Morgunblaðið - 20.11.2001, Síða 18
LANDIÐ
18 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
STURLU Böðvarssyni, samgöngu-
ráðherra, hafa verið afhentir undir-
skriftalistar frá á fimmta hundrað
íbúum í Snæfellsbæ. Þar er skorað á
þingmenn Vesturlandskjördæmis að
beita sér fyrir að bundið slitlag verði
komið á Fróðárheiði fyrir haustið
2003.
Í áskoruninni segir að það sé óþol-
andi að 1.600 manna byggð á norð-
anverðu Snæfellsnesi, í aðeins 200
km fjarlægð frá Reykjavík, skuli enn
búa við moldarvegi. Vegurinn yfir
Fróðárheiði tengir byggðakjarnana
Hellissand, Rif og Ólafsvík við Stað-
arsveit og Breiðuvík, en allt þetta
svæði var sameinað í eitt bæjarfélag,
Snæfellsbæ, fyrir fáeinum árum.
Snæfellsbær er eitt læknishérað
með heilsugæslustöð í Ólafsvík.
,,Það er því gríðarlegt öryggis-
atriði fyrir íbúana að ljúka þessu
verki fljótt,“ segir ennfremur í
áskoruninni og kvartað er yfir seina-
gangi við umræddar vegafram-
kvæmdir og þingmenn hvattir til að
standa við áður gefin loforð.
Vilja bund-
ið slitlag
á Fróðár-
heiði
Ólafsvík
OLÍUHREINSUN úr El Grillo er
nú formlega lokið. Á sunnudaginn
var haldinn opinn borgarafundur
á Seyðisfirði þar sem umhverf-
isráðherra og menn frá umhverf-
isráðuneytinu, Ríkiskaupum, Holl-
ustuvernd og norska verktaka-
fyrirtækinu RUE (Riise Under-
water Engineering AS) skýrðu
stöðu mála og svöruðu fyrir-
spurnum fundargesta.
Stein-Inge Riise frá RUE af-
henti lokaskýrslu verktakans um
hreinsunina og skýrði aðferðir og
aðgerðir sinna manna og svaraði
fyrirspurnum fundarmanna. Hann
sagði að verkið hefði gengið eftir
áætlun og engin stærri vandamál
komið upp. Nú er búið að yfirfara
alla tanka skipsins og tæma þá af
allri þeirri olíu sem unnt er að
ná. Í niðurstöðu skýrslunnar kem-
ur fram að um 90 tonn af svartol-
íu komu úr skipinu. Gert er ráð
fyrir að um 18 tonn af olíu gætu
enn verið í flakinu, en olían er
væntanlega í litlu magni í kverk-
um hér og þar. Engin hætta er
talin stafa af henni þar eð skipið
tærist mjög hægt, auk þess sem
þykk botnset eru ofan á því. Af
þessum ástæðum telja menn að
olían sem enn er til staðar muni
að lokum leka út í mjög litlu
magni í einu á mjög löngum tíma,
jafnvel mörg hundruð árum.
Kostnaður nam 120 milljónum
Umhverfisráðherra Siv Frið-
leifsdóttir skýrði frá kostn-
aðarhliðinni. Hún sagði að kostn-
aður næmi um 120 milljónum
króna. Fjarlög gerðu ráð fyrir
100 milljónum króna til verksins
og búist væri við að mismunurinn
yrði á næstu fjáraukalögum.
Nokkuð var um fyrirspurnir á
fundinum og líflegar umræður.
Flestar fyrirspurnirnar snerust
um hvaða möguleikar gætu verið
á því að enn væri olía í skipinu
og hvort menn gætu átt von á
olíuleka eins ogverið hefur og
undanfarin ár. Menn fengu grein-
argóð svör og heyra mátti að þeir
sem að verkinu komu höfðu unnið
sína vinnu og gert ráð fyrir öllu
því helsta sem menn gátu látið
sér koma til hugar. Óhætt er að
segja að létt hafi verið yfir mönn-
um að fundi loknum.
El Grillo-verkefninu formlega lokið
Morgunblaðið/Pétur KristjánssonFundarmenn fylgjast með af áhuga.
Seyðisfjörður
SNURVOÐARBÁTURINN Dala-
röst ÞH 40 fékk snurvoðina í
skrúfuna þar sem hann var að
veiðum á Skjálfandaflóa í gær.
Óskar Karlsson skipstjóri bátsins
hafði strax samband við frænda
sinn Karl Óskar Geirsson skip-
stjóra á Keili SI 145 sem einnig
var á veiðum með snurvoð í flóan-
um og bað hann um aðstoð. Eftir
að búið var að koma taug á milli
bátanna tók Keilir Dalaröstina í
tog og kom með hana til hafnar á
Húsavík laust eftir hádegið. Óskar
sagði að þeir hefðu verið að veið-
um fram úr Fiskaskerinu sem er
vestan megin í flóanum undan
Kinnafjöllunum.
„Það var hávaðarok og mikið
rek á bátnum en þetta gekk allt
saman ágætlega. Þetta var bara
helber klaufaskapur í mér að fá
voðina í skrúfuna ég viðurkenni
það alveg,“ sagði Óskar þar sem
hann stóð ásamt áhöfn sinni í
ströngu við gera við voðina. Strák-
arnir tóku allir sem einn undir það
með kallinum og glottu út í annað.
Keilir dró Dalaröstina til Húsavíkur
Fékk snurvoð-
ina í skrúfuna
Húsavík
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Á myndinni eru f.v. Óskar Karlsson og Jón Hermann Óskarsson.
NEMENDUR og kennarar í Grunn-
skólanum á Hellu gerðu sér daga-
mun á degi íslenskrar tungu síðast-
liðinn föstudag. Nemendur 5. og 6.
bekkja fluttu dagskrá fyrir yngri
nemendur skólans um Þorstein Erl-
ingsson frá Hlíðarenda í Fljótshlíð
en hann er á meðal þekktustu
skálda Rangæinga. Nemendurnir
sögðu í stuttu máli frá skáldinu og
fluttu tvö ljóð, Hreiðrið mitt og Sól-
skríkjuna. Einnig voru sungin tvö
lög, Fyrr var oft í koti kátt og
Heyrðu snöggvast, Snati minn, og
vitaskuld tóku áhorfendur hraust-
lega undir.
Björgúlfur Þorvarðarson, ís-
lensku- og dönskukennari ung-
lingadeildar skólans, kenndi enga
dönsku þennan dag en kynnti nem-
endum sínum ljóðlist af ýmsum
toga og nokkur skáld. Sjálfur er
hann orðlagður hagyrðingur og er
eins víst að hann kasti fram stöku
þegar minnst varir.
Lásu ljóð Þorsteins Erlingssonar
Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir
Nemendur 5. og 6. bekkja Grunnskólans á Hellu fluttu dagskrá fyrir
yngri nemendur skólans í tilefni dags íslenskrar tungu.
Hella
NEMENDUR Brúarásskóla lásu
upp fyrir foreldra sína og skóla-
systkini í tilefni dags íslenskrar
tungu, á fæðingardegi Jónasar Hall-
grímssonar.
Lesinn var íslenskur texti, sögur,
ljóð, ævintýri og smáleikþættir. Við-
fangsefnin voru margvísleg, yngstu
krakkarnir lásu frásögnina Í fjötr-
um, einnig var lesið ævintýrið um
Hans og Grétu ásamt nútímaútgáfu
af Rauðhettu og úlfinum og kvæðið
Refur eftir Örn Arnarson. Leiklesin
voru meðal annars Greindarprófið
og Amma segir ævintýri.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Nemendur Brúarásskóla lásu sögur, ljóð, ævintýri og smáleikþætti fyrir
nemendur, kennara og foreldra á degi íslenskrar tungu.
Nemendur
lásu upp
Norður-Hérað
Morgunblaðið/Guðrún
Nemendur voru með skemmtiatriði, leikþætti, ljóðalestur og fleira.
NEMENDUR Varmalands-
skóla í Borgarfirði héldu dag ís-
lenskrar tungu hátíðlegan eins
og svo margir aðrir Íslending-
ar. Foreldrum var boðið að
koma í Þinghamar og njóta
vandaðrar dagskrár þar sem
nemendur fluttu leikþætti, ljóð,
upplestur og söng af mikilli
gleði. Allir bekkir höfðu atriði
fram að færa. Varmalandsskóli
er einn af fáum dreifbýlis-
grunnskólum sem hafa haldið
nokkuð stöðugum nemenda-
fjölda undanfarin ár og er það
vegna barna námsfólks á Bif-
röst, sem sækja skólann. Í vet-
ur eru nemendur 137 talsins.
Skólastjóri er Flemming Jes-
sen og er hann kominn aftur til
starfa í vetur eftir árs námsleyfi
í Danmörku.
Dagur ís-
lenskrar
tungu
Borgarnes