Morgunblaðið - 16.11.2001, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 16.11.2001, Qupperneq 51
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 51 ✝ Þórólfur Jónssonfæddist á Auðn- um í Laxárdal í Suð- ur-Þingeyjarsýslu 19. febrúar 1909. Hann andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 6. nóvem- ber síðastliðinn. For- eldrar hans voru Hildur Benedikts- dóttir húsmóðir, f. 1.9. 1875, d. 5.9. 1968, og Jón Péturs- son bóndi á Auðnum, f. 20.9. 1866 d. 9.1. 1953. Þórólfur var sjöundi í hópi níu systkina sem voru: Guðný, f. 23.1. 1894, d. 14.8. 1968, Benedikt, f. 29.6. 1896, d. 4.6. 1974, Halla, f. 21.11. 1897, d. 14.4. 1987, Pétur, f. 28.2. 1900, d. 13.11. 1970, Sigríður, f. 15.4. 1903, d. 5.4. 1992, Þorgils, f. 13.4. 1906, d. 9.6. 1979, Heiðrún, f. 15.9. 1912, d. 22.4. 1990, og Sig- urbjörg, f. 24.9. 1914, d. 24. 2. 2001. Þórólfur kvæntist 7.11. 1947 Maríu Júlíönu Sveinsdóttur frá Arnardal við Skutulsfjörð, f. 14.2. 1915, d. 24.8. 2001. Börn þeirra eru: 1) Stefán Árnason, sonur Maríu, f. 31.1. 1938, d. 6.7. 1979. 2) Hólmfríður, f. 2.6. 1948, maki Björn Brekkan Karlsson, sonur þeirra er Björn Brekkan, börn Björns og stjúpbörn Hólmfríðar eru Þóra Karen og Einar Sigurð- ur. 3) Sverrir Örn, f. 16.7. 1950, maki Þórdís Gissurardótt- ir, börn þeirra eru: Ívan Burkni sonur Þórdísar, Aron Reyr, Ragnheiður María og Sverrir Örn. Langafabarn er Alexander sonur Ragnheiðar Maríu. Þórólfur ólst upp á Auðnum og stund- aði nám og störf á heimili foreldra sinna. Hann var vetrarmaður á Hall- dórsstöðum í Laxárdal 1930 og síðan kaupamaður. Hann hóf nám í Alþýðuskólanum á Laugum 1934 og síðar í trésmíðadeild Laugaskóla. Hann fór í nám í Tekniska skolan í Stokkhólmi veturinn 1937–1938 og vann auk þess hluta úr vetri á Teiknistofu landbúnaðarins. Hann fluttist til Reykjavíkur 1940 og vann þar við byggingarstörf og á verk- stæðum. Þórólfur tók sveinspróf í húsasmíði 1942 og lauk meistara- prófi 1943. Hann var sjálfstæður verktaki í Reykjavík á árunum 1945–1970 og umsjónarmaður með byggingum hjá Fram- kvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins 1971–1985. Útför Þórólfs fer fram frá Kópavogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Þórólfur frændi minn er látinn. Langri og farsælli ævi er lokið og hvíldin eflaust kærkomin. Fyrstu æskuminningar mínar eru tengdar honum, þegar hann var að byggja íbúðarhúsið í Árhvammi árið 1939, fyrir pabba og mömmu. Hann vann seinna við smíðar fyrir norðan og kom þá oft í Árhvamm til bróður síns, en mjög kært var með þeim bræðrum, honum og föður mínum. Hann flutti suður árið 1940 og bjó í Reykjavík og Kópavogi. Hann lærði húsasmíðar og varð meistari í þeirri grein og vann við það lengstan hluta ævi. Hann var þó árlegur gest- ur heima í sumarfríum, fyrst einn en síðan með Maríu konu sinni. Á yngri árum fengum við systkinin oft bréf frá honum og jólagjafir sem okkur þótti afar vænt um og varð hann af þessu uppáhaldsfrændi okkar. Þau hjónin bjuggu fyrst í Drápu- hlíð 26 í Reykjavík, en það hús byggði Þórólfur og fleiri norðan- menn. Þau byggðu síðan einbýlishús á Þinghólsbraut 61 í Kópavogi og fluttu þangað með börn sín árið 1962 og bjuggu þar eftir það. Þau komu sér upp mjög fallegum garði við hús sitt og voru mjög samhent um að gera hann sem glæsilegastan. Þær voru margar stundirnar sem þau eyddu í garðinum sínum og ekki var það síður verk Maríu en hans, hvað hann var fallegur. Haustið 1953 fór ég suður til Reykjavíkur í nám í húsasmíði hjá Þórólfi. Segja má að leiðir okkar hafi legið meira og minna saman síðan. Ekki veit ég nú hvort honum hafi alltaf líkað við nemann eða hvort hann hafi bara umborið hann fyrir frændsemissakir. Oft er önnur lífs- sýn hjá unglingspilti, en fjölskyldu- manni kominn hátt á fimmtugsald- ur. Eftir því sem árin færðust yfir okkur báða hef ég allaf kunnað bet- ur og betur að meta kosti og hæfi- leika frænda míns. Á vinnustöðum fannst mér þó mest til um snyrti- mennsku hans, sem var altöluð. Ég hef oft á seinni árum saknað þess- arar sérstöku snyrtimennsku hans, á vinnustöðum hér á höfuðborgar- svæðinu. Ég flutti árið 1965 í vesturbæ Kópavogs, skammt frá þeim hjón- um, og varð því fremur stutt á milli okkar hér. Við héldum alltaf sam- bandi okkar á milli, þótt við færum síðar báðir til annarra starfa. Marg- ar síðdegisstundirnar sátum við saman og spjölluðum um heima og geima, en Þórólfur var mjög fróður um allt sem laut að sögu lands og þjóðar. Æskustöðvarnar voru hon- um mjög ofarlega í huga og í Lax- árdeilunni var hann ótrauður bar- áttumaður fyrir verndun Laxár- svæðisins. Hann var mikill náttúru- unnandi og slyngur veiðimaður. Einnig hafði hann mikinn áhuga á bókmenntum og ljóðum og átti gott bókasafn. Hann var lipur hagyrðing- ur, þótt hann flíkaði því lítt og átti afar létt að koma frá sér rituðu máli. Hann hafði fagra rithönd, sem þótti kostur hér áður fyrr. Fyrir þessar stundir og smíðakennsluna vil ég sérstaklega þakka hér. Einnig fyrir hlýju og notalegu handtökin og þær góðu móttökur sem ég varð alltaf að- njótandi hjá þeim Maríu, sem alltaf var tilbúin með góðgerðir hvenær sem komið var í heimsókn. Þórólfur var mjög ern fram undir nírætt, en tvö til þrjú síðustu árin fjarlægðist hann ys og önn daganna. Hann dvaldi síðustu mánuðina í Sunnuhlíð hér í Kópavogi og þar dó hann. María dó 24. ágúst í sumar, svo það varð mjög stutt á milli þeirra hjóna. Ég kveð með þakklæti í huga Þórólf frænda minn og Maríu og bið algóðan Guð að blessa minn- ingu þeirra. Fríðu, Sverri og fjölskyldum þeirra flytjum við, systkinin frá Ár- hvammi og fjölskyldur, innilegar samúðarkveðjur. Hallgrímur Pétursson. ÞÓRÓLFUR JÓNSSON Sæmi, móðurbróðir minn, er nú horfinn á vit feðra sinna. Við kveðjum hann með eftirsjá. Hann var góður sínu fólki og ávallt til taks ef eitthvað bjátaði á. Ef bíll- inn startaði ekki var Sæmi fljótur á kreik með startkaplana, fljótur að redda málunum. Ef skipta þurfti um skrá eða hengja upp ljósakrónu var hann ekki lengi að því og hafði gaman af. Hann var glaðbeittur við það sem hann tók sér fyrir hendur og sýndi því SÆMUNDUR GUÐMUNDSSON ✝ Sæmundur Guð-mundsson var fæddur í Reykjavík 14. desember 1930. Hann lést í Reykja- vík 1. nóvember síð- astliðinn. Hann var sonur hjónanna Guð- mundar Þórarins- sonar og Steinunnar Önnu Sæmundsdótt- ur. Systkini hans eru Ragnheiður Guð- mundsdóttir, búsett í Reykjavík, Tómas Guðmundsson, tví- burabróðir hans, sem lést 1993, og Guðmundur Ingi Guðmundsson, búsettur í Vest- mannaeyjum. Sambýliskona Sæmundar til margra ára er María Mýrdal. Útför Sæmundar fór fram frá Fossvogskapellu í kyrrþey að ósk hins látna. áhuga. Hann hafði sínar skoðanir á hlut- unum og var ekkert að vingsa með þær heldur sagði blákalt sem honum bjó í brjósti. Hann var gamansamur og hlát- urinn sem fylgdi í kjölfar gamanyrðanna var svo kankvís að ómögulegt var annað en að taka undir. Í sumar varð móðir mín fyrir því óláni að lærbrotna og því þurftu foreldrar mínir að skipta um húsnæði. Sæmi var þar kominn til hjálpar að vörmu spori og átti hann stóran þátt í að flytja þau. Hann var ekkert að tví- nóna við hlutina eins og honum var lagið. Hann var útsjónarsamur, pantaði lyftu og gekk í verkin með mér af fullum krafti. Eftir langan flutningadag var hann mættur morguninn eftir til að taka komp- una í gegn og þá áttu sólbaðsgestir sem sátu á tröppunum á fyrstu hæðinni fótum sínum fjör að launa áður en svörtu ruslapokarnir komu fljúgandi ofan af svölunum. Þannig er mynd mín af Sæma, glaðbeittur og fljótur til verks. Það kom því öllum á óvart fáein- um vikum síðar að hann væri að deyja. En eins í dauðanum og í líf- inu var hann ekki að tvínóna við hlutina heldur kvaddi þennan heim af sömu hvatvísi og honum var ein- læg á örstuttum tíma. Ég veit að vel er tekið á móti góðum dreng handan landamær- anna og því kveð ég hann í þeirri fullvissu að nú líði honum vel. Ég votta Maríu sambýliskonu hans samúð mína, systkinum hans og vinum og bið Guð að styrkja þau. Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir.                            !"    #   $ %&'    !"   % (    !" )    ! !   *+*#,-.   ',   "  #$ $% %  & ' ()  * +* &  $  $, (-  *  (. // , / *   , %$ %+0  *  *    % &'% +    /  1 2 *     2  +    3  2 *      / 4  1 2   *     5, !  1 *   ,"  6     7*    % 3 "   4   ,   2  2  2  2  2 )    ! !   #  /# 8"  9:    -  *!*,  $  0   $  (1  *  (2 2/ !  *$  !   3  4      +              8(       ;!           2  2  2  2 2 )   !  !    ! +<+-;++=#8/8;**#  4 9>? "! 4%! "  5' 6  (/  *      '  # *  $)/  *  (2 2/ /  ;), " ,    ; /   /%+    / /    ,  /" 2  2  2  2  2 ) 7     +$@<+-;;**# !  "$% 0 $ *  (.  * $  5     !5%     8   ! !  ! +*+$#*-6;**#  ! A4 '  B > +! "   "  #$ $% %  9  .  *!*$ 9    $! (:  *  (2 2/ !  *$ !  *    6,   #$ $% %9      =%!  1 ,  $ '1 =%!   5);   , =%!   1 6    5, =%!    &' 1 ' 1 =%!       3  =%!     8)    2  2 )
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.