Morgunblaðið - 20.11.2001, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 20.11.2001, Qupperneq 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ JARÐFRÆÐI, huldufólk, sinueldar, dýralíf og fram- tíðin var meðal viðfangsefna á ráðstefnu um töfra Elliða- árdalsins sem haldin var í Loftkastalanum á föstudag. Ráðstefnugestir, sem voru 300 talsins, komu úr hverf- unum í kringum Elliðaárdal- inn en um var að ræða 12 ára nemendur í Árbæjar-, Ártúns-, Breiðholts-, Fella-, Hólabrekku-, Selás- og Seljaskóla. Sjálfir undirbjuggu þeir og stýrðu ráðstefnunni en að undirbúningnum stóðu einn- ig Orkuveita Reykjavíkur, Fræðslumiðstöð Reykjavík- ur og Menningarmiðstöðin Gerðubergi. Eins og tíðkast á öllum alvöru ráðstefnum héldu sérfróðir aðilar fyr- irlestra um hin ýmis mál sem snerta viðfangsefnið, í þessu tilfelli Elliðaárdalinn en allir höfðu fyrirlesararnir kynnt sér málin til hlítar og fengið aðstoð sérfræðinga við upp- lýsingaleit. Að loknum fyrirlestrunum voru pallborðsumræður þar sem ráðstefnugestir fengu færi á að spyrja fulltrúa skólanna um hvaðeina er varðaði dalinn. Fyrstu fyr- irspurninni var beint til Ólafs Páls Jónssonar, full- trúa Breiðholtsskóla, en fyr- irlesarar þaðan fjölluðu um sögu dalsins og rafstöðv- arinnar og framtíð Elliðaár- dalsins. Komu þar m.a. fram hug- myndir um að koma þar á fót vatnsrennibrautargarði en fyrir eldra fólkið yrði gufu- bað og heitir pottar. Lék fyr- irspyrjanda forvitni á að vita hvort fyrirliggjandi væru áætlanir um að byggja í Elliðaárdalnum og þá vatns- rennibrautargarð. Ólafur sagðist telja að engar áætl- anir væru um að byggja í dalnum og að vatns- rennibrautargarðurinn væri einungis hugmynd. Þá var Ólafur spurður hvort hann héldi að fólk ætti eftir að ganga betur um skóginn í dalnum eftir ráðstefnuna og sagðist Ólafur halda það. Loks svaraði Ólafur fyr- irspurn um hvers vegna ver- ið væri að eyðileggja Elliða- árdalinn og sagðist hann ekki geta svarað því. Ekki búin að skoða öll trén Nemendur í Ártúnsskóla voru með fyrirlestur um jarðfræði, örnefni og þjóðtrú og svaraði Árni Gestsson, nemandi í skól- anum, fyrirspurn um hversu gamalt hraunið í Elliðaár- dalnum væri. Taldi hann það vera um 2.500 ára. Ásdís Rut Guðmunds- dóttir, nemandi í Árbæj- arskóla svaraði fyrir- spurnum um gróðurfar og dýralíf, meðal annars hve- nær hefði verið byrjað að gróðursetja í dalnum og hverjar væru helstu trjáteg- undirnar þar. Sagði hún helstu tegundirnar vera sitkagreni, stafafuru, birki, ösp og víði en byrjað hefði verið að gróðursetja í kring- um 1920. Hún taldi of mikið verk að telja upp allar fugla- tegundirnar í dalnum þar sem þær væru svo margar og fyrirspurn um það hvað væri stærsta og minnsta tréð í dalnum sagðist hún ekki geta svarað þar sem hún væri ekki búin að skoða þau öll. Hrund Erlingsdóttir, nem- andi í Fellaskóla, var spurð að því hvort einhvers konar þjónusta hefði verið rekin í Elliðaárdalnum í gamla daga en fyrirlestur félaga hennar fjallaði um veiðar, lax, þjóðsögur og dýralíf. Kom fram í svari Hrundar að á 19. öld hefði verið selt kaffi og brennivín í Ártúni. Í erindi Seljaskóla var boðskapur til almennings um sinubruna og þær hættur sem af þeim stafa. Tinna Rut Sturludóttir, nemandi þar var spurð að því hvort alvar- legur skaði hefði orðið af völdum sinubruna í Elliðaár- dal og svaraði hún því ját- andi, myndir sem nemendur úr Seljaskóla hefðu sýnt bæru þess vitni en þær væru allar teknar í Elliðaárdaln- um. Fann ekki fyrir vættum Guðni Þór Þrándarson, nemandi í Hólabrekkuskóla, svaraði einnig fyrirspurnum en fyrirlestur skólafélaga hans var um vættir, mannlíf og dýralíf. Laut ein spurn- ingin að því hvort hópurinn hefði fundið fyrir ein- hverjum vættum þegar hann var í vettvangsferð í Elliða- árdalnum fyrir ráðstefnuna. Sagðist Guðni ekki hafa fundið fyrir slíku sjálfur þótt hann vissi ekki um aðra. Ein- um fundargestinum lék for- vitni á að vita hvort til væru sannanir fyrir því að fossbú- ar hefðu nokkru sinni tekið börn. Guðni vissi það ekki en hann var einnig spurður að því hvað fossbúar gerðu við fólk næðu þeir að lokka það til sín. „Ætli þeir drekki manni ekki,“ svaraði hann. Þá var hann spurður hvaðan nemendurnir hefðu haft upplýsingar um stærð huldufólks, álfa og vætta og í svari Guðna kom fram að Erla Stefánsdóttir hefði get- að gefið upplýsingar um það. Loks var hann spurður að því hvort álfar og huldu- fólk væru bara til í Elliðaár- dalnum. Taldi Guðni einsýnt að væru þeir til þá hlytu þeir að vera annars staðar en bara þar. Fyrirspurnir til Hafdísar Söru Þórhallsdóttur, nem- anda í Selásskóla, voru nokkuð áþekkar fyr- irspurnum til Guðna en er- indi skólafélaga hennar fjallaði um huldufólk. Var hún spurð að því hvort þau vissu um einhvern sem hefði séð álfa og huldufólk og svaraði Hafdís Sara því ját- andi, Erla Stefánsdóttir, sem hefði aðstoðað þau fyrir fyr- irlesturinn, hefði séð álfa. Hafdís Sara var einnig spurð að því hvort álfar gætu verið hrekkjóttir og sagðist hún halda það. Pallborðsumræðunum stýrði Ingunn Tryggvadótt- ir, nemandi í Seljaskóla en ráðstefnustjóri var skóla- félagi hennar Arnar Gísli Hinriksson. Ruslatunnur þurfa ekki að geta gengið Að ráðstefnu lokinni komu nemendur úr svokölluðum blaðamannahóp saman og ályktuðu um framtíð Elliða- árdalsins. Þar segir m.a.: „Það komu fram margar góðar hugmyndir svo sem um laug og nuddpott fyrir eldri borgara, vatns- rennibraut og vatnsgarð, leiksvæði fyrir börn að klifra í trjám, útsýnisturn og fleira. En við viljum samt ekki raska Elliðaárdalnum og leggjum áherslu á að allt verði gert til að vernda hann til framtíðar fyrir börnin okkar. Við viljum að það verði reynt að skapa dýrum sem bestar aðstæður og þau eigi þar góðar vistarverur og allt verði gert til að vernda dýralífið í Elliðaár- dalnum. Elliðaárdalurinn má aldr- ei verða ruslahaugur! Þess vegna þarf góðar ruslatunn- ur sem eru alltaf tæmdar. Þær þurfa ekki að geta gengið sjálfar [tillaga þar að lútandi kom fram á ráðstefn- unni – innsk. blm.] en þær þurfa að falla vel inn í um- hverfið og vera margnota. Allir eiga að ganga vel um dalinn. Þeir sem ganga illa um skemma eða koma af stað sinubruna eiga sjálfir að borga sektir eða vinna af sér skuldina en ekki að- standendur þeirra. Í skólum og á heimilum þarf að fræða krakka meira um sinuelda. Okkur finnst að það eigi að banna reykingar í dalnum því oft kviknar í út frá sígar- ettustubbum. Við ályktum að það beri að varðveita Elliðaárdalinn af því að hann er náttúru- perla! Þessi ályktun frá okk- ur er alveg óháð álfum og huldubyggð. Að vísu vorum við vöruð við fossbúum sem drekkja mönnum nái þeir að grípa í einn mann eða ann- an.“ Ályktunin var unnin af Sigurjóni Sverri Siguðssyni og Auði Sif Sigurðardóttur, nemendum í Selásskóla, og Ásgeiri Jónassyni og Elsu Petru Björnsdóttur, nem- endum í Árbæjarskóla. Ráðstefna 300 skólakrakka haldin í Loftkastalanum Vilja vernda dalinn fyrir börnin sín Ólafur Páll Jónsson, Ásdís Rut Guðmundsdóttir, Hafdís Sara Þórhallsdóttir, Árni Gestsson, Guðni Þór Þrándarson, Hrund Erlingsdóttir og Tinna Rut Sturludóttir sátu sem fulltrúar skólanna sjö í pallborði og svöruðu fyrirspurnum en Ingunn Tryggvadóttir stjórnaði umræðunum. Í pontu er Steinunn Jóna Hauksdóttir, nemandi í Árbæjarskóla, að spyrja spurningar. Ráðstefnuhaldið tók 6 tíma en auk fyrirlestra fróðra nemenda voru fjölbreytt tónlistar- atriði sem krakkarnir stóðu fyrir og dagskrárliðir á borð við „Nestishlé úr poka“. Elliðaárdalur Frábært fjölskyldufyrirtæki Erum með til sölu einstakt fjölskyldufyrirtæki sem er söluturn, skyndi- bitastaður og myndbandaleiga. Rúmlega ársgamalt fyrirtæki og í miklum vexti. Mikil velta. Öll tæki ný og þau fullkomnustu og dýrustu sem til eru á markaðnum. Tvær bílalúgur. Er staðsett á stóru íbúðar- og vinnusvæði og beint á móti eru 500 sveltandi hamborgarætur. Mikil arðsemi fyrir duglegt fólk. Helmingur sölunnar er skyndibitamatur. Selst á mjög hagstæðu verði, í raun aðeins á tækja- og vinnukostnað- arverði en ekkert fyrir viðskiptavildina sem er mikil. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. Erum með úrval fyrirtækja á skrá hjá okkur á hverjum tíma. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.         BÆJARSTJÓRN Garðabæjar hefur samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 2002. Fræðslumál eru stærsti út- gjaldaliðurinn í áætluninni, hvort heldur sem litið er til rekstrar eða framkvæmda. Áætlaðar tekjur á árinu eru 2.081,5 milljónir krónar og hækka þær um 202 milljónir frá endurskoðaðri áætl- un ársins 2001 eða um 10,2%. Segir í fréttatilkynningu að hækkunin skýr- ist annars vegar af spá um hækkun launa á árinu 2002 og hins vegar af fjölgun íbúa í Garðabæ. Rekstarútgjöld eru áætluð 1.613,2 milljónir króna á árinu og hækka um 12,5% á árinu. Stærsti útgjaldaliður- inn er fræðslumál en til þeirra er var- ið 906 milljónum sem eru 56,2% af heildarútgjöldum en í þeirri tölu eru útgjöld vegna leikskóla. Þeir út- gjaldaliðir sem koma næstir eru framlög til félagsþjónustu, sem eru áætluð 270 milljónir króna, og til æskulýðs- og íþróttamála, sem eru áætluð 122 milljónir. Álagningarprósenta útsvars verð- ur óbreytt eða 12,46%. Fasteigna- skattur íbúðarhúsnæðis lækkar úr 0,45% í 1,385% og lóðagjald úr 15 í 1,4%. Með þessu er gert ráð fyrir því að hækkun á fasteignamati verði ekki til þess að tekjur vegna fasteigna- gjalda hækki. Álagningarprósenta fasteignaskatts á fyrirtæki hækkar í 1,12% en var áður 0,825%. Rekstrarafgangur frumvarpsins er 468 milljónir króna sem er um 23% af skatttekjum en gert er ráð fyrir að framlag til framkvæmda verði 491 milljón. Þar af verða stærstu fram- kvæmdirnar vegna skólahúsnæðis og er áætlað að ráðstafa 275 milljónum til þeirra. „Einkennist af áfram- haldandi þenslu“ Í bókun minnihlutans í borgar- stjórn segir að fjárhagsáætlun næsta árs „einkennist af áframhaldandi þenslu. Þannig er gert ráð fyrir því að skattar og gjöld skili hærri tekjum sem nemur um 10% á milli ára. Rekstrarútgjöldin hækka þó heldur meira eða um 12%.“ Segir að ætlunin sé að dreifa tak- mörkuðu framkvæmdafé á fjölmörg ný verkefni og að í sumum tilvikum sé ekki sýnt fram á hvernig eða hvenær þeim verði lokið. Segir að fjárhags- áætlunin beri þess merki að kosning- ar séu í nánd þar sem reynt sé að gera sem mest fyrir sem flesta en um leið sé ýtt undir óraunhæfar væntingar. Fjárhagsáætlun samþykkt Garðabær KÖNNUN á lesfærni barna í 3. bekk grunn- skóla borgarinnar stend- ur nú yfir á vegum Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur. Mikill áhugi hefur verið á könnuninni en 30 af þeim 34 skólum sem eru með 3. bekk eru þáttakendur í henni. Markmiðið með könn- uninni er að afla upplýs- inga um stöðu nemenda- hópsins í lestri. Í frétta- tilkynningu frá Fræðslu- miðstöð segir að með þessu muni skólarnir fá dýrmætar upplýsingar um stöðu sinna nemenda gagnvart heildinni en í starfsáætlun miðstöðvar- innar fyrir þetta ár segir að stefnt sé að því að sem flestir nemendur geti les- ið sér til gagns við lok 2. bekkjar. Þá segir í tilkynning- unni að fyrirhugað sé að gerð verði sérstök ein- staklingsáætlun um lestr- arkennslu nemenda sem þess þurfa. Lesfærni átta ára barna könnuð Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.