Morgunblaðið - 18.11.2001, Side 33

Morgunblaðið - 18.11.2001, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2001 33 g t í r g á í a á r t t r g í g g r t ur-víkingsæfingunum undanfarin ár hafi verið æfð viðbrögð við árás hryðjuverkamanna. Það breytir ekki því að viðbúnaður í Keflavík miðast að mjög litlu leyti við varnir gegn hryðjuverkum. Eðlilegt verður að teljast að íslenzk stjórnvöld taki upp í viðræðunum við Bandaríkjamenn að gerðar verði breytingar á samsetningu og búnaði varnarliðsins, sem geri ráð fyrir hættunni á hryðjuverkum og viðbrögðum við henni. Slíkt er í fullu samræmi við þá venju, sem þróazt hefur og lýst var hér að framan, að viðbúnaður varnarliðs- ins hefur undanfarin 50 ár tekið mið af ástandinu í alþjóðamálum á hverjum tíma. Nú er meira óvissuástand en verið hefur lengi; varnir Íslands verður að skipuleggja með hliðsjón af því. Þátttaka Íslands í kostnaði við landvarnir Efldar varnir Íslands eru öðrum þræði sam- eiginlegt hagsmuna- mál Íslands og Banda- ríkjanna – og raunar allra aðildarríkja NATO. Það ætti að vera Bandaríkjunum metn- aðarmál að öryggi lands, sem þau hafa tekið að sér að veita hervernd, sé tryggt sem allra bezt. Hins vegar getum við ekki lengur gert kröfu til þess að Bandaríkin og önnur bandalagsríki okkar standi straum af öllum kostnaði við varnir lands- ins. Ísland hefur ekki yfir að ráða þeirri hefð, þekkingu, reynslu og stjórnskipulagi í varnarmál- um sem nauðsynlegt er til að skipuleggja hér öfl- ugar landvarnir. Þar erum við upp á bandamenn okkar komin. En við stöndum öðrum NATO-ríkj- um sízt að baki hlutfallslega í efnahagslegum styrk. Það er því eðlilegt að Ísland, sem sjálfstætt og vel stætt ríki, taki á sig a.m.k. hluta af kostn- aðinum við landvarnir rétt eins og önnur NATO- ríki hafa þurft að gera um áratugaskeið. Þurfi Bandaríkjamenn að auka viðbúnað sinn og kostnað á einhverjum sviðum vegna varna gegn hryðjuverkum, kemur til greina að Íslend- ingar létti af þeim kostnaði á öðrum sviðum. Líkt og áður hefur verið rætt á þessum vettvangi, get- ur bezta aðferðin til þess að Íslendingar axli fjár- hagslegar byrðar vegna landvarna verið sú, að þeir taki sjálfir að sér skilgreinda þætti varnanna. Í Reykjavíkurbréfi 9. júní sl. sagði þannig: „Ef niðurstaðan verður sú að borgaralegir starfs- menn geti sinnt tilteknum þáttum starfseminnar í Keflavík, hlýtur sú spurning að koma í eðlilegu framhaldi hvort þeir geti þá ekki allt eins verið ís- lenzkir og bandarískir. Þá hljóta menn jafnframt að ræða hvort eitthvað sé því til fyrirstöðu að Ís- lendingar taki þessi verkefni að sér og axli þar með aukna ábyrgð á eigin vörnum.“ Sá rekstrarþáttur varnarstöðvarinnar, sem augljósast er að Íslendingar standi straum af kostnaði við í auknum mæli, er rekstur flugbraut- anna á Keflavíkurflugvelli, ekki sízt þar sem meirihluti umferðar um þær er nú borgaralegt flug. Einnig hefur verið rætt um að Íslendingar geti tekið að sér leitar- og björgunarstörf fyrir varnarliðið og að Landhelgisgæzlan geti aðstoðað það við eftirlit á sjó. Þar að auki getum við án efa eflt okkar eigin viðbúnað gegn hugsanlegum hryðjuverkum, þótt slíkt hljóti að gerast í nánu samstarfi við Banda- ríkjamenn. Við uppbyggingu varna gegn hryðju- verkamönnum verður að hafa í huga að þeir eru ekki líklegastir til að ráðast á hefðbundin hern- aðarskotmörk, t.d. varnarstöðina í Keflavík, held- ur frekar gegn stjórnarstofnunum og almennum borgurum. Þess vegna ber brýna nauðsyn til að efla varnarviðbúnað og eftirlit í nánu samstarfi við borgaraleg löggæzluyfirvöld. Lögreglan hefur yf- ir að ráða sérsveit, sem m.a. er ætlað að fást við hryðjuverkamenn og ætla verður að Landhelg- isgæzlan og Almannavarnir ríkisins muni einnig gegna mikilvægu hlutverki í vörnum gegn hryðju- verkum. Samstarf þessara stofnana og varnar- liðsins hefur eflzt á undanförnum árum, m.a. með þátttöku þeirra í æfingum á vegum Atlantshafs- bandalagsins. Við þá endurskoðun, sem Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra hefur boðað að fari fram á viðbúnaði lögreglu, Almannavarna og fleiri stofnana vegna hættunnar á hryðjuverkum, hlýtur að verða horft til samhæfingar og sam- starfs við varnarliðið. Þá hafa bandarísk stjórnvöld, ekki sízt vegna þess að þau hafa haft áhyggjur af hættu á komu glæpa- og hryðjuverkamanna hingað til lands, fyrir alllöngu boðið upp á samstarf alríkislögregl- unnar FBI, bandarísku tollgæzlunnar og útlend- ingaeftirlitsins við yfirvöld löggæzlu hér á landi. Meðal annars hafa þau boðizt til að þjálfa lög- reglumenn og tollverði á Keflavíkurflugvelli þannig að þeir séu betur í stakk búnir að fylgjast með grunsamlegum mannaferðum og tryggja innra öryggi. Gera verður ráð fyrir að taka þurfi samstarf við löggæzluyfirvöld í fleiri ríkjum inn í myndina, til dæmis lögreglu í aðildarríkjum Schengen-samningsins vegna frjálsrar farar fólks á milli Schengen-ríkjanna. Allt á þetta eftir að kosta umtalsverða fjármuni. Mörg ríki heims búa sig nú undir að auka framlög til öryggis- og varnarmála og Ísland ætti ekki að vera nein undantekning. Munurinn er þó sá að við höfum allt frá því Ísland varð fullvalda ríki ekki haft neinn fjárhagslegan kostnað af landvörnum. Nú getur hins vegar verið komið að því að það breytist. Margir spyrja eflaust sem svo: Er eitt- hvert vit í því að leggja stórfé í varnir gegn hætt- um, sem eru illa skilgreindar og lítt þekktar, um leið og fé skortir í menntakerfið, heilbrigðiskerfið, til samgangna o.s.frv.? Svarið er einfaldlega það að þetta er kostnaður, sem langflest ríki heims verða að leggja í. Varnirnar framarlega í forgangsröðinni Ef við horfum til að mynda til nánustu vinaríkja okkar í Skandinavíu er ljóst að Finnland, Noregur, Svíþjóð og Danmörk hafa a.m.k. allt frá stríðslokum lagt stórfé til land- varna á fjárlögum hvers árs. Þessi ríki hafa metið það svo að þau hafi ekki efni á öðru, en hafa þó rekið öflugt mennta- og heilbrigðiskerfi og byggt upp þjóðfélög sem standa í fremstu röð. Að tryggja landvarnir og öryggi hlýtur ævinlega að verða framarlega í forgangsröðinni, því að án ör- yggis og trúverðugra varna er þróaðasta velferð- arkerfi í heimi lítils virði. Á tíma kalda stríðsins þurftu Íslendingar ekki að standa sjálfir straum af kostnaði við varnir lands síns. Hernaðarlegt mikilvægi landsins olli því að sú aðstaða, sem hér var látin í té fyrir sam- eiginlegar varnir NATO-ríkjanna, þótti nægilegt endurgjald fyrir að varnir Íslands væru tryggðar. Ef eitthvað var, gátu Íslendingar gert ósann- gjarnar kröfur um þátttöku annarra NATO-ríkja í kostnaði hér vegna mikilvægis landsins. Þannig greiddu Bandaríkjamenn stóran hluta kostnaðar við byggingu Leifsstöðvar, þeir greiða enn hluta kostnaðar vegna borgaralegs millilandaflugs og til skamms tíma þýddi fyrirkomulag verktaka- starfsemi á Keflavíkurflugvelli að þar greiddu Bandaríkin í raun ríflega fyrir framkvæmdir, þótt þeir fjármunir rynnu til tiltölulega fámenns hóps fyrirtækja og einstaklinga. Landfræðileg lega landsins skiptir hins vegar ekki sama máli og áður, allra sízt fyrir sameig- inlegar varnir Vesturlanda gegn hryðjuverkum. Aftur á móti hefur mikilvægi NATO-aðildarinnar og varnarsamstarfsins við Bandaríkin aukizt fyrir Ísland á þessum óvissutímum. Við verðum áfram að leitast við að gera okkur gildandi í samstarfi NATO-ríkjanna, t.d. með áframhaldandi áherzlu á alþjóðlega friðargæzlu, og við verðum jafnframt að vera reiðubúin að takast á hendur fjárhagslega ábyrgð á vörnum okkar og öryggi. Aukinheldur verðum við að vera viðbúin því að það kosti bæði tíma og fyrirhöfn að endurskilgreina varnar- og öryggismálastefnu landsins til að taka mið af hinni nýju ógn. Morgunblaðið/RAX „Eðlilegt verður að teljast að íslenzk stjórnvöld taki upp í viðræðunum við Bandaríkjamenn að gerðar verði breyt- ingar á samsetningu og búnaði varnar- liðsins, sem geri ráð fyrir hættunni á hryðjuverkum og viðbrögðum við henni. Slíkt er í fullu samræmi við þá venju, sem þróazt hefur og lýst var hér að framan, að við- búnaður varnarliðs- ins hefur undan- farin 50 ár tekið mið af ástandinu í al- þjóðamálum á hverj- um tíma. Nú er meira óvissuástand en verið hefur lengi; varnir Íslands verð- ur að skipuleggja með hliðsjón af því.“ Laugardagur 17. nóvember

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.