Morgunblaðið - 18.11.2001, Page 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2001 37
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnuð 1990
Rúnar Geirmundsson
útfararstjóri
Traust persónuleg
alhliða útfararþjónusta.
Áratuga reynsla.
Símar 567 9110 & 893 8638
utfarir.is
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892
www.utfararstofa.is
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður, í samráði við aðstandendur
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Kistur
Krossar
Duftker
Gestabók
Legsteinar
Sálmaskrá
Blóm
Fáni
Erfidrykkja
Tilk. í fjölmiðla
Prestur
Kirkja
Kistulagning
Tónlistarfólk
Val á sálmum
Legstaður
Flutn. á kistu milli landa
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 551 3485 • Fax 568 1129
Áratuga reynsla
í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Vaktsími allan sólarhringinn
896 8284
✝ Þorbjörg Jóns-dóttir Hacche
fæddist á Brekku í
Núpasveit í Norður-
Þingeyjarsýslu 9.
mars 1920. Hún lést í
Encino í Kaliforníu
25. október síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru hjónin Jón
Ingimundarson,
bóndi á Brekku, f. 22.
mars 1863, d. 4. nóv.
1927, og Þorbjörg Jó-
hannesdóttir, f. 9.
jan. 1878, d. 13. júní
1959. Systkini Þor-
bjargar voru Hólmfríður, f. 5. júlí
1905, d. 16. sept. 2000, Guðbjörg,
f. 24. sept. 1906, d. 30. apríl 1949,
Ingimundur, f. 23. nóv. 1908, d. 5.
nóvember 2001, Jóhannes, f. 16.
júlí 1910, d. 30. sept. 1915, Ingiríð-
ur, f. 17. des. 1911, d. 26. apríl
1944, Arnbjörg, f. 2. sept. 1913, d.
24. mars 1916, Jóhannes, f. 16. júní
1915, d. 13. maí 1971, og Kjartan,
f. 6. sept. 1917, d. 15. ágúst 2001.
Þorbjörg giftist 30. des. 1951
William George
Hacche flugvéla-
verkfræðingi, f. 14.
júní 1920. Þau
bjuggu í Toronto í
Kanada en lengst í
Encino, útborg Los
Angeles í Kaliforníu.
Börn þeirra eru Ing-
rid Ellen, f. 21. sept.
1952, hún á tvo syni;
Philip Graham, f. 28.
okt. 1953; Kim Pres-
cott, f. 30. des. 1954,
hann á þrjú börn, og
Thomas, f. 9. des.
1956, sem á tvö börn.
Þorbjörg var við nám á Alþýðu-
skólanum á Eiðum 1937–’39, tók
kennarapróf frá Kennaraskóla Ís-
lands 1944 og starfaði við kennslu
1944–’46. Hún var við framhalds-
nám við Manitobaháskóla í Winni-
peg 1946–’47. Hún fékkst við
verslunar- og skrifstofustörf og
kenndi við Montessori-skóla um
árabil.
Bálför Þorbjargar hefur farið
fram.
Látin er í Kaliforníu móðursystir
mín, Þorbjörg Jónsdóttir Hacche,
eða Dodda frænka eins og við
systkinabörnin hennar kölluðum
hana alltaf. Hún bjó fjarri Íslandi
mikinn hluta ævi sinnar og mest-
alla ævi mína. Þó hefur enginn ætt-
ingi staðið mér nær, utan eigin
fjölskyldu. Því finnst mér við hæfi
að minnast hennar.
Þorbjörg Jónsdóttir ólst upp á
Brekku í Núpasveit, stórbýli sem
stendur á gömlum merg, en sama
ætt hefur búið þar síðan um 1850.
Þar er stórt fjárbú, jörðin víðlend
og mikil hlunnindi, svo sem gott
beitiland, sjávarafli og reki, sem
kom sér vel á þeim tímum, því á
Brekku var alltaf margt í heimili
og gestrisni mikil, enda bærinn í
þjóðbraut.
Systkinin á Brekku voru níu, auk
fósturbarna, og var Þorbjörg
þeirra yngst. Jón Ingimundarson,
faðir Þorbjargar, féll frá þegar hún
var 7 ára og saknaði hún hans
mjög. Jón hafði verið stjórnsamur
bóndi og mikill máttarstólpi í
byggðarlaginu og var fráfall hans
mikið áfall. Mikið álag var á Þor-
björgu, móður hennar, sem bar nú
ábyrgð á búskapnum og hinu stóra
heimili ásamt elsta syninum, Ingi-
mundi, sem var tæpra 19 ára þegar
heimilisfaðirinn lést. Enn var þar
mikið umleikis, nýtt íbúðarhús var
í byggingu og enn komu fósturbörn
inn í heimilið. Þorbjörg ólst upp við
frelsi og mikið félagslíf, margt var í
heimili og stutt á milli bæja. Hún
var gefin fyrir útiverkin á bænum
og útivist almennt, enda mikill
náttúruunnandi.
Þorbjörg fór á Alþýðuskólann á
Eiðum 17 ára, þar var hún tvo vet-
ur og dvaldi hjá systur sinni Hólm-
fríði og Þóroddi mági sínum, sem
var kennari á Eiðum. Þá komu
fram afbragðsgóðir námshæfileikar
hennar og eftir námið á Eiðum
settist hún í Kennaraskólann. Hún
naut verunnar í Reykjavík, enda
mjög félagslynd og hrókur alls
fagnaðar, hvar sem hún var stödd.
Eftir kennarapróf stundaði hún
kennslu í tvo vetur og aflaði far-
areyris til náms í Kanada. Þangað
fór hún árið 1946 og stundaði nám
við háskólann í Manitoba. Að loknu
einu ári hafði hún ekki ráð á lengra
námi og stundaði hún nú ýmis
störf. Einnig ferðaðist hún í eitt ár
víða um Kanada og Bandaríkin
með vinkonu sinni, unnu þær fyrir
sér á ýmsum stöðum á ferð sinni
og lentu í ævintýrum. Minntist hún
oft þessa tímabils. Þorbjörg var
farin að hugsa til heimferðar þegar
hún kynntist William G. Hacche.
Þau giftu sig fljótlega og eignuðust
fjögur börn á jafnmörgum árum og
nú tók við tími mikilla anna við
heimilishald og barnauppeldi. Þau
bjuggu fyrst í Toronto, en árið
1960 fluttu þau til Kaliforníu. Þeg-
ar börnin komust á unglingsár
stundaði Þorbjörg ýmis störf utan
heimilis, m.a. kenndi hún í Mont-
essori-skóla um árabil.
Þorbjörg kunni að njóta lífsins.
Hún átti yndislega fjölskyldu og
naut samvista við börn, tengdabörn
og ekki síst barnabörn. Þau hjónin
stunduðu alla tíð útivist og ferða-
lög, bæði innan Bandaríkjanna og
utan. Áhugamálin voru mörg og
alltaf var nóg að gera. Þorbjörg fór
í síðasta jógatímann fáum dögum
áður en hún lést.
Dodda frænka var óvenjulega
glæsileg kona, hávaxin og ljós-
hærð. Hún bar mikla persónutöfra,
var greind, skarpskyggn og
skemmtileg, vel máli farin og fund-
vís á spaugilegar hliðar tilverunn-
ar. Um leið var hún jarðbundin,
hreinskilin og skorinorð, hagsýn og
vel verki farin, allt lék í höndum
hennar. Hún var mikill vinur vina
sinna, hjálpsöm og skilningsrík.
Af fimm Brekkusystrum létust
þrjár ungar, ein barn að aldri og
tvær frá ungum börnum. Tvær
voru eftir, sú elsta og sú yngsta,
Hólmfríður og Þorbjörg. Þær voru
í mörgu líkar og mjög nánar, þrátt
fyrir aldursmun og fjarlægðina
milli þeirra. Þær skrifuðust á í
meira en 50 ár, í þeim bréfum fel-
ast tvær ævisögur. Það var alltaf
hátíð þegar bréf kom frá Doddu
frænku, og stórhátíð þegar hún
kom sjálf til landsins. Síðasta ferð
hennar til landsins var í tilefni af
níræðisafmæli Hólmfríðar, þá kom
hún með Ingrid dóttur sinni og
stór hópur fjölskyldunnar fór
„hringinn“, ógleymanlega ferð.
Hólmfríður heimsótti systur sína
og mág fjórum sinnum til Kali-
forníu eftir áttrætt og skemmti sér
konunglega í hvert sinn. Hún
kunni líka að segja frá og lýsti oft
með tilþrifum veru á Kaliforníu-
ströndum, heimsóknum á framandi
veitingastaði að ógleymdum ferð-
um þeirra systra með dætrum sín-
um til Las Vegas. Móðir mín átti
þarna áreiðanlega bestu tímabilin á
þessu æviskeiði, þökk sé þeim
hjónum fyrir það sem þau voru
henni.
Það hafði liðið of langt frá því að
við höfðum sést og um síðustu
mánaðamót lagði ég af stað í heim-
sókn til Doddu frænku, við hlökk-
uðum báðar mikið til. En einmitt
þá var lífshlaupi hennar snögglega
lokið, banamein hennar var hjarta-
áfall. Hún fékk þá ósk sína upp-
fyllta að lifa með reisn allt til enda-
loka.
Ég hitti fjölskylduna hennar, það
var góð heimsókn, en ólík því sem
ætlað hafði verið.
Margir hafa mikils að sakna, eft-
irlifandi eiginmaður, börn, tengda-
börn, barnabörn og stór vinahópur
að ógleymdum ættingjunum á Ís-
landi. Fjölskylda og vinir munu
koma saman á heimili þeirra hjóna
á þakkargjörðarhátíðinni nú í nóv-
emberlok og rifja upp liðnar sam-
verustundir og heiðra minningu
Þorbjargar. Hugur minn mun
verða þar á þeim degi. Dodda
frænka varð áttræð en hún varð
aldrei gömul kona. Hún lifir í
minningunni sem hin síunga, glæsi-
lega, skemmtilega og vitra uppá-
haldsfrænka mín. Hún skilur eftir
sig stórt skarð en um leið dýr-
mætan sjóð minninga.
Þorbjörg Þóroddsdóttir.
ÞORBJÖRG JÓNS-
DÓTTIR HACCHE
!!
" " "
# "
$ %
!
"#$%&$'( )*+
!" ##$
%& '(
,'- . /0(&((
$# /0(12
!""
# $ %
& ! '
#( $ #$ !""
)% * !+ %
) #$ %
# ) )% ! !""
,,-
. "/$ ! %
$ ! %
!"#
$ %&
&'% (%!""# !&
&
)!
'% *!! % % '% (%!""# #!&!!% +!)!
)& !*,!
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með-
allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.