Morgunblaðið - 18.11.2001, Side 28

Morgunblaðið - 18.11.2001, Side 28
LISTIR 28 SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ S ÍÐUSTU misserin hafa gestir í sýningasölum og listasöfnum séð fleiri markverðar sýningar þar sem ljósmyndamiðillinn er í önd- vegi en við höfum átt að venjast hér. Listasafn Íslands hefur sett upp sýningar þar sem listamenn hafa nýtt sér miðilinn, Listasafn Akureyrar og Ljósmyndasafn Reykjavíkur sýndu Parísar- myndir Henris Cartier-Bressons og Þjóðminja- safn stóð fyrir sýningu á Íslandsmyndum eftir Hans Malmberg í Hafnarborg, svo eitthvað sé nefnt. En í þessa flóru vantar samt aðgang að rót- unum. Þegar flett er nýrri og glæsilegri bók Ingu Láru Baldvinsdóttur, Ljósmyndarar á Ís- landi 1845–1945, opnast glufa inn í heim menn- ingararfs sem Íslendingum hefur að mestu ver- ið hulinn, það besta sem til er af gömlum og sögulegum ljósmyndum. Myndirnar eru til en þær eru geymdar á söfnum og engin aðstaða til að sýna þær á viðunandi hátt; og spurning hvort áhersla hefur verið lögð á að skoða þær í list- rænu ljósi út frá myndrænum gæðum. Ljósmyndahefðin er orðin gömul á Íslandi og margt gott og áhugavert hefur verið gert á þessum vettvangi í gegnum tíðina. Í fyrrnefndri bók kynnast lesendur ótal hæfi- leikaríkum ljósmyndurum og sjá dæmi um myndir sem þeir tóku, portrett, mannlífsmyndir og landslag. Í bókinn rekur Inga Lára enn- fremur sögu íslenskrar ljósmyndunar á þessum tíma og ætti það að vera lesendum nokkur op- inberun. Opinberun vegna þess hve ósýnlegur þessi þáttur menningar okkar hefur verið. Hvergi á Íslandi er hægt að nálgast úrval úr ljósmyndasögu landsins þar sem saman eru komnar perlur liðinna ljósmyndara – eða lifandi ef því er að skipta. Hvergi er sett fram úrval mynda sem valdar eru vegna fagurfræðilegs gildis í bland við sögulegt mikilvægi. Reyndar á Ísland sér sérstöðu á þessu sviði eins og svo mörgum öðrum. Hér eru mestu sögulegu fjársjóðirnir, hvað myndasöfn varðar, varðveittir á Þjóðminjasafninu: Þeir eru vel geymdir þar, svo mikið er víst, en safnið er geymslustaður þjóðarverðmæta, hlutverk þess er ekki endilega að setja fram úrval mynda og sýna út frá listrænu gildi. Önnur söfn hýsa merkt úrval ljósmynda, og þá sérstaklega Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Þá eru ótalin minni byggða- og héraðssöfn þar sem ljósmyndir er að finna. Skyldi einhverntímann koma að því að hér verði stofnað sérstakt ríkisljósmyndasafn, með áherslu á að sýna það besta sem gert hefur ver- ið á sviði ljósmyndunar, fyrr og nú? Ef það yrði að veruleika hlyti grunnurinn alltaf að vera sótt- ur í myndasafn Þjóðminjasafnsins, þar eru svo mörg stór og merk söfn einstakra ljósmyndara saman komin. Eða er ástandið fullgott eins og það er og óþarfi að reisa eina listastofnun til? Fyrir nokkrum árum opnuðu Danir þjóð- arljósmyndasafn sem er undirdeild Konunglega bókasafnsins. Úr gríðarlega stóru myndasafni bókasafnsins voru valin rúmlega 25.000 ljós- myndaverk; út frá listrænu gildi og sögulegu, og mynda þau kjarna safnsins. Þar eru heild- arsöfn nokkurra fremstu ljósmyndara Dana, úrval frá öðrum og ennfremur myndarlegt sam- ansafn ljósmynda víðsvegar að úr heiminum. Myndaeignin spannar gjörvalla ljósmyndasög- una, allt frá William Henry Fox Talbot (1800– 1877) til Ólafs Elíassonar (f. 1967). Þ egar Ólafur Kvaran, forstöðumaðurListasafns Íslands, er spurður að þvíhvort einhverntímann hafi komið upphugmyndir um að tengja slíkt þjóð- arljósmyndasafn Listasafninu, segir hann það hafa komið upp í umræðunni öðru hvoru. „En í dag er staðan gjörbreytt og slíkar forsendur ekki fyrir hendi hvað okkur varðar. Við kaupum inn til safnsins út frá listrænu gildi en ekki miðl- inum sem verk eru unnin í,“ segir Ólafur. „Í okkar huga er ljósmyndin hluti af myndlistinni; við kaupum þannig ljósmyndaverk jafnt og olíu- málverk. Það myndi gera okkur erfitt í dag að rækta sérstakt ljósmyndasafn – þessi verk eru bara hluti af okkar safni.“ Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Lista- safns Reykjavíkur, lítur svipuðum augum og Ólafur á ljósmyndalist dagsins í dag. „Hér á Listasafni Reykjavíkur nálgumst við ljósmyndaverk sem hluta af myndlistinni. Sumt af því er sýnt í samstarfi við Ljósmyndasafn Reykjavíkur en annað með sjálfstæðum hætti. Við höfum keypt nokkuð af verkum sem eru unnin með ljósmyndatækni, þetta er bara einn miðillinn, rétt eins og vídeó og hefðbundin mál- verk. Við höfum ekki áhuga á að líta á ljós- myndir sem eitthvað sem þarf sérstaka með- höndlun.“ En á Ljósmyndasafni Reykjavíkur, sem er tiltölulega nýflutt í Grófarhúsið, er haldið uppi sýningahaldi auk hefðbundins safnastarfs. María Karen Sigurðardóttir forstöðumaður segir safnið spanna alla 20. öldina vel með sinni myndaeign. „Við reynum að setja upp áhugaverðar ljós- myndasýningar í þessi þrjú skipti á árinu sem við höfum salinn hér í Grófarhúsinu til umráða,“ segir María Karen. „Stefnan er að reyna að vera með eina erlenda sýningu á ári, eins og Cartier-Bresson-sýninguna í vor, og síðan tvær íslenskar. Það geta verið samsýningar, eins og Reykjavík samtímans sem núna stendur yfir með myndum sautján ljósmyndara, myndir minni hópa eða einkasýningar. Í febrúar næst- komandi munum við þannig sýna Reykjavík- urmyndir eftir Guðmund Ingólfsson og næsta sumar sýnum við myndir úr okkar eigu.“ M aría Karen segir að myndir í eigusafnsins hafi ekki verið flokkaðareða skilgreindar út frá fagur-fræðilegum sjónarmiðum. „Fyrir sýningar gefst tækifæri til að meta myndir út frá slíkum forsendum. Safn er alls ekkert verra þótt það sé ekki byggt á fagurfræðilegum grunni.“ Margir hafa beðið eftir því að geta skoðað á sómasamlegan hátt, á vandlega unnum sýn- ingum, það besta sem varðveitt er af ljós- myndum á Þjóðminjasafninu. „Þegar Þjóðminjasafnið verður komið með eðlilega sýningaraðstöðu í endurbættu hús- næði, þarf það að sýna úrval úr sínu mikla ljós- myndasafni, gera það sýnilegt,“ segir Ólafur Kvaran. „Þjóðminjasafnið á öll þessi sögulegu ljósmyndaverk en hefur ekki getað sinnt sýn- ingarþættinum. Líklega hefur ljósmyndasagan á Íslandi liðið fyrir það.“ Inga Lára Baldvinsdóttir, sagnfræðingur og forstöðumaður myndadeildar Þjóðminjasafns, segir að sýningar verði settar upp þegar safnið verði opnað aftur við Suðurgötu. „Þá munum við væntanlega hafa sérstaka sýningaraðstöðu á jarðhæð safnsins, á það höf- um við lagt áherslu,“ segir Inga Lára. „Mynda- deildin þarf að vera sýnilegri. Við erum með hugmyndir að sýningum; yfirlitssýningu á portrettum, og aðra með landslagsmyndum. Ætlunin er að opna með góðri yfirlitssýningu sem talsverð vinna verður lögð í. Þangað til höldum við áfram að sýna í Hafnarborg en við verðum með yfirlitssýningu á verkum Lofts Guðmundssonar á Listahátíð næsta sumar.“ Í eigu Þjóðminjasafnsins eru um 1,6 millj-ónir ljósmynda. 650.000 á glerplötum,600.000 á filmum og afgangurinn á pappír.Inga Lára segir að engar forsendur hafi verið fyrir fagurfræðilegri flokkun, sambæri- legri þeirri sem ráðist var í á Konunglega bóka- safninu í Danmörku. „Þeir voru líka með mjög alþjóðlegt efni í höndunum og búa að mikilli söfnunarvinnu; eru ekki jafn staðbundnir og við. Þá hafa þeir líka verið að kaupa verk eftir yngri sem eldri ljósmyndara, til að styrkja safn- ið,“ segir Inga Lára. Hvað sérstakar ljósmyndadeildir innan ís- lensku listasafnanna varðar finnst henni að söfnin séu búin að missa af lestinni. „Allir mögu- leikar til að koma upp slíku yfirlitssafni yfir ís- lenska ljósmyndun, hvort sem hún er metin fag- urfræðilega eða sögulega, hljóta að tengjast þessum grunni hér á Þjóðminjasafninu. Við höf- um verið að safna myndum frá 1908.“ Inga Lára segir að þegar hún og Ívar Brynj- ólfsson hafi valið myndefnið í bók hennar, Ljós- myndarar á Íslandi, hafi fagurfræðileg sjón- armið ráðið. „Ég reikna með að svo muni einnig vera í þeim sýningum sem við setjum upp á næstu árum í safninu. En við stöndum frammi fyrir því að að við erum vel sett með myndir sem teknar eru fram undir 1940 en svo byrja að myndast eyður. Ég hef áhyggjur af tímunum þar á eftir, sérstaklega eftir 1960. Hver á til dæmis myndir eftir lykilmenn í faginu á borð við Leif Þorsteinsson og Guðmund Ingólfsson? Það er hvergi hægt að sjá verk eftir þá og það er alvarlegt mál.“ Ósýnilegur menningararfur? AF LISTUM Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is KARL GROSSMAN (1851–1916): Andlitsmyndir af holdsveikum sjúklingum í Laugarnesspítala, 1904. Elstu litmyndir sem vitað er um af Íslendingum. Þjóðminjasafn Íslands. ÁRNI THORSTEINSON (1870–1962): Við Tjörnina í Reykjavík um aldamótin 1900. Þjóðminjasafn Íslands. Hasarmyndaleikstjórinn og fram- leiðandinn Luc Besson er driffjöðrin á bak við Yamakasi, gjörsamlega heilalausa, franska spennumynd um hóp kattliðugra ungmenna sem myndin dregur nafn sitt af. Flestir af norður-afrískum uppruna, úr verka- mannastétt. Virðast ekki hafa annað fyrir stafni en að leika teiknimynda- hetjurnar úr bókmenntum á borð við X-menn. Einn kallar sig Sitting Bull, annar Rakettuna, sá þriðji Tangó, osfrv. Þeir hengslast um, storka lögg- unni með fífldjörfu príli upp skýja- kljúfa og hindrunarhlaupum um hús- þök og almenningsgarða. Ýmsu því sem óæskilegt telst til fyrirmyndar hinum almenna skattborgara. Krakk- arnir halda ekki vatni yfir uppátækj- um slæpingjanna og þar finna Besson og félagar farveg fyrir spennumynd sem er efnislega vond en hlaðin vel útfærðum átaka- og áhættuatriðum. Meðal ungra aðdáenda Yamakasi- anna er drengurinn Djamel, sem er veill fyrir hjarta, það lætur undan er hann reynir að apa eftir fyrirmynd- unum og er fluttur dauðvona á spít- ala. Yamakasiarnir komast að þess- um sára sannleika, finna sig knúna til að gera eitthvað, enda málið skylt. Setja á sig lambhúshettur og leggja í ránsherferð á hendur auðugra með- lima stjórnar spítalans þar sem drengurinn liggur og þarfnast nýs hjarta, sem kostar stórfé. Tíminn til stefnu mælist í klukkustundum svo hópurinn þarf að hafa snör handtök við að láta greipar sópa. Myndin er greinilega ætluð minni- hlutahópum í frönskum úthverfum, full heiftar útí þá sem betur mega sín og kynþáttahaturs í garð hvítra. Það þykir jafnan hið besta mál; annað er Jón en séra Jón. Látum það vera, hitt er jafnan hvimleitt þegar fársjúk börn eru notuð sem þungamiðja í has- armyndum. Ekki bætir úr skák þegar leikarinn virkar jafn fílhraustur og sá sem holdiklæðir eymingjans litla Dajmel. Þó maður leggi sig allan fram er fráleitt að fá samúð með nokkurri persónu. Bágborin della en bærileg afþreying hasarmyndaunn- endum. Hróar með lambhúshettur KVIKMYNDIR S m á r a b í ó Leikstjóri: Ariel Zeitoun. Handrits- höfundur: Luc Besson. Tónskáld DJ Spark, Joey Sparr. Kvikmynda- tökustjóri: Philippe Piffeteau. Aðalleikendur: Chau Belle Dinh, William Belle, Malik Diouf, Yann Hnautra, Charle Perriére. Sýningartími 90 mín. Frönsk. Europa Dist. 2001. YAMAKASI Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.