Morgunblaðið - 16.11.2001, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 16.11.2001, Blaðsíða 38
UMRÆÐAN 38 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ H ingað til hefur verið talað um að dauð- inn og skattarnir séu hið eina óum- flýjanlega, en nú fer að líða að því að í staðinn megi setja endurtalningu í Flórída og sigur Bush. Í vikunni bættist enn ein endurtalning síðustu forseta- kosninga Bandaríkjanna við allar fyrri endurtalningar og má telja víst að fleiri fylgi í kjölfarið enda ekki nema ár liðið frá því George W. Bush bar sigur af hólmi í for- setakosningunum í Bandaríkj- unum. Eins má telja víst að Bush sigri einnig í öllum þeim talningum sem eftir eru, en þrátt fyrir lítinn atkvæðamun og fjölda talninga hefur hverri einustu endurtaln- ingu lokið með sigri Bush. Þetta ætti eitt og sér að þykja meðal þess merkilega við kosningarnar, þótt það hafi ekki megnað að verða til þess að allar efasemda- raddir um rétt- mæti sigurs Bush hafi þagn- að. Ekki hefur aðeins verið talið af kappi í Flórída síðasta árið heldur líka talað og skrifað. Eitt af því áhugaverða sem skrifað hefur ver- ið er bókin At Any Cost: How Al Gore Tried to Steal the Election, eða Hvað sem það kostar: Hvernig Al Gore reyndi að stela kosning- unni, eftir Bill Sammon. Höfund- urinn er blaðamaður og fjallar um málefni forsetaembættisins fyrir Washington Times og var þess vegna sendur til Flórída eftir að Gore hætti við að gefast upp á kosninganóttina og hóf umtöl- uðustu málaferli Bandaríkjanna á síðari árum. Ja, að minnsta kosti frá því réttað var yfir O.J. Simp- son. Bókin leiðir lesandann í gegnum kunnuglega söguna, en bætir þó vitaskuld heilmiklu við og tengir saman atburði, þannig að myndin af atburðarásinni verður heil- steyptari eftir lesturinn. Greini- legt er einnig að höfundurinn hef- ur góðan aðgang að þeim mönnum sem voru í eldlínunni. Titill bókarinnar er býsna krassandi og augljóst að höfund- urinn hefur ekki samúð með mál- stað Gores, en í bókinni er líka rækilega rökstutt hvers vegna höf- undur telur Gore eiga þennan dóm skilinn. Hann fer ekki leynt með að hann telur Gore ganga óvenju- langt til að ná pólitískum mark- miðum sínum og að engum séu grið gefin í þeirri baráttu. Eitt fórnarlambanna hafi þannig verið kosningaréttur bandarískra her- manna erlendis. Vitað var að mikill fjöldi bandarískra hermanna sem dvelur erlendis greiðir atkvæði ut- an kjörstaðar í Flórída og að meirihluti þessara hermanna studdi Bush. Þegar slagurinn eftir kosningar byrjaði var eitt af for- gangsverkefnum Gores að sem fæst þessara atkvæða yrðu talin en sem flest gerð ógild. Ekki er hægt að fara í smáatriðum út í þessar tæknilegu þrætur hér en niðurstaðan varð sú að lögmenn Gores fögnuðu mikið þegar þeim tókst að ógilda á annað þúsund þessara utankjörfundaratkvæða. Annað forgangsverkefni Gores var að fá endurtalningu á hluta at- kvæða í fjórum völdum sýslum þar sem vitað var að Gore átti mikinn stuðning. Í heild eru sýslurnar 67. Því var haldið fram að talninga- vélar hefðu ekki talið rétt og þetta yrði að leiðrétta með handtalningu á þeim seðlum sem vélarnar töldu ekki. Í raun var þetta helsta deilu- og kæruefnið í þá 36 daga sem liðu frá því Gore tapaði kosningunni fyrst og þar til hann játaði sig sigr- aðan, 13. desember. Þetta var degi eftir að hæstiréttur Bandaríkj- anna hafði með sjö atkvæðum gegn tveimur komist að sömu nið- urstöðu og lögmenn Bush höfðu allan tímann haldið fram, þ.e. að það bryti gegn stjórnarskránni að telja sum atkvæði á einn hátt en önnur á annan. Vandinn var nefnilega sá, og úr því varð hinn mesti farsi, að engin ein regla var til um hvernig telja bæri atkvæðaseðlana í höndunum. Og það var ekki nóg með að reglur væru ólíkar milli sýslna, þær breyttust klukkustund frá klukku- stund innan einstakra sýslna! Þetta stafar ekki af því að ekki hafi verið til reglur heldur af því að þær voru túlkaðar með ólíkum hætti og að þeim var breytt. Í bókinni er fjallað um hina frægu flipa sem kjósandi átti að þrýsta út úr kjörseðlinum. Sumum kjósendum tókst ekki að gera þetta almennilega og þá urðu til ýmis afbrigði þessara flipa; flipi sem ljós gat skinið fram hjá, flipi með bungu, óléttur flipi, flipi sem fastur er í þremur hornum, tveim- ur hornum, og svo framvegis. Gore hentaði að túlkunin yrði sem rúm- ust og að helst yrðu öll för á flipum talin sem atkvæði. Þess vegna urðu deilur um þetta atriði svo magnaðar. Eitt höfuðatriði kosn- inga er hins vegar að reglur séu settar fyrir kosningar og að þeim sé aldrei breytt eftir kosningar. Það að telja valinn hluta at- kvæðanna í völdum sýslum með þeim hætti sem hentaði öðrum frambjóðandanum gat vitaskuld ekki gengið og þess vegna var sú viðleitni á endanum stöðvuð. Bush hefur orðið ofan á í taln- ingum á Flórída, bæði í opinberum talningum og talningum fjölmiðla eftir að úrslitin lágu fyrir. Þrátt fyrir þetta hefur umræðan um kosningarnar verið heldur andsnú- in Bush og virðist sem margir velji að nefna helst til sögunnar það sem kemur Bush illa og Gore vel. Þótt sumir vilji helst láta telja ógilt atkvæði sem finna mætti út að stuðningsmaður Gores hefði ógilt, hefur þeim ekki þótt ástæða til að gera mikið úr því að líklega tapaði Bush um tíu þúsund atkvæðum áð- ur en kjörstöðum var lokað. Vissu- lega á ekki að telja þau atkvæði með sem ekki voru greidd, ekki frekar en ógildu atkvæðin, en menn mættu þó hafa í huga að fjöl- miðlar hlupu á sig og lýstu Gore sigurvegara í Flórída áður en kjör- stöðum hafði verið lokað í þeim sýslum sem Bush átti mest fylgi. Þetta er í norðvesturhluta Flórída, en þar er annað tímabelti en á skaganum sjálfum og þessi ótíma- bæra og ranga tilkynning þýddi að mjög dró úr kjörsókn. Þetta kost- aði Bush sem sagt að öllum lík- indum um tíu þúsund atkvæðum meira en Gore. Hefði Bush fengið þessi tíu þúsund atkvæði hefði ekki verið þörf fyrir neina af þeim endurtalningum sem fram hafa farið síðan. Sama sagan Hvað sem það kostar: Hvernig Al Gore reyndi að stela kosningunni, er athygl- isverð bók um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. VIÐHORF eftir Harald Johannessen haraldurj@ mbl.is SYKURSÝKI af tegund 2, sem stundum er kölluð fullorðinssyk- ursýki, er vaxandi vandamál í hinum vest- ræna heimi. Árið 1995 var áætlað að um 135 milljónir manna væru með sykursýki af teg- und 2 og að árið 2025 yrði þessi tala komin í um 300 milljónir. Hér á landi greinist nú um það bil einn Íslending- ur á dag með sykursýki af tegund 2. Enn hefur ekki sést aukning á al- gengi sjúkdómsins en ætla má að það muni gerast á næstu 10-20 árum, einkum vegna þess að þjóðin er að eldast og ekki síður að þyngjast. Það hefur lengi verið vitað að sykursýki af tegund 2 er tengd samspili erfða og lífsvenja, s.s. hreyfingarleysis, mataræðis og of- fitu sem er aðaláhættuþátturinn. Sykursýki á drjúgan þátt í veik- indum, dauða, skertum lífsgæðum og aukinni fjárhagslegri byrði einstaklinga og samfélags. Það er því mikilvægt að leita allra leiða til að fyrirbyggja, greina og meðhöndla sykursýki. Nýjar rannsóknir sýna að lífsvenjur fólks skipta verulegu máli, annars vegar í því að fyrirbyggja og draga úr líkum á sjúkdómnum og hins vegar við að draga úr einkenn- um hans. Í bandarískri rannsókn þar sem fylgst var með rúmlega 80 þús- und konum í 16 ár greindust á tíma- bilinu 3.300 konur með sykursýki af tegund 2. Rúmlega 90% af þessum tilfellum voru konur sem voru of þungar, hreyfðu sig lítið, borðuðu óhollan mat og reyktu. Í finnskri rannsókn var 522 miðaldra einstak- lingum með skert sykurþol skipt í meðferðarhóp og samanburðarhóp. Meðferðarhópurinn fékk reglulega einstaklingsbundna ráðgjöf um megrun, mataræði og hreyfingu en samanburðarhópurinn almenna ráð- gjöf í upphafi rannsóknarinnar. Eft- ir tvö ár kom í ljós að meðferðar- hópnum gekk betur að breyta á lífsvenjum sínum og minnkaði það líkurnar á að fá sykursýki um tæp- lega 60%. Það er því ljóst að ef fólki tekst að festast ekki í eða losa sig úr viðjum vana hreyfingarleysis og óholls mat- aræðis dregur það verulega úr líkum á sykursýki af tegund 2. Meira að segja þyngdartap um 5% hefur mikil áhrif. Heilsugæslan er í lykilaðstöðu í að hvetja fólk til að finna sér hreyf- ingu við hæfi og velja hollan og góð- an mat, en ekki síst skipta ákvarð- anir stjórnvalda miklu máli við að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að góðum venjum almennings. Í tilefni af Alþjóðadegi sykur- sjúkra hinn 14. nóvember og 30 ára afmæli sínu munu Samtök sykur- sjúkra vekja athygli á sykursýki með ýmiss konar fræðslu í Kringlunni laugardaginn 17. nóvember. Viðjar vanans og sykursýki af tegund 2 Anna Björg Aradóttir Sjúkdómar Sykursýki af tegund 2 er tengd samspili erfða og lífsvenja, segja Sig- urður Guðmundsson og Anna Björg Aradóttir, s.s. hreyfingarleysis, mataræðis og offitu sem er aðaláhættuþátturinn. Sigurður er landlæknir. Anna Björg er hjúkrunarfræðingur hjá land- læknisembættinu. Sigurður Guðmundsson Í DAG kemur Sam- fylkingin saman til síns fyrsta eiginlega lands- fundar. Eitt og hálft ár er liðið frá stofnun flokksins og aflið unga er að slíta barnsskón- um. Okkar bíða mörg spennandi verkefni við að móta Samfylkinguna sem nýja og öfluga hreyfingu jafnaðar- manna. Á lands- fundinum skerpum við á stefnumiðum okkar, stingum út stefnuna fram að kosningum og blásum til hvassrar sóknar. Sérstaða Ólgusjór stjórnmálanna er sí- breytilegur og ný verkefni blasa við okkur nánast daglega. Í litrófi stjórnmálanna má segja að þrjú mál skilgreini Samfylkinguna skýrt frá öðrum stjórnmálaflokkum. Þau eru: Auðlindir, Evrópa og lýðræðismálin. Þetta eru þeir málaflokkar sem skapa Samfylkingunni, hver með sínum hætti, algjöra sérstöðu í ís- lenskum stjórnmálum. Um leið fela þessir málaflokkar í sér spurningar og svör við helstu viðfangsefnum samtíma okkar og nánustu framtíð- ar. Frumkvöðull auðlindagjalda Samfylkingin hefur verið brim- brjótur í baráttunni fyrir upptöku auðlindagjalda. Stefna okkar um auðlindir felur í sér bestu leiðina til að koma á réttlæti við stjórnun fisk- veiða. Hún felur í sér afnám gjafa- kvótans gegnum fyrningu. Þeirri leið hefur Samfylkingin rutt brautina í íslenskum stjórnmálum. Við höldum því ekki fram að hún sé fullkomin lausn á vanda fiskveiðistjórnunar. En við teljum hana bestu leiðina sem völ er á í dag. Í henni er til dæmis að finna bestu varnirnar gegn brott- kasti. Meginreglan í auðlindastefnu okk- ar er að gjald verði æv- inlega greitt fyrir nýt- ingu allra takmarkaðra auðlinda í sameign þjóðarinnar, svo sem fiskistofna í hafi, fall- vatna á landi og fjar- skiptarása í lofti. Svig- rúmið, sem skapast með upptöku auðlinda- gjalda og auknu að- haldi í ríkisfjármálum, viljum við nýta til að lækka skatta almenn- ings, fyrst og fremst tekjuskatta. Önnur grunnregla okkar er að réttinum til að nýta auðlindir almennings verði alltaf úthlutað á grundvelli jafnræðis. Það þýðir endalok forrétt- inda örfárra einstaklinga varðandi útgerð á Íslandi. Ísland og Evrópa Við höfum sett umræðuna um tengslin við Evrópu á dagskrá og notað undanfarna mánuði til að skil- greina samningsmarkmið Íslendinga komi til viðræðna um aðild að Evr- ópusambandinu. Sú vinna lítur nú dagsins ljós í ritinu „Ísland í Evr- ópu“ sem dreift verður á landsfund- inum. Stjórnmálaflokkur sem tekur hlutverk sitt alvarlega getur ekki lát- ið undir höfuð leggjast að hugsa upp á nýtt stöðu Íslands gagnvart Evr- ópusambandinu. Sú spurning felur í sér eitt stærsta viðfangsefni stjórn- málanna í nútíð og náinni framtíð. Í hana höfum við lagt mikla vinnu síð- ustu mánuði. Nú bíður landsfundar- ins að ákveða næstu skref. Lýðræðið í öndvegi Samfylkingin vill setja lýðræðið og þróun þess í öndvegi íslenskra stjórnmála. Við viljum gera landið að einu kjördæmi, tryggja þannig jafn- an kosningarétt allra og stuðla um leið að aukinni sátt milli þéttbýlis og dreifbýlis. Við viljum þróa milliliða- laust lýðræði og teljum brýnt að taka upp þjóðaratkvæðagreiðslur. Í því efni er sérlega nauðsynlegt að tryggja rétt þjóðarinnar til að krefj- ast þjóðaratkvæðis þótt Alþingi og ríkisstjórn kunni að vera annarrar skoðunar. Við höfum einnig lagt fram þaul- hugsaða stefnu um að treysta betur stöðu Alþingis gagnvart fram- kvæmdavaldinu, sem jafnan hefur sterka tilhneigingu til að sölsa undir sig aukin völd. Í því skyni viljum við stofna opnar rannsóknarnefndir á vegum þingsins og gera því kleift að sinna raunverulegu aðhaldi gagnvart ráðherrum og stofnunum ríkisins. Í sama anda eru tillögur okkar um að lög verði sett um opnar fjárreiður stjórnmálaflokka. Þjóðin á rétt á að vita hvernig og hverjir fjármagna flokkana. Auðsköpun og velferð Samfylkingin byggir alla sína stjórnmálabaráttu á því að öflugt efnahagslíf, góð velferðarþjónusta og kraftmikil menntastefna séu sam- ferðarmenn en ekki andstæður. Þessi þríhyrningur myndar grunn- inn í stefnu okkar. Hvert horn hans hvílir á hinum. Samfylkingin er flokkur jafnaðar og velferðar og að sama skapi ábyrgur flokkur sem stendur vörð um öflugt atvinnulíf. Auðsköpun og velferð eru grunntón- arnir í stefnu okkar Í dag er veður til að skapa. Ég býð alla sem telja sig samferða hugsjón- um jafnaðarstefnunnar velkomna til landsfundar Samfylkingarinnar sem hefst í dag. Siglingakort Samfylkingarinnar Össur Skarphéðinsson Stjórnmál Samfylkingin, segir Össur Skarphéðinsson, er flokkur jafnaðar og velferðar. Höfundur er formaður Samfylkingarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.