Morgunblaðið - 16.11.2001, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 16.11.2001, Blaðsíða 62
Háskólabíó. 3000 Miles to Graceland Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Demian Licht- enstein. Handrit: Bruno Corsica. Aðalleik- endur: Kurt Russell, Kevin Costner, Courtney Cox. Afkáraleg, yfirmáta blóðidrifin vega- mynd um rán í Las Vegas og undankomuna. Lengdin drepur spennuna. Sambíóin. Evil Woman Bandarísk. 2001. Leikstjóri: . Handrit: Aðal- leikarar: Amanda Peet, Steve Zahn, Jason Biggs, Jack Black. Lapþunn aulamynd um þrjá bjálfa og kvenskratta. Af myndinni að dæma stefna aulabrandarabankar í gjald- þrot.  Smárabíó. The Musketeer Bandarísk. Leikstjórn: Peter Hyams. Aðal- leikendur: Justin Chambers, Tim, Roth, Stephen Rea, Catherine Deneuve. Þessi enn ein útgáfa af sögunni um Skytturnar þrjár eftir Dumas er flöt, fyrirsjánleg og hreinlega leiðinleg. Ágætis leikarar fá engu áorkað.  Laugarásbíó. leit að mömmu handa vini sínum.  Sambíóin, Háskólabíó. Cats & Dogs Bandarísk. 2001. Leikstjórn: Lawrence Gut- erman. Handrit: John Rena. Aðalraddir: Alec Baldwin, Sean Hayes, Susan Sarandon. Ein- föld saga og spennandi fyrir krakka. Annars ósköp klisjukennd og illa leikstýrð. Sambíóin. Osmosis Jones Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit: Farrellybræður o.fl. Aðalleikendur og raddir: Chris Rock, Bill Murray. Frumleg blanda teikni- og leikinnar myndar, gerist á fram- andi slóðum mannslíkamans. Hér stendur baráttan á milli vondra síkla og góðra lyfja og hvítra blóðkorna. Kemst ekki í fluggír. Sambíóin. Lucky Numbers Bresk. 2001. Leikstjórn: Nora Ephron. Handrit: Adam Resnick. Aðalleikendur: John Travolta, Lisa Kudrow. Svört grínmynd sem gengur ekki upp; lélegir brandarar, morð og græðgi. Travolta og Kudrow skiljanlega ekki nógu skemmtileg. Moulin Rouge Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit: Baz Luhrman. Aðalleikendur: Nicole Kidman, Ewan McGregor, Jim Broadbent. Sannkölluð himnasending í skammdeginu. Stórfengleg afþreying sem er allt í senn: Söng- og dansamynd, poppópera, gleðileikur, harm- leikur, nefndu það. Baz Luhrman er einn at- hyglisverðasti kvikmyndagerðarmaður sam- tímans sem sættir sig ekki við neinar málamiðlanir og uppsker einsog hann sáir; fullt hús stiga. Smárabíó, Regnboginn. The Others Spænsk/frönsk/bandarísk 2001. Leikstjórn og handrit: Alejandro Amenábar. Nicole Kid- man, Fionula Flanagan, Christopher Ecclest- on, Alakina Mann, Eric Sykes. Meistaralega gerð hrollvekja sem þarf á engum milljón- dalabrellum að halda, en styðst við einfalt, magnað handrit, styrkan leik, kvikmynda- töku og leikstjórn. Umgerðin afskekktur herragarður, persónurnar dularfullar, efnið pottþétt, gamaldags draugasaga með nýju, snjöllu ívafi. Háskólabíó, Sambíóin. Italiensk for begyndere / Ítalska fyrir byrjendur Dönsk. 2001. Leikstjórn og handrit: Lone Scherfig. Aðalleikendur: Anders W. Berthel- sen, Anette Stövebæk, Ann Eleonora Jörg- ensen. Ný kvikmynd unnin eftir Dogme 95- forskriftinni, frá dönsku leikstýrunni Scherf- ig. Frábær saga, rómantísk og alvöruþrungin í senn, sem framreidd er af dönskum úrvals- leikurum. Regnboginn. Mávahlátur Ísl. 2001. Leikstjórn og handrit: Ágúst Guð- mundsson. Aðalpersónur: Ugla Egilsdóttir. Margrét Viljhjálmsdóttir. Tilkomumikil kvik- mynd Ágústs Guðmundssonar byggð á sam- nefndri skáldsögu Kristínar Marju Baldurs- dóttur. Þar skapar leikstjórinn söguheim sem er lifandi og heillandi og hefur náð sterkum tökum á kvikmyndalegum frásagn- armáta. Frammistaða Margrétar Vilhjálms- dóttur og Uglu Egilsdóttur er frábær.  Háskólabíó, Sambíóin. Sexy Beast Bresk/spönsk. 2000. Leikstjóri: Jonathan Glazier. Handrit: Aðalleikendur: Ben Kings- ley, Ray Winstone. Fersk mynd og frumleg frá nýjum leikstjóra, um sálarkreppu fyrrver- andi krimma sem reynt er að draga aftur til fortíðar. Stórkostlegur leikur hjá Ben Kings- ley og Ray Winstone.  Háskólabíó, Sambíóin. AI Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Steven Spiel- berg. Handrit: Spielberg o.fl. Aðalleikendur: Haley Joel Osment, Jude Law, Frances O’Connor, William Hurt. Mjög spennandi og áhrifarík kvikmynd með sterkri ádeilu. End- inum er þó algerlega ofaukið.  Sambíóin. America’s Sweethearts Ástsælu turtildúfurnar. Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Joe Roth. Handrit: Billy Crystal. Aðalleikendur: Julie Roberts, Billy Crystal, Catherine Zeta-Jones. Bráðskemmtileg ádeila á ímyndamótun og fjölmiðlasýki í Hollywood-bransanum, skrifuð og leikstýrt af mönnum sem vita hvað þeir eru að tala um. Frábærum leikurum er raðað af kost- gæfni allt niður í smæstu hlutverk.  Laugarásbíó, Stjörnubíó. American Pie 2 Bandarísk. 2001. Leikstjóri J.B. Rodgers. Handrit: Adam Herz. Aðalleikendur: Jason Biggs, Shannon Elizabeth, Chris Klein. Bein framhaldslýsing á kynórum menntaskóla- nema er fyrri myndinni sleppir. Græskulaus aula- og neðanmittisfyndni flutt af sama góða ungleikaragenginu.  Sambíóin. Bridget Jones’s Diary Bresk. 2001. Leikstjóri: Sharom Maguire. Handrit: Helen Fielding. Aðalhlutverk: Renée Zellweger, Hugh Grant, Colin Firth, Jim Broadbent. Sagan um ástamál Bridget verð- ur að hæfilega fyndinni, rómantískri gam- anmynd. Zellweger gerir margt gott í titilhlut- verkinu.  Háskólabíó. Captain Corelli’s Mandolin Bandarísk. 2001. Leikstjóri: John Madden. Handrit: Shawn Slovo. Aðalleikendur: Nicol- as Cage, Penelope Cruz, John Hurt. Falleg og gamaldags mynd með sérstaka sýn á seinni heimsstyrjöldina, auk ástarsögunnar. Frá- bærir leikarar sem standa sig vel, en það má deila um Nicolas Cage. Sambíóin. Small Times Crooks Bandarísk. 2000. Leikstjórn og handrit: Woody Allen. Aðalleikendur: Allen, Tracey Ullman, Elaine May. Þetta er bráðfyndin mynd meistara Allens. Grínið ræður ríkjum, en sagan hefði mátt vera skemmtilegri og kannski aðeins dýpri. Frábærir leikarar.  Sambíóin. Joy Ride Bandarísk. 2001. Leikstjóri: John Dahl. Handrit: Clay Tarver. Aðalleikendur: Steve Zahn, Paul Walker, Leele Sobieski. Spennu- mynd um þrjá félaga á ferðalagi. Ágætir leik- arar, frekar metnaðarlaus, en virkar þó sem spennumynd.  Smárabíó, Regnboginn. Pétur og kötturinn Brandur Sænsk. 2000. Leikstjóri: Albert Hanan Kam- insky. Handrit: Torbjörn Janson. Teiknimynd. Aðalraddir: Guðmundur Ólafsson, Arngunn- ur Árnadóttir, Sigurður Sigurjónsson, Sigrún Waage. Ekkert stórvirki en ágætis skemmtun fyrir litla krakka. Pétur og Brandur eru við- kunnanlegir og uppátektarsamir.  Smárabíó, Laugarásbíó. Final Fantasy Japönsk. 2001. Leikstjórn: Hironobu Sakag- uchi. Handrit: Al Reinert. Aðalraddir: Alec Baldwin, Ming Na, Donald Sutherland, James Woods. Frábærlega unnin tölvugraf- íkmynd um framtíðarátök á Móður Jörð. Skortir meira líf og lit og þó ekki væri nema örlítinn húmor. Smárabíó. Rugrats in Paris Bandarísk. 2000. Leikstjórn: Stig Bergquist, Paul Demyer. Handrit: J. David Stem o.fl. Ísl. leikraddir: Edda Heiðrún Backmann, Inga María Valdimarsdóttir, Rósa Guðný Þórsdótt- ir, Dofri Hermannsson o.fl. Skemmtileg en fullfyrirsjáanleg mynd um káta krakkaorma í BÍÓIN Í BORGINNI Sæbjörn Valdimarsson/Arnaldur Indriðason Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir  Meistaraverk  Ómissandi  Miðjumoð  Tímasóun 0 Botninn Ray Winstone leikur kyntröll í Spánarferð í The Sexy Beast.       $$%&'          '20 E  ( 0 ($A( A     &J       ( ( / ! ( '( * I (@+ E B I   ( (      $J &J &J      2( ' ( (6/-, - ' (0  ' - ' (0  ' K6 L ( ( L K6 L ( ( L - ' (0  ' - ' (0  '  2( ' ( (6/-,        ! (M 00 ! (M 00   &J &J   = ('''(D(  ) (   (     (  62 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ SÍMI 564 0000 - www.smarabio.isSÍ I 564 0000 - .s ara io.is5 hágæða bíósalir Sýnd kl. 4. Með íslensku tali Miðasala opnar kl. 15  Kvikmyndir.com Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.10. B. i. 16. Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Glæsileg leysigeislasýning á undan myndinni. Úr smiðju snillingsins Luc Besson (Leon, Taxi 1&2, Fifth Element) kemur ein svalasta mynd ársins. Zicmu, Tango, Rocket, Spider, Weasel, Baseball & Sitting Bull eru YAMAKAZI. Þeir klifra upp blokkir og hoppa milli húsþaka eins og ekkert sé...lögreglunni til mikils ama. Ótrúleg áhættuatriði og flott tónlist í bland við háspennu-atburðarrás!  Empire SV Mbl Rás 2 MOULIN ROUGE! Hausverkur Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.  DV  Kvikmyndir.com Frumsýning Ljóskur landsins sameinumst Reese Witherspoon fer á kostum sem ljóska sem sannar hvað í ljóskum býr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.