Morgunblaðið - 20.11.2001, Page 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu MMC L-200 GL
Dcab turbo disel, nýskráður
07.06. 2001, ekinn 8.000 km, 38
tommu breyttir brettakantar,
kastaragrind, kastaraskúffa í
palli. Ásett verð 3.490,000.
Ath. skipti á ódýrari.
Opnunartímar: Mánud. - föstud.
kl. 10-18 og laugard. kl. 12-16.
Laugavegur 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is
Netfang: bilathing@hekla.is
SAMKVÆMT samningi heilbrigðis-
ráðuneytisins og lyfjafyrirtækisins
Delta, sem undirritaður var í gær,
skuldbindur Delta sig til að eiga að
staðaldri lágmarksbirgðir af sýkla-
lyfinu Síprox sem notað er gegn
miltisbrandi. Lyfið virkar ennfrem-
ur gegn öðrum bakteríusjúkdómum
sem notaðir eru í sýklahernaði s.s
svartadauða og hérapest. Sam-
kvæmt samningnum mun Delta
ávallt geyma eina framleiðslulotu af
500 mg töflum að söluverðmæti 23
milljónir króna til apóteka. Magnið
sem um ræðir samsvarar 3 ára
birgðum miðað við núverandi notk-
un lyfsins og nægir til að 1.700
manns gætu verið í fullri meðferð í
einu auk fleiri sem geta hafið byrj-
unarmeðferð. Komi slík staða upp er
svigrúm til að panta frekari birgðir.
Að sögn Jóns Kristjánssonar heil-
brigðisráðherra var samkomulagið
gert í ljósi þeirra atburða sem átt
hafa sér stað í Bandaríkjunum und-
anfarnar vikur og telur hann nauð-
synlegt af öryggisástæðum að
tryggja að hér á landi séu ávallt til
neyðarbirgðir af sýklalyfinu.
Samningurinn um neyðarbirgðir
lyfsins er gerður til eins árs í senn
og er gerður heilbrigðisyfirvöldum
að kostnaðarlausu, en greitt verður
tiltekið einingaverð fyrir lyfin ef þau
verða notuð.
Bóluefni gegn bólusótt
verði fengið til landsins
Samkomulagið er liður í fjölþætt-
um aðgerðum sem gripið hefur verið
til af hálfu heilbrigðisyfirvalda, en
þær hafa verið undir stjórn Haralds
Briem sóttvarnarlæknis hjá land-
læknisembættinu. Hann segir að
meðal annarra aðgerða sé skoðun á
því að fá bóluefni til landsins gegn
bólusótt, en sá sjúkdómur er þekkt-
ur sem vopn í sýklahernaði og engin
lyf virka á að undanskildri bólusetn-
ingu. Ekkert bóluefni hefur verið til
gegn bólusótt hérlendis um árabil.
„Ég held að innan skamms tíma
verði talsvert til af bóluefni gegn
bólusótt og þetta er eitt af því sem
heilbrigðisyfirvöld eru að athuga
gaumgæfilega,“ segir Haraldur.
Hann telur að um 90 milljón
skammtar séu til af bóluefninu í
heiminum, sem teljist ekki mikið
miðað við við íbúafjölda jarðar, en
hins vegar sé hugmyndin með notk-
uninni sú að færa birgðirnar til eftir
því hvar verður vart við sjúkdóminn.
Hann segir samvinnu við aðrar þjóð-
ir og Alþjóðaheilbrigðisstofnunina
mikilvæga í þessu sambandi og
nefnir að Danir og Norðmenn eigi
bóluefni auk þess sem framleiðsla á
því sé hafin meðal lyfjafyrirtækja.
Því eigi Íslendingar möguleika á að
fá bóluefni með skömmum fyrir-
vara.
Heilbrigðisyfirvöld gera ráðstafanir gegn hugsanlegum sýklahernaði hérlendis
Birgðir af lyfi gegn miltis-
brandi og svartadauða
Morgunblaðið/Ásdís
Frá undirskrift samningsins í gær. Frá vinstri: Ragna Árnadóttir, lögfræðingur hjá heilbrigðisráðuneyti, Har-
aldur Briem sóttvarnarlæknir, Davíð Á. Gunnarsson ráðuneytisstjóri, Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra,
Róbert Wessmann, framkvæmdastjóri Delta, og Björn Aðalsteinsson, forstöðumaður markaðssviðs Delta.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
og Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra fagna þeim tillögum sem
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, hefur borið undir ráðamenn
Atlantshafsbandalagsríkja, um
aukið samráð við Rússa. Davíð
segir tillögurnar athyglisverðar og
jákvæðar og Halldór segir þær í
raun ekki hafa komið sér á óvart
miðað við það sem á undan hefur
gengið, aukið samstarf við Rússa
sé nauðsynlegt í ljósi þeirra breyt-
inga sem átt hafa sér stað á heims-
myndinni.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu um helgina hefur Blair
lagt til að sett verði á laggirnar ný
stofnun, ,,Rússlands-Norður-Atl-
antshafsráðið“, þar sem sæti eigi
auk Rússa 19 aðildarþjóðir NATO.
Hefur hann sent ráðamönnum
ríkja sem hlut eiga að máli, þ.á m.
Davíð Oddssyni, bréf með tillögum
sínum.
Davíð segir augljóst að bréfið sé
skrifað í ljósi þeirra breytinga sem
orðið hafa í kjölfar hryðjuverk-
anna 11. september. ,,Þjóðir hafa
þjappað sér saman um afstöðu
gegn hryðjuverkum og það hafa
verið fleiri fundir á milli austurs
og vestur, svo talað sé í gömlum
hugtökum. Það er greinilegt að
Blair vill nota það tækifæri og þá
tilfinningu sem ríkir á milli ríkja
til þess að styrkja samstarfið á
milli Atlantshafsbandalagsins og
Rússlands, á grundvelli þess
samnings sem var gerður á sínum
tíma á milli Rússlands og banda-
lagsins,“ segir Davíð Oddsson í
samtali við Morgunblaðið í gær.
,,Það eru margar athyglisverðar
hugmyndir sem hann nefnir í
þessu bréfi en þó að afstaðan sé sú
í bréfinu að styrkja samstarfið við
Rússa, þá eru menn ekki að tala
um grundvallarbreytingar á Atl-
antshafsbandalaginu og hlutverki
þess sem öryggisvettvangur þjóð-
anna sem það mynda. Það er verið
að leggja til að breyta því sam-
starfi sem verið hefur á milli Rúss-
lands og Atlantshafsbandalagsins í
þá veru að það verði markvissara
og taki til ákveðinna atriða, til að
mynda atriða sem tengjast hryðju-
verkum,“ segir Davíð.
Forsætisráðherra bendir einnig
á að þrátt fyrir þessar tillögur um
aukið samráð yrði Atlantshafs-
bandalagið áfram sjálft í forsvari
fyrir eigin hernaðargetu og varð-
andi töku endanlegra ákvarðana,
án þess að Rússar fengju neit-
unarvald í neinum málum, m.a.
varðandi stækkun bandalagsins til
austurs.
Rætt á fundi
Halldórs með Ivanov
Halldór Ásgrímsson hefur séð
bréfið frá Blair. Hann segir sjón-
armið forsætisráðherra Breta
svipuð og fram hafa komið á fund-
um ýmissa ráðamanna NATO-
ríkja með Rússum að undanförnu.
Hann segist hafa rætt þessi mál ít-
arlega á fundi með Igor Ivanov,
utanríkisráðherra Rússlands, í
Moskvu á dögunum. „Eftir þann
fund sagðist ég telja sjálfsagt að
endurskoða samstarf Rússlands og
NATO-ríkjanna, án þess að það
væri tilgreint hvernig það færi
fram. Ég legg áherslu á að það
verði gert á grundvelli stofnsátt-
mála NATO, eins og fram kemur í
bréfi Tonys Blairs. Þetta mál verð-
ur rætt á fundi utanríkisráðherra
NATO-ríkjanna í næsta mánuði og
skýrari mynd þá væntanlega kom-
in fyrir fundinn í Reykjavík næst-
komandi vor,“ segir Halldór og
minnir á að Rússar og NATO-ríkin
hafi staðið saman í baráttunni
gegn hryðjuverkum. Leita verði
allra ráða til að varðveita þá sam-
stöðu sem best.
Samráðsfundur fer fram í dag í
höfuðstöðvum Evrópusambands-
ins, ESB, með þeim sex ríkjum
NATO sem standa utan ESB, Ís-
landi þar á meðal, og þeim fimm-
tán ríkjum sem sótt hafa um aðild
að sambandinu. Halldór segir sam-
ráð ESB við Rússa á sviði varn-
armála hafa aukist og það sé jafn-
vel orðið meira en við þær sex
þjóðir NATO sem standa utan
ESB.
„Hins vegar liggur ljóst fyrir, að
því er Evrópusambandið varðar,
þá byggir það að mestu leyti á
þeim viðbúnaði sem NATO er með.
Skiljanlega er samráðið innan
NATO-ríkjanna samt mun meira í
dag en milli NATO og Rússlands,“
segir Halldór.
Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson fagna tillögum
Tonys Blairs um aukið varnarsamstarf við Rússa
Ný heimsmynd
krefst breytinga
VÉLSTJÓRI á erlendu flutninga-
skipi slasaðist mjög alvarlega í
vinnuslysi á sunnudag en skipið lá
þá við bryggju á Grundartanga.
Maðurinn missti báða fætur af
völdum slyssins, annan rétt fyrir
ofan ökkla en hinn frá miðjum
legg. Hann liggur nú á Landspít-
ala – háskólasjúkrahúsi og er líðan
hans eftir atvikum, að sögn lækna.
Að sögn lögreglunnar í Borgar-
nesi, sem annast rannsókn máls-
ins, eru tildrög slyssins ekki að
fullu ljós. Rannsókn verður haldið
áfram næstu daga.
Maðurinn, sem er filippseyskur
að uppruna, var ásamt nokkrum
öðrum að skipta um stimpil í vél
skipsins. Vegna viðgerðarinnar
þurfti maðurinn að vera inni í
sjálfu vélarhúsinu.
Stimpilstöng lenti á
fótleggjum mannsins
Þegar verið var að stilla stimp-
ilstöngina af til þess að geta sett
stimpilinn ofan á, færðist stöngin
úr stað og lenti á fótleggjum
mannsins af miklu afli. Sjúkralið
kom fljótlega á staðinn og var
maðurinn fluttur í skyndi til
Reykjavíkur.
Missti báða fæt-
ur í vinnuslysi
RÍKISENDURSKOÐUN hef-
ur ákveðið að framkvæma
stjórnsýsluúttekt á starfsemi
Sólheima í Grímsnesi. Sigurð-
ur Þórðarson ríkisendurskoð-
andi sagði við Morgunblaðið að
embættið hefði ákveðið að gera
þessa úttekt áður en beiðni
barst í gær frá Páli Péturssyni
félagsmálaráðherra um að út-
vega ársreikninga Sólheima og
endurskoðunarskýrslur fyrir
tvö síðustu ár. Ráðherra bað
Ríkisendurskoðun einnig að
koma með ábendingar varð-
andi nýjan þjónustusamning
ríkisins við Sólheima, sem fyr-
irhugað er að gera. Að sögn
Sigurðar er um tvö aðskilin
mál að ræða.
„Eftir ábendingar ákváðum
við að gera stjórnsýsluúttekt,
töldum vera þörf á því þar sem
fimm ár eru liðin síðan ríkið
gerði fyrst þjónustusamning
við Sólheima. Við komum eilít-
ið að þeirri vinnu þar sem um
fyrsta þjónustusamning af
þessu tagi var að ræða. Miðað
við þær upplýsingar sem við
höfum teljum við ástæðu til að
skoða málið. Engin ákvörðun
hefur verið tekin um hve langt
aftur í tímann við ætlum að
fara, fyrst og fremst ætlum við
að skoða starfsemina eins og
hún er í dag og hvernig fjár-
munum ríkisins er ráðstafað,“
sagði Sigurður Þórðarson rík-
isendurskoðandi, sem væntir
þess að stjórnsýsluúttektinni
verði lokið á næsta ári.
Stjórn-
sýsluúttekt
gerð á
Sólheimum
Ríkisendurskoðun