Morgunblaðið - 16.11.2001, Page 34

Morgunblaðið - 16.11.2001, Page 34
34 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. FÉLAGSVÍSINDADEILDHáskóla Íslands var stofn-uð 15. september 1976 ogfagnar nú 25 ára afmæli sínu. Í deildinni sameinuðust fé- lagsfræði, stjórnmálafræði og mann- fræði, sem áður höfðu myndað náms- braut í almennum þjóðfélagsfræð- um, og bókasafnsfræði, sálfræði og uppeldisfræði, sem kenndar höfðu verið í heimspekideild fram að því. Síðar bættust fleiri greinar við og nú eru 22 námsleiðir í deildinni. Hægt er að ljúka þaðan BA-prófi í átta greinum, starfsréttindum í fjór- um greinum og 30 eininga aukagrein í fjórum greinum þar til viðbótar. Sérskipulagt MA-nám er í fjórum greinum og auk þess er hægt að sækja um heimild til skráningar í MA-rannsóknarnám í öllum fræði- greinum deildarinnar og til doktors- náms í nokkrum þeirra. Árelía Eydís Guðmundsdóttir var fyrsti doktors- neminn til að útskrifast frá deildinni en hún varði doktorsritgerð í stjórn- málafræði í haust. Gífurlegur vöxtur í deildinni Frá upphafi hafa yfir 1.800 nem- endur útskrifast frá deildinni með BA-próf, um 1.500 með starfsrétt- indi og 30 með MA-próf. Í upphafi voru um þrjú hundruð stúdentar skráðir til náms, sem voru um tíu prósent af heildarnemenda- fjölda háskólans. Í ár eru hins vegar um 1.400 stúdentar skráðir í deild- ina, eða um 20% af heildarnemenda- fjölda. Hún er nú fjölmennasta deild Háskóla Íslands. Í upphafi voru ellefu fastir kenn- arar við deildina, þar af tvær konur. „Í dag eru aftur á móti 39 kennarar og af þeim eru 19 konur,“ segir Ólaf- ur Þ. Harðarson deildarforseti. „Þessi aukning bæði í nemenda- og kennarafjölda sýnir að það hefur verið gífurlegur vöxtur í deildinni á þessum 25 árum sem liðin eru frá stofnun hennar. Þá er námsframboð- ið orðið mun fjölbreytilegra og rann- sóknarvinna sem hér fer fram hefur aukist til muna.“ Ólafur segir að hina miklu fjölgun nemenda í deildinni megi meðal ann- ars skýra með því að nemendum hef- ur gengið vel að fá vinnu við sitt hæfi og á mörgum og ólíkum sviðum. „Í deildinni hefur frá upphafi verið lögð mikil áhersla á tölfræði, aðferða- fræði og að kenna nemendum vís- indaleg vinnubrögð. Ég tel þetta meðal annars ástæðu þess að nem- endur okkar úr ýmsum greinum eru samkeppnishæfir á vinnumarkaðn- um.“ Efling framhaldsnáms Á seinni árum hefur framhalds- nám við deildina eflst og mikil áhersla er nú lögð á uppbyggingu þess. „Ég tel það mjög mikilvægt að deildin haldi úti öflugu framhalds- námi. Það hefur enn ýmsa kosti að fólk fari í framhaldsnám til útlanda en margir eiga ekki kost á því. Það er mjög mikilvægt fyrir rannsóknar- starfsemi háskóla að þar sé boðið upp á framhaldsnám.“ Ólafur segir að enn meiri áhersla verði lögð á framhaldsnámið í nán- ustu framtíð. „Megináhersla verður á að reyna að efla framhaldsnámið og byggja ofan á greinarnar sem við höfum þegar, frekar heldur en að fjölga mikið grunngreinunum.“ Mikil fjölbreytni Eitt meginmarkmið með stofnun deildarinnar var að efla félagsvís- indin í landinu og rannsóknir þeim tengdar. „Deildin er vissulega minni en gengur og gerist í stórum erlendum háskólum. En fjölbreytnin er ótrú- lega mikil hjá okkur að mínu mati,“ segir Ólafur. „Eitt af markmiðun- um í upphafi var að bjóða upp á gott nám og miða kennsluna við það að nemendur sem útkrifuðust frá deildinni væru gjaldgengir í fram- haldsnám í bestu háskólum í veröld- inni. Það hefur gengið mjög vel eft- ir.“ Deildinni er nú skipt í sex skorir sem hver um sig inniheldu fög. „Allar námsgreinar er ugri endurskoðun. Þannig dæmis bókasafns- og up fræðin breyst heilmikið m tækni sem við höfum reynt ast vel með.“ Af auknu námsframboð farin ár má nefna að nýv tekin upp kennsla í borga við deildina í samvinnu við víkurborg, svo og diplom tómstundafræðum. Þá kennsla í atvinnulífsfræði sem er þverfagleg grein. hófst svo í tengslum við Vin stofnun fjarnám í náms- o ráðgjöf. Sálfræðin hefur lengi v sælasta grein deildarinn hæla henni fylgir stjórnmá Mikil gróska frá upp Ólafur hefur starfað við frá því árið 1980 en var nem hana árið sem hún var stof flutti reyndar ávarp við deildarinnar sem fulltr enda,“ rifjar Ólafur brosa Morgunbl Ólafur Þ. Harðarson, forseti félagsvísindadeildar Háskóla Ís Áhersla lögð á eflingu fram haldsnáms Félagsvísindadeild Háskóla Ísland fagnaði 25 ára afmæli á dögunum. Su Ósk Logadóttir ræddi af því tilefn við Ólaf Þ. Harðarson er tók við starfi deildarforseta í haust. ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, veitti í gær móttöku veg- legri bókagjöf frá félagsvís- indadeild Háskóla Íslands í tilefni afmælis deildarinnar. Um er að ræða á sjöunda tug verka íslenskra fræðimanna á sviði félagsvísinda. Ólafur var fyrsti prófessorinn í stjórnmálafræði við deildina og eru nokkrir núverandi kennarar gaml- ir nemendur hans. „Það er einkar ánægjulegt að veita þessari myndarlegu gjöf við- töku fyrir hönd Bessastaða og þjóð- arinnar,“ sagði Ólafur. „Gjöfin er áhrifarík staðfesting á þeim ár- angri sem náðst hefur í fé- lagsvísindum frá stofnun deild- arinnar og ég held að okkur sem tókum þátt í að ýta félagsvís- indadeild háskólans úr vör hefði jafnvel á bjartsýnustu stundum ekki getað órað fyrir hversu öflug íslensk rannsóknarstarfsemi á sviði félagsvísinda yrði.“ Ólafur minntist stofnunar deild- arinnar og sagði hana hafa verið mikla landnámsbaráttu fyrstu árin. „Finna þurfti fræðigreinunum stað í íslenskri tungu, þróa orðasöfn og fleira. Síðan þurfti einnig að sann- færa samfélagið allt um þa hefðum getu til þess að þró lagsvísindin. Það hefur gen Það er því ánægjulegt að kost á því á góðum stundum geta litið í þessar bækur.“ Ólafur Þ. Harðarson, for lagsvísindadeildar sagði í g við forsetann að næst þega Ólafur Þ. Harðarson, forseti félagsvísindadeildar, afhenti forse sitja auk Ólafs: Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Baldur Þórh laugsdóttir, Sigrún Aðalbjarnardóttir og Si Gjöfin staðfesting á árangri félagsvís- indadeildar Á DEGI ÍSLENSKRAR TUNGU Dagur íslenskrar tungu er í dag.Tungan er snar þáttur í vitundhverrar þjóðar. Á það ekki síst við á Íslandi þar sem ekki eru foldgnáar hallir og feiknleg mannvirki til að bera vitni fortíð þjóðar, heldur orð á handriti; tungumál, sem svo litlum breytingum hefur tekið í aldanna rás að segja má að rithöfundar nútímans riti sama mál og höfundar fornritanna. Þrátt fyrir þennan sterka arf óttast margir um framtíð íslenskunnar og telja að mikil ógn stafi af uppgangi ensk- unnar. Svo vill til að í dag verður sett ráðstefna í Finnlandi á vegum ráðgjaf- arnefndar um norræna málstefnu, sem starfar á vegum Norrænu ráðherra- nefndarinnar. Þar verður kynnt skýrsla Ara Páls Kristinssonar, forstöðumanns Íslenskrar málstöðvar, um íslensku og aðstæður í íslensku málsamfélagi ásamt sambærilegum skýrslum frá hinum nor- rænu málsvæðunum. Í grein, sem Ari Páll Kristinsson skrifar í Morgunblaðið í dag, kemur fram að einkum liggi þrjár ástæður að baki þegar fólk kjósi ensku til samskipta fremur en móðurmál sitt. Fyrirtæki halli sér að ensku til að auð- velda alþjóðleg samskipti, margir virðist ofmeta kunnáttu sína og annarra í ensku og enskan hafi táknrænt gildi eða virð- ingu, þ.e. enskan sé fínni en móðurmál- ið. Samkvæmt skýrslunum tengist notk- un ensku oft fremur hárri þjóðfélags- stöðu og aukinni virðingu. Ýmis dæmi mætti taka til að renna stoðum undir þá fullyrðingu að íslenska sé á undanhaldi. Í íslenskum háskólum færist í vöxt að námskeið fari fram á ensku. Árið 1999 var greint frá því hér í Morgunblaðinu að starfsmenn Lands- virkjunar, sem voru að vinna við Vatns- fellsvirkjun, gætu ekki notað íslensku til að fjalla um verkefnið. Í íslensku skýrsl- unni, sem kynnt verður í Finnlandi í dag, er meðal annars fjallað um Íslenska erfðagreiningu og kemur fram að þar noti starfsmenn ensku í nánast öllum þeim tilvikum þar sem nauðsynlegt er að samstarfsmennirnir skilji. Þar vinnur fólk af 20 þjóðernum og af 550 starfs- mönnum eru 80 af erlendu bergi brotnir. Á hinn bóginn er ýmislegt, sem bendir til að íslenskan lifi góðu lífi. Erlent barnaefni í sjónvarpi og kvikmyndahús- um er talsett. Mikið kemur út af bókum á íslensku og ekki má gleyma dagblöð- um og tímaritum. Íslenskar hljómsveitir nota flestar íslensku. Degi íslenskrar tungu var valinn 16. nóvember, fæðingardagur Jónasar Hall- grímssonar. Jónas blés nýju lífi í ís- lenska skáldskaparlist með orðkynngi sinni og hélt um leið tryggð við það, sem á undan kom. Tilvist íslenskunnar verð- ur aldrei tryggð nema haldið sé áfram að blása í hana nýju lífi. Á þetta er minnt með því að helga sérstakan dag tungunni. En styrkur tungunnar felst í því að halda henni lifandi og þess vegna er dagur íslenskrar tungu á hverjum degi. NÝ SAMNINGALOTA UM VIÐSKIPTAFRELSI Samkomulagið, sem náðist á ráðherra-fundi Heimsviðskiptastofnunarinnar, WTO, í Doha í Katar í fyrradag, er heims- byggðinni mikils virði og gefur ástæðu til bjartsýni. Aðildarríki stofnunarinnar urðu sammála um að hefja nýja samninga- lotu um aukið frelsi í alþjóðaviðskiptum. Afnám tolla, ríkisstyrkja og annarra við- skiptahindrana mun efla milliríkjavið- skipti og hagvöxt og vega upp á móti sam- drætti í alþjóðlegu efnahagslífi. Hefðu viðbrögðin við niðursveiflunni orðið þau að grípa til verndaraðgerða í einstökum ríkjum hefði það hins vegar eingöngu orð- ið til þess að dýpka efnahagslægðina. Þótt enn séu engir samningar um aukið við- skiptafrelsi fastir í hendi verður það varla ofmetið að ríkjum heims tókst að forðast mistökin, sem gerð voru í Seattle fyrir tveimur árum, er áform um nýja viðræðu- lotu fóru út um þúfur. Í lokayfirlýsingu Doha-fundarins er sérstakt tillit tekið til hagsmuna þróun- arríkjanna. Þau munu líka græða mest á nýrri, víðtækri viðræðulotu á vegum WTO, þar sem markmiðið er að lækka tollmúra og opna markaði fyrir útflutn- ingsvörum þeirra, ekki sízt landbúnaðar- afurðum. Fyrir fátækari ríki heims er jafnframt mikilvægt að aðildarríki WTO samþykktu ályktun um að framleiðsla lyfja sé heimil án þess að handhafi hug- verkaréttar njóti ávinnings í þeim tilfell- um þegar neyðarástand ríkir. Þetta mun t.d. stuðla að því að Afríkuríki, þar sem al- næmisfaraldur geisar, geti fengið lyf á lágu verði. Út frá íslenzkum hagsmunum er veru- legt fagnaðarefni að ætlunin sé að taka sérstaklega á ríkisstyrkjum í sjávarútvegi í samningalotunni. Markmið viðræðnanna verður að setja reglur um beitingu rík- isstyrkja og stuðla að afnámi þeirra. Taka má undir það með Valgerði Sverr- isdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem sat fundinn af hálfu íslenzku ríkis- stjórnarinnar, að þessi niðurstaða er sig- ur fyrir utanríkisþjónustu Íslands, enda áttu Íslendingar frumkvæði að málinu og börðust fyrir því á vettvangi WTO. Hins vegar er það miður, að á ráðherra- fundinum í Doha gætti áfram þess tví- skinnungs í málflutningi Íslands, sem Morgunblaðið hefur áður gagnrýnt. Af hálfu iðnaðar- og viðskiptaráðherra kom fram að Ísland styddi „langtímamarkmið um aðlögun íslenzks landbúnaðar að hinu alþjóðlega viðskiptaumhverfi í samræmi við landbúnaðarsamning WTO“, en jafn- framt að Ísland legði áherzlu á sérstöðu íslenzks landbúnaðar og að tekið yrði tillit til „hagsmuna sem ekki eru viðskiptalegs eðlis“. Ráðherrann nefndi m.a. byggða- sjónarmið, menningarlegt gildi landbún- aðar, umhverfissjónarmið og fæðuöryggi. Hvernig er hægt að fara fram á það í öðru orðinu að önnur ríki afleggi ríkis- styrki til sjávarútvegs en að leita réttlæt- inga fyrir því í hinu orðinu að Ísland við- haldi tollavernd og ríkisstyrkjum til landbúnaðarins vegna „hagsmuna sem ekki eru viðskiptalegs eðlis“? Í ríkjum Evrópusambandsins eru ríkisstyrkir til sjávarútvegs t.d. réttlættir á svipuðum forsendum og landbúnaðarstyrkir, þ.e. með vísan til byggðasjónarmiða og fé- lagslegs og menningarlegs mikilvægis sjávarútvegsins fyrir strandbyggðir. Samt gagnrýna Íslendingar ESB fyrir að styrkja sjávarútveginn en í fréttatilkynn- ingu frá utanríkisráðuneytinu eru aðild- arríki ESB tilgreind sem „aðildarríki WTO sem stutt hafa sömu sjónarmið og Ísland hvað varðar mikilvægi þess að í viðræðum um viðskipti með landbúnaðar- vörur verði tekið tillit til þátta sem ekki eru viðskiptalegs eðlis“. Svona tvöfeldni gengur ekki upp ef Ís- lendingar vilja ná fram hinu raunverulega hagsmunamáli sínu, sem er frelsi í við- skiptum með sjávarafurðir um allan heim. Við verðum að vera sjálfum okkur sam- kvæm í samningalotunni, sem framundan er.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.