Morgunblaðið - 16.11.2001, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 16.11.2001, Blaðsíða 27
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 27 Funahöfða 1 www.notadirbilar.is BÍLASALAN SEM ALDREI SEFUR Vw Bora 1,6, nýsk. 4/99, ekinn 35 þ. km., rauður, ssk, r/ö, verð 1.420.000, ath skipti. Renault Clio rt 1400, nýsk. 1/99, ekinn 30 þ. km., gulur, 5g., álfelgur, verð 980.000, ath skipti. Toyota Avensis 2.0 l., nýsk. 5/98, ekinn 26 þ. km., rauður, ssk, r/ö, verð 1.360.000, einn eigandi, gullmoli. Subaro Legacy 2.0 gl, nýsk. 3/99, ekinn 39, þ. km., rauður, ssk, álfelgur, fjarst., verð 1.830.000, lán 1.300 þús., ath skipti. Subaro Impresa 1,6 lx, nýsk. 9/99, ekinn 70 þ. km., silfur, verð 1.190.000, ath skipti, visa /euro rað- greiðslur. Vw Polo 1,4, nýsk. 7/00, ekinn 14 þ. km., rauður, 5g., verð 1.190.000, lán 240 þús., bein sala. Hyunda Starex H1 disel, árg 98, ekinn 158 þ. km., grænn, ssk., verð 1.050.000, tilboð 840.000., ath. gott lán. Nissan Patrol disel, árg 91, ekinn 187 þ. km., hvít- ur, 38" dekk, verð 1.290.000, bein sala, gullmoli. Toyota Landcruser 100 vx benzin, nýsk. 7/00, ekinn 27þ. km., steingrár, m/öllu, verð 6.100.000. Nissan Patrol slx, gr., árg. 96, ekinn 113 þ. km., grænn, 35"dekk, verð 2.290.000, ath. skipti, lán 1.200 þús., topp bíll. Líklegt er að frá og með næstu áramótum verði hagnaður af atvinnustarfsemi skattlagður með mismunandi hætti eftir rekstrarformi. Einstaklingar sem starfrækja rekstur í eigin nafni ættu sérstaklega að athuga sinn gang. Á heimasíðu KPMG getur þú fengið grunnupplýsingar um yfirfærslu einstaklingsrekstrar til einkahlutafélags og fyrirhugaðar skattabreytingar. Sérfræðingar KPMG veita alla nauðsynlega þjónustu og ráðgjöf í þessu sambandi. Nánari upplýsingar getur þú fengið hjá skattasviði KPMG í síma 545 6000 eða með því að senda inn fyrirspurn á skattur@kpmg.is endurskoðun og reikningsskil rekstrar- og stjórnunarráðgjöf skattaráðgjöf fjármálaráðgjöf www.kpmg.is ©2001 KPMG Endurskoðun hf., aðili að KPMG International. Ertu með rekstur? Ertu viðbúinn skattalaga- breytingum 2002? Við hjá KPMG erum viðbúin og til taks. „ÞETTA var kraftaverk,“ sagði Georg Taubmann, einn hjálpar- starfsmannanna átta, sem hermenn Norðurbandalagsins frelsuðu í fyrradag eftir að hafa verið í fang- elsum talibana í hálfan fjórða mán- uð. Hjálparstarfsmennirnir brostu og hlógu er þeir komu til Islamabad í Pakistan í gær, fögnuðurinn yfir því að hafa sloppið lifandi frá þess- um raunum leyndi sér ekki í andliti þeirra. Þeir voru þó mjög þreyttir og eina óskin var að komast í bað. Taubmann, leiðtogi hópsins, sagði, að þegar talibanar hefðu flú- ið Kabúl aðfaranótt þriðjudagsins, hefðu þau haldið, að þeim yrði sleppt en þess í stað hefðu þau ver- ið tekin með. „Þeir settu okkur inn í gám á bíl- palli og læstu honum. Í honum hristumst við um nóttina, ábreiðu- laus og að deyja úr kulda. Við viss- um, að við vorum á leið til Kandah- ar og töldum víst, að þá væru dagar okkar taldir,“ sagði Taubmann. Um morguninn var komið til bæjarins Ghazni, 140 km suðvestur af Kabúl, og þá var fólkið, sex kon- ur og tveir karlmenn, sett í óþrifa- legt fangelsið í bænum. „Við höfð- um verið í fimm fangelsum en þetta var það skelfilegasta,“ sagði Taub- mann. Taubmann segir, að þau hafi ekki fyrr verið komin í fangelsið en þau hafi heyrt sprengjugnýinn frá loft- árásum Bandaríkjamanna. Klukku- tíma síðar gerðu bæjarbúar upp- reisn gegn talibönum. Fagnað eins og þjóðhetjum „Það var brotist inn í fangelsið, klefadyrnar opnaðar og við héldum, að talibanar væru komnir til að sækja okkur. Við vorum öll skelf- ingu lostin,“ sagði Taubmann og léttirinn var mikill þegar þau upp- götvuðu, að þarna voru komnir and- stæðingar talibana. Þegar hjálp- arstarfsmennirnir gengu út úr fangelsinu fögnuðu bæjarbúar þeim eins og þjóðhetjum. „Við gengum inn í bæinn og fólk- ið kom út úr húsunum og faðmaði okkur að sér og allir klöppuðu. Það hafði ekki vitað, að útlendingar væru í fangelsinu,“ sagði Taub- mann. „Þetta var eins og stórhátíð, stærsti dagur lífs míns.“ Bernard Barrett, talsmaður Al- þjóðarauðakrossins í Islamabad, segir, að herstjórnandinn í Ghazni, sem stýrði uppreisninni gegn talib- önum, hafi haft samband við full- trúa Rauða krossins í Afganistan og beðið þá að taka við hjálpar- starfsmönnunum. Kveiktu í kuflunum Björninn var þó ekki unninn þótt fólkið væri laust úr prísundinni því að vopnaðar sveitir talibana voru enn í nágrenninu. Var fólkinu því komið fyrir á akri fyrir utan Ghazni. Þegar það heyrði svo þyrl- ur bandarísku sérsveitanna nálg- ast, vissi það ekki hvernig það ætti að vekja athygli á sér og þá var brugðið á það ráð að safna saman kuflunum, búrkunum, sem kon- urnar í hópnum höfðu verið neydd- ar til að klæðast, og kveikja í þeim. Eftir það gekk allt eins og í sögu. Sökuð um kristniboð Hjálparstarfsmennirnir eru Ástralirnir Peter Bunch og Diana Thomas; Bandaríkjamennirnir Dayna Curry og Heather Mercer og Þjóðverjarnir Georg Taubmann, Katrin Jelinek, Margrit Stebner og Silke Dürrkopf. Öll unnu þau fyrir hjálpar- samtökin Shelter Now Inter- national, sem hafa aðsetur í Þýska- landi. Voru þau handtekin 3. ágúst sl. og gefið að sök að hafa reynt að snúa múslímum til kristni. Það var dauðasök hjá talibönum. 16 afg- anskir starfsmenn samtakanna voru einnig handteknir á sama tíma en þeir fengu frelsi sitt þegar Norð- urbandalagið tók Kabúl. Taubmann segir, að þau hafi ekki stundað neitt kristniboð í Kabúl. Hins vegar hefði ein afgönsk fjöl- skylda sýnt áhuga á að sjá mynd um ævi Jesú Krists og að því hefðu talibanar komist. Sagði hann, að ekki hefði verið farið illa með þau í fangelsunum en aftur á móti hefði hann heyrt hljóðin í öðrum föngum, sem verið var að pynta. George W. Bush, forseti Banda- ríkjanna, fagnaði í gær frelsun fanganna en hann hafði áður hafnað nokkrum tilraunum talibana til að nota þá sem skiptimynt í samn- ingum. Bush sagði, að óttast hefði verið, að talibanar kæmu föngunum fyrir í húsi, sem hugsanlega gæti orðið fyrir bandarískum sprengj- um, og þess vegna hefði herinn ver- ið búinn að leggja á ráðin um sér- staka björgunaraðgerð. Haft er eftir tveimur bandarískum embætt- ismönnum, að talibanar hafi þó undir lokin verið búnir að fallast á að sleppa föngunum í hendur Rauða krossinum. Atburðarásin hefði hins vegar orðið önnur en nokkurn óraði fyrir. „Bænir mínar hafa verið heyrðar“ Mikill fögnuður var meðal ætt- ingja hjálparstarfsmannanna og annarra ástvina þegar fréttist, að þeir væru lausir og heilir á húfi. „Ég á ekki orð til að lýsa gleði minni. Ég veit bara, að bænir mínar hafa verið heyrðar,“ sagði Jim Cassell, stjúpfaðir Heather Merc- er. Það sama sagði Joseph, bróðir Díönu Thomas, og hann lagði líka áherslu á, að þakka bæri fyrir, að talibanar hefðu ekki farið illa með fólkið. Vestrænum gíslum bjargað þegar íbúar í Ghazni gerðu uppreisn gegn talibönum AP Georg Taubmann ræðir við fréttamenn. Næst honum er Silke Dürrkopf, þá Margrit Stebnar og Katrin Jelinek. „Fólkið faðmaði okkur að sér“ Islamabad. AP, AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.