Morgunblaðið - 20.11.2001, Blaðsíða 15
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 15
Þakdúkar og
vatnsvarnarlög
Þakdúkar og
vatnsvarnarlög á:
þök
þaksvalir
steyptar
rennur
ný og gömul
hús
Góð
þjónusta og
fagleg
ábyrgð
undanfarin
20 ár
- unnið við öll veðurskilyrði
- sjá heimasíðu www.fagtun.is
FAGTÚN
Brautarholti 8 • sími 562 1370
HELGI Jóhann-
esson fram-
kvæmdastjóri
Norðurmjólkur
hefur tekið við
sem konsúll
Dana á Akureyri.
Helgi tók við
stöðunni af Sig-
urði Jóhannes-
syni, fyrrverandi
aðalfulltrúa hjá
Kaupfélagi Eyfirðinga, en hann
hafði gegnt stöðunni í 12 ár, eða frá
árinu 1989.
Helgi er fæddur á Akureyri 1956
og lauk MS-verkfræði frá Álaborg-
arháskóla árið 1987. Hann er giftur
Stefaníu Sigmundsdóttur leikskóla-
kennara og tækniteiknara en hún
starfar á tæknideild Akureyrar-
bæjar. Þau eiga fjögur börn.
Helgi var með bréfi Margrétar
Danadrottningar 11. júlí í sumar til-
nefndur konsúll á Akureyri. Hann
var settur inn í embætti við athöfn á
Akureyri fyrr í þessum mánuði, þar
sem danski sendiherrann, Flemm-
ing Mörch, og frú Hanne kvöddu
Sigurð og buðu Helga velkominn í
starfið. Skrifstofa konsúls verður á
Súluvegi 1 á Akureyri, í starfstöð
Norðurmjólkur.
Nýr konsúll
Dana á
Akureyri
Helgi
Jóhannesson
Samherji flytur hluta af kavíarframleiðslunni til Þýskalands
Afkoman verið
léleg hérlendis
SAMHERJI hefur flutt hluta af
tækjabúnaði sínum sem notaður
var til kavíarframleiðslu í Strýtu á
Akureyri til þýska fyrirtækisins
Husmann und Hahn í Cuxhaven en
Samherji á eignarhlut í fyrirtæk-
inu. Um 20–30 manns starfa við
kavíarframleiðsluna ytra sem fór í
gang í september sl. og þar af þrír
Íslendingar.
Samherji keypti einnig tækja-
búnað af fyrirtækjum hér heima og
erlendis, sem hætt höfðu þessari
framleiðslu, og var sá búnaður líka
settur upp í Þýskalandi.
Aðalsteinn Helgason, fram-
kvæmdastjóri landvinnslu Sam-
herja, sagði að afkoman í þessari
vinnslu hefði verið léleg og menn
hefðu því staðið frammi fyrir því
að hætta kavíarframleiðslunni al-
veg eða flytja hluta af henni til út-
landa. „Við völdum þann kost að
flytja framleiðsluna út enda eigum
við þar ágætan hóp viðskiptavina.
Erlendis er fyrirtækið ekki lengur
háð því að kaupa eingöngu hrogn á
Íslandi. Nú getum við keypt hrogn
á því verði sem er á markaðnum
hvar sem er á hverjum tíma og
þannig minkað áhættuna í rekstr-
inum. Vertíðin á Íslandi er á undan
öllum öðrum vertíðum, hrognin því
keypt á vorin og kavíarinn seldur á
haustin. Í millitíðinni getur margt
gerst og frá árinu 1997 hefur verð
á hrognum í heiminum fallið eftir
að vertíðinni lýkur á Íslandi. Frá
þeim tíma höfum við greitt hátt
verð fyrir hrognin að undanskildu
árinu í ár.“
Aðalsteinn sagði að Samherji
framleiddi ennþá kavíar á Akur-
eyri en í mun minni mæli en áður.
Hann sagði að ekki hefði verið tek-
in nein ákvörðun um að hætta
framleiðslunni endanlega á Akur-
eyri.
Ákveðið hefur verið að byggja
nýja frystigeymslu við Strýtu á
Akureyri í staðinn fyrir geymsluna
sem eyðilagðist í eldi í júní sl. Að-
alsteinn sagði að ekki væri end-
anlega ljóst hversu stór byggingin
yrði en þó líklega stærri en sú sem
eyðilagðist. Hann sagði stefnt að
því að hefja byggingarfram-
kvæmdir næsta vor.
RÚMLEGA tvítugur karlmaður hef-
ur í Héraðsdómi Norðurlands eystra
verið dæmdur í tveggja mánaða
fangelsi, skilorðsbundið til tveggja
ára. Þá var honum gert að greiða 50
þúsund króna sekt til ríkissjóðs og
var sviptur ökurétti í átta mánuði.
Loks var honum gert að greiða sak-
arkostnað.
Maðurinn var ákærður fyrir lík-
amsmeiðingar af gáleysi og umferð-
arlagabrot, með því að hafa ekið bif-
reið, án þess að nota öryggisbelti, of
hratt miðað við aðstæður og án
nægilegrar aðgæslu. Maðurinn var á
ferð við hringtorg á mótum Borgar-
brautar og Hlíðarbrautar, en hann
ók yfir hringtorgið og út á grasflöt á
miðju þess, með þeim afleiðingum að
hann ók á bifreið sem var að aka um
torgið, en ökumaður hennar slasað-
ist töluvert, hlaut m.a. mjaðmagrind-
arbrot.
Neitaði maðurinn fyrir dómi allri
sök, en viðurkenndi að hafa ekið án
öryggisbeltis.
Dómurinn komst að þeirri niður-
stöðu með vísan til framburðar vitna
að maðurinn hefði gerst brotlegur,
ekið of hratt án nægilegrar aðgæslu,
sem varð til þess að ökumaður bíls
sem hann ók á slasaðist.
Héraðsdómur
Norðurlands eystra
Skilorðsbund-
ið fangelsi
og svipting
ökuréttar
♦ ♦ ♦