 7750.