Morgunblaðið - 18.11.2001, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 18.11.2001, Blaðsíða 31
Á ORGELANDAKT í Hjalla- kirkju í Kópavogi í dag kl. 17 leikur Haukur Guðlaugsson, fyrrum söng- málastjóri, á orgel kirkj- unnar verk eftir ýmsa höfunda, m.a. Max Reger, Johann Seb- astian Bach, L. Boëll- mann, Mend- elssohn og fleiri. Auk þess að leika verk sem samin eru fyrir orgel leikur hann einnig umritanir þekktra verka sem samin eru fyrir önnur hljóðfæri. M.a. má þar nefna Svaninn eftir C. Saint-Saëns, kafla úr árstíð- unum eftir Vivaldi og Dans hinna sælu sálna eftir Glück. Haukur leggur áherslu á að kynna ýmsa af hinum fjöl- mörgu möguleikum orgelsins. Orgeltón- leikar í Hjallakirkju LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2001 31 Nýbýlavegi 12, Kóp., sími 554 4433. Hnepptar peysur Blússur Mikið úrval af fallegum hnepptum peysum og blússum SÝNING Elínar G. Jóhannsdótt- ur, Upp með ánni, sem þessa dagana stendur yfir í Galleríi Fold, sýnir líkt og nafn hennar gefur til kynna ferða- lag listakonunnar upp með ár- straumi. Ekki er endilega um einn ákveðin árstraum að ræða í verkun- um heldur eru það frekar huglægar minningar af mjúkum vatnsflaumin- um og hörðu berginu sem er við- fangsefni Elínar. Upp með ánni er sjötta einkasýn- ing listakonunnar og tekst henni vel upp með fígúratíf verk sín þar sem einfaldleikinn er hafður í fyrirrúmi. Gulir, gráleitir, túrkísbláir og djúpbláir litir eru ríkjandi í mynd- unum, sem sýna grjót, ísjaka og vatn, í misvíðum myndskeiðum. Verkið Kaldir steinar sýnir til að mynda lækjarsprænu læða sér niður grjóthnullunga í miklu návígi og líkt og heiti myndarinnar ber með sér eru kaldir, gráleitir litatónar hér ríkjandi. Sjóndeildarhringurinn í verkinu Dýpi, þar sem ísjaki hvílir í vatninu, er hins vegar öllu víðari. Í meðförum Elínar tekur áin á sig margbreytilegar myndir og lætur henni vel að ná fram jafnt kulda vatnsins og hlýleika, auk þess sem það verður ýmist gruggugt eða tært á að líta. Sterkgulir steinhnullungar speglast til dæmis skemmtilega í túrkísbláum vatnsfletinum í verkinu Tiplað yfir, sem líkt og flestar mynd- ir listakonunnar býr yfir hefðbund- inni, sléttri áferð olíumálverksins. Verkið Í heitum dansi telst hins veg- ar síðra öðrum verkum sýningarinn- ar. Vatnið gárar hér við grjótgarðinn og virðist hreyfing þess ekki jafn raunsönn og spegilsléttur vatnsflöt- ur og letilegur straumur annarra verka. Frumleiki er kannski ekki það fyrsta sem kemur upp í hugann þeg- ar verk Elínar eru skoðuð. Lands- lagsmyndirnar búa hins vegar yfir vissum heiðarleika þar sem ekki er leitast við að gera þær að neinu öðru. Tök listakonunnar á fígúratífu myndefninu skila enn fremur stíl- hreinum myndum sem gleðja augað og einföld mynduppbygging og góð litanotkun leyfa verkunum að njóta sín. Listakonan orðar það líklega best sjálf í sýningarskránni þar sem hún segir: „Það er ekki hægt að mis- skilja verkin mín, aðeins að upplifa þau á annan hátt en ég geri.“ MYNDLIST G a l l e r í F o l d Sýningin er opin virka daga frá kl. 10–18, laugardaga frá kl. 10–17 og sunnudaga frá kl. 14–17. Henni lýkur 18. nóvember. UPP MEÐ ÁNNI – ELÍN G. JÓHANNSDÓTTIR Straumur árinnar Morgunblaðið/Árni Sæberg Kaldir steinar eru meðal verka á sýningu Elínar G. Jóhannsdóttur. Anna Sigríður Einarsdótt ir EF HEIMILIÐ er þér kært nefnist kvikmyndin sem sýnd verður í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, í dag, sunnudag, kl. 16. Þetta er sovésk heimildarkvik- mynd frá árinu 1967 og fjallar um sögulegan atburð, upphaf innrásar Þjóðverja í Sovétríkin sumarið 1941. Leikstjóri er V. Ordynskí en með- al höfunda tökuritsins var hinn kunni stríðsfréttaritari og rithöfundur Konstantín Simonvo. Skýringar (tal) eru á dönsku. Að- gangur er ókeypis. Heimildar- mynd í MÍR NORRÆNA húsið sýnir dönsku teiknimyndina Fugle- krigen i Kanøfleskoven eða Fuglastríðið í Kanøfle-skógi í dag kl. 14. Leikstjóri er Jannik Hastrup. Myndin er gerð eftir sögunni Fuglastríðið eftir Bent Haller. Myndin fékk júníor- verðlaunin í Cannes 1991. Myndin er ætluð börnum 7 ára og eldri. Söngtextar eru eftir Søren-Kragh Jacobsen. Verðlauna- mynd fyrir börn BORGARKÓRINN heldur tónleika í Neskirkju í dag kl. 17 ásamt ein- söngvurunum Bergþóri Pálssyni og Ingu J. Backman. Flutt verða lög eft- ir Sigvalda Kaldalóns (1881–1946). Á þessu ári eru 120 ár liðin frá fæð- ingu tónskáldsins sem var að mestu sjálfmenntaður í list sinni en gegndi að öðru leyti starfi héraðslæknis um áratugaskeið. Flutt verða nokkur þekktustu lög Sigvalda, auk annarra sem sjaldnar heyrast, meðal annarra lög úr sjónleiknum Dansinum í Hruna eftir Indriða Einarsson. Pí- anóleikari verður Iwona Ösp Jagla og stjórnandi er Sigvaldi Snær Kalda- lóns. Kaldalóns- söngvar í Neskirkju BÓKMENNTAKVÖLD verð- ur í Kaffileikhúsinu í Hlaðvarp- anum annað kvöld, mánudags- kvöld, kl. 20.30. Þá lesa fjórir kvenrithöfundar úr verkum sínum: Anna Kristine Magnús- dóttir, Litróf lífsins; Rakel Pálsdóttir, Flökkusögur; Sig- ríður Dúna Kristinsdóttir, Ævi- saga Bjargar Þorláksson og Þórunn Stefánsdóttir, Konan í köflótta stólnum. Listasafn Íslands Gunnar J. Árnason heim- spekingur annast leiðsögn í Listasafni Íslands í dag kl. 15 um yfirlitssýningu á verkum Gunnlaugs Schevings (1904– 72) sem nú stendur yfir í öll- um sölum safnsins. Sýning- unni lýkur 9. desember. Nýlistasafnið Geir Svansson, annar tveggja sýningarstjóra sýn- ingarinnar Omdúrman, Marg- miðlaður Megas í Nýló, verð- ur með leiðsögn um sýninguna í dag kl. 15. Aðgangur er ókeypis. Safn- ið er opið frá 12–17. Leiðsögn um sýningar Bókmennta- kvöld Haukur Guðlaugsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.