Morgunblaðið - 25.10.2001, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 25.10.2001, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 65 AÐ ÞESSU sinni sýnir Filmundur stórmyndina Zorba the Greek frá 1964. Leikstjóri er Michael Cac- oyannis, en hann gerði jafnframt handrit eftir samnefndri skáld- sögu Nikos Kazantzakis. Antony Quinn fer með hlutverk gríska ævintýramannsins Zorba sem hefur einstakt lag á því að njóta lífsins til hins ýtrasta, þótt hann búi við mikla fátækt. Hann kynnist Basil, ungum og að- albornum Englendingi sem er haldinn lífsleiða á háu stigi. Basil, sem leik- inn er af Alan Bat- es, hefur nýverið fest kaup á kolanámu í litlum bæ á Krít og þangað ferðast þeir félagar saman. Ýmislegt drífur á daga þeirra þar, Basil verður ást- fanginn af ungri ekkju, en á í vand- ræðum með að tjá tilfinningar sín- ar. Þá kemur sér vel að þekkja hinn lífsreynda Zorba sem hvetur hann til dáða, en sjálfur hefur Zorba fengið augastað á gleðikonu nokk- urri sem nú er sest í helgan stein. Lífið í bænum er enginn dans á rós- um og óhætt að segja að það hafi sínar skuggahliðar, eins og fé- lagarnir komast að. Fyrr en varir þurfa þeir að takast á við aðstæður sem reyna á allan sálarstyrk þeirra og skilning. Grikkinn Zorba var uppá- haldshlutverk Antony Quinn, sem lést fyrr á þessu ári 86 ára að aldri, en hann fór einnig með hlutverkið í samnefndum söngleik á Broadway. Það má segja að þeir Quinn og Zorba hafi átt margt sameiginlegt, báðir nutu þeir lífsins í botn og voru staðráðnir í því að fá eins mikið út úr því og möguleiki væri. Í því sambandi má nefna að Quinn var ekki aðeins gífurlega afkasta- mikill leikari, heldur fór hann mikinn í einkalífinu, átti þrjú hjónabönd að baki, ótal ástkonur og hvorki meira né minna en 13 börn. Tónlist Mikis Theodorakis er kafli út af fyrir sig og löngu sígild. Theodorakis var um það bil að hefja störf sem þingmaður þegar myndin var gerð, en hann hefur alltaf haft mikil afskipti af stjórn- málum í Grikklandi og lenti oft í fangelsi af þeim sökum og var í út- legð frá Grikklandi á árunum 1970– 1974. Theodorakis hefur samið tón- list við á fjórða tug mynda, bæði í Grikklandi og í Bandaríkjunum. Zorba the Greek verður sýnd í Háskólabíói á hefðbundnum Fil- mundartíma, í kvöld og á mánudag- inn kl. 22.30 Aðrar sýningar verða auglýstar á kvikmyndasíðum dag- blaðanna. Grikkinn Zorba í heimsókn hjá Filmundi Dansar við Zorba Zorba kennir Basil réttu sporin. AP mbl.isFRÉTTIR BRESK heilbrigðisyfirvöld hafa beðið fyrrverandi Bítilinn George Harrison og geðklofa árásarmann hans afsökunar. Í nýrri skýrslu komu fram alvarleg mistök í með- ferð árásarmannsins áður en hann braust inn á heimili Harrisons. „Við viljum biðja George Harri- son og Michael Abram ásamt fjöl- skyldum þeirra beggja opinberlega afsökunar á mistökum í meðferð Abram sem leiddu til árásarinnar í desember 1999 ... Við viljum full- vissa fjölskyldurnar um að við höf- um lært af þessum mistökum,“ segir í yfirlýsingu stjórnarvalda St. Hel- ens og Knowsley-sjúkrahússins í norðvesturhluta London í dag. Í skýrslunni kom fram að starfs- fólk sagði meðferð á Abram, sem er geðklofa, stórlega ábótavant og gagnrýndi lækna fyrir að útskrifa hann mánuði fyrir árásina í stað þess að hefja langtíma meðferð á honum. „Michael Abram hafði flók- inn geðsjúkdóm sem okkur yfirsást og við meðhöndluðum ekki rétt,“ sagði Ken Sanderson, yfirmaður St. Helens og Knowsley-sjúkrahússins. Abram var ákærður fyrir að brjótast inn á heimili Harrisons í V- London 30. desember 1999 og ráð- ast að honum með hnífi með þeim afleiðingum að annað lungað féll saman. Hann var einnig ákærður fyrir árás á eiginkonu Harrisons þegar hún kom manni sínum til hjálpar. Í réttarhöldum yfir Abram í fyrra var hann dæmdur ósakhæfur, með geðklofa og ofsóknaræði. Fram kom að hann hafi verið búinn að vera með annan fótinn inni á geðsjúkra- húsum síðan 1990. Í skýrslunni seg- ir að mistök heilbrigðisþjónustunn- ar hafi verið „óviðunandi“ en ítrekað að ekkert af starfsfólkinu sem með- höndlaði Abram hefði getað séð árásina fyrir. Ástæðan sem Abram gaf á sínum tíma fyrir árás sinni á Harrison var sú að hann segist hafa fullvissað sig um að Bítlarnir væru sendiboðar djöfulsins. „Þetta er jákvæðar fréttir því þær sýna skýrt fram á hversu alvar- lega kerfið brást,“ sagði Abrams í skriflegri yfirlýsingu eftir að hafa verið beðinn afsökunar. „Það veldur mér hinsvegar vonbrigðum að þeir aðilar sem ollu mistökunum skuli sleppa með skrekkinn ... hvernig getum við þá verið viss um svona lagað gerist ekki aftur?“ Við þetta hafði hann þessu að bæta: „Ég skammast mín mjög fyrir það sem ég gerði George Harrison.“ Harrison og árás- armaður hans beðnir afsökunar AP Harrison og árásarmenn eru op- inberlega orðnir fórnarlömb mistaka innan breska heilbrigð- isstofnunarinnar. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.10. Vit 281 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 283Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Vit 285 Smellin gamanmynd frá leikstjóra Sleepless in Seattle og You've Got Mail. JOHN TRAVOLTA LISA KUDROW SWORDFISH FRIENDS Sýnd kl. 3.55. Ísl. tal. Vit 265. Sýnd kl. 4. Íslenskt tal. Vit 245 Óborganlega fyndin grínmynd frá Farrelly bræðrum með þeim Bill Murray, Chris Rock og Laurence Fishburne í aðalhlutverki.  Hausverk.is 1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 278 Allir vilja þeir sneið af „glæpakökunni“ Sýnd kl. 5.40 og 8.15. B. i. 12. Vit 270  Radíó X  HK DV  Kvikmyndir.is Kvikmyndir.com  Mbl Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 16. Vit 284 Glæpsamleg góð og kraftmikil upplifun. Óskarsverðlaunaleikarinn, Ben Kingsley (Gandhi) leikur algjöran óþokka og skíthæl á eftirminnilegan hátt. Sexy Beast hefur allstaðar fengið skothelda dóma. Það væri glæpur að missa af henni. Stundun er erfitt að segja nei. 1/2 Kvikmyndir.com www.lyfja.is Í dag byrjar 10 daga í öllum verslunum LYFJU TÖSKUTILBOÐ Verð frá kr. 1.290 meðan birgðir endast www.skifan.is Sýnd kl. 5.30 og 8.  Tvíhöfði/Hugleikur  Hausverk.is  USA TODAY 1/2 NY POST Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.10. Hollywood í hættu Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Stórstjörnurnar Julia Roberts, Billy Crystal, Catherine Zeta-Jones og John Cusack fara hér á kostum í stórskemmtilegri rómantískri gamanmynd sem fjallar um fræga fólkið, ástina og önnur skemmtileg vandamál. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.  SV Mbl Kvikmyndir.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.