Morgunblaðið - 16.11.2001, Page 47

Morgunblaðið - 16.11.2001, Page 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 47 hug. Það var svo notalegt og gott að vera í návist þinni, en þú varst líka staðföst og það var góður eiginleiki fyrir þig, með allt þitt líflega fólk í kringum þig. Stundum hristirðu höf- uðið og hlóst yfir æsingnum í mann- skapnum, en þú lést ekki hagga þér, hafðir bara gaman af. Mikil veikindi hafa hrjáð þig und- anfarna mánuði og vitað var að hverju dró, samt erum við aldrei viðbúin því að missa. Við getum þó huggað okkur við að þjáningum þín- um er lokið. Skyndilega haust og skýlaus andartaks kyrrð. Við skynjum að nú verður ort harmljóð á hásumardegi. Í firðinum speglast fagurlit, óljós mynd af ferðbúnu skipi á leið út í ljóshvíta eilífð. Hafsjór minninga mósaík tímans svo litrík meitluð í tæran kristal og geymd af heilum hug. Skyndilega haust og skilnaðarstund upp runnin. Skip þitt hreppir ei framar brotsjó og beljandi storm. (Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson.) Víkingur, Kristján minn, Björn, Guðrún Björg, Þóra og Finnur, missir ykkar er mikill, en minningin um góða konu og ljúfa móður mun fleyta ykkur í gegnum sárustu sorg- ir ykkar. Marta mín, góður guð geymi þig og hafðu þökk fyrir samfylgd sem aldrei bar skugga á. Þín tengdadóttir Guðrún H. Óðinsdóttir. Elsku amma Marta. Nú ertu farin frá okkur. Söknuður minn er mikill og sár. Amma mín, þú varst alltaf svo blíð og góð, aldrei neinn asi eða æsingur á hverju sem gekk, þú hafð- ir alltaf nægan tíma fyrir spjall. Það verður tómlegt um að litast í Munkanum, engin amma í eldhúsinu að bera fram eitthvað gott handa okkur og spyrja frétta af því sem á döfinni er hjá okkur. Mér eru minnisstæðar ferðirnar í hjólhýsið í Vaglaskógi og sunnu- dagsbíltúrarnir þegar ég var hjá ykkur afa. Þá var ekið um bæinn og oft keyptur Brynjuís. Ég vona að ég eigi eftir að fara með afa bæði í skóginn og á rúntinn þegar hann verður orðinn hress eftir veikindin sín. Það hefur verið erfitt að horfa upp á hve veik þú hefur verið und- anfarna mánuði og ósk mín var allt- af sú að þér mundi batna, ég von- aðist eftir kraftaverki. Kraftaverkið lét á sér standa, að minnsta kosti í þeirri mynd sem ég vildi, kannski er það kraftaverkið að nú ertu laus við veikindin. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Takk fyrir allt elsku amma mín, sjáumst síðar. Þinn Kristján Þór. Elsku amma mín, nú ert þú dáin og kemur aldrei aftur. Elsku amma, við sjáumst aftur seinna hjá Guði. Þín Snorri Már og Halldóra. Elsku amma mín, ég kveð þig með miklum söknuði. Ég veit að þér líður vel að vera hætt að vera veik og að hjá Guði líður þér vel. Bless, elsku amma. Þinn dóttursonur, Víkingur. Elsku amma. Ég kveð þig með miklum söknuði. Ég veit að þér líður betur uppi hjá Guði í hans garði. Bless, elsku amma mín. Þinn dóttursonur og nafni, Marteinn Þór. Elsku amma. Ég kveð þið með miklum söknuði. Þú varst alltaf svo ljúf og góð við mig og okkur öll, en ég veit að nú er nýr og betri heimur sem blasir við og þér líður betur. Bless, elsku amma. Þín dótturdóttir, Inga Þórey. Jæja, amma mín, nú ertu komin þangað sem lífsins vegur leiðir okk- ur öll og þangað sem öllum líður vel. Við áttum margar góðar stundir saman þótt ég hefði viljað að þær yrðu fleiri. Nú verðum við aðskilin um stund en aðeins í brotabrot af ei- lífðinni. Því vil ég kveðja þig að sinni með þessu ljóði: Undir háu hamrabelti höfði drúpir lítil rós, þráir lífsins vængjavíddir vorsins yl og sólarljós. Ég held ég skynji hug þinn allan hjartasláttinn, rósin mín, er kristaltærir daggardropar drjúpa milt á blöðin þín. Æsku minnar leiðir lágu lengi vel um þennan stað, krjúpa niður, kyssa blómið, hversu dýrðlegt finnst mér það. Finna hjá þér ást og unað, yndislega rósin mín. Eitt er það sem aldrei gleymist aldrei, það er minning þín. (Guðm. Halld.) Sjáumst bráðlega. Þinn dóttursonur, Stefán. Að Mörtu Kristjánsdóttur stóðu sterkir eyfirskir stofnar. Hún er nú látin eftir níu mánaða baráttu við ill- vígan sjúkdóm, krabbamein. Fyrir nokkrum vikum gekkst eftirlifandi eiginmaður hennar, Víkingur Björnsson, undir mjög erfiða hjarta- aðgerð. Síðustu dagana í lífi Mörtu lágu þau hjónin bæði á lyflækninga- deild FSA. Var það Víkingi mikils virði að geta deilt síðustu stundum hennar með henni, þótt veikur væri. Marta fékk lömunarveiki tveggja ára gömul og var upp frá því mátt- lítil í hægri hendi, en hún bar fötlun sína vel og var furðu þróttmikil og verklagin alla tíð. Ung að árum gekk hún að eiga Víking Björnsson og stóð ætíð við hlið hans í blíðu og stríðu uns yfir lauk. Þau áttu fimm börn og hennar ævistarf var innan veggja heimilisins. Hún var mynd- arleg húsmóðir og góður uppalandi, eins og mannvænleg börn hennar bera vitni um. Líf hennar snerist um fjölskylduna. Hún lifði í kyrrþey og ræktaði garðinn sinn. Marta var lagleg kona, dökkhærð og fíngerð. Hún var hæglát og prúð í fasi og var til þess tekið, hversu fal- lega framkomu hún hafði. Það var ekki eingöngu ytri háttprýði, heldur kurteisi hjartans sem var henni eðl- islæg. En hún var síður en svo geð- laus og gat verið stíf á meiningu sinni, sérstaklega ef henni var mis- boðið. Trygglyndi var ein meginstoð í skaphöfn hennar. Hún reyndist foreldrum sínum og tengdaforeldr- um ákaflega vel og var þeim góð. Á fyrstu búskaparárum ungu hjónanna bjuggu þau í kjallaraíbúð í húsi foreldra Víkings og síðan byggðu þau sér stórt og glæsilegt hús á næstu lóð. Meðan tengdafor- eldrar Mörtu voru á lífi nutu þau góðs af nábýlinu, hjálpsemi hennar og góðvild. Marta hélt stillingu sinni, virðingu og reisn í erfiðum veikindum fram í andlátið. Minning hennar lifir hjá ástvinum. Megi hún vera huggun harmi gegn. Sigurður Ólafsson. Ég vildi að ég væri að skrifa afmæliskort til systur minnar Huldu Bjargar og hringja í mömmu og systkini til að ákveða með gjöf í tilefni af 45 ára afmæli hennar hinn 16. nóv. Í staðinn er ég að skrifa minningargrein. Hulda Björg systir er dáin. Hulda Björg var elsta systir mín, fyrirmyndin, sú sem ég leit upp til. Hún ólst upp hjá afa og ömmu en þar sem ég var með annan fótinn hjá þeim átti ég með Huldu Björgu margar stundir. Hún var tíu árum eldri en ég og var því orðin skvísa er ég fór að muna eftir mér og fylgdist ég náttúrulega vel með þegar hún var að breytast úr stelpu í konu, verða sjálfstæðari, finna sína fjöl. Ég man eftir mörgum stundum inni á baði, hún standandi fyrir framan spegilinn að snyrta sig og plokka augabrúnirn- ar sem í þá daga máttu ekki að vera meiri en örfínar línur eða bursta tennurnar sem mér fannst hún alltaf óralengi að. Ég sat þá á klósettinu eins og David Attenborough og fylgdist með hverri hreyfingu. Einn- ig man ég eftir henni liggjandi á eld- húsgólfinu að gera leikfimisæfingar með það að markmiði að „minnka mjaðmirnar“. Þær æfingar fólust í því að liggja á bakinu og velta sér upp á mjaðmirnar til skiptis og það sem mestu skipti var að gólfið undir væri sem harðast. Ég átti einnig margar góðar stundir með henni inni í henn- ar herbergi þar sem við lágum uppi í rúmi og spjölluðum eða bulluðum eitthvað, hún tók mig þá gjarnan í flugvél eða „hengdi mig upp á vegg“ eins og hún kallaði það. Hún tók mig líka oft með í bíltúra þegar viðra þurfti Maverickinn hans afa og þá var oft gefið hressilega inn og taldi hún litlu systur sinni trú um að gott væri gefa vel í, svona til að „hreinsa vélina“ eftir hægan akstur afa. Ég tók auðvitað öllu sem stóra systir sagði sem heilögum sannleik. Seinna tók hún mig líka í flugvél, alvöru flug- vél í þetta skiptið, en flug var hennar áhugamál og lærði hún svifflug. Já, það eru margar minningar úr Spító, hún að lyfta upp álegginu af smurða brauðinu hennar ömmu til að skafa stærstu smjörfjöllin í burtu, amma að biðja Huldu Björgu að hlaupa niður í Brynju eða Höfner og Hulda Björg að biðja mig, Hulda Björg að klippa okkur Ingu Huld og við Inga að leika Huldu Björgu og Nínu vinkonu henn- ar því þær voru flottastar. Hulda Björg vann líka í bíó með skólanum og það kom sér vel fyrir mig að geta hafið mig upp á því við vinkonurnar. Einnig koma upp í hugann herbergi Huldu Bjargar en hún hafði alltaf svo fínt hjá sér, veggir voru málaðir og betrekktir eftir þörfum og tísku, hús- gögn voru máluð og yfirdekkt til að gera þau fín og passandi, það var saumað og lagað og hlutunum raðað smekklega upp. Mér fannst alltaf rosalega fínt og flott hjá henni. Mér fannst þá og hefur alltaf fundist Hulda Björg systir einstök, öðru vísi en aðrir. Hún var sjálfstæð og fór sína leið að markmiðinu, ekki alltaf þá auðveldustu en oftast þá sem á endanum gaf mestan árangur, bestu útkomu. Hulda Björg átti mörg áhugamál og alltaf var eitthvað að bætast við. Hún var flink í höndunum og óhrædd að fara nýjar leiðir, hvort sem var í prjóna- eða saumaskap, trölladeigs- eða leirvinnu. Ég man þegar ég bað hana að prjóna barbie-dúkkuföt fyrir mig, þá voru prjónaðar peysur, pils og kjólar og það með munstrum og röndum og allt smellpassaði á dúkk- urnar. Henni var ekki vel við að vinna HULDA BJÖRG STEFÁNSDÓTTIR ✝ Hulda BjörgStefánsdóttir fæddist á Akureyri 16. nóvember 1956. Hún lést á heimili sínu, Hrafnagils- stræti 14, 25. júlí síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Ak- ureyrarkirkju 3. ágúst. eftir uppskriftum, oft- ast hannaði hún flíkina sjálf sem sauma átti eða prjóna eða breytti í það minnsta uppskriftinni og man ég t.d. alltaf eft- ir lopapeysu með kað- lamunstri á ermunum sem í þá daga þótti mjög svo frumlegt. Hún var natin við að hafa fínt í kringum sig og gat gert mikið úr litlu. Allt- af var hún að breyta og bæta, smám saman að koma sér upp heimili eins og hún vildi hafa það. Húsið við Hrafnagilsstræti sýnir að hún var smekkleg og margir mun- ir sýna hve dugleg hún var í hönd- unum. En það var ekki bara fínt hjá henni, heldur var alltaf gaman að koma til hennar. Umræðuefnin voru mörg og hafði hún ákveðnar skoðanir á málunum sem hún kom á framfæri án þess að gera lítið úr skoðunum annarra. Hún virti skoðanir og lífs- sýn annarra, lagði sig fram um að skilja aðra og sæi hún eitthvað hjá öðrum sem hún gæti lært af gerði hún það hiklaust. En það sem gerði hana oft svo skemmtilega var að hún var í senn óþolinmóð og full þraut- seigju, í senn óstýrilát stelpa og þroskuð kona, í senn sterk og við- kvæm. Það kenndi mér margt að fá að fylgjast með Huldu Björgu breytast úr óstýrilátum unglingi sem lifði líf- inu, fór á sveitaböll, stundaði svifflug og keyrði hratt á bílnum hans afa, í móðurina og eiginkonuna sem lagði metnað sinn í að halda fallegt heimili og koma drengjunum sínum þremur til manns. Fyrsta barn sitt, Jónas, misstu þau Hörður og var það að sjálfsögðu mikið áfall, fyrir þau og fjölskylduna alla. En eins og flestir erfiðleikar sem Hulda Björg þurfti að ganga í gegnum varð þetta til að þroska hana og auðga sem mann- eskju. Tveimur árum eftir fæðingu Jónasar kemur annar glókollur í heiminn, Össur, síðan Hreggviður og loks Villi. Allt efnilegir og glæsilegir strákar. Hún lagði allt sitt í að veita þeim gott uppeldi, var ávallt til staðar og af því hafa þeir notið góðs. Þeir hafa sýnt mikinn styrk og jafnaðar- geð í þeirri miklu sorg sem yfir þá hefur dunið. Hulda Björg var sífellt að þroska sjálfa sig og jafnvel í veikindunum og baráttunni við krabbameinið var hún líka að þroskast og læra. Mér finnst ég sjá núna að hún hafi gert sér grein fyrir hinu óumflýjanlega löngu á und- an okkur hinum án þess að bera það á torg. Heldur notaði hún tímann sem hún átti vel, framkvæmdi hluti strax, lagði sig fram um að heimilið yrði fínt og allar breytingar á húsinu búnar, nú síðast stéttin í kringum húsið sem Hörður lagði og skömmu áður en hún lést var hún úti hjá honum fárveik að reyta arfa og laga blómabeðin sín. Alltaf að gera fínt hjá sér. Sámur var úti hjá þeim, strákarnir að koma og fara eins og gengur á góðum sum- ardegi. Fullkomið að manni fannst. Af hverju fékk hún ekki að vera með okkur lengur? Manni finnst að það geti ekki verið til göfugra hlutverk en að fá að sjá börnin sín vaxa úr grasi, fá að ýta ungunum sínum úr hreiðr- inu og horfa stoltur á þá taka flugið. En sé til göfugra hlutverk hefur henni verið ætlað að takast á við það, hún leysir það vafalaust með sóma eins og þau sem hún þurfti að leysa hér á meðal okkar. Við sem eftir sitj- um verðum að reyna að þroska sjálf okkur á þessari reynslu, það hefði Hulda Björg í það minnsta gert, og trúa því að hún fylgist með ungunum sínum taka flugið að ofan. Elsku systir, ég kveð þig með söknuði og miklum trega. Megi ljósið og birtan umlykja þig, þín Hilma. Í dag hefði Hulda Björg, systir mín, orðið 45 ára. Þrátt fyrir að um fjórir mánuðir séu nú liðnir frá því hún lést er það enn jafn ótrúlegt og erfitt að sætta sig við að hún skuli vera farin. Hulda Björg ólst upp hjá ömmu og afa í Spítalaveginum og við ólumst því ekki upp saman en á full- orðinsárum tókst með okkur góður vinskapur og sterk tengsl sem ég mun alltaf búa að. Mín fyrsta minn- ing um Huldu Björgu er úr Spítala- veginum þegar ég er 6 ára, þá nýflutt norður með mömmu og tveimur systkinum mínum. Við sátum við eld- húsborðið hjá ömmu og Hulda Björg neitaði að borða matinn. Ég man að ég var feimin við hana og mér fannst undarlegt að hún skyldi neita að borða en eflaust hefur hún verið að reyna að fá athygli þegar þrjú systk- ini hennar voru allt í einu flutt inn á heimilið. Við Hulda Björg eignuð- umst börnin okkar á svipuðum tíma og eru Hilma Ýr dóttir mín og Villi, sonur Huldu Bjargar, fædd sama ár. Með þeim tókst einstakur vinskapur og fannst okkur Huldu Björgu alltaf mjög ánægjulegt að sjá hvað þau eru góðir vinir. Hulda Björg passaði oft börnin fyrir mig en ég er ekki viss um að ég hafi þakkað henni það nógu vel, henni fannst þetta ekki nema sjálf- sagt og lýsir það systur minni mjög vel. Hún vildi alltaf rétta hjálparhönd og það var augljóst hvað hún bar mikla umhyggju fyrir systkinum sín- um, þrátt fyrir að hafa ekki alist upp með okkur. Það voru ófáar stundirn- ar sem við sátum á heimili Huldu Bjargar og Harðar og drukkum te og spjölluðum um allt milli himins og jarðar. Börnin okkar voru oft um- ræðuefnið og fór ekki milli mála hvað stóð hjarta hennar næst, það voru strákarnir hennar og fjölskyldan í heild sinni. Það var henni afar mik- ilvægt að þeir fengju gott uppeldi, umhyggju foreldra sinna og fastan ramma á heimilinu. Þeirra þarfir voru alltaf í fyrirrúmi og var hennar starfsvettvangur að mestu á heim- ilinu svo Össur, Hreggviður og Villi mættu búa við sem bestar aðstæður. Þessi áhersla hennar kom vel fram á fermingardegi Össurar í vor, hún lagði mikla alúð í að gera þann dag eftirminnilegan fyrir alla og tókst það frábærlega. Strákarnir og Hörð- ur hafa misst mikið en við í fjölskyld- unni munum gera það sem í okkar valdi stendur til að styðja við bakið á þeim. Margar ánægjulegar minningar hafa komið upp í hugann að undan- förnu. Þegar Hulda Björg var ung- lingur með síða ljósa hárið og mér fannst hún svo falleg og flott systir. Við Hulda Björg að baka kransaköku fyrir brúðkaup Hilmu, systur okkar. Við vorum afar stoltar af afrakstr- inum, fannst þetta besta og frumleg- asta kransakaka sem bökuð hafði verið. Hulda Björg hress og kát á ættarmóti í Skógargerði sumarið 2000, þegar allir leyfðu sér að trúa því að sigur hefði unnist í baráttunni við krabbameinið. Svona minningar eru svo dýrmætar og gott að rifja þær upp þegar sorgin leitar á hug- ann. Sorgin mun fylgja okkur áfram, en við verðum að læra að lifa með því. Blessuð sé minning Huldu Bjargar, systur minnar. Helga Jóna. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.