Morgunblaðið - 20.11.2001, Síða 8
Framboð R-listans við borgarstjórnarkosningarnar
VAXANDI líkur eru nú taldar á að
samkomulag muni liggja fyrir innan
skamms um sameiginlegt framboð
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs (VG) með Samfylkingu og
Framsóknarflokki til borgarstjórnar
í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Sigríður Stefánsdóttir, formaður VG
í Reykjavík, segist vera þeirrar skoð-
unar að niðurstaðan verði sameigin-
legt framboð í kosningunum í vor.
Stefnt er að því að niðurstöður úr
viðræðum flokkanna verði lagðar
fyrir almennan félagsfund í VG í
næstu viku, þar sem endanleg
ákvörðun um sameiginlegt framboð
verði tekin með almennri atkvæða-
greiðslu.
Sl. laugardag gerðu fulltrúar VG
grein fyrir stöðunni í yfirstandandi
könnunarviðræðum við Framsóknar-
flokk og Samfylkingu vegna fram-
boðsmálanna. „Þetta var afskaplega
góður og hreinskiptinn fundur og við
reiknum með því að þetta sé alveg að
smella saman,“ segir Sigríður.
„Það verður félagsfundur í næstu
viku og þá vona ég og ætlast til þess
að það verði komin niðurstaða sem
við getum lagt fyrir fundinn til at-
kvæðagreiðslu,“ segir hún.
Aðspurð hvort hún telji nú meiri
líkur en minni á því að samkomulag
náist um sameiginlegt framboð
flokkanna segist hún telja að stefni
allt í það og meirihluti fundarmanna
á fundinum sl. laugardag hafi verið
því fylgjandi. „En svo á þetta eftir að
fara í atkvæðagreiðslu á félagsfundi
og þar getur allt gerst því þar verður
allur pakkinn lagður fyrir,“ segir Sig-
ríður.
Auknar líkur á þátttöku VG
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ríkisbókhald og fjármálaráðuneyti
Ný tækni –
ný hugsun
RÁÐSTEFNA ávegum Ríkisbók-halds og fjármála-
ráðuneytisins, með yfir-
skriftinni „Ný tækni – ný
hugsun“ verður haldin á
Grand Hóteli á morgun,
miðvikudaginn 21. nóvem-
ber, að sögn Stefáns
Kjærnested vararíkisbók-
ara sem heldur utan um
ráðstefnuna. Á þessari
ráðstefnu verða kynnt ný
kerfi í fjármála- og starfs-
mannamálum, ásamt því
hvernig staðið verður að
innleiðingu þeirra hjá rík-
isstofnunum og ráðuneyt-
um.
– Í hnotskurn, hver er
þessi nýja tækni sem er í
yfirskrift ráðstefnunar?
„Að loknu útboði var í
sumar skrifað undir samning við
SKÝRR um kaup á nýju fjár-
hags- og mannauðskerfi ríkisins.
Kerfið sem um er að ræða er
Oracle eBusiness suite og býður
það upp á margvíslegar nýjungar
sem við ætlum að nýta okkur til
að auka hagræði í rekstri og
veita betri þjónustu. Kerfið er af-
ar nútískulegt og gefur okkur
möguleika á að taka upp rafræn
viðskipti í meira mæli en áður.
Pantanir og reikninga getum við
nú sent og tekið á móti á rafræn-
an hátt sem gefur okkur marg-
víslega möguleika á hagræðingu
og meiri sjálfvirkni. Jafnframt
býður kerfið upp á sjálfsaf-
greiðslu fyrir starfsmenn ríkisins
og þeir geta skoðað og viðhaldið
upplýsingum um sjálfa sig og
skoðað t.d. launaseðla á Netinu.
Miklu munar fyrir okkur að nú
fáum við eitt samþætt kerfi í stað
þess að vera með mörg tengd
kerfi og mun það spara mikla
vinnu fyrir okkur í framtíðinni.“
– Í hnotskurn...hver er hin
„nýja hugsun?“
„Það má segja að hún felist í
því að í stað þess að láta sér-
smíða kerfi fyrir ríkið og hugs-
anlega fyrir hverja og eina stofn-
un þá ætlum við að taka upp
staðlað kerfi. Rekstur ríkisins er
ekki það frábrugðinn rekstri fyr-
irtækja að við getum ekki hag-
nýtt okkur staðlað kerfi og með
því sparað bæði tíma og peninga.
Við ætlum okkur að taka upp
nýja vinnuferla sem kerfið býður
upp á, s.s. sjálfsafgreiðslu, raf-
ræn viðskipti og í stað þess að
viðhalda gömlu ferlunum ætlum
við að taka upp þá ferla sem kerf-
ið leggur til. Þeir ferlar eru
byggðir á reynslu bestu fyrir-
tækja í heiminum og þá viljum
við tileinka okkur.
Jafnframt ætlum við að fjalla
um ýmis hagnýt mál sem upp
koma hjá ríkisstofnunum þar
sem við erum að breyta reglum
og fyrirmælum.“
– Hverjum er þessi ráðstefna
ætluð?
„Þessi ráðstefna er fyrir
stjórnendur ríkisstofnana og þá
starfsmenn sem hafa með fjár-
mál og starfsmanna-
mál ríkisins að gera. Í
fyrra héldum við svip-
aða ráðstefnu og þá
voru menn á einu máli
um að þetta væri gott
tækifæri til að hitta kollega sem
eru að fást við sömu viðfangsefni
því að þetta er hópur sem ekki
kemur oft saman.“
– Áformum um mannauðs- og
fjárhagskerfi ríkisins sem kynnt
voru á síðustu ráðstefnu hefur
verið hrint í framkvæmd. Hvern-
ig standa þau mál?
„Eins og ég kom að áðan þá
höfum við fest kaup á kerfi frá
Oracle. Núna í dag erum við að
útfæra hvernig það útfærir best
þarfir okkar. Við stefnum að því
að um áramót fari fyrstu stofn-
anir að nota kerfið og það verði
síðan tekið í notkun í áföngum á
næsta ári. Síðasti kerfishlutinn
er launakerfið sem áætlunin ger-
ir ráð fyrir að taki við núverandi
launakerfi um áramót 2002/2003.
Þetta er stíf áætlun en okkar trú
er að slík verkefni megi ekki taka
langan tíma.“
– Hverju mun þessi nýja tækni
og hugsun skila og á hvað
löngum tíma?
„Við stefnum að því að nýta
þetta til að bæta þjónustu og
auka hagræði í rekstri. Eins og
með allar nýjungar þá mun það
taka nokkurn tíma að koma þeim
að fullu í framkvæmd, en gera
má ráð fyrir að þetta taki nokk-
urn tíma, sennilega nokkur ár.“
– Er alger bylting, eða lifir
eitthvað af gömlu hugsuninni og
tækninni áfram?
„Það er réttara að tala um þró-
un heldur en byltingu. Þessi þró-
un hófst með nýjum fjárreiðulög-
um og breytingum á reikn-
ingsskilum ríkisins og þetta er
enn eitt skrefið á þeirri leið. Við
byggjum á sögunni og munum
reyna að gera þetta þannig að
styrkja það sem gott var og bæta
það sem betur má fara. Hjá rík-
inu var mikil reynsla og þekking
til staðar sem við munum nýta
okkur og styðja við hana með
nýjustu tækni.“
– Hvaðan eru þessar hug-
myndir komnar?
„Eins og með allar góðar hug-
myndir, þá eru þær
komnar víða frá.
Breytingar á skipulagi
fjármála og bókhalds
ríkisins hafa verið
lengi í vinnslu og hug-
myndir sóttar til OECD, SÞ og
Alþjóðabankans. Sú hugmynd að
taka upp staðlað kerfi og hag-
nýta þá vinnuferla sem það býð-
ur upp á er það nýjasta í hugbún-
aðargeiranum. Þar segja menn
að það sé of dýrt og tímafrekt að
klæðskerasauma fjárhagskerfi
að einhverju fyrirtæki. Að auki
tapi menn þá því tækifæri að
læra af reynslu annarra.“
Stefán Kjærnested
Stefán Kjærnested fæddist á
aðfangadegi jóla, 24. desember, í
Reykjavík árið 1956. Hann út-
skrifaðist frá Háskóla Íslands
sem viðskiptafræðingur 1982 og
hóf störf sem framkvæmdastjóri
hjá SKÝRR sama ár. Hafði það
starf með höndum til ársins 1999
er hann var ráðinn vararíkisbók-
ari. Eiginkona Stefáns er María
Auður Eyjólfsdóttir og eiga þau
þrjú börn, Gerði Björk, Eyjólf
Örn og Gunnhildi.
Gott tækifæri
til að hitta
kollega
Þú verður að halda ofboðslega fast, Finnur litli, þetta er svo lítið skref,
það má bara færa annan fótinn.