Morgunblaðið - 18.11.2001, Blaðsíða 51
Og hvernig gengur svo
með garðinn á þakinu?
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2001 51
DAGBÓK
Glæsilegur
samkvæmisfatnaður
allar stærðir
Mikið úrval af
brúðarfatnaði til leigu
Efnalaug og fataleiga
Garðabæjar
Garðartorg 3, sími 565 6688
Opið alla daga frá kl. 10-19,
laugardaga frá kl. 10-14.
Sérmerkt
handklæði 70x140 cmMargir litir
Póstlistinn
sími 557-1960
Íslenski
www.postlistinn.is
auðvelt - hringdu!
Kr. 1.950
án afsl.
magnafsláttur
5%, 10% eða 15%
stighækkandi eftir magni
Meðvirkni
Námskeið um meðvirkni, samskipti, tjáskipti
og tilfinningar verður haldið föstudagskvöldið
30. nóvember og laugardaginn 1. desember
í kórkjallara Hallgrímskirkju.
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafiNánari upplýsingar og skráning
í síma 553 8800
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
LAGERSALAN TUNGUHÁLSI 7
HELDUR ÁFRAM
Opið föstud. frá kl. 11-18, laugard. og sunnud. 11-17.
Tökum bæði debet- og kreditkort.
Tunguháls 7 er fyrir aftan Sælgætisgerðina Kólus.
Sími okkar er 567 1210
HEILDVERSLUN MEÐ JÓLA- OG GJAFAVÖRUR Í 35 ÁR
N7 og vinkonuleikur Séð og Heyrt.
Frí kennsla,
afsláttur og kaupaukar
á morgun, mánudag
frá kl. 14-18
Ég þakka öllum, sem glöddu mig á 100 ára
afmæli mínu 8. október sl. með heimsóknum,
gjöfum og heillaóskum.
Lifið heil!
Jóhanna Jónsdóttir,
Hrafnistu, Reykjavík.
HVERNIG er best að spila
sjö hjörtu í suður með laufi
út?
Norður
♠ --
♥ ÁK2
♦ ÁG10983
♣ÁK75
Suður
♠ K872
♥ DG983
♦ K5
♣86
Tæknilega besta leiðin er
líklega þessi: Laufás,
hjartaás og hjarta heim á
drottningu. Ef báðir fylgja
lit er spaði trompaður, farið
heim á tígulkóng og síðasta
trompið tekið af vörninni.
Síðan er tígli spilað á ásinn
og tígullinn fríaður með
trompun ef drottningin er
ekki þegar komin í leitirnar.
Góð áætlun, en hún kom
fyrir lítið, eins og spilið lá:
Norður
♠ --
♥ ÁK2
♦ ÁG10983
♣ÁK75
Vestur Austur
♠ DG43 ♠ Á10965
♥ 74 ♥ 1065
♦ D7642 ♦ --
♣94 ♣DG1032
Suður
♠ K872
♥ DG983
♦ K5
♣86
Austur trompaði tígul
óvænt og tók slag á spaðaás.
Spilið er frá Íslands-
mótinu í tvímenningi og
þeir sagnsnillingar sem
náðu 6-7 hjörtum fengu
óverðskuldaða refsingu. En
sex tíglar gáfu vel.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
100 ÁRA afmæli. Ídag, sunnudaginn
18. nóvember, er 100 ára
Brynjólfur Jónsson, járn-
smiður, Víðilundi 20, Akur-
eyri. Brynjólfur er við góða
heilsu og munu hann og eig-
inkona hans, Sigríður Jóns-
dóttir, taka á móti vinum og
ættingjum í matsal Norður-
orku við Rangárvelli á Ak-
ureyri á afmælisdaginn milli
kl. 15-17.
60 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 18.
nóvember, er sextug Rósa
Finnsdóttir kennari,
Gljúfri, Ölfusi. Eiginmaður
hennar er Jón Hólm Stef-
ánsson. Þau hjónin verða að
heiman á afmælisdaginn.
40 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 18.
nóvember, er fertugur Jósef
Aron Ólason, Laugavegi
157, Reykjavík. Jósef tekur
á móti gestum á heimili sínu
frá kl. 15.
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, sunnudaginn 18. nóvember, eiga
50 ára hjúskaparafmæli hjónin Gyða Ingólfsdóttir og Sveinn
Rafn Eiðsson, Heiðarbrún 62, Hveragerði. Þau eyða deg-
inum með börnum sínum og fjölskyldum þeirra.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4
exd4 4. Rxd4 Dh4 5. Rc3
Bb4 6. Be2 Dxe4 7. Rdb5
Kd8 8. O–O Bxc3 9. bxc3 a6
10. Rd4 Rxd4 11. cxd4 Rf6
12. Bg5 Df5 13.
Dc1 h6 14. Be3
He8 15. Bd3
Dh5 16. c4 d6
17. Dc2
Staðan kom
upp í minning-
armóti Jó-
hanns Þóris
Jónssonar.
Færeyingurinn
Olavur Simon-
sen (2.214)
hafði svart
gegn Guð-
mundi Kjart-
anssyni
(2.052). 17...
Hxe3! Með þessu vinnur
svartur peð til viðbótar og
tryggir sér sterka stöðu.
Framhaldið varð: 18. fxe3
Rg4 19. h3 Rxe3 20. Df2
Rxf1 21. Hxf1 f6 22. De3
Dg5 23. De4 c6 24. He1
Bd7 25. h4 Dg4 26. De3
Kc7 27. Df2 He8 28. Hxe8
Bxe8 29. De3 Bd7 30. c5
Dxh4 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert tilfinninganæmur
og stundum trúgjarn um of,
en vinum þínum ertu sannur
og traustur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er eitt og annað sem þér
finnst vera komið á skjön svo
þú þarft að bretta upp erm-
arnar og ganga í það að koma
lagi á hlutina. Í dag!
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Hugurinn er takmarkalaus
en vandinn er að koma sum-
um hugmyndum í verk. Þá
reynir á útsjónarsemi þína og
dugnað og margar hendur
vinna létt verk.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Glíman við hið óþekkta ber
alltaf árangur ef menn ekki
gefast upp of snemma. Stund-
um þarf að hafa verulega
mikið fyrir svörunum. Það er
bara þannig.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú getur sótt mikinn kraft í
þinn innri mann en mundu að
flestu eru takmörk sett, sér-
staklega því sem að snýr að
öðrum en sjálfum þér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er þér í hag að fólk viti
hvar þú stendur. Það er ekk-
ert óeðlilegt að skipta um
skoðun ef nýjar staðreyndir
koma í ljós og breyta málum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þér finnst það ekki skipta
neinu úr því sem komið er en
reyndu samt að leggja mál
þitt fyrir einu sinni enn. Rétt-
ur málstaður sigrar að lokum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Varkárni er dyggð en getur
svo sem gengið of langt eins
og allt annað. Þú þarft að
finna hinn gullna meðalveg
og þá mun allt ganga upp.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það getur haft örlagaríkar af-
leiðingar að skipta sér af mál-
um sem ekki eru á þínu færi.
Farðu þér hægt í nýjum
kynnum, sígandi lukka er
sögð best.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það getur verið erfitt að hafa
augað stöðugt á framtíðinni
en mundu að störf þín í dag
leggja grunninn að morgun-
deginum. Brostu við lífinu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú hefur lagt þig fram um að
starf þitt spilli í engu heildar-
árangrinum. Framlag þitt
hefur ekki farið framhjá öðr-
um. Nú er komið að umbun-
inni.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þér gengur flest í haginn í
starfi. Þótt þig langi til að
eignast nýja bandamenn
skaltu gæta þess að ganga
ekki of hart fram; það fælir
bara frá.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Einbeittu þér að hverju verk-
efni fyrir sig og leystu þau
eitt af öðru. Aðeins þannig
muntu ná þeim árangri sem
þú þarft svo allt fari vel.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
AÐ SIGRA HEIMINN
Að sigra heiminn er eins og að spila á spil
með spekingslegum svip og taka í nefið
(Og allt með glöðu geði
er gjarna sett að veði.)
Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til,
því það er nefnilega vitlaust gefið.
Steinn Steinarr
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnudags-
blað. Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Með morgunkaffinu