Morgunblaðið - 25.10.2001, Qupperneq 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Fær› flú
borga›
fyrir a›
spara?
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráð-
herra átti í gær fund með Junichiro
Koizumi, forsætisráðherra Japans.
Ráðherrarnir ræddu tvíhliða samskipti
ríkjanna, gagnkvæma opnun sendiráða
í Tókýó og Reykjavík, fiskveiðimál,
hvalveiðar og baráttu gegn hryðju-
verkum.
Ekki var gert ráð fyrir fundinum í
dagskrá opinberrar heimsóknar utan-
ríkisráðherra til Japans en til hans var
boðað með skömmum fyrirvara fyrir
milligöngu ríkisstjórans í Saitama-ríki
í grennd við Tókýó.
„Forsætisráðherrann fagnaði því
sérstaklega að Íslendingar hefðu geng-
ið að nýju í Alþjóðahvalveiðiráðið,“
sagði Halldór við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, en kvaðst ekki hafa gefið Jap-
önum neinar tímasetningar um hvenær
Íslendingar hyggjast hefja hvalveiðar
að nýju. „Ég sagði þeim hins vegar að
við ættum ekki aðra kosti en að hefja
þær að nýju innan tíðar. Hvalveiðar
eru hluti af fiskveiðistefnu beggja
þjóða og ráðherrann upplýsti, eins og
raunar hefur komið fram áður, að Jap-
anar eru reiðubúnir að kaupa af okkur
hvalkjöt þegar við hefjum hvalveiðar.“
Heimsókn utanríkisráðherra heldur
áfram í dag og verður þá m.a. formleg
opnun á sendiráði Íslands í Tókýó.
Opinber heimsókn Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra til Japans
Átti óvæntan fund með
Koizumi forsætisráðherra
Morgunblaðið/Lárus Karl Ingason
Frá fundi Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra með Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, í gær.
Halldóri á vinstri hönd eru Ingimundur Sigfússon sendiherra og Masaokawai, sendiherra Japans á Íslandi. Viðamesta /6
VEGAGERÐIN og Landgræðslan
urðu fyrir milljónatjóni í Húsadal á
Þórsmerkursvæðinu á dögunum
þegar stórt skarð kom í varnar-
garð vegna vatnselgs í Markar-
fljóti. Sveinn Runólfsson land-
græðslustjóri sagðist í samtali við
Morgunblaðið telja að tjónið væri á
bilinu 5 til 8 milljónir króna. Að
hans sögn var garðurinn talinn það
traustur að hann átti ekki að geta
brostið. Um 150 metra skarð kom í
garðinn sem er á sjötta hundrað
metrar á lengd og nokkrir metrar á
hæð. Ekki verður komið við lag-
færingum á garðinum fyrr en
sjatnað hefur í Markarfljóti. Mikil
hlýindi og rigningar hafa verið á
þessu svæði að undanförnu og
samkvæmt upplýsingum frá Raun-
vísindastofnun og vatnamælinga-
sviði Orkustofnunar er ekki talið
að um hlaup hafi verið að ræða.
Garðurinn var reistur í sam-
starfi Vegagerðarinnar og Land-
græðslunnar árið 1984 til að verja
mannvirki í Húsadal, einkum flug-
völl sem þar var lagður fyrir Þórs-
merkurfara. Síðan þá hafa vegslóð-
ar og fleiri mannvirki bæst við,
aðallega á vegum Austurleiðar.
Flugvöllurinn hefur sloppið, að
sögn Sveins, en hann er umflotinn
vatni beggja vegna brautarinnar
og vegir inn dalinn ófærir.
Magakvillar í Kötlu?
Sveinn sagðist velta því fyrir sér
hvort hlaup hefði átt sér stað í
Markarfljóti og átt upptök sín í
Mýrdalsjökli. Vatnsmagnið í
fljótinu og eins Múlakvísl gæti
bent til „einhverra magakvilla í
Kötlu gömlu“ eins og hann orðaði
það. Hann sagði að þrátt fyrir hlý-
indi og rigningar væri vatnselgur á
þessum árstíma afar sjaldgæfur.
Magnús Tumi Guðmundsson,
jarðeðlisfræðingur á Raunvísinda-
stofnun Háskólans, flaug yfir Mýr-
dalsjökul í gær. Hann sagði við
Morgunblaðið í gærkvöldi að afar
ósennilegt væri að um hlaup hefði
verið að ræða í Markarfljóti. Í eft-
irlitsfluginu hefði ekki verið að sjá
að sigið hefði í kötlum á jöklinum.
Hann sagði vatnið því tæpast koma
undan Mýrdalsjökli, þótt ekki væri
hægt að útiloka einhverjar smá-
spýjur.
Varnargarður brast í Húsadal í Þórsmörk
Stórtjón vegna vatna-
vaxta í Markarfljóti
BRÉF með hvítu dufti barst inn á
heimili Davíðs Oddssonar forsætis-
ráðherra um miðjan dag á þriðjudag
ásamt öðrum pósti. Staðfest er að
Davíð Oddsson opnaði bréfið sjálfur.
Í stuttri fréttatilkynningu frá for-
sætisráðuneytinu kemur fram að
lögregla og sóttvarnaryfirvöld hafa
gert viðeigandi ráðstafanir. „Málið
er í rannsókn, en yfirgnæfandi líkur
eru taldar á að hér sé um ábyrgð-
arlausan óþverrahrekk að ræða, sem
litinn er mjög alvarlegum augum,“
segir í tilkynningunni.
Leitað var eftir frekari upplýsing-
um um málið hjá forsætisráðuneyt-
inu en ráðuneytið taldi ekki ástæðu
til að ræða málið opinberlega.
Embætti ríkislögreglustjóra ann-
ast rannsókn málsins en samkvæmt
5. grein lögreglulaga ber embættinu
að rannsaka landráð og brot gegn
stjórnskipan ríkisins og æðstu
stjórnvöldum þess.
Samkvæmt upplýsingum frá rík-
islögreglustjóra var málið í upphafi
rannsakað þannig að um rökstuddan
grun um miltisbrand væri að ræða
og allar varúðarráðstafanir í sam-
ræmi við það.
Eins og kunnugt er voru skrif-
stofur Borgarendurskoðunar inn-
siglaðar og lokaðar í tvo sólarhringa
eftir að grunsamlegt duft féll úr um-
búðum utan um tímaritið The Econ-
omist. Þá var öllum starfsmönnum
gefið sýklalyf gegn miltisbrandi í
öryggisskyni. Rannsókn sýklafræði-
deildar á duftinu leiddi í ljós að það
var meinlaust.
Aðför að frelsi, öryggi og lífi
Jafnvel þótt í ljós komi að duftið
sem barst inn á heimili forsætisráð-
herra reynist meinlaust lítur ríkis-
lögreglustjóri svo á að um aðför að
frelsi, öryggi og lífi hafi verið að
ræða. Athæfið sé þar að auki til þess
fallið að skapa almennan ótta og
kalla á auknar varúðarráðstafanir.
Tilraunir sem þessar eru refsi-
verðar og getur refsingin orðið allt
að fjögurra ára fangelsi þar sem um
einn af æðstu valdhöfum ríkisins er
að ræða.
Farið var með sýni af duftinu til
rannsóknar á sýklafræðideild Land-
spítala – háskólasjúkrahúss. Ólafur
Steingrímsson yfirlæknir sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
ekkert benti til þess að það hafi inni-
haldið miltisbrand. Lokaniðurstöður
verða ljósar í dag.
Hvítt duft í
pósti til for-
sætisráðherra
♦ ♦ ♦
HREINN Loftsson, formaður
einkavæðingarnefndar, segir þann
frest sem væntanlegum kjölfestu-
fjárfestum í Landssíma Íslands var
gefinn alls ekki til marks um lítinn
áhuga á fyrirtækinu. Þvert á móti sé
fresturinn til kominn vegna þess að
nokkrir fjárfestanna hafi óskað eftir
að fá nokkra daga í viðbót til að ljúka
við tilboð sín.
Í lok síðustu viku var þeim fjár-
festum sem þátt taka í kjölfestuhluta
Landssímasölunnar sent bréf þar
sem þeim var greint frá því að
nokkrir væntanlegir bjóðendur
hefðu óskað eftir fresti til að skila inn
óbindandi verðtilboðum sínum. Þess
vegna hefði frestur verið gefinn til
föstudagsins 26. október til að skila
inn þessum tilboðum. Hreinn segir
engin tilboð hafa borist á mánudag-
inn enda hafi ekki verið gert ráð fyr-
ir því fyrst frestur hafði verið gefinn,
en á mánudag rann út sá tími sem
upphaflega hafði verið gefinn til að
skila inn óbindandi tilboðum.
Fresturinn/10
Sala Landssímans
Tilboðs-
gjafar
óskuðu
frestsins
ÁÆTLAÐUR kostnaður við að
koma á fót sérstöku Laxnesssetri í
Mosfellsbæ er á bilinu 30–47 millj-
ónir króna en bæjaryfirvöld vinna nú
að því að koma upp slíku safni.
Bæjaryfirvöld hyggjast nýta
gömlu skólabygginguna Brúarland
undir setrið en markmiðið er að
halda á lofti minningu Halldórs Lax-
ness, veita fræðslu um verk hans og
leggja áherslu á að Mosfellssveit og
-bær var heimabyggð hans. Hundrað
ár verða liðin frá fæðingu skáldsins á
næsta ári. Auk sýningar um ævi og
verk skáldsins yrðu gögn sem tengj-
ast Halldóri geymd í Laxnesssetri.
Safn til heiðurs
nóbelsskáldinu
Laxnesssetur/14