Morgunblaðið - 16.11.2001, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 16.11.2001, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. „ÉG er ekki þekkt fyrir að fagna mörkum, en þegar ég skoraði fyrsta markið fagnaði ég svo rosa- lega að ég hafði áhyggjur af því að ég myndi slasast á ný,“ sagði Her- dís Sigurbergsdóttir handbolta- hetja úr Stjörnunni um fyrsta leik sinn í tæp þrjú ár, en hún hefur ver- ið frá vegna meiðsla eftir að hún sleit hásin í landsleik gegn Rúss- landi í janúar árið 1999. Stjarnan lék bikarleik gegn KA/Þór á Ak- ureyri á miðvikudag og sigraði með 33 mörkum gegn 22. „Það snart mig líka djúpt hvað liðið mitt upp- lifði þessa stund sterkt með mér,“ sagði Herdís. Hún lék með liðinu í um 15 mínútur og sagði mótherj- ana ekki hafa gefið nein grið. „Þær hikuðu ekki við að rífa mig niður,“ sagði hún og bætti við að annað hefði hreinlega verið móðgandi. Herdís hefur farið í þrjár aðgerð- ir vegna meiðslanna, þar af tvær hér heima sem ekki leiddu til bata en í febrúar á síðasta ári fór hún í aðgerð í Þýskalandi þar sem grædd var í hana 20 cm löng hásin og hæl- bútur að auki. Lækningaferðirnir til Þýskalands eru orðnar átta og nú í byrjun desember fer Herdís að nýju út til að ljúka meðferðinni. Það var tugþrautarkappinn Jón Arnar Magnússon sem benti Her- dísi á þýska lækninn og virðist það hafa borgað sig. Læknir Herdísar hefur fylgst vel með henni og hvatti hana til að taka fram skóna á ný og segir hún að það sé hvatningu hans að þakka að hún er byrjuð aftur í boltanum. Herdís leggur þó áherslu á að engin ástæða sé til að halda að hún sé aftur komin fram á sjónarsviðið, alheil og tilbúin í hvað sem er eftir langvarandi meiðsl. „Ég er mjög langt frá því að vera jafngóð og ég var, nú þegar er ég sjálfsagt orðin öryrki að hluta og það mun ekki breytast héðan af. Það er stór sigur fyrir mig að hafa náð þó þetta langt en þetta er afar erfitt fyrir mig. Ég vil alls ekki að fólk fái ranga mynd af því sem er að gerast, enda gæti ég þurft að hætta fyrirvaralaust aftur. Ég leik fyrir sjálfa mig og finnst gaman að gera það litla sem ég geri og veit í raun ekki hversu lengi það mun vara,“ segir Herdís sem segist hafa ákveðið að ljúka keppnistímabilinu. „Ef ég get orðið liðinu að gagni þann stutta tíma sem ég tel mig geta leikið, þá væri það frábært. Stærsti sigurinn væri að geta lokið keppnistímabilinu en nú tek ég einn dag fyrir í einu. Ef álagið reynist of mikið verð ég að draga mig í hlé.“ Herdís Sigurbergsdóttir handboltakona lék sinn fyrsta leik í 3 ár eftir meiðsl Morgunblaðið/Ásdís Herdís Sigurbergsdóttir með dóttur sinni Sigrúnu Maríu Jörundsdóttur. „Snart mig djúpt hvað liðið upp- lifði stundina sterkt með mér“ LIÐSMENN Slökkviliðs höfuðborg- arsvæðisins þurfa ávallt að vera við- búnir misjöfnum aðstæðum sem bíða þeirra við útköll og því er þjálf- un nýliða nauðsynlegur þáttur í starfseminni. Einn liður í nýliða- þjálfuninni er æfing í meðferð eitur- efna, eins og miltisbrands, í sér- hönnuðum eiturefnabúningum. Átta nýliðar tóku þátt í slíkri æfingu á Miklatúni í gær, þar af ein kona, sem geta má að er þriðja konan í slökkvi- liðinu af 120 manna útkallsliði. Ný- liðunum var falið að slá niður reyk úr neyðarbaujum og koma þeim fyr- ir í eiturefnatunnum. Guli reykurinn sem umlykur slökkviliðsmennina er skaðlaus, en hylkin sem innihalda hann eru notuð í neyð á hafi úti. Morgunblaðið/Júlíus Æfa meðferð eiturefna GÍSLI Guðjónsson, prófessor í rétt- arsálfræði, hefur verið beðinn að veita umsögn í svokölluðu Orderud- máli, en það er eitt umtalaðasta dómsmál sem komið hefur upp í Noregi á seinni árum. Málið er nú fyrir áfrýjunarrétti og fer Gísli til Noregs í næstu viku til að kynna sér það. Hjónin Per og Veronica Orderud voru ásamt systur Veronicu, Kirk- emo Haukeland, dæmd í héraðs- dómi í 21 árs fangelsi fyrir að hafa myrt foreldra og systur Pers 22. maí árið 1999. Voru morðin framin á heimili frænda fjölskyldunnar í Sörum, rétt norðan við Ósló. Systir Pers, Anne Orderud Paust, var einkaritari þá- verandi varnarmálaráðherra Nor- egs og var í fyrstu talið að morðin væru pólitísks eðlis. Héraðsdómur taldi hins vegar sannað að morðin hefðu verið fram- in vegna deilna feðganna Pers og Kristians um framtíð Orderud-bú- garðsins. Ekki ljóst hvort áfrýjunar- rétturinn ræður hann Gísli Guðjónsson sagði í samtali við Morgunblaðið að óskað hefði verið eftir því að hann skoðaði málið og veitti umsögn um það. Hann sagði enn ekki ljóst hvort áfrýj- unarrétturinn myndi ráða hann til þessa verkefnis, en ef það yrði ekki myndu verjendur sakborninga óska eftir umsögn hans. Gísli fór til Noregs í september til að kynna sér málið, en hann kvaðst eiga eftir að skoða það miklu betur. Gísli Guðjónsson réttarsálfræðingur Beðinn að skoða Orderud- málið JÓN Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingaráðherra sagði á Alþingi í gær að sér hugnaðist ekki ef heim- ilislæknar væru farnir að bjóða upp á vitjanir í heimahús fram hjá grunnþjónustunni sem rekin væri sameiginlega. Hann kvaðst jafn- framt ætla að kanna hjá landlækni hvort læknir sem auglýst hefur þá þjónustu að koma í læknisvitjun í heimahús hafi sótt um leyfi fyrir þessari starfsemi. Það var Bryndís Hlöðversdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sem gerði áform um einkarekstur í heil- brigðiskerfinu að umtalsefni. Heilbrigðisráðherra Andsnúinn einkaþjón- ustu heim- ilislækna  Ráðherra/10 SAMÞYKKT var á borgar- stjórnarfundi í gærkvöldi að fela forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur að undirbúa sölu á Perlunni. Tillagan var sam- þykkt með átta atkvæðum R- listans en fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins sátu hjá. Í greinar- gerðum sögðu fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins að þeir legðust almennt ekki gegn sölu Perl- unnar en að málið hefði borið að með þeim hætti að þeir gætu ekki greitt tillögunni atkvæði og miklu máli skipti hvaða starf- semi yrði í Perlunni ef hún yrði seld. Ljóst væri að tillgan væri lögð fram til þess að beina at- hyglinni frá vandræðum Línu.- Nets. Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitunn- ar, sagði aldrei hafa verið inni í myndinni að sala Perlunnar yrði með þeim hætti að starf- semi þar yrði borginni til vansa. Leyft að undirbúa sölu á Perlunni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.