Morgunblaðið - 18.11.2001, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.11.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Tillaga að aðalskipulagi Reykjavíkur Framtíðarsýn Reykjavíkur NÚ HEFUR veriðlögð fram tillagaað Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 sem eflaust verður umtöl- uð næstu misserin. Verður hún sérstaklega kynnt al- menningi, lögum sam- kvæmt, í Ráðhúsinu dag- ana 19. og 20. nóvember. Ingibjörg R. Guðlaugs- dóttir skipulagsfræðingur og deildarstjóri á aðal- skipulagsdeild Reykjavík- urborgar svaraði nokkrum spurningum Morgun- blaðsins um tillöguna og vinnslu hennar. Hvert er innihald tillög- unnar í hnotskurn? „Segja má, að í hnot- skurn snúist tillagan um að takmarka útþenslu byggðar í Reykjavík með því að skilgreina vaxtarmörk þéttbýlis, þétta núverandi byggð, blanda saman íbúðum og atvinnutæki- færum á sama svæði og þar með draga úr ferðaþörf, aukinn þétt- leika, það er fjölda íbúða á hekt- ara, á uppbyggingarsvæðum og auka áherslur á vistvænar sam- göngur, svo sem almenningssam- göngur og aukin gæði byggðar. Framtíðarsýn sem sett er fram í tillögu að Aðalskipulagi Reykja- víkur 2001-2024 er að Reykjavík sé öflug og gróskumikil höfuðborg landsmanna allra og forystuafl á sviði þekkingar og alþjóðavæð- ingar, þar sem hugtökin fram- sækni og sjálfbærni standa vörð um verðmætasköpun, er byggir á íslenskum grunni og skilar viðun- andi búi til komandi kynslóða. Tillaga að aðalskipulagi hvílir á þremur stoðum. Reykjavík sem höfuðborg, alþjóðleg borg og vist- væn borg. Markmið, leiðir og að- gerðir sem lagðar eru til í aðal- skipulaginu eru í samræmi við framtíðarsýn og stoðir. Lögð hefur verið áhersla á að fá sem flesta til að koma að framtíð- arsýn fyrir Reykjavík. Í ársbyrj- un var haldin samkeppni meðal framhaldsskóla um framtíðarsýn fyrir Reykjavík, í ársbyrjun 2001 voru tekin viðtöl við fjölmarga að- ila, þingmenn, ráðherra, borgar- stjóra og borgarfulltrúa, fulltrúa atvinnulífs og verkalýðshreyfing- ar, frjálsra samtaka o.fl. um þró- un borgarinnar til framtíðar, stöðu og hlutverk hennar og Ís- lands í alþjóðavæðingunni. Það má því segja að margir hafi komið að mótun framtíðarsýnar og skil- greiningu á þeim stoðum sem að- alskipulagið hvílir á.“ Hvað hefur þessi tillaga verið lengi í smíðum og hvar má segja að hún sé í ferlinu? „Tillagan hefur verið tvö ár í smíðum. Vinna við gerð hennar hefur farið fram samhliða vinnu við svæðisskipulag höfuðborgar- svæðisins. Hluti af vinnu við að- alskipulagið var að rýna í tillögur sem komu fram í tillögu að svæðisskipulagi. Þegar hún lá nokkuð ljós fyrir var sett fram umræðu- tillaga að aðalskipulaginu. Svæð- isskipulag og aðalskipulag þurfa að vera í innbyrðis samræmi.“ Á hvaða hátt er tillagan að- gengileg almenningi? „Umræðutillagan var kynnt á opnum fundi í Ráðhúsi Reykjavík- ur s.l. vor. Í framhaldi af því var kynningarefni sett á heimasíðu Reykjavíkurborgar og uppdrátt- ur aðalskipulagsins settur á upp- lýsingastanda og í biðskýli stræt- isvagna í sumar. Uppdráttur og helstu atriði aðalskipulagsins voru sýnd á sýningunni Heimilið í Laugardalshöll í september. Auk þess hefur hún verið send fjöl- mörgum og beðið um ábendingar. Tillagan sem nú liggur fyrir og var tekin til fyrri umræðu í borg- arstjórn fimmtudaginn 15. nóv- ember, verður kynnt í Ráðhúsi Reykjavíkur n.k. mánudag og mun borgarstjóri, formaður skipulags- og byggingarnefndar ásamt fleirum sitja þar fyrir svör- um. Sýning á efni tillögunnar verður í Ráðhúsinu 19. og 20. nóv- ember en þar á eftir er gert ráð fyrir að sýningin fari víðar og verði jafnframt sett á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Reynt verður að hafa tillöguna eins aðgengilega og hægt er.“ Hver er ferill næstu vikna? „Tillagan verður nú send til umsagnar fjölmargra aðila, þ.m.t. Skipulagsstofnunar og aðliggj- andi sveitarfélaga. Eftir að hún hefur verið tekin til seinni um- ræðu í borgarstjórn, en stefnt er að því að það verði 20. desember, verður hún formlega auglýst með samþykki Skipulagsstofnunar.“ Hvert er svigrúmið til athuga- semda? „Tillagan verður til sýnis í fjór- ar vikur þar sem gefst tími til at- hugasemda auk tveggja vikna umfram það. Hvatt er til þess að fólk kynni sér tillöguna og komi með ábendingar og at- hugasemdir. Aðal- skipulag Reykjavíkur er stefnumörkun Reykjavíkur til langs tíma um þróun borgarinnar og mun sem slík hafa mikil áhrif á aðra stefnumörkun svo sem þá sem sett er fram í deiliskipulagi, sem aftur nær til minni reita í borginni og því nær íbúum borg- arinnar. Það er því mikilvægt að menn kynni sér efni tillögunnar áður en hún er samþykkt endan- lega.“ Er tekið eitthvert tillit til at- hugasemda? „Já, eins mikið og unnt er.“ Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir  Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 3. júlí 1939. Af menntun er helst að nefna: Stúdent frá MH 1977. BS- gráða í landafræði frá HÍ 1982. 1985, framhaldsnám við Nord- iska Institutet för Samhälls- planering og síðan MUP-gráða í borgarskipulagi frá Hunter Collage í New York 1988. Hefur unnið ýmis stjórnunarstörf hjá Borgarskipulagi síðan 1982, en núverandi staða er deildarstjóri aðalskipulags. Ingibjörg er gift Valgarði Stefánssyni fil.dr. yfir- verkefnisstjóra hjá Orkustofnun. Þau eiga fjögur börn og fimm barnabörn. Fólk hvatt til að kynna sér tillöguna EKKI liggur fyrir hve há björg- unarlaun verða greidd vegna björgunar togarans Örfiriseyjar sem bjargað var þegar hann rak vélarvana í átt að Grænuhlíð um síðustu helgi. Einar Sveinsson, forstjóri Sjóvár-Almennra, en Ör- firisey er tryggð hjá Sjóvá, segir að greidd verði björgunarlaun til útgerðar og áhafnar enda hafi sjó- mennirnir á Snorra Sturlusyni, sem bjargaði Örfirisey, sannarlega unnið mikið björgunarafrek við mjög hættulegar aðstæður. Einar sagði ekki fara á milli mála að Örfirisey og áhöfn skips- ins hafi verið í mikilli hættu þegar skipverjum á Snorra Sturlusyni tókst að koma taug á milli skip- anna og draga Örfirisey í burtu áður en skipið strandaði. Hann sagði að greidd yrðu björgunar- laun í samræmi við ákvæði sigl- ingalaga, en auk þess næði vá- trygging skipsins til bilana á vél og skemmda sem urðu á skipinu, en Örfirisey tapaði m.a. akkeri. Grandi og áhöfn Snorra Sturlusonar fá björgunarlaun Bæði Örfirisey og Snorri Sturlu- son, sem bjargaði skipinu, eru í eigu Granda, en Einar sagði að samkvæmt siglingalögum skipti ekki máli þó björgunarskipið sé í eigu sömu útgerðar og skipið sem var bjargað. Björgunarlaun ætti engu að síður að greiða. Samkvæmt lögunum renna þrír fimmtu hlutar björgunarlauna til útgerðarinnar en tveir fimmtu hlutar til áhafnarinnar. Hlut áhafnar skal skipt á þann veg að skipstjóri fái einn þriðja hluta en hin eiginlega skipshöfn tvo þriðju hluta. Ekki er kveðið skýrt á um það í siglingalögum hve há björgunar- laun ber að greiða enda eru tilvik við björgun ólík. Hins vegar segja lögin að við ákvörðun björgunar- launa skuli m.a. líta til verðmætis þess sem bjargað er, verklagni þeirrar og atorku sem björgunar- menn beittu við björgun skips og eðlis og umfangs hættunnar. Tekið er fram í lögunum að björgun mannslífa veiti ekki rétt til björg- unarlauna. Venjan er sú að við greiðslu björgunarlauna sé greitt visst hlutfall af verðmæti skips sem bjargað er. Björgun frystitogarans Örfiriseyjar við Grænuhlíð Áhöfn og útgerð fá greidd björgunarlaun Það er kannski kominn tími til að foringinn hugi að því hvort það séu ekki fleiri orðnir veruleikafirrtir en flugumferðarstjórar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.