Morgunblaðið - 20.11.2001, Side 16

Morgunblaðið - 20.11.2001, Side 16
SUÐURNES 16 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI HÁHITAHOLAN á Trölladyngju virðist mun aflminni en búist var við þegar henni var hleypt upp í síðasta mánuði. Stafar það einkum af því að hitinn í henni er minni enn sem komið er en útlit var fyrir. Hitinn fer hækkandi en það gerist mun hægar en vanalegt er. Borhola Jarðlindar ehf. á Trölla- dyngju á Reykjanesi er liðlega 2300 metra djúp og er hún dýpsta háhita- borhola á landinu. Áður en henni var hleypt upp um miðjan október mældist hitinn hæstur 300 gráður á botni holunnar. Vegna þess áætluðu forráðamenn Jarðlindar ehf., sem er í eigu Hitaveitu Suðurnesja og bæj- arfélaganna á sunnanverðu höfuð- borgarsvæðinu, að holan myndi skila 270-280 gráðu hita og því væri hún svo aflmikil að hún gæti fram- leitt um 15 megavött af rafmagni. Síðan hafa farið fram ítarlegar mæl- ingar á holunni. Í yfirliti Orkustofn- unar sem birt er í Fréttaveitunni, fréttabréfi Hitaveitu Suðurnesja, kemur fram að holan blæs sem stendur kringum 30 kg/s af vatni og gufu sem sýður við 230 gráða hita á um það bil 400 metra dýpi í fóðring- unni. Það skilar um 4 kg/s af há- þrýstigufu sem myndu gefa um 2 megavött af rafmagni í eimsvalavél. Hitinn fellur á 1.600 metrum Albert Albertsson, aðstoðarfor- stjóri Hitaveitu Suðurnesja, segir að ástæðan fyrir því að holan lofar ekki jafn góðu og áður sé sú að hitastigið falli mikið niður á kringum 1.600 metrana. Hitinn er 300 gráður á botni holunnar en er einungis 220 gráður í æðinni sem vatn kemur úr á 1600 metrum. Er það talsvert lægra en í upphitun. Þá er hiti holunnar 235 gráður þar sem hún er köldust, samkvæmt upplýsingum Orkustofn- unar. Albert segist ekki hafa fengið skýringar á þessum mun. Holan sé að hitna en hún hitni miklu hægar en venja sé með slíkar holur. Sérfræðingar segja að annað- hvort sé bergið ekki eins heitt og reiknað var með eða að áhrifa frá niðurdælingu vegna borunarinnar gæti meira en reikna megi með. Al- bert segir þó að þrátt fyrir þetta sýni borunin að á Trölladyngju sé öflugt háhitasvæði. Sérfræðingar Orkustofnunar segja að holan teljist vera komin í hóp vinnsluholna og muni standa fyrir sínu í því verkefni sem nú er hafið við könnun jarð- hitasvæðisins í Krýsuvík og á Trölladyngjusvæðinu. Þegar niðurstöður mælingar á há- hitaholunni liggja fyrir, auk niður- staðna úr kortlagningu megin- sprungna á svæðinu og jarðskjálfta mun ný tilraunahola verða staðsett. Albert segir þó að engar ákvarðanir hafi verið teknar um það hvenær ráðist verði í borun nýrrar holu. Háhitaholan við Trölladyngju kald- ari en sérfræðingar gerðu ráð fyrir Mun aflminni en vonast var til Morgunblaðið/RAX Dýpstu háhitaholu landsins var hleypt upp við hátíðlega athöfn. Trölladyngja SVEITARSTJÓRNARMENN í Garði og Sandgerði vilja láta það koma betur fram á Reykjanesbraut- inni að leiðin að Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar sé einnig til þeirra sveitar- félaga. Fulltrúi Vegagerðarinnar segir að málið þarfnist athugunar. Eftir yfirreið þingmanna Reykja- neskjördæmis um Suðurnesin ritaði Hjálmar Árnason alþingismaður vegamálastjóra bréf með ábending- um sveitarstjórnarmanna um bættar merkingar á Reykjanesbraut og við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Í bréfi Hjálmars kemur fram að fulltrúar Garðs og Sandgerðis hafi bent á að fátt benti til þess á leiðinni eftir Reykjanesbraut að Flugstöð Leifs Eiríkssonar að á Suðurnesjum væru sveitarfélögin Garður og Sand- gerði. Þeir hefðu eindregið óskað eftir því að komið yrði upp þjónustu- skiltum þar sem vísað væri á staðina á viðeigandi hátt með skírskotun til þeirrar þjónustu sem þar er. Þá sagði þingmaðurinn að óskað væri eftir því að komið yrði upp svæðakorti af Suðurnesjum á Reykjanesbraut, nærri flugstöðinni, til þess að ferðalangar gætu séð hvar þeir væru staddir og hvert leiðir lægju. Nýr áningarstaður Jónas Snæbjörnsson, umdæmis- stjóri Vegagerðarinnar á Reykja- nesi, segir að fyrirhugað sé að koma fyrir skilti á nýjum áningarstað sem Vegagerðin er að koma upp á Reykjanesbraut, á milli flugstöðvar- innar og hringtorgsins. Skiltið verði sett upp fyrir vorið. Segir Jónas að það verði væntanlega með svipuðu sniði og önnur slíkt skilti sem komið hefur verið upp víðsvegar um landið. Haft verði samráð við sveitarfélögin um fyrirkomulag þess. Hann segir að skoða þurfi nánar óskir Garð- manna og Sandgerðinga um sérstak- ar merkingar á Reykjanesbrautinni, á leiðinni frá Reykjavík. Í bréfi Hjálmars er einnig vakin athygli á þeirri ábendingu sveitar- stjórnarinnar í Vogum að skynsam- legt gæti verið að benda hjólreiða- fólki á gamla þjóðveginn eftir Vatns- leysuströnd sem heppilegan valkost fyrir hjólreiðafólk. Jónas tekur undir þetta og segir að Vegagerðin sé hlynnt því að hjólreiðar fari sem allra mest af Reykjanesbrautinni. Óska eftir betri merkingum Garður/Sandgerði Bauð best í sjóvarnargarð Vogar SEES ehf. í Keflavík átti lægsta til- boð í byggingu sjóvarnargarðs við Voga á Vatnsleysuströnd. Verktak- inn býðst til að vinna verkið fyrir 4,4 milljónir kr. sem er um 100 þús- und kr. eða 3% undir kostnaðar- áætlun. Siglingastofnun bauð út byggingu sjóvarnargarðsins og kemur fram í útboðsgögnum að þeim eigi að ljúka fyrir 1. febrúar næstkomandi. ♦ ♦ ♦ BRYNJÓLFUR Jónsson, járn- smiður á Akureyri, varð 100 ára á sunnudag, 18. nóvember, en hann fæddist þann dag árið 1901 á Dagverðareyri. Brynjólfur og eiginkona hans, Sigríður Jónsdóttir, dvelja nú á öldrunardeild Kristnesspítala og buðu þau félögum sínum og starfsfólki þar upp á kaffiveit- ingar í tilefni afmælisins í gær- dag. Foreldrar Brynjólfs voru Frið- björg Sigríður Friðbjarnardóttir og Jón Hallgrímsson. Friðbjörg var vinnukona á Dagverðareyri og Jón á Ásláksstöðum. Á flæking 20 vikna gamall Skömmu eftir að Brynjólfur var skírður fór faðir hans á há- karlaskip sem fórst. „Ég fór því á flæking um 20 vikna gamall,“ sagði Brynjólfur, en hann dvaldi á hinum ýmsu bæjum í Eyjafirði í uppvexti sínum, m.a. á Brita í Þelamörk, Tjörnum, Nýjabæ, Rif- kelsstöðum, Eyvindarstöðum og Klauf, þá var hann á Ytra- Laugalandi og um 5 ára skeið var hann vinnumaður á Munkaþverá efri á yngri árum. Æskuárin voru Brynjólfi erfið sem nærri má geta. „Það var ekki alltaf farið vel með hreppsómagana,“ segir hann en vill þó ekki fara nánar út í þá sálma af tillitssemi við hús- bændur sína. Hann minntist þess þó að hafa unnið mikið frá unga aldri og oft verið klæðalítill, enda hafi fólkið sem hann dvaldi hjá ekki verið efnamikið. Eiginkona Brynjólfs er Sigríð- ur Jónsdóttir frá Litla-Dal, en þau kynntust er Brynjólfur var vetrarmaður á Möðrufelli í Eyja- firði. Sigríður er dóttir Jóns Trampe og Þórdísar Árnadóttur. Þau gengu í hjónaband árið 1937. Sigríður er fædd árið 1914. Brynjólfur flutti til Siglufjarðar 1930, þar bjó hann og þau hjónin til ársins 1949 er þau fluttu til Akureyrar. Þar í bæ hafa þau átt heima allar götur síðan. Brynj- ólfur lærði járnsmíði og vann hjá vélsmiðjunni Atla um 40 ára skeið. Þau bjuggu í Strandgötu 49 allt þar til þau fluttu fyrir 10 árum í þjónustuíbúð við Víðilund. Þau hafa dvalið á Kristnesspítala síðustu vikur. Hef alla ævi verið heilsuhraustur Brynjólfur er við þokkalega heilsu, en heyrnin er aðeins farin að gefa sig. Hann fylgist með sjónvarpi og les sér til gagns og gamans. „Ég bjóst nú aldrei við að lifa svona lengi, það var farið heldur illa með hreppsómagana en einhvern veginn hefur ekki verið hægt að sálga mér. Ég hef líka alla ævi verið svona sæmi- lega heilsuhraustur,“ sagði Brynj- ólfur. Brynjólfur Jónsson, járnsmiður á Akureyri, 100 ára Morgunblaðið/Kristján Brynjólfur Jónsson og Sigríður Jónsdóttir, kona hans, innan um blóm og aðrar gjafir sem Brynjólfi bárust á þessum tímamótum. Bjóst aldrei við að lifa svona lengi FUNDUR um málefni Kaupfélags Eyfirðinga og framtíð samvinnu- félaga var haldinn á Hólum, sam- komusal Menntaskólans á Akur- eyri, sl. laugardag. Fundurinn var liður í því kynningarátaki sem KEA hóf nú nýlega með útgáfu upplýsingabæklings en honum var dreift inn á öll heimili á fé- lagssvæðinu. Tilefnið eru þær miklu breytingar sem KEA hefur tekið á síðustu mánuðum, en þessu félagi sem áður var með fjölbreytt- an atvinnurekstur á ýmsum sviðum hefur nú verið skipt upp í tvennt. Annars vegar er um að ræða eign- arhaldsfélag sem heldur utan um eignir KEA þar sem markmiðið er að hámarka arðsemi af þeim en hins vegar samvinnufélag sem hvetja mun til fjárfestinga og ný- sköpunar í atvinnulífi á félagssvæð- inu, sem og að leita hagstæðustu kjara fyrir sína félagsmenn. Unnið hefur verið að því að færa rekstur KEA yfir í hlutafélög frá því í lok árs 1998 og er því nú lokið, en þeirra á meðal eru Norður- mjólk, Norðlenska matborðið, Hag- ræði, Bústólpi, Nýja kaffibrennslan og Samkaup auk þess sem KEA á 18% hlut í Samherja. Samvinnufélagið verði byggðafestufélag Breytingar á félagsformi KEA voru staðfestar á framhaldsaðal- fundi síðastliðið sumar og þar var nýju lífi blásið í KEA – samvinnu- félag. Eiríkur S. Jóhannsson kaup- félagsstjóri sagði það vilja fé- lagsmanna að félagið yrði eins konar byggðafestufélag sem m.a. ætti að hafa frumkvæði að því að stofna til fjárfestinga og nýsköp- unar í atvinnurekstri á félagssvæð- inu í samvinnu við aðra, fjárfesta, fyrirtæki og einstaklinga, í því skyni að efla atvinnulíf. Með því móti yrði hagur íbúanna betur tryggður. Einnig er hlutverk sam- vinnufélagsins að ávaxta eignir KEA og ráðstafa arði af þeim til fé- lagsmanna, auk þess að efla menn- ingu, menntun, íþrótta- og æsku- lýðsstarf á félagssvæði sínu. Loks er því ætlað að standa vörð um hagsmuni félagsmanna og sjá þeim fyrir hagstæðum kjörum í viðskipt- um. Voldugur rekstur samvinnu- félaga er liðin tíð Félagsmenn í KEA eru nú um 7.500 talsins, en með því kynning- arátaki sem nú stendur yfir er stefnt að því að fjölga þeim í a.m.k. 10 þúsund. Þannig ætti félagið að hafa meiri burði til að gera hag- stæða viðskiptasamninga fyrir fé- lagsmenn sem með því gæti orðið að öflugu neytendafélagi. Eiríkur sagði að sá tími væri liðinn að stór samvinnufélög stæðu fyrir voldug- um rekstri, en það fyrirkomulag að skipta KEA eins og gert var hefði mælst vel fyrir meðal félagsmanna. Jón Sigurðsson rekstrarhag- fræðingur ræddi á fundinum al- mennt um samvinnufélög, stöðu þeirra um þessar mundir og ný lög sem Alþingi samþykkti á síðasta þingi. Birgir Guðmundsson, frétta- stjóri á DV, fjallaði m.a, um þá ímynd sem KEA og kaupfélög al- mennt hefðu. Hann sagði ímyndina m.a. þá að kaupfélög tilheyrðu gamla tíman- um, þau væru dreifbýlisfélagsskap- ur, tengdust Framsóknarflokknum og væru óhagkvæmt bákn. Um möguleika KEA – samvinnufélags í framtíðinni nefndi hann að fyrir fé- lagsmenn yrði eitthvað að fylgja með, menn þyrftu að hafa hags- muni af því að vera með í fé- lagsskapnum. Ánægja með breytingar en ungu fólki þarf að fjölga í KEA Fram kom í máli fundarmanna ánægja með þær breytingar sem gerðar hafa verið á KEA, þ.e. að skipta rekstrinum upp í samvinnu- félag og eignarhaldsfélag, en mikil áhersla var lögð á að KEA þyrfti að vera sýnilegt í umræðunni. Þá þyrfti að útlista þá kosti sem því fylgja að vera félagsmaður skil- merkilega fyrir fólki. Félagið þyrfti að setja fram áhugaverða kosti hvað varðar afsláttarkjör og fleira til þess að fjölga yngri félagsmönn- um í KEA. Málefni KEA og framtíð samvinnufélagsins Félagið verður að vera sýnilegt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.