Morgunblaðið - 16.11.2001, Síða 1
263. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 16. NÓVEMBER 2001
BANDARÍKJAMAÐURINN John
Mercer fagnar dóttur sinni Heather
en hún kom til Islamabad í Pakistan
í gær eftir að hafa eytt þremur
mánuðum í fangelsum talibana-
stjórnarinnar í Afganistan. Var hún
ein átta alþjóðlegra hjálparstarfs-
manna sem talibanar handtóku í
ágúst síðastliðnum og sökuðu um
að hafa stundað kristniboð í land-
inu. Réttarhöld yfir áttmenning-
unum voru nýhafin þegar loftárásir
Bandaríkjamanna hófust í október
en þau hefðu átt yfir höfði sér
dauðarefsingu ef þau hefðu verið
fundin sek.
AP
Laus úr prísund
Bandaríkjamenn sögðu fyrr um
daginn að margir forystumanna al-
Qaeda hryðjuverkasamtaka Sádi-
Arabans Osama bin Ladens hefðu
fallið í loftárásum Bandaríkjanna á
borgirnar Kabúl og Kandahar undan-
farna daga. Ekki er þó vitað hversu
háttsettir þessir menn voru og engar
vísbendingar eru um að bin Laden
sjálfur hafi verið í þeim byggingum
sem sprengjum var varpað á.
Norðurbandalagið hélt áfram
áhlaupi sínu gegn herjum talibana-
stjórnarinnar en talibanar eru nú á
hröðu undanhaldi. Harðir bardagar
voru nálægt borginni Kunduz en
Tommy Franks, hershöfðingi í
Bandaríkjaher, sagði að þar héldu á
milli tvö og þrjú þúsund manna úr-
valssveitir al-Qaeda samtakanna og
talibana uppi vörnum. Er Kunduz eitt
síðasta vígi talibana í Norður-Afgan-
istan og Franks varaði við því að þeir
myndu berjast til síðasta blóðdropa.
Breskir hermenn til Kabúl í gær
Nokkrir aðstoðarmenn Mohamm-
ed Zahir Shaf, fyrrverandi konungs í
Afganistan, voru í gær sagðir á leið til
Kandahar í Suður-Afganistan sem
verið hefur höfuðstaður talibana-
stjórnarinnar. Þar átti að gera tilraun
til að telja talibana á að afsala sér
völdum í Afganistan án þess að til
frekari blóðsúthellinga kæmi.
Fréttir um stöðu mála í Kandahar
eru óljósar og sagði Hamid Karzai,
einn af andstæðingum talibanastjórn-
arinnar, að íbúar borgarinnar hefðu
gert uppreisn og bolað talibönum frá
völdum. Aðrir heimildarmenn sögðu
talibana hins vegar enn ráða þar lög-
um og lofum og Mohammed Omar,
andlegur leiðtogi talibana, fullyrti í
samtali við BBC að talibanar myndu
snúa vörn í sókn eða deyja ella.
Öryggisráð SÞ samþykkti í fyrra-
kvöld ályktun þar sem m.a. var vikið
að neyðaraðstoð við Afgana og áætl-
unum um að senda alþjóðlegar frið-
argæslusveitir til starfa í þeim hluta
Afganistan sem ekki lýtur lengur yf-
irráðum talibana. Lentu um eitt
hundrað breskir hermenn á Bagram-
flugvelli norður af Kabúl í gærkvöldi
og verður verkefni þeirra að tryggja
öryggi þeirra sem sinna munu neyð-
araðstoð í landinu.
Donald Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, gaf hins vegar
til kynna að Bandaríkjamenn myndu
verða of uppteknir á öðrum vígstöðv-
um, þ.e. í þeirri alþjóðlegu baráttu
gegn hryðjuverkum sem þeir hafa
boðað. „Afar ólíklegt“ væri að banda-
rískir hermenn tækju þátt í starfi
þessara sveita, sem hugsanlega munu
ílengjast í Afganistan.
Vilja hraða mynd-
un nýrrar stjórnar
Washington, Islamabad, Quetta. AFP.
Bin Laden/26
Skorað á/28
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti og Vladímír Pútín Rússlandsfor-
seti tóku í gær undir með þeim sem vilja hraða myndun nýrrar stjórnar í
Afganistan, en fundi leiðtoganna lauk í Texas í Bandaríkjunum í gær.
Sagði talsmaður Sameinuðu þjóðanna í New York að Norðurbandalagið,
sem unnið hefur góða sigra á herjum talibanastjórnarinnar undanfarna
daga, ætti enga heimtingu á að vera sett skör hærra en aðrir hópar stjórn-
arandstæðinga í Afganistan þegar sest verður niður til að ræða framtíðar-
stjórnskipulag landsins á ráðstefnu er SÞ hyggst halda.
Bandaríkjamenn segja marga forystumenn al-Qaeda hafa fallið í loftárásum
Fólkið faðmaði/27
LEIÐTOGAR stjórnmálaflokkanna í
Kosovo fluttu kjósendum lokaskila-
boð sín í gær vegna þingkosninga
sem fara fram á morgun. Kosning-
arnar eru sögulegar því Kosovo fær
nú sitt eigið þing og vísi að ríkis-
stjórn, en héraðið hefur verið undir
stjórn sérstakrar sendinefndar Sam-
einuðu þjóðanna frá því að stríði Atl-
antshafsbandalagsins við Júgóslavíu
lauk sumarið 1999.
Talið er líklegt að flokkur Ibrahims
Rugova, LDK, fari með sigur af hólmi
í kosningunum en Rugova hefur farið
fyrir hófsamari öflum Kosovo-Albana
um margra ára skeið. PDK-flokkur
Hashims Thaci, sem varð til er Frels-
isher Kosovo (UCK) var formlega
leystur upp við lok Kosovo-stríðsins,
gæti þó sett strik í reikninginn, og hið
sama má segja um AAK-flokkinn,
sem myndaðist við klofning í PDK.
Vojislav Kostunica, forseti Júgó-
slavíu, hvatti í gær Serba í Kosovo til
að taka þátt í kosningunum en óttast
hefur verið að þeir myndu hunsa þær.
Kosovo-Serbar, sem eru tæplega
10% íbúanna, hafa sætt ofsóknum frá
því að stjórnvöld í Belgrað töpuðu
yfirráðum yfir héraðinu í hitteð-
fyrra.
Lokahnykkur kosn-
ingabaráttu í Kosovo
Pristina, Belgrað. AFP.
AP
Fylgjendur PDK-flokks Hashims Thaci á kosningafundi í Pristina í gær.
OPEC-ríkin samþykktu í fyrradag
að minnka olíuframleiðsluna um 1,5
milljónir fata á dag, eða um 6%, en
settu það skilyrði að olíuútflutnings-
ríki utan samtakanna, Rússland, Óm-
an, Mexíkó og Noregur, minnkuðu
framleiðslu sína hlutfallslega jafnmik-
ið. Rússar vilja hins vegar ekki
minnka framleiðslu sína nema um
30.000 föt á dag, eða um 0,5%, og
áréttuðu þá afstöðu sína í gær.
Varð þetta til þess að Ali Naimi, ol-
íumálaráðherra S-Arabíu, áhrifa-
mesta ríkisins í OPEC, lýsti því yfir
að samtökin myndu halda framleiðsl-
unni óbreyttri, jafnvel þótt það gæti
leitt til lægra olíuverðs, þar til öll olíu-
útflutningsríkin féllust á að minnka
framleiðsluna. Hann minnti á að slík-
ar deilur milli olíuútflutningsríkjanna
hefðu áður blossað upp og olíuverðið
þá ávallt hrunið.
Hráolíuverðið lækkar enn
Mexíkó kvaðst ætla að minnka
framleiðslu sína um 100.000 föt á dag.
Noregur, þriðja mesta olíuútflutn-
ingsríki heims á eftir Sádi-Arabíu og
Rússlandi, ætlar hins vegar að halda
að sér höndum og fylgjast með þróun-
inni á mörkuðunum.
Eftirspurn hefur minnkað í heim-
inum vegna efnahagssamdráttar og
hráolíuverð hefur lækkað um fjórð-
ung frá hryðjuverkunum 11. septem-
ber. Hélt hráolíuverð í London áfram
að lækka í gær og fór niður fyrir 17
dali á fatið í fyrsta sinn í tvö ár.
Sádi-Arabar
vara Rússa við
verðhruni á olíu
Vín. AP.
LÍKURNAR á frekari lækkun olíuverðs jukust í gær þegar olíumálaráð-
herra Sádi-Arabíu lýsti því yfir að OPEC, samtök ellefu olíuútflutningsríkja,
myndu standa við þá ákvörðun sína að minnka ekki olíuframleiðslu sína nema
önnur ríki gerðu það einnig – jafnvel þótt það gæti leitt til lægra olíuverðs.