Morgunblaðið - 16.11.2001, Side 29

Morgunblaðið - 16.11.2001, Side 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 29 Lagersalan á Laugavegi 67 2 DAGAR EFTIR - ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR Kápur Úlpur Dragtir Kjólar Buxur Toppar Skór ÉG býst við að sakamálasagan Blátt tungl eftir Árna Þórarinsson flokkist varla með „hefðbundnum“ sakamálasögum sem oft snúast um eitt mál og lausn einnar megingátu. Í raun er mér ekki ljós hver sú megingáta ætti að vera í þessari bók því sagan er flétta óskyldra atburða sem skarast og víxlast á margræðan hátt. Kannski er hún gáta í sjálfri sér eins og að- alpersónan sem rekur hálft í hvoru í óvissum sjó, að hálfu árveknin sjálf og að hálfu annars hugar í tilvistarnauð. Segja má að bókin í heild sé tilraun til að tengja ýmis sakamál stærri þjóðfélagsmál- um. Sagan segir frá blaðamanninum Einari á Síðdegisblaðinu sem kunnur er úr fyrri verkum höfundar. Meginviðfangsefni bókarinnar teng- ist mannshvörfum, morðum og sjálfs- vígum. Kona hverfur, maður stekkur fram af þaki og annar lýsir morði sem hann hefur framið en hefur nú frels- ast. Fleiri mannshvörf og morð koma við sögu en utan um þessa atburði fléttast svo valdabarátta á Síðdegis- blaðinu sem er gamalkunnugt stef úr íslenskum bókmenntum. Á vissan hátt má skoða þennan þátt sögunnar sem lykilsögu úr íslensku samfélagi því að vissulega á sú valdabarátta sér ýmsar samsvaranir í veruleikanum. Sagan er einnig öðrum þræðinum umfjöllun um þunglyndi. Titillinn tengist þeim sjúkdómi og er öðrum þræðinum fenginn úr þjóðtrú og á hinn bóginn úr amerískum slagara frá seinustu öld. Má úr bókinni lesa margt um skammdegisþunglyndi og annan þann fróðskap sem oft getur að lesa um í helgarblöðum dagblað- anna. Þessi umræða tengist raunar starfi blaðamannins, Einars, sem er mestalla bókina að skrifa grein um þunglyndi. Mér finnst þó þessi fræðsla taka upp heldur mikið rými bókarinnar enda eru skáldsögur oft- ast ekki heppilegur vettvangur slíkr- ar fræðilegrar umræðu. Reyndin er nefnilega sú að besti kostur rithöfundarins, Árna Þórar- inssonar, er að segja sögu. Persónur hans eru oft dregnar upp skýrum dráttum, sögufléttan er trúverðug, textinn lipurlega skrifaður, ekki síst þegar frásögn og samtöl fléttast sam- an. Persónusköpunin er yfirleitt markviss þótt ekki sé margt eða mik- ið í persónurnar lagt. Aðalpersónuna nálgast Árni þannig á tvíræðan hátt. Öðrum þræðinum er hún af- helguð með líkamlegum klaufaskap og hrjúf- leika. Í upphafi sögu er Einar þannig látinn detta í sturtu. Hann á líka í vandræðum með tengsl sín við annað fólk og er fyrir bragðið ein- fari. Hins vegar nálgast höfundur þessa persónu sína með virðingu því að Einar hefur siðferðis- legan styrkleika og skynsemi til að leysa flókin vandamál. Stöku sinnum er þó fullmikið af lausum endum í persónu- sköpun og söguframvindu. Mér finnst það há þessari skáldsögu nokk- uð að hún er sjálfstætt framhald fyrri sagna Árna. Sumar persónurnar eru gamlir kunningjar úr eldri sögum Árna svo sem eins og Eiríkur og Snorri sem gefa sögunni dálítið dem- ónískt yfirbragð. Þegar að þeim kem- ur finnst mér Árni ekki gæta sín nægilega á því að útskýra forsögu þeirra og eðlisþætti líkt og hann ætl- ist til að menn hafi lesið fyrri sögur hans. Sú lesning er svo sem ekki leið- inleg en mér finnst þetta gera skáld- sögu Árna óþarflega sköllótta. Í heildina tekið er Blátt tungl þó allvel heppnuð sakamálasaga þótt hún jafnist kannski ekki á við fyrri sögur hans. Hún heldur lesanda lengst af við efnið þótt á stundum slakni á spennu og hraða frásagnar. Textinn er lipur og ýmsum steinum velt til að kanna hvað þar kann að leynast undir. Tunglið, tunglið BÆKUR S k á l d s a g a eftir Árna Þórarinsson. Mál og menning 2001. 236 bls. BLÁTT TUNGL Skaft i Þ. Halldórsson Árni Þórarinsson ekki raunin. Dmitri Alexejev var að vísu undirrituðum ný reynsla, en mun þó hafa komið fram hér á landi tvisvar áður. Að þessu sinni glímdi hann við Annan Píanókons- ert Tsjækovskíjs, og það með mikl- um bravúr. Konsertinn hefur löngum staðið í skugga hins al- kunna nr. 1, enda innhverfara verk. Auk þess varð hann þegar í upphafi, sbr. sinfóníur Bruckners, að þola misvel heppnaðar stytting- ar höfundar að beiðni píanistans Taníjevs við frumflutninginn 1882. Úrtínda efnið var ekki farið að setja inn aftur fyrr en á síðustu áratugum, þ. á meðal hina sér- kennilegu einleiksdúókafla fiðlu og sellós í 2. þætti sem oft ku leiknir á tónleikum erlendis af stjörnusól- istum á þau hljóðfæri. Að Taníjev hafi viljað dúóin burt er kannski skiljanlegt, þar eð þau draga að sér SÓLISTI kvöldsins á velsóttum sinfóníutónleikunum í gær var ekki, eins og vetrardagskrá SÍ gaf til kynna með tveggja mánaða fyr- irvara, Boris Berezovskíj, heldur Dmitri Alexejev. Sem endranær í slíkum tilvikum án skýringa, sem lýsir óhjákvæmilega ákveðnu virð- ingarleysi gagnvart tónleikagest- um. Ekki er þó þar með sagt að fyr- irvaralítil einleikaraskipti þurfi að vera til hins verra, enda varð sú verulega athygli á kostnað slag- hörpunnar. Túlkun Alexejevs var bæði syngjandi mjúk og skapmikil, þó að eldmóðurinn ágerðist stundum á kostnað nákvæmni. Engu að síður var ljóst, að her var hörkupíanisti á ferð. Ekki virtist hann þó allskost- ar ánægður með hljóðfærið, því stundum var engu líkara en að ver- ið væri að refsa flyglinum. Skyldi engan undra, því sama var hvað pundað var fast í fílabeinið – ekki batnaði mattur tónninn, sem hljómaði líkt og búið væri að líma svamp undir söngbotninn. Né held- ur lét sólistinn klappa sig upp í aukalag, og kannski ekki nema von. Hljómsveitarmeðleikurinn var varla nema í meðallagi miðað við það sem á eftir kom, og fiðlan var framan af svolítið sár í dúóinn- slögum miðþáttar. Hvað sem segja má um tök Tsjækovskíjs á sinfónísku formi – hann var alla tíð sjálfur efins um hæfileika sína í þeim efnum, enda ber ólgusjór tilfinninga hans oft- lega hnitmiðaðan strúktúr ofurliði – þá vefengir enginn takmarka- lausu melódísku andagift hans og afburðanæmi fyrir orkestrun. Hvort tveggja hrósar ómældum sigrum í svanasöngsverkinu, 6. sin- fóníunni frá 1893 sem hann auk- nefndi „Pathétique“ að tillögu frá Modest bróður sínum. Tónskáldið leit á verkið sem sitt bezta og lét að því liggja að væri samið við „prógramm“, án þess þó að láta uppi hvert það væri. „Látum aðra brjóta heilann um það,“ kvað hann hafa skrifað, þó að búast mætti við að hljómkviðan yrði snemma túlk- uð sem sjálfsævisaga í tónum. Verkið er þvílíkur sægur frjórra hugmynda, að æra myndi óstöð- ugan upp að telja. Læt því nægja að nefna 5/4 „vals“-stef II. þáttar sem gæti hugsanlega hafa svifið fyrir hugskotseyrum Bartóks, þeg- ar hið rómantíska „calmo“-stef hans í IV. þætti Konsertsins fyrir hljómsveit kom undir hálfri öld síð- ar. II. þátturinn var tekinn hægar en algengast er og fyrir vikið svo- lítið þungur á bárunni, en annars var hljómsveitarleikurinn nánast undantekningalaust af fyrstu gráðu undir sópandi stjórn Alexanders Anissimovs. Smellandi glæsiblástur lúðranna kom þó kannski minna á óvart en fjöldi mikilvægra smáat- riða í víravirkjum strengjasveitar, þar sem heyrðist fleira en maður á að venjast. En fyrst og fremst var skáldlega mótaður flutningurinn af því tagi sem hiklaust hefði hrifið blóðheitari áheyrendur sunnar í álfu á fætur með verðskulduðum bravóöskrum. „Pathétique“ af fyrstu gráðuTÓNLISTH á s k ó l a b í ó Tsjækovskíj: Píanókonsert nr. 2 í G Op. 44; Sinfónía nr. 6 í h Op. 74, „Pathétique“. Dmitri Alexejev, píanó; Sinfóníuhljómsveit Íslands u. stj. Alexanders Anissimovs. Fimmtudaginn 15. nóvember kl. 19.30. SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson HALDNIR verða kvikmynda- tónleikar í Bæjarbíói í Hafnarfirði í kvöld, þar sem sýnd verður þögla kvikmyndin Endalok Sankti Pét- ursborgar eftir rússneska leikstjór- ann Vsevolod Púdkovin. Við sýn- inguna mun Jóhann Jóhannsson frumflytja tónlist sem hann hefur samið sérstaklega við kvikmyndina. Þar leikur hann á ýmis rafmagns- hljóðfæri, s.s. Hammondorgel og rússneska raftækið Þeramín, en Pétur Hallgrímsson leikur á gítar. Um er að ræða fyrstu tónleikana í verkefninu „Ný tónlist – gamlar myndir“ sem Kvikmyndasafn Ís- lands stendur að undir verkefn- isstjórn Orra Jónssonar ljósmynd- ara og tónlistarmanns, og er unnið í samvinnu við ýmsa aðila. Sýndar verða á næstunni, nær mán- aðarlega, kvikmyndir frá tímum þöglu myndanna, við frumsamda tónlist ýmissa íslenskra og erlendra tónlistarmanna, s.s. Múms, Hilmars Arnar Hilmarssonar, og nemenda á tónlistarbraut Listaháskóla Íslands. Í kjölfar verkefnisins verður tón- listin jafnframt gefin út á geisla- plötu á vegum Eddu – miðlunar og útgáfu. En það er Jóhann Jóhnannsson sem ríður á vaðið með tónlist við kvikmynd Púdovkins frá árinu 1927. Sjálfur valdi Jóhann kvik- myndina til verkefnsins, og segir hann þar um að ræða gleymdan gullmola úr kvikmyndasögunni. „Mig langaði til að vinna með ein- hverja kvikmyndanna sem gerðar voru á Sovéttímanum og horfði á fjöldann allan af þöglum myndum frá þeim tíma. Þegar ég sá Endalok Sankti Pétursborgar heillaðist ég þegar í stað, en myndin hefur mjög sérstaka hrynjandi, enda er hún mjög fræg fyrir magnaðan stíl í klippingu. Þó svo að þar sé fjallað um kerfi sem er löngu hrunið, fannst mér kvikmyndin á margan hátt mjög nútímaleg, leikurinn er mun eðlilegri en tíðkaðist og efn- istökin til þess fallin að eiga erindi við fólk í dag. Myndrænt séð er kvikmyndin jafnframt mjög inspírerandi.“ Við samningu tónlistarinnar seg- ist Jóhann hafa lagt áherslu á að gera flutninginn lifandi, þótt kvik- myndin sjálf myndi ef til vill teljast þung. „Ég kallaði til gamlan vin minn, Pétur Hallgrímsson og reyndum við að búa til hljóðheim sem hæfði myndinni. Tónlistin er hins vegar samin á algerlega sam- tímalegum forsendum og notum við mikið af raftækjum ýmiskonar.“ Jóhann lýsir tónlistinni sem dálít- ið vélrænni en um leið hlýrri. „Það má kannski orða það svo að tónlist- in skapi ákveðna stemmningu, enda finnst mér það vera hlutverk kvik- myndatónlistar að skírskota til þess sem er að gerast á tjaldinu án þess að vera beinlínis að útskýra neitt. Tónlistin getur til dæmis verið al- ger andstæða þess sem er að gerast í kvikmyndinni, en aukið samt sem áður áhrifin.“ Jóhann Jóhannsson hefur fengist við tónlist í fjölda ára, samið tónlist fyrir og leikið í sveitum á borð við Daisy Hill Puppy Farm, Ham, LHOOQ og Apparat. Hann segir að lokum að um algert draumaverk- efni sé að ræða í þessu tilfelli. Sjálf- ur hafi hann verið undir nokkrum áhrifum kvikmyndatónlistar í því sem hann hefur verið að semja und- anfarin ár, auk þess sem hann hafi unnið að því að semja tónlist t.d. við leikrit og heimildarmyndir. „Þöglu kvikmyndirnar eru hins vegar sér á báti, því þar er ekkert tal sem mað- ur þarf að vinna í kringum, bara hreint samspil tónlistar og mynda.“ Kvikmyndatónleikarnir hefjast í Bæjarbíói kl. 20, og er aðgangs- eyrir kr. 1.000. Hreint samspil tónlistar og mynda Morgunblaðið/Árni Sæberg Jóhann Jóhannsson ásamt Pétri Hallgrímssyni og Orra Jónssyni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.