Morgunblaðið - 20.11.2001, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 11
SAMEINING fjögurra sveitarfé-
laga í Árnessýslu var samþykkt í
Laugardals-, Þingvalla- og Biskups-
tungnahreppum í almennum kosn-
ingum á laugardag en hafnað í
Grímsnes- og Grafningshreppi. Þar
studdu 79, eða 46,8% kjósenda, sam-
einingu en 89, eða 52,6%, voru henni
andvígir og einn seðill var auður. Í
Þingvallahreppi var sameiningin
hins vegar samþykkt með 63,2% at-
kvæða, í Laugardalshreppi með
88,5% atkvæða og í Biskupstungna-
hreppi með 68,9% atkvæða.
Kjörsókn var mest í Grímsnes- og
Grafningshreppi, eða um 70%, í
Laugardalshreppi var hún 67,4%, í
Biskupstungnahreppi 64,5% og
57,6% í Þingvallahreppi. Í sveitar-
félögunum fjórum búa um 1.200
manns.
Gunnar Þorgeirsson, oddviti
Grímsnes- og Grafningshrepps, seg-
ist ekki vita hvort einn hlutur frekar
en annar hafi valdið því að samein-
ingin var felld í hreppnum. Hins veg-
ar hafi menn rekið mestan hræðslu-
áróður gagnvart skólamálum og það
hafi líklega vegið þyngst í um-
ræðunni. „Skólinn hjá okkur yrði
kannski erfiðlega í sveit settur þegar
búið væri að sameina þetta og menn
voru hræddir um að eitthvað yrði
gert þar.“
Óvíst hvort hin
sveitarfélögin sameinist
Þá segir Gunnar að ekki sé langt
síðan Grímsneshreppur og Grafn-
ingshreppur sameinuðust og nú
fyrst sé eitt sveitarfélag að verða til
úr þeirri sameiningu. „Þannig að það
hefur heilmikill tími farið í að búa til
nýtt sveitarfélag og menn vilja
kannski líka sjá svolítið hvernig það
þróast.“
Gunnar segir að nú sé framundan
vinna að málum sveitarfélagsins og
ólíklegt sé að hreyft verði við hug-
myndum um sameiningu við önnur
sveitarfélög á næstunni. „Ég sé ekki
fyrir mér að þetta verði tekið upp
aftur og alls ekki í sveitarstjórnar-
kosningunum í vor. Ég tel okkur
góða ef við íhugum einhverjar sam-
einingarkosningar seinni partinn á
næsta kjörtímabili.“
Ekki er ennþá ljóst hvort sveit-
arfélögin þrjú sem samþykktu sam-
eininguna munu sameinast. Ragnar
Jónsson, oddviti Þingvallahrepps,
segir vilja fyrir hendi hjá hrepps-
nefnd Þingvallahrepps til að samein-
ast hreppunum tveimur þar sem
sameining var samþykkt en það hafi
þó ekki verið rætt neitt ennþá.
Reiknað er með að viðræður um
sameiningu þessara þriggja hreppa
hefjist fljótlega.
Kosið um sameiningu hreppa í Árnessýslu
Sameiningu hafnað
í Grímsnes- og
Grafningshreppi
„SÉ þetta það sem þarf til að fá
samning um menningarhúsastarf-
semi finnst mér sjálfsagt að við
ræðum við félaga okkar í nágranna-
byggðum um samstarf,“ segir Hall-
dór Halldórsson, bæjarstjóri Ísa-
fjarðarbæjar, um þá hugmynd
Björns Bjarnasonar menntamála-
ráðherra að samstarf sveitarfélaga
á Vestfjörðum sé æskilegt um
menningarmál. Vísar ráðherra til
samnings sem ráðuneytið hefur gert
við sveitarfélög á Austfjörðum.
Halldór Halldórsson segir slíkt
samstarf lítið hafa verið rætt,
menntamálaráðherra hafi minnst á
hugmyndina á fjórðungsþingi Vest-
fjarða nú í haust og að sér finnist
sjálfsagt að skoða þessa hugmynd.
Bjóst við að menningarhús
yrði staðsett á Ísafirði
Bæjarstjórinn kvaðst hafa staðið í
þeirri meiningu að Ísafjarðarbær
hefði átt að vera einn þeirra staða
sem hefðu menningarhús en hann
segir að sé samstarf sveitarfélaga
nauðsynlegt í þessu samhengi sé
rétt að ræða það. Halldór sagði eðli-
legast að fela Fjórðungssambandi
Vestfjarða að taka málið upp og
hefja viðræður, það væri samstarfs-
vettvangur byggðarlaganna á Vest-
fjörðum.
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar um
menningarhús á Vestfjörðum
Sjálfsagt að
ræða samstarf
sveitarfélaga
SAMEINING sex hreppa í Rangár-
vallasýslu var samþykkt í almennum
kosningum á laugardag. Kosið var í
Austur- og Vestur-Landeyjahrepp-
um, Austur- og Vestur-Eyjafjalla-
hreppum, Fljótshlíðarhreppi og
Hvolhreppi. Á heildina litið var sam-
eining sveitarfélaganna sex sam-
þykkt með 73,7% atkvæða en 25,8%
sögðu nei við sameiningu.
Á kjörskrá voru samtals 1.114
manns í hreppunum öllum og greiddu
726 atkvæði, eða 65,2%. Mest var
kjörsóknin í Austur-Eyjafjallahreppi,
94,3%, en minnst í Austur-Landeyj-
um, 57,3%. Íbúar í nýju sveitarfélagi
verða tæplega 1.700.
Ágúst Ingi Ólafsson, sveitarstjóri
Hvolhrepps, segir niðurstöður kosn-
inganna góðar og nú hefjist vinna við
að láta hlutina ganga eftir samkvæmt
niðurstöðum þeirra. Gert er ráð fyrir
að nýtt sameinað sveitarfélag taki við
að loknum sveitarstjórnarkosningum
í vor, þegar kosið verður í fyrsta
skipti í þessu verðandi sveitarfélagi.
Engar hugmyndir hafa verið bornar
upp um nafn á nýja sveitarfélagið, en
Ágúst Ingi segist reikna með að ósk-
að verði eftir tillögum frá almenningi.
Í Austur-Eyjafjallahreppi voru
54,5% með sameiningu en 45,5% á
móti. Á kjörskrá voru 105 og greiddu
99 þeirra atkvæði eða 94,3%. Já sögðu
54 en 45 nei.
Í Vestur-Eyjafjallahreppi kusu
68,5% sameiningu en 31,5% voru
henni andvíg. 92 kusu af 119 eða
77,3%. Já sögðu 63 en 29 nei.
Í Austur-Landeyjahreppi greiddu
65,7% sameiningu atkvæði sitt en
34,3% voru á móti. Á kjörskrá voru
117 og neyttu 67 atkvæðisréttar eða
57,26%. Já sögu 44 en nei 23.
Í Vestur-Landeyjahreppi var
66,7% stuðningur við sameiningu en
30,9% sögðu nei. Alls voru 119 á kjör-
skrá og kusu 81 eða 68,1%. Já sögðu
54, nei 25 og tveir seðlar voru ógildir.
Í Fljótshlíðarhreppi var samein-
ingin samþykkt með 55,3% atkvæða
en 44,7% voru henni andvíg. Á kjör-
skrá voru 134 og kusu 85 eða 63,4%.
Já sögðu 47 en nei 38.
Loks var sameining samþykkt í
Hvolhreppi með 90,4% atkvæða en
8,9% sögðu nei. Á kjörskrá voru 520
og kusu 302 eða 58,1%. Já sögðu 273
en nei 27 en tveir kjörseðlar voru
ógildir.
Kosningar í Rangárvallasýslu
Sameining sex
hreppa samþykkt
BJARNI Jóhannes-
son, fv. skipstjóri og
framkvæmdastjóri
Útgerðarfélags KEA,
lést á dvalarheimilinu
Hlíð á Akureyri
sunnudaginn 18. nóv-
ember, 88 ára að aldri.
Bjarni fæddist 23.
september árið 1913 í
Flatey á Skjálfanda,
sonur Baldvins Jó-
hannesar Bjarnason-
ar, hreppstjóra, út-
vegsbónda og kennara
í Neðribæ, og Maríu
Gunnarsdóttur hús-
móður. Bjarni ólst upp í Flatey og
gekk í skóla föður síns. Hann var
10 ára þegar hann fyrst sótti sjóinn
á litlum árabáti en fór síðar á opna
vélbáta og þilfarsbáta. Bjarni lauk
fiskiskipaprófi frá Stýrimanna-
skólanum árið 1950, var skipstjóri
á Gylfa frá Rauðuvík, Akraborg-
inni EA og síðast
Snæfelli EA. Bjarni
varð aflakóngur á síld-
veiðum við Norður-
land í þrígang. Árið
1958 fór hann í land
og gerðist fram-
kvæmdastjóri Útgerð-
arfélags KEA en var í
afleysingum sem skip-
stjóri til ársins 1965.
Bjarni hætti fram-
kvæmdastjórastarfinu
hjá KEA sökum ald-
urs árið 1983 en vann
ýmis verkefni fyrir
Fiskifélag Íslands allt
til ársins 1995.
Bjarni kvæntist Sigríði Frey-
steinsdóttur, húsmóður frá Bald-
ursheimi í Glerárþorpi, árið 1939
en hún lést árið 1991, 73 ára að
aldri. Þau eignuðust sjö börn. Út-
för Bjarna fer fram frá Akureyr-
arkirkju 27. nóvember nk.
Andlát
BJARNI
JÓHANNESSON