Morgunblaðið - 18.11.2001, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 18.11.2001, Qupperneq 36
MINNINGAR 36 SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Unnur Ólafs-dóttir fæddist í Ólafshúsi í Stykkis- hólmi 23. september 1910. Hún lést á St. Fransiskussjúkra- húsinu í Stykkis- hólmi 28 okt. síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Helga Kristín Jóns- dóttir, f. 5.7. 1870, d. 11.5. 1955, og Eggert Ólafur Jóns- son, f. 11.3. 1870, d. 12.10. 1944.Unnur var yngst ellefu barna þeirra hjóna. Systkini Unnar eru: Ósk, f. 25.10. 1897, d. 17.6. 1949, Gyða, f. 25.10. 1897, d. 8.9. 1929, Guðrún, f. 23.8. 1898, d. 26.4. 1979, Lovísa, f. 31.12. 1899, d. 2.5. 1982, Fanný, f. 11.6. 1901, d. 17.4. 1982, Jón, f. 26.7. 1902, d. 18.3. 1985, Emma, f. 16.11. 1903, d. 9.8. 1923, Borg- hildur, f. 16.10. 1905, d. 11.10. 1989, Ingveldur, f. 2.3. 1907, d. 13.1. 1911, og Þorkell, f. 11.10. 1908, d. 13.1. 1987. Eiginmaður Unnar var Jóhann Kr. Rafnsson, f. 10.2. 1906, d. 6.7. 2000. Þau gengu í hjónaband 26.10. 1935 og þau bjuggu allan sinn búskap á Bókhlöðu- stíg 8 í Stykkis- hólmi. Synir þeirra eru: 1) Rafn Júlíus, f. 29.5. 1939, maki Birna Guðríður Pét- ursdóttir, f. 7.8. 1940. Börn þeirra eru Anna María, maki Davíð Sveins- son; Jóhann Krist- inn, maki Arna Bára Arnarsdóttir; Pétur Árni, maki Ásta María Reynisdóttir; Björn Arnar, maki Margrét Bjarman; Rafn Júlíus, maki Ásta Valdís Guðmunds- dóttir. 2) Drengur, f. 16.3. 1948, d. 16.3. 1948. 3) Árni Páll, f. 13.10. 1950, maki Sólveig Benja- mínsdóttir, f 21.4. 1952. Synir þeirra: Þorkell Ólafur og Benja- mín. Sonur Árna Páls úr fyrra hjónabandi er Sigurður Páll. Langömmubörn Unnar eru 19. Útför Unnar fór fram frá Stykkishólmskirkju 3. nóvem- ber. Sumarið kvaddi og veturinn tók völd og á þeim tímamótum kvaddi hún amma sitt jarðneska líf. Hún hafði legið á sjúkrahúsinu undanfarin ár, kannski lengur en efni stóðu til vegna fötlunar sinnar sem var blinda. Það er ekki hægt, allavega mjög erfitt að setja sig í spor mann- eskju sem ekki hefur sjón og getur ekki notað augun til að njóta alls hins fallega sem fyrir augu ber. Þannig að oft reyndi á þolrifin bæði hjá þeirri gömlu og þeim sem umgengust hana. Starfsfólki St. Fransiskussjúkra- hússins færum við bestu þakkir fyrir góða umönnun og alúð á liðnum ár- um. Amma var yngst ellefu systkina og ólst því upp í stórri fjölskyldu, tveir bræður og níu systur. Æskuheimili ömmu var mikið mektarheimili. Föður hennar féll aldrei verk úr hendi og var til heimilis mikill aðdráttarmaður og aflakló. Kristín móðir hennar var sögð um flest einstök, mikil móðir og stjórnaði öllu með góðmennsku og blíðu og sagt var að þetta stóra heimili bæri þess góðan vott. Systkinin voru sögð vel haldin og hraust, mjög mannvænleg börn. Laust eftir fermingu var hún orðin ein eftir heima af systrunum, og tók að sér að aðstoða móður sína þegar faðir hennar varð fyrir alvarlegu slysi. Móðir hennar var einnig orðin frekar heilsuveil þegar hér var komið og löngum við rúmið. Þá tók amma að sér heimilishald og hjúkrunarstörf. Síðar kom Fanný systir hennar heim og tók við heimilinu. Nú lá leiðin til Reykjavíkur þar sem hún vann ýmis störf, s.s. á saumastofu, á stórbúinu Korpúlfs- stöðum og þaðan sagði hún ýmsar sögur. Í þeim sögum var alltaf sólskin og gott veður. Aftur lá leiðin til baka á heimaslóð og þar kynntist hún verð- andi eiginmanni sínum, en hún og afi giftu sig 26.10. 1935. Amma flutti inn á heimili eiginmanns síns og foreldra hans og tók að sér umönnun þeirra, því þau voru þá orðin heilsuveil. Þannig að enn og aftur tók hún að sér húshald og umönnun, og reyndist hún gamla fólkinu eindæma vel. Amma og afi bjuggu allan sinn búskap á Bók- hlöðustíg 8 sem var æskuheimili afa. Hún var húsmóðir lengst af, en vann þó stundum í fiski fyrr á árum og vann við þrif í bankanum í seinni tíð ásamt Fjólu vinkonu sinni. Það eru margar yndislegar og skemmtilegar minningar sem hrann- ast upp í huganum á tímamótum. Mér fannst alltaf svo gaman að vera hjá ömmu og afa þegar ég var stelpa, vegna þess m.a. að þar var svo mikill gestagangur. Það var ávallt glatt á hjalla þegar systur ömmu og kunningjar komu í heimsókn úr höfuðborginni og þá mátti ég ekki missa af neinu. Ég get nú ekki látið ógert að segja frá jóla- boðunum í fjölskyldunni hennar ömmu, hvort heldur var hjá Lovísu eða Nonna og Rögnu. Alltaf voru allir sem vettlingi gátu valdið mættir. Frá- bærasti jólasveinn bæjarins, „Keli“, mætti ár eftir ár með epli í poka og ekki var það nú amalegt. Þessi ágæti jólasveinn hafði aðeins gert samning við þessa ákveðnu fjölskyldu og það leið ekki svo aðfangadagskvöld að hann færi ekki á hvert heimili í fjöl- skyldunni. Við áttum margar skemmtilegar stundir saman þar sem ég dvaldi mik- ið hjá ömmu og afa þegar ég var krakki, og ekki hafa verið síðri stund- irnar okkar saman eftir að ég varð fullorðin og sjálf orðin móðir. Við áttum sameiginleg áhugamál sem við gátum rætt eilíflega, þ.e. mat, mataruppskriftir og ýmiss konar handavinnu. Mér þótti nú ekki leið- inlegt þegar hún var að stússast í mat og bakstri. Hún var svo mikil búkona í sér og eins og ég sagði oft við hana, við hefðum orðið fínar saman, hús- mæður í eyjabúskap, að svíða svið, verka sel, reyta og svíða kofu og svo framvegis, enda elskaði hún að gefa manni uppskriftir og veita leiðsögn um matargerð og þau voru mörg góðu ráðin og margar stundirnar þar sem hún lá í rúminu sínu á spítalanum sem við notuðum í spjall um áhuga- málin. Allt fram á síðustu stundu var hugurinn við mat og matargerð. Ég held að ég geti líka fullyrt að ekki hafa margir farið svangir úr húsi frá henni eftir heimsókn og það var oft mjög gestkvæmt hjá þeim. Það var í hennar anda að allir væru vel mettir, enda alltaf nóg að borða og drekka. Ekki skemmdu frásagnir afa fyrir því hann var vel lesinn og fróður maður og vel að sér í flestu. Við nutum mikils sem umgengumst þau því þau miðl- uðu mörgu hvort á sinn hátt. Amma og afi voru mikið fyrir úti- vist og ferðuðust mikið, fóru bæði í veiðiferðir svo ég tali nú ekki um ár- legar berjaferðir og einnig ferðuðust þau til útlanda og höfðu gaman af. Þau voru samhent í þessari útivist sinni og áttu góðan kunningjahóp sem þau ferðuðust mikið með. Elsku amma mín, þú kvaddir þenn- an heim þann sama dag og sumarið kvaddi. Nú hefur þú horfið til nýrra heimkynna. Við höfum mikið talað um dauðann sl. ár og þú talað um að tími þinn væri kominn, nú hefur þú fengið ósk þína uppfyllta. Nú ert þú komin á fund þinna nán- ustu eins og þú hafðir þráð, afa, for- eldra þinna og allra systkinanna, svo ég tali nú ekki um elsku litlu barnanna sem þú átt þarna hinum- megin og felldir tár yfir. Ég veit þú verður glöð í þínum hópi og umvefðu alla með hlýju og góðum kveðjum. Þín Anna María. UNNUR ÓLAFSDÓTTIR Hann frændi minn er dáinn, Benedikt Orri Viktorsson. Það er skrýtin tilfinning að skrifa þessi orð á blað. Það var mér mikið áfall að fá fréttirnar af því að hann Benni frændi minn hefði lent í hræðilegu bílslysi. Unnusta hans, Helga Rán, og önnur stúlka létu lífið en Davíð frændi okkar slasaðist minna. Þú varst meðvit- undarlaus á gjörgæslu og við fylgdumst öll með dag hvern og héldum í vonina að þú myndir vakna fljótt og hægt yrði að lækna þig. Það er svo skrýtið að það hvarflaði aldrei að mér að þú myndir deyja, það var svo fjarri mér. Ég var svo viss í hjarta mínu að þú hefðir þetta af. Ég kom til þín daginn áður en þú kvaddir BENEDIKT ORRI VIKTORSSON ✝ Benedikt OrriViktorsson fædd- ist í Reykjavík 22. október 1967. Hann lést hinn 8. nóvem- ber síðastliðinn eftir bílslys og fór útför hans fram frá Graf- arvogskirkju 16. nóvember. þetta líf og ég þakka Guði fyrir það að hafa fengið að knúsa þig og segja þér hvað mér þótti vænt um þig. Þú í öllum þessum tækj- um, mig langaði mest að taka þau af þér og láta þig vakna, þetta er svo óréttlátt. Við vorum alltaf að tala um að hittast og spjalla, þú ætlaðir að koma með ostana og ég átti að bjóða þér upp á gott rauðvín. Það varð því miður aldrei af því, maður heldur alltaf að nægur sé tíminn. En þó svo að við höfum ekki hist oft síðustu árin þá var alltaf svo gott að hitta þig, þú heilsaðir ekki ekki bara með orðunum: „Hæ, hvað segir þú?“ Heldur var það alltaf: „Hæ, frænka, hvernig líður þér?“ Og svo knús og kossar. Þú varst alltaf svo einlægur og hjartahlýr, mikið á ég eftir að sakna þín, elsku Benni minn. Ég hefði svo gjarnan viljað hitta þig oftar, en ég get sefað sorgina og yljað mér með ynd- islegum minningum sem ég á um þig. Við áttum samleið í 34 ár og ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þig sem frænda minn, þú varst svo einstakur. Ég veit að vel hefur verið tekið á móti þér á nýju til- verustigi. Ég sé þig fyrir mér sem fallegan engil á himninum og þú kíkir á okkur og hjálpar í sorginni, minning þín er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Ég bið góðan Guð að styrkja Arnar son þinn, elsku Birnu Dís frænku og fjölskyldu, Viktor og fjölskyldu, Lóu og Benna afa og okkur öll sem eigum um sárt að binda. Fjölskyldu Helgu Ránar votta ég mína dýpstu samúð og Davíð og fjölskyldu. Guð blessi ykkur öll. Vertu sæll, elsku frændi. Þín frænka, Ólöf Hanna. Elsku Benni. Þú varst vinur okkar. Við vorum vinir í gegn um gleði og sorg. Við gátum leitað til þín því við vissum að þú varst alltaf til staðar. Ávallt varst þú tilbúinn að hjálpa vini í raun og skipti þá engu hvort þú þyrftir að ferðast yfir heilu höfin til þess að hjálpa vinum þínum og gleðja þá. Þú varst sannur gimsteinn með hjarta úr gulli. Þú varst dýrmætur vinur og við erum þakklátar fyrir að hafa fengið að þekkja þig. Við vonum að við höfum verið þeir vin- ir fyrir þig sem þú varst fyrir okk- ur. Þú átt eftir að fylgja okkur í huganum ævilangt og við söknum þín sárt. Við viljum votta fjöl- skyldu þinni og vinum samúð okk- ar. Saknaðarkveðja. Þínar vinkonur, Kristín og Sif. Benni var einstakur maður, ósérhlífinn og hjálpsamur. Hann var sannur vinur vina sinna og ávallt til staðar þegar hans var þörf. Hann var maður sem dekraði við vini og ættingja og var óspar á ástina sem hann hafði að gefa. Elsku vinir, okkar innilegustu samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum. Minningin um góðan dreng deyr aldrei. Kristinn og Birna Ósk. Elsku Benni minn. Það er svo sárt að hugsa til alls þess sem við fáum ekki ráðið við í þessu lífi, og nú hafa örlögin gripið inn í og myndað stórt skarð í lífi allra sem þekktu þig. Þú varst sá sterki sem allir treystu á og frá þér stafaði þessi ótrúlega útgeislun sem bar vitni um miklar gáfur, styrk og hlýju. Þú varst alltaf til staðar fyrir þá sem stóðu hjarta þínu næst og allt- af áttir þú hvatningarorð og lítið bros í pokahorninu. Ég veit að þú ert á góðum stað núna og þér líður vel og ég veit að þú vakir yfir okkur öllum. Ég er svo þakklát fyrir að hafa kynnst þér, Benni minn, minningin um þig lifir í hjarta mínu. Ég votta aðstandendum og vin- um sem eiga um sárt að binda vegna slyssins mína dýpstu samúð. Af eilífðar ljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. (E. Ben.) Dagný B. Hreinsdóttir. Okkur langar að minnast Bene- dikts Orra Viktorssonar með nokkrum orðum. Við þekktum Benna sem stóra bróður Helgu, góðrar vinkonu okkar, og kynnt- umst honum sem slíkum. Það var afar kært á milli þeirra systkina. Benni var ávallt reiðubúinn að sinna systur sinni og fjölskyldu ef á þurfti að halda. Honum var mik- ið í mun að gera vel við þau og standa sig í hlutverki stóra bróður. Alltaf var hann reiðubúinn að skutla Helgu og gera henni greiða. Hann sýndi henni sérstaka hlýju og það var oft gaman að fylgjast með þeim systkinum. Í raun var unun að sjá hversu vænt Benna þótti um fjölskyldu sína. En þrátt fyrir að Benni hafi sinnt fjölskyldu sinni afar vel olli hann þeim oft áhyggjum sökum þeirrar stefnu sem hann tók í líf- inu og við áttum erfitt með að skilja. Það var mikil synd að fylgj- ast með því hvernig dýfur hann gat tekið, því Benni var bráðvel gefinn og heillandi. Það var alltaf gaman að hitta hann hjá Helgu, hressan og kátan. Hjartans Benni, takk fyrir kynnin og hafðu það gott í nýjum heimkynnum. Elsku Helga og fjöl- skylda, við vottum ykkur og þeim fjölskyldum sem eiga um sárt að binda eftir þetta hörmulega um- ferðarslys okkar dýpstu samúð á þessum erfiðu tímum. Lilja Dögg og Ása. Okkur langar til að minnast góðs vinar okkar, hans Benna. Það er alveg ótrúlega erfitt að hugsa til þess að þú sért farinn. Að þú stökkvir ekki lengur inn í smá heimsókn, að þú hringir ekki til að heyra í okkur hljóðið eða sendir sætt sms til að láta vita af þér. Það var alltaf hægt að leita til þín ef eitthvað kom uppá, þú varst alltaf tilbúinn til að hjálpa. Við eigum margar góðar minningar, þ.á m allar sumarbústaðaferðirnar sem vinahópurinn fór í saman. Þar varst þú alltaf hrókur alls fagn- aðar. Það sem stendur líka uppúr í okkar huga er hvað þú varst alltaf góður við hana Elísu okkar, eins og t.d. þegar þið sátuð saman í stofunni í Garðsendanum að borða cocoa-puffs. Þú varst svo gjafmild- ur og alltaf að passa uppá að öllum liði vel í kringum þig. Þú varst tekinn alltof fljótt í burtu en við vitum að þér á eftir að líða vel þar sem þú ert. Þín verður sárt saknað. Við vottum fjölskyldu Benna og öðrum aðstandendum svo og fjöl- skyldum og aðstandendum sam- ferðafólks hans í hinni örlagaríku ferð okkar dýpstu samúð. Eir og Gunnar. Elsku Benni minn, með nokkr- um orðum viljum við minnast þín. Lífið hjá þér var ekki alltaf dans á rósum, þú þekktir erfiðleika en þú varst alltaf vinur vina þinna. Þann hlýhug sem þú sýndir syni okkar í hans veikindum fáum við seint þakkað, þú stóðst sem klett- ur við hlið hans og hvattir hann áfram. Gjafmildi þín og hjartahlýja er minning sem mun lifa í hug okkar og hjarta. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur til ykkra allra. Sigrún og Rögnvaldur.                                                     !!  "                     !" ! #$% & #       %'  % (' )    *+ #&      % ) ,# %'% -.  %'% %#'   /
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.