Morgunblaðið - 20.11.2001, Side 13

Morgunblaðið - 20.11.2001, Side 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 13 REYKJAVÍK: Ármúla 11 - Sími 568-1500 AKUREYRI: Lónsbakka - Sími 461-1070 Model 6834 Gifsskrúfvél 470 W O = 4 x 57 mm Tilboðsverð RAGNAR Aðalsteinsson hæstarétt- arlögmaður hlaut Hvatningar- verðlaun Samfylkingarinnar á landsfundi Samfylkingarinnar um helgina fyrir störf sín að mannrétt- indamálum. Er þetta í fyrsta sinn sem Samfylkingin veitir verðlaun sem þessi en að sögn Össurar Skarphéðinssonar, formanns flokksins, hefur framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar ákveðið að Hvatningarverðlaun verði veitt einu sinni á ári vegna framlags „sem skiptir okkur öll máli“, eins og hann orðaði það. Þegar Ragnar tók við viður- kenningarskjali og blómvendi úr hendi Össurar á laugardag risu landsfundarfulltrúar úr sætum sín- um og hylltu Ragnar með lófa- klappi. „Einn af mörgum sem starfa á sama akri“ Sagði Ragnar meðal annars að það skipti máli að aðrir veittu því eftirtekt með jákvæðum hætti sem „maður væri að fást við...“ Síðan sagði hann: „Ég tek á móti hvatn- ingu þessari með þakklæti sem einn af mörgum sem starfa á sama akri.“ Hlaut Hvatningarverð- laun Samfylkingarinnar Morgunblaðið/Ásdís Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður tekur við viðurkenningar- skjali og blómvendi úr hendi Össurar Skarphéðinssonar. GUÐRÚN Helga Brynleifsdóttir lögmaður varð efst í prófkjöri Nes- listans á Seltjarnarnesi á laugardag og leiðir því listann í bæjarstjórn- arkosningunum næsta vor. Hún hlaut 208 atkvæði í fyrsta sætið en í öðru sæti varð Sunneva Hafsteins- dóttir hönnuður, en hún sóttist eftir efsta sætinu og hlaut samtals 256 atkvæði í tvö efstu sætin. Í þriðja sæti varð Árni Einarsson með 152 atkvæði en litlu munaði á honum og Stefáni Bergmann og Þorvaldi Kolbeini Árnasyni. Ein- ungis er gefin upp röð þriggja efstu manna í prófkjörinu og er kosning þeirra bindandi. Alls greiddu 431 atkvæði í prófkjörinu og voru 20 seðlar ógildir. Stefna að því að bæta við sig einum bæjarfulltrúa Guðrún Helga var að bjóða sig fram í fyrsta skipti og segist af- skaplega þakklát fyrir það traust sem henni hafi verið sýnt í próf- kjörinu. Hún segir það raunhæft markmið Neslistans að ná að bæta einum bæjarfulltrúa við í kosning- unum. „Það er alveg ljóst að stjórn- málaafl hlýtur alltaf að keppa að sigri en við verðum auðvitað að vera raunsæ og staða Sjálfstæðis- flokksins er náttúrlega óvíða jafn sterk eins og á Seltjarnarnesinu. Þess vegna tel ég það raunhæft markmið hjá okkur að ná inn einum bæjarfulltrúa til viðbótar, þ.e. að ná inn þremur og auka þannig vægi okkar í bæjarstjórn,“ segir Guðrún Helga. Sunneva Hafsteinsdóttir hefur verið bæjarfulltrúi Neslistans á þessu kjörtímabili og bauð sig fram til forystu á listanum. Hún segir það auðvitað ákveðin vonbrigði að lenda síðan í öðru sæti listans, en slíkt sé hins vegar eðli prófkjöra. „Þegar maður gengst inn á að taka þátt í prófkjöri, þá getur farið á hvern veginn sem er. Við vorum lít- ið í því að berja hvert á öðru og er- um mjög sammála um stefnumótun okkar. En ég tel að út úr þessu prófkjöri hafi komið sterkur listi og nú er auðvitað aðalvinnan eftir og við stefnun ótrauð á að ná a.m.k. þremur mönnum.“ Guðrún Helga Brynleifs- dóttir efst Prófkjör Neslistans á Seltjarnarnesi Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is flísar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.