Morgunblaðið - 18.11.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.11.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ BALTASAR Kormákur hefur verið tilnefndur sem einn af þremur leik- stjórum til þess að hljóta verðlaun fyrir kvikmyndahandrit í undirbún- ingi að Sundance-kvikmyndahátíð- inni en tökur á kvikmynd hans, Haf- inu, standa nú yfir í Neskaupstað. Handritið skrifaði Baltasar í sam- vinnu við Ólaf Hauk Símonarson og byggist það á leikverki Ólafs en er fært til nútímans. Sundance- kvikmyndahátíðin verður haldin í janúar á næsta ári og auk pen- ingaverðlauna fær sigurvegarinn tryggingu fyrir sölu á kvikmynd- inni til japanskra sjónvarpsstöðva. Í bréfi stjórnar Sundance- kvikmyndahátíðarinnar segir að fleira en eitt hundrað kvikmynda- handrit hafi verið send inn en ein- ungis sé leyfilegt að senda inn handrit sem mælt hafi verið með. „Við höfum mikla trú á handriti Baltasars og höfum hrifist af fyrri verkum hans. Við höfum mikla trú á að kvikmyndahandrit hans að Hafinu geti orðið að sterkri kvik- mynd sem höfða myndi til áhorf- enda víðs vegar um heiminn.“ Baltasar Kormákur segir að það sé mikill heiður að fá að keppa á Sundance-hátíðinni og útnefningin sé sönnun þess að verkið höfði til fleiri en Íslendinga einna. „Ég valdi verkið fyrst og fremst með Ísland í huga en ég hef hins vegar orðið var við það að efnið höfðar til mun breiðara hóps. Og þótt séríslensk fyrirbæri á borð kvótamál komi við sögu þá virðist það ekki koma að sök. Þá hefur þessi tilnefning mjög mikið kynningargildi enda er Sun- dance mjög virt hátíð og að vera út- nefndur er ákveðinn gæðastimpill þannig að þetta er besta byrjun sem hægt er að hugsa sér enda eru verkefnin sem komu til greina sér- valin.“ Baltasar segir að kvikmynda- hópnum hafi verið tekið með kost- um og kynjum í Neskaupstað og all- ir vilji allt fyrir hann gera. „Við erum mjög þakklát bæjarbúum fyr- ir hreint út sagt frábærar viðtökur sem hafa gert allt okkar starf ánægjulegt.“ Síldarvinnslan leggur til „kvikmyndaver“ Tökur við Hafið eru nú hálfnaðar og gert ráð fyrir að þeim ljúki í des- ember. Til stóð að innitökur færu fram í Reykjavík en Síldarvinnslan í Neskaupstað bauð framleiðendum Hafsins að nota skemmu til innitöku og munu tökur því fara fram eystra. „Þetta er 1.200 fermetra skemma, gríðarlegt flæmi,“ segir Agnes Johansen, framleiðslustjóri Hafsins. „Menn höfðu verið að salta í henni en síðan var öllu komið út úr henni og hún spúluð hátt og lágt og byrjað að smíða. Síldarvinnslan ákvað að lána okkur skemmuna endurgjaldslaust. Þeir vildu fá þetta verkefni í bæinn og voru því einfaldlega flottir á því en við erum 50-60 manns hér að vinna að kvik- myndinni. Það er búið að reisa flotta leikmynd inni í skemmunni og við hlökkum til að fara að vinna þar. Og ekki skortir plássið.“ Agnes segir að útitökur hafi haf- ist síðla í október en stefnt er að ljúka þeim að mestu leyti eftir helgina. „Við höfum fengið allar út- gáfur af veðri í tökunum en myndin á að gerast á mjög stuttum tíma. Það er búið að vera þoka og suddi, sem var í fínu lagi, en svo kom kaf- aldssnjór í nokkra daga og síðan hitabylgja. Það hefur því gengið á ýmsu og fyrir utan veðrið höfum við verið að reyna að fá tamda hrúta til þess að leika sín hlutverk og auk þess höfum við fengið hrein- dýr ofan af Jökuldal. Það hefur því gengið á ýmsu. En við vonum að þetta smelli allt saman.“ Leikstjóri Hafsins tilnefndur á Sundance-kvikmyndahátíðinni Morgunblaðið/Golli Innitökur á Hafinu munu fara fram í risaskemmu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. ALGENGAR verðhækkanir á vörum frá birgjum til kaupmanna um síðustu mánaðamót námu um 7% og hækkaði verð neysluvöru víða enn frekar nú um miðjan mánuðinn, samkvæmt þeim upplýsingum sem blaðið hefur aflað sér hjá kaupmönnum. Einn stærsti kaffibirgir landsins, Rydens-kaffi, sendi viðskiptavinum sínum tölvupóst nýverið þar sem sagði að ekki væri staðið endalaust á móti óhagstæðu ytra umhverfi og sakir gengisfalls krónunnar og tæp- lega 9% hækkunar flutningskostnað- ar á milli landa leiddu aðstæður til 4,5% hækkunar á kaffiverði frá og 1. nóvember sl. Í bréfinu er ekki talað um verðhækkun heldur verðleiðrétt- ingu og áskilur fyrirtækið sér allan rétt til frekari leiðréttinga á verði ef gengisþróun haldi áfam að vera „jafn óhagstæð og raunin hefur verið,“ eins og segir orðrétt í bréfinu. Danól, KKK, Glóbus og Íslensk- ameríska eru meðal birgja sem einnig hafa sent verslunum tilkynningar um hækkanir síðustu vikur. Vörur frá Danól hækkuðu flestar um á bilinu 4 til 5% við síðustu mán- aðamót. Hækkunin var misjöfn eftir gjaldmiðlum, allt frá því að vera óbreytt, t.d. sænskar vörur, og upp í að hækka um 9% þar sem keypt var inn fyrir svissneska franka. Í nokkr- um tilvikum var hækkunin meiri eða minni en gengisþróunin og segir heildsalinn það vera vegna breytinga á verði frá framleiðanda. Gengislækkun helsta ástæðan Aðrir heildsalar taka undir þessa skýringu en þeir útskýra flestir verð- hækkanirnar með gengislækkun krónunnar. Þeir segjast jafnframt vona að íslenska krónan styrkist á ný og segjast þá lækka verð aftur og vinda ofan af verðhækkunum. Miklum verðhækkunum neyslu- vöru var ekki lokið um síðustu mán- aðarmót, margir birgjar hækkuðu vörur sínar verulega 15. nóvember og hafa sumir heildsalar boðað enn frek- ari verðhækkanir á næstunni. Col- gate- og Palmolive-vörur frá Kaaber hækka um 3,8% 21. nóvember næst- komandi. Þess má geta að verð ým- issa hreinlætisvara hefur hækkað um allt að fjórðung á árinu. Verð á al- gengri tannkremstegund hefur til dæmis hækkað um rúm 23% frá 1. janúar til 6. nóvember og rúðuhreins- ir hefur á sama tíma hækkað um 25%. Eitt mest selda morgunkornið hefur á sama tíma hækkað um 18,3% til kaup- manna. Hjá Ömmubakstri hækka flestar vörur um allt að 10% á fimmtu- dag. Þá boðaði Vífilfell um 4,9% með- alhækkun á öllum vörum fyrirtækis- ins, að undanskildu smjörlíki, viðbiti og bjór, 15. nóvember. Pharmaco og Halldór Jónsson hafa boðað um 10% hækkun vöruflokka í mánuðinum. Hækkanir á neyslu- vöru í nóvemberSAMFYLKINGIN skuldar 66 millj-ónir króna, en hefur á tveimur árum lækkað skuldir sínar um 50 milljónir. Þetta kom fram í skýrslu Eyjólfs Sæmundssonar, gjaldkera flokksins. Hann sagði að fjárhagsstaða flokks- ins væri allgóð. Tekist hefði að lækka verulega skuldir og öll lán væru í skilum. Markmið flokksins ætti að vera að hann væri skuldlaus þegar kæmi að kosningum, en Eyj- ólfur sagði að það myndi ekki takast fyrir alþingiskosningarnar 2003. Tekjur Samfylkingarinnar á síð- asta ári voru 48 milljónir og kemur stærstur hluti þeirra frá Alþingi. Meðal tillagna sem lagðar voru fram á landsfundi Samfylkingarinn- ar var tillaga þar sem því var beint til framkvæmdastjórnar og kjör- dæmaráða að skipulagt verði sam- eiginlegt prófkjör um allt land fyrir alþingiskosningarnar 2003. Á fundi kvenna í Samfylkingunni í gær- morgun komu hins vegar fram veru- legar efasemdir um að rétt væri að stefna að prófkjöri við uppröðun á lista. Samfylkingin skuldar 66 milljónir HÆSTIRÉTTUR hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð Hér- aðsdóms Reykjavíkur um kröfu konu, sem vill að heilbrigðis- upplýsingar um látinn föður hennar verði ekki fluttar í gagnagrunn á heilbrigðissviði, og heldur ekki upplýsingar um ættfræði eða erfðafræði varð- andi hann. Héraðsdómur vísaði málinu frá á þeim forsendum að lög- fræðilegur rökstuðningur í stefnu væri að litlu leyti tengd- ur tilvísunum í réttarreglur, sem voru í stefnunni. Ítarlegri upptalning en venja stendur til Í dómi Hæstaréttar segir að í héraðsdómsstefnu hafi verið teknar upp í nokkuð löngu máli tilvísanir sóknaraðila til réttar- heimilda, svo og til alþjóðlegra samninga og samþykkta, sem taldar voru styðja kröfu kon- unnar. Þótt fallast megi á að þessi talning sé öllu ítarlegri en venja stendur til, geti hún ekki valdið því að óljóst verði gagn- vart varnaraðila á hvaða grunni sóknaraðili reisir málið, enda hafi hann í þeim efnum við málsástæður hennar að styðj- ast sem þessar tilvísanir í stefnu til réttarheimilda hafa ekki áhrif á. Sé því ekki ástæða til að vísa málinu frá dómi af þessum sökum. Var frávísunar- úrskurður héraðsdóms því felldur úr gildi og lagt fyrir hér- aðsdómara að taka málið til efnismeðferðar. Frávísunar- úrskurður héraðsdóms var felldur úr gildi Hæstiréttur „KVENNAFUNDUR Samfylk- ingarinnar segir kynlífsþrælkun- inni stríð á hendur og mun beita sér fyrir því að nektarstaðir verði bannaðir með lögum. Man- sal og vændi hefur verið talinn einn af þeim öngum sem tengjast nektarstöðum og er ein af alvar- legum birtingarmyndum ofbeldis gegn konum. En mansalið á ekki einungis við konur heldur og börn um allan heim. Samfylking- arkonur vilja taka þátt í alþjóð- legri viðleitni til þess að uppræta mansal kvenna og barna,“ segir í ályktun frá fundi kvenna í Sam- fylkingunni sem haldinn var í gær. Um 100 konur í Samfylking- unni mættu á fundinn þar sem konur ræddu um stöðu sína inn- an flokksins. Þorgerður Einars- dóttir félagsfræðingur og Auður Styrkársdóttir stjórnmálafræð- ingur fluttu framsögur. Líflegar umræður voru á fundinum um stöðu kvenna í pólitík og fleira. Fundur kvenna í Samfylkingunni Lýsa stríði á hendur kynlífsþrælkun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.