Morgunblaðið - 16.11.2001, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 59
DAGBÓK
Útsölumarkaður
á Langholtsvegi 130
Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 12.00-18.00
Snertilinsur fyrir byrjendur
Linsur f. 3 mán. • mátun • kennsla
• vökvi og box frá 6.500 kr.
Daglinsur 85 til 100 kr. stk.
Mánaðarlinsur 750 kr. stk.
Árslinsur 3.000 kr. stk.
á meðan birgðir endast
Ath. þetta!
Einnig mátun
fyrir sjónskekkju
og progressiv/
margskiptar linsurLaugavegi 36,
sími 551 1945
Í apótekinu þínu núna
Afsláttur af öllum N°7 snyrtivörum
Vantar þig varalit, gott krem, jólagjöf eða
N°7 förðunarbursta í tösku?
Tilboð meðan birgðir endast
Ilmurinn í ár – Vincent Van Gogh
gjafakassar fyrir dömur og herra.
Sérsaumaðar snyrtibuddur. Veski kr. 1.300.
Hanskar og treflar o.fl.
Buxna-
dagar • • •mkm
v i ð Ó ð i n s t o r g
1 0 1 R e y k j a v í k
s í m i 5 5 2 5 1 7 7
20-50%
afsláttur
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert skilningsríkur og til-
finningasamur og þótt gott
sé kemst þú stundum í
vanda þess vegna.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Láttu það ekki aftra þér þótt
breytingatillögur þínar fái
lítinn hljómgrunn. Tíminn
vinnur með þér og þess
vegna skaltu bara vera stað-
fastur.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Einhverjir öfundarmenn þín-
ir vilja koma í veg fyrir að þú
náir takmarki þínu. Sýndu
þolinmæði því tiltektir þeirra
munu hitta þá sjálfa fyrir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Misstu aldrei trúna á sjálfan
þig, þótt einhver ský kunni
að draga upp á himininn. Ef
þú ert sjálfum þér trúr mun
allt fara á besta veg.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft að leggja hart að
þér til þess að koma verk-
efnum í höfn, en því meiri
verður ánægjan í lokin þeim
mun snúnari sem hlutirnir
eru.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er ekki rétta leiðin að
herða tökin þegar aðrir eru
komnir upp að vegg. Þvert á
móti áttu að gæta þess að
hinir hafi alltaf undankomu-
leið.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Nú er stundin til þess að
brjóta blað í heilsumálunum
og taka upp lifnaðarhætti
sem tryggja þér heilbrigða
sál í hraustum líkama.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Dragðu ekki að ljúka við
verkefni, sem þú hefur tekið
að þér. Allt slugs kemur bara
í bakið á þér og þá verður
ekki létt að bjarga málunum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ættir að líta í kring um
þig heima við og setja á blað
þá hluti sem gera þarf. Það
er svo margt sem þú getur
ekki slegið á frekari frest.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Hlustaðu á það sem vinir þín-
ir hafa að segja um þín mál.
Þótt þeir flytji engan stóra-
sannleik kann eitthvað gott
að leynast í máli þeirra.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er ekki nóg að vita hlut-
ina svona nokkurn veginn.
Sestu niður og farðu í gegn
um málin, sérstaklega fjár-
málin, svo þú vitir upp á hár.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ættir að slást í hópinn
með kunningjunum því öll
sameiginleg upplyfting er
góð skemmtan og styrkir
vinaböndin. Sýndu öðrum til-
litssemi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Láttu ekki slá þig út af lag-
inu. Það skiptir svo miklu
máli að þú missir ekki sjónar
á takmarkinu hvað sem hver
segir og gerir. Þolinmæði
þarftu til.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
„KÍKIRINN kostaði
spilið,“ tautaði athugull
áhorfandi fyrir munni
sér og sneri upp á yf-
irvararskeggið. Hann var
að íhuga spilamennsku
sagnhafa í fjórum spöð-
um dobluðum í þessu
spili Íslandsmótsins í tví-
menningi:
Suður gefur; NS á
hættu. Áttum snúið.
Norður
♠ K3
♥ K5
♦ K109852
♣K84
Vestur Austur
♠ G1052 ♠ 96
♥ ÁDG93 ♥ 10876
♦ ÁD43 ♦ G6
♣ -- ♣G9762
Suður
♠ ÁD874
♥ 42
♦ 7
♣ÁD1053
Vestur Norður Autsur Suður
-- -- -- 1 spaði
2 hjörtu 3 grönd 4 hjörtu Pass
Pass 4 spaðar Pass Pass
Dobl Allir pass
Vestur kom út með
hjartaás og spilaði hjarta
áfram á kóng blinds.
Sagnhafi var fullur bjart-
sýni og byrjaði á því að
taka þrjá efstu í trompi.
Lagði svo niður laufás og
þar með var spilið tapað,
þótt það blasi ekki bein-
línis við.
Vestur þarf reyndar að
verjast vel. Til að byrja
með hendir hann tígli í
laufásinn.
Ef sagnhafi spilar nú
tígli að blindum tekur
vestur slaginn og spilar
hjarta – hann má ekki
taka spaðaslaginn.
Suður trompar og spil-
ar laufi, en nú trompar
vestur og stíflar þannig
laufið.
Hann spilar hjarta,
sem suður trompar með
síðasta spaðanum og get-
ur þá ekki lengur nálgast
tíunda slaginn á lauf-
drottningu heima.
Stíflan í laufinu er til-
komin vegna þess að suð-
ur var of fljótur á sér að
leggja niður laufásinn til
að „kíkja á leguna“.
Ef hann spilar strax
tígli á kónginn fær hann
alltaf tíu slagi. Kíkirinn
kostaði spilið.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
LJÓÐABROT
ALDAMÓTIN
Drottinn, sem veittir frægð og heill til forna,
farsæld og manndáð, vek oss endurborna!
Strjúk oss af augum nótt og harm þess horfna,
hniginnar aldar tárin láttu þorna.
– – –
Sú kemur tíð, er sárin foldar gróa,
sveitirnar fyllast, akrar hylja móa,
brauð veitir sonum móðurmoldin frjóa,
menningin vex í lundi nýrra skóga.
– – –
Starfið er margt, en eitt er bræðrabandið,
boðorðið, hvar sem þér í fylking standið,
hvernig sem stríðið þá og þá er blandið,
það er: að elska, byggja og treysta á landið.
Hannes Hafstein
1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c4 b6 4.
g3 Bb4+ 5. Bd2 Be7 6. Bg2
Bb7 7. O–O c6 8. Bc3 d5 9.
Rbd2 O–O 10. Dc2 Rbd7 11.
Had1 Dc7 12. e4 dxc4 13.
Rxc4 Ba6 14. Rfd2 Dc8 15. b4
Hb8 16. Hfe1 He8 17. a3 Bf8
18. Ba1 Hd8 19. Re3 Re8 20.
e5 c5 21. bxc5 bxc5 22. d5
Rc7 23. Re4 h6 24. Rd6 Bxd6
25. exd6 Re8 26. dxe6 fxe6
27. Bh3 Rf8 28. Rd5 Db7 29.
Re7+ Kh8 30. Rg6+ Rxg6
31. Dxg6 Bc4.
Staðan kom upp í minn-
ingarmóti Jóhanns Þóris
Jónssonar. Stefán Kristjáns-
son (2.374) hafði hvítt gegn
Kristjáni Eðvarðssyni
(2.245). 32. Hxe6! Hxd6 og
svartur gafst upp um leið
enda fátt um fína drætti
eftir 33. Hxe8 +. Helgi Sæ-
mundsson var einn grein-
arhöfunda í áhugaverðu og
skemmtilegu mótsblaði
minningarmótsins. Í grein-
inni rekur hann m.a. sögu
af Jóhanni en hún var á þá
leið að kunningi Helga, sem
þótti nokkuð fastheldinn á
fé, hafði birt rándýra aug-
lýsingu í tímaritinu Skák.
Helga fannst þetta tíðind-
um sæta og grennslaðist
fyrir um ástæður þessa. Jó-
hann hafði þá komið við á
skrifstofu kunningjans og
beðið um auglýsingu í blaðið.
Kunninginn leist svo á hann
að ef hann yrði ekki umsvifa-
laust við bón hans myndi Jó-
hann ekki bifast úr sætinu
fyrr en jáyrðið yrði fengið!
Þessi saga segir meira en
þúsund orð um viljastyrk Jó-
hanns en án hans hefði stóru
hugmyndir hans aldrei orðið
að veruleika. Atskákmót
Hellis fer fram dagana 16. og
17. nóvember. Nánari upp-
lýsingar um mótið er að finna
á hellir.is.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 21. júlí sl. í Bústaða-
kirkju af sr. Pálma Matth-
íassyni Elín Þorsteinsdóttir
og Bjarni Tómasson.
Ljósmynd/Sigríður Bachmann
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 12. maí sl. í Hall-
grímskirkju af sr. Bjarna
Karlssyni Jóhanna Ýr Jóns-
dóttir og Halldór Þ. Gísla-
son. Heimili þeirra er í
Gyðufelli 12, Reykjavík.
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 21. júlí sl. í Háteigs-
kirkju af sr. Helgu Soffíu
Konráðsdóttur Katrín
Skaftadóttir og Jón Björn
Björnsson.
Mynd, Hafnarfirði
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 6. október sl. í Hafn-
arfjarðarkirkju af sr. Þór-
halli Heimissyni Unnur Elfa
Guðmundsdóttir og Jón
Viðar Magnússon. Heimili
þeirra er í Hafnarfirði.
FRÉTTIR
70 ÁRA afmæli. Nk.sunnudag, 18. nóv-
ember, verður sjötugur Jó-
hannes Sigmundsson,
ferðaþjónustubóndi og
fyrrv. kennari, Syðra-
Langholti, Hrunamanna-
hreppi. Hann og eiginkona
hans, Hrafnhildur S. Jóns-
dóttir, bjóða vinum og
vandamönnum til morgun-
verðarhlaðborðs í Golfskál-
anum við Selsvöll skammt
frá Flúðum kl. 10–14 á af-
mælisdaginn.
LOTTO-danskeppnin verður haldin í
10. skiptið sunnudaginn 18. nóvem-
ber í Íþróttahúsi Hafnarfjarðar við
Strandgötu.
Allir aldurshópa keppa í hinum
ýmsu dönsum, einnig verður liða-
keppni. Valið verður lotto par ársins
og verða vegleg verðlaun í tilefni af-
mæliskeppninnar. Sýningaratriði
verða sett inn á milli dagskrárliða.
Það er Dansíþróttafélag Hafnar-
fjarðar sem heldur keppnina undir
stjórn Auðar Haraldsdóttur dans-
kennara. Íslenskir danskennarar
dæma keppnina, segir í fréttatil-
kynningu. Húsið verður opnað kl.
11.30 en keppnin hefst kl. 13. Allir
eru velkomnir.
Lotto-danskeppnin 10 ára