Morgunblaðið - 16.11.2001, Side 42

Morgunblaðið - 16.11.2001, Side 42
UMRÆÐAN 42 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Prófkjör Prófkjör Bæjarmálafélags Seltjarnarness (Neslistans) fer fram laugardaginn 17. nóvember og birtast hér greinar af því tilefni. Greinarnar eru ennfremur birtar á mbl.is. NÚ er lesið yfir þjóðinni daglega úr skýrslum um þann mikla hagnað, sem bændur muni hafa af því að skipta um kúa- kyn og koma sér upp norsku kyni í stað þess gamla íslenska. Ekki er minnst einu orði á ókostina við þennan innflutning og þaðan af síður á sýkingarhætt- una sem getur hlotist af innflutningi er- lendra fósturvísa, jafn- vel frá Noregi. Allir, sem það vilja, hljóta að sjá, að kappið í vænt- anlegum innflytjendum er það mik- ið að þeir munu ekki láta sér nægja eina tilraun með innflutning til Hríseyjar, heldur gera slíkan inn- flutning að reglu, ef þeir fá að gera eina tilraun sem tekst að fá úr af- kvæmi. Það setur eiginlega hroll að gömlum veirufræðingi við allt þetta gáleysislega tal um innflutning fósturvísa, sem sumir tala um eins og ætlunin sé að flytja inn dauð- hreinsað stál. Því miður eru fóst- urvísar þannig gerðir, að þá er ekki hægt að dauðhreinsa, heldur bera þeir í sér alla þá sýkla, sem hafa komið sér fyrir í kynfrumum for- eldranna og erfðaefni þeirra fruma. Veirusjúkdómar Norskar kýr hafa í sér slíka sýkla, eins og aðrar lífverur. Hér á landi hefur aldrei fundist hvítblæði í kúm. Í Noregi hefur það hins veg- ar fundist, þó að enginn hafi gert veður út af slíkum smámunum í sambandi við væntanlegan inn- flutning norskra fósturvísa. Hvít- blæði er krabbamein í blóðmynd- unarvef. Hvítblæði í kúm er veirusjúkdómur. Veiran krækir sig inn í erfðaefni þess sýkta og berst út í mjólkina í sýkingarhæfu formi. Þó að hér sé verið að tala um kúa- sjúkdóm, sem veldur sannanlega dauðsföllum í kúm, viljum við held- ur mjólk úr heilbrigðum kúm en sýktum og kærum okkur ekki um þekktar krabbameinsveirur í mjólkinni sem fer ofan í hvert ein- asta ungbarn. Til Noregs hafa oft verið fluttir lifandi nautgripir frá öðrum lönd- um á seinni árum. Stundum hefur verið hægt að rekja sýkingar í norskum kúm til slíks innflutnings. Er þess þá skemmst að minnast, að árið 1997 greindist garnaveiki í Noregi í 7 nautgripum úr 4 mis- munandi kúahjörðum. Í öllum tilvikunum var hægt að rekja smitleiðina til inn- fluttra nautgripa. Ár- ið 1997 virðist því hafa verið líflegur innflutningur á naut- gripum til Noregs frá öðrum löndum. Sú staðreynd lá fyrir, þegar leyfi var veitt fyrir innflutningi norskra fósturvísa hingað. Hvernig er hægt að fullyrða, að engir smitsjúkdómar aðrir en garnaveiki hafi borist til Noregs með innfluttum nautgripum það ár? Hvað um kúariðu, þar sem sjúk- dómseinkennin koma ekki fram fyrr en mörgum árum eða jafnvel áratugum eftir smitun? Banvænn lömunarsjúkdómur Kúariða er ungur sjúkdómur, sem við vitum allt of lítið um og getum ekki greint fyrr en langt er liðið frá smitun. Það litla sem við vitum er að þetta er banvænn kúa- sjúkdómur, sem berst auðveldlega í aðrar spendýrategundir með sýktu fóðri. Sýkillinn er mjög sterkur og þolinn og erfitt að útrýma honum. Ef hann berst inn á nýtt svæði, má vænta þess að hann sé kominn til að vera, rétt eins og sauðfjárriðu- sýkillinn, sem á það til að gjósa upp aftur og aftur eftir útrýming- araðgerðir, þó að langur tími sé lið- inn frá þeim. Berist kúariðusýkill í fæðukeðju manna, geta afleiðing- arnar orðið banvænn lömunarsjúk- dómur nokkrum árum eftir smitun. Nú hafa Bretar misst á annað hundrað manns úr þessum nýja lömunarsjúkdómi, sem rakinn er til kúariðusmits og leggst aðallega á ungt fólk. Flestir sjúklingarnir eru milli fermingar og tvítugs. Enginn veit enn hversu útbreiddur þessi lömunarsjúkdómur er í Bretlandi og heldur ekki hvar hann á eftir að gjósa upp í öðrum löndum þar sem kúariða er orðin landlæg. Í virtum veirufræðiritum sem fjalla um fyrirbyggjandi aðgerðir til að hindra að kúariða berist inn á ný landsvæði er lagt til að bannað sé að flytja þangað fósturvísa af sýktum svæðum, rétt eins og lagt er til bann við innflutningi lifandi nautgripa og kjötmjöls. Reynslan hefur sýnt, að við getum ekki verið viss um að land sé ósýkt, ef lifandi gripir eða mengað fóður hefur ver- ið flutt þangað síðustu 10 árin. Fyrstu veiku kýrnar hafa fundist í allt of mörgum löndum síðustu mánuðina til að við getum treyst því að ekkert smit sé í norskum kúm, þó að kúariða hafi ekki greinst þar enn. Áhætta Mitt mat er, að hér á landi eigi enga áhættu að taka varðandi inn- flutning á neinu, sem getur borið með sér kúariðusmit. Við þurfum ekki á slíkum innflutningi að halda og hér er framleitt meira en nóg af hollum landbúnaðarafurðum úr heilbrigðu búfé. Svo er það að mínu viti ekkert einkamál kúabænda hvort hingað eru innfluttir banvæn- ir mannasjúkdómar sem granda ungu fólki. Neytendur gætu heldur kosið kjöt og mjólk úr heilbrigðum innfæddum kúm, sem sannanlega eru lausar við banvæna sjúkdóma. Í staðinn fyrir stóriðjudraumana á búunum með stóru kýrnar, finnst mér að mætti í alvöru ræða við neytendur um hærra verð til bænda fyrir kjöt og mjólk úr inn- lendum en ekki innfluttum kúm. Sóttvarnir koma okkur öllum við. Tjón af innfluttum smitsjúkdómum getur orðið mjög mikið. Förum því að með gát og gerum ekki óaft- urkræfar vitleysur. Höldum land- inu hreinu og húsdýrunum heil- brigðum. Gerum allt sem við getum til að fá ekki hingað banvæna sjúk- dóma í menn og dýr. Aðvörun Margrét Guðnadóttir Höfundur er veirufræðingur. Bændur – varið ykkur á kúariðu og hvítblæði í kúm, segir Margrét Guðnadóttir. Báðir þessir hættulegu sjúk- dómar, sem hafa aldrei fundist hér á landi, gætu borist hingað með fóst- urvísum úr norskum kúm og valdið hér ómældu tjóni. Slíkt yrði óafturkræfur skaði, bæði fyrir menn og búpening. Fósturvísar ÉG hef búið á Sel- tjarnarnesi frá 1988, en þá fluttum við hjón- in heim frá Svíþjóð ásamt börnum okkar tveimur. Eftir þrettán ár á Seltjarnarnesi veit ég að hér er gott að búa. Umhverfið á Nesinu er einstakt, – sjórinn, útsýnið og úti- svistarperlan vestan Nesstofu. Skólar hafa verið taldir mjög góð- ir, íþróttastarfsemin öflug og þess vegna gott að ala hér upp börn. Sérstaða Sel- tjarnarness á höfuð- borgarsvæðinu bygg- ist á þessum atriðum og standa verður vörð um þessi lífsgæði. Umhverfis- og skipulagsmál Seltirningar búa við fallega og tiltölu- lega ósnortna nátt- uúru. Grótta, Suður- nes og Valhúsahæðin hafa verið sérkenni bæjarfélags okkar. Því miður hafa þegar orðið umhverfisslys á Valhúsahæðinni. Reynslan sýnir að Sjálfstæðisflokkurinn Breytinga er þörf á Seltjarnarnesi Guðrún Helga Brynleifsdóttir LAUGARDAGINN 17. nóvember nk. gefst Seltirningum kostur á að taka þátt í prófkjöri Bæjarmála- félags Seltjarnarness (Neslistans) og velja í efstu sæti listans sem boðinn verður fram við bæjarstjórnar- kosningarnar næsta vor. Átta frambjóð- endur hafa tilkynnt þátttöku og leggja í hendur bæjarbúa að velja úr sínum röðum þá þrjá sem falið verður að fara fyrir listanum. Frambjóð- endurnir hafa staðið vaktina á ýmsum sviðum samfélagsins og eru með fjölbreytta reynslu sem bæjarfélagið mun njóta góðs af, hver sem niðurstaða prófkjörsins verður. Ég hef ákveðið að taka þátt í þessu prófkjöri og óska eftir stuðningi í þriðja sæti listans, sæti sem Bæjarmálafélag Seltjarnar- ness tapaði í síðustu kosningum en vill endurheimta í vor. Það er við því að búast að fólk spyrji hverjir þeir séu sem bjóðast til þess að annast ýmis málefni bæjarbúa og af hvaða hvötum þeir sækist eftir slíku. Með þessum lín- um er ekki ætlun mín að tíunda einhverja þá kosti sem ég kann að hafa til þess arna, né heldur hvort og hversu líklegur ég er til þess að vinna Seltirningum gagn, þar verða aðrir um að dæma. Mér er þó ljúft og skylt að upplýsa með hvaða hætti ég hef unnið að nokkr- um málum á Seltjarnarnesi og tel að kæmu mér að gagni í bæj- arstjórn. Fyrir síðustu kosningar tók ég þátt í framboði Neslistans og sett- ist að loknum kosningum sem fulltrúi hans í tvær nefndir bæj- arins, æskulýðs- og íþróttaráð og umhverfisnefnd. Þar hef ég átt þess kost að sinna tveimur mik- ilvægum hugðarefnum mínum og öðlast innsýn í þessa veigamiklu málaflokka á Seltjarnarnesi. Að æskulýðsmálunum á Nesinu hef ég komið áður í öðru samhengi, sem formaður handknattleiksdeildar Gróttu árin 1992–1995 en einnig óbeint að æslýðsmálunum í gegn- um foreldrastarf í Mýrarhúsaskóla, m.a. sem formaður For- eldrafélags Mýrar- húsaskóla 1990–1991. Ég sat einnig í fyrsta foreldraráði skólans 1996 og sat þá fundi skólanefndar sem fulltrúi foreldra. Þessa þrjá málaflokka á Seltjarnarnesi þekki ég því nokkuð af eigin raun. Um árabil hef ég tekið þátt í fé- lagsstarfi ýmissa sam- taka og starfað með miklum fjölda fólks, meðal annars að forvörnum meðal barna og ungs fólks. Á þann hátt hef ég freistað þess að leggja sam- félaginu lið og hafa áhrif á þróun þess. Sú hvöt ræður miklu um þátttöku mína í prófkjöri Bæjar- málafélagsins. Ég tel að reynsla af félagsstörfum, reynsla af því að leita lausna og komast að niður- stöðu, sé notadrjúg fyrir bæjar- stjórnarfulltrúa. Vegna málefna- ágreinings á milli flokka og ólíkra sjónarmiða er það skylda bæjar- stjórnarfulltrúa að leita leiða til samkomulags, finna lausnir sem koma bæjarbúum að sem bestum notum. Fyrir kemur þó að þessi sjálfsögðu vinnubrögð séu hunsuð og meirihlutavaldi beitt í stað þess að leiða mál til lykta með lýðræð- islegum hætti. Ég hef mikla andúð á slíkum vinnubrögðum. Ég hvet Seltirninga til þess að taka þátt í prófkjöri Bæjarmála- félagsins á laugardaginn og óska eftir stuðningi þeirra í 3. sætið. Prófkjör Bæjar- málafélagsins Árni Einarsson Prófkjör Ég hef freistað þess að leggja samfélaginu lið, segir Árni Einarsson, og hafa áhrif á þróun þess. Höfundur býður sig fram í 3. sæti Neslistans. UM aðventu og jól leitar hugurinn til þeirra sem eiga við erfiðleika að stríða hvort heldur eru nær eða fjær. Eitt fátæk- asta land í heiminum er nú vettvangur átaka sem bitna á milljónum saklausra manna sem búa við hungur og örvænt- ingu. Hungursneyð blasir við afgönsku þjóðinni. Milljónir manna eru á flótta eða í flóttamannabúðum. Fjölskyldur flýja heimili sín, bændur flosna upp af jörðum sínum og þjáningar þeirra sem minnst mega sín aukast dag frá degi. Fjöldi ein- staklinga, ekki síst barna, deyr ótímabærum dauða vegna slæms aðbúnaðar og hungurs. Átakanleg örbirgð í Afganistan varð ekki til á síðustu vikum. Tuttugu og tvö ár stríðs hafa valdið miklum hörm- ungum og síðustu þrjú árin hafa þurrkar valdið uppskerubresti. Hungursneyð vofir yf- ir stórum svæðum í landinu. Vetur er genginn í garð í Afganistan. Þegar snjóa tekur, einangrast fólk í af- skekktum sveitum, allsleysi blasir við og það horfir í augu hungurvofunnar. Hungursneyðin í Afganistan hrópar sem aldrei fyrr á hjálp umheimsins. Slíkar hörmungar eru í raun hjálparkall til hinna betur settu í heimin- um. Þjáningar þessa fólks eru ólýsanlegar. Á komandi aðventu er hjálpar- starfi Caritas á Íslandi (hjálpar- stofnun kaþólsku kirkjunnar) í samstarfi við Hjálparstarf kirkj- unnar sérlega beint til neyðarað- stoðar í Afganistan. Efnt verður til styrktartónleika í Kristskirkju við Landakot þar sem landskunnir listamenn koma fram og gefa vinnu sína sunnudaginn 18. nóvember kl. 16:00. Jólamerki Caritas verða til sölu á skrifstofu kaþólsku kirkj- unnar og í Kirkjuhúsinu við Lauga- veg. Einnig er hægt að leggja inn á gíróreikning hjá Caritas á Íslandi, 0900-196002, og reikning Hjálpar- starfs kirkjunnar, nr. 26 hjá SPRON. Þessu fé verður varið til að hjálpa Afgönum í mikilli neyð. Þau alþjóðasamtök sem bæði Caritas á Íslandi og Hjálparstarf kirkjunnar eiga aðild að hafa sent starfsfólk á vettvang hjálparstarfs- ins og þannig tryggt að framlög fólks komist í réttar hendur í formi matar, fata, lyfja og annarra hjálp- argagna. Aðventan og jólin útrýma ekki rangsleitni. Þau eru ekki heilög nema hjá hluta mannkyns. Bænin sem ítrekar „send oss frið“ nær til alltof fárra. Neyðaraðstoð við Afganistan Sigríður Ingvarsdóttir Caritas Hungursneyðin í Afgan- istan, segir Sigríður Ingvarsdóttir, hrópar sem aldrei fyrr á hjálp umheimsins. Höfundur er formaður Caritas á Íslandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.