Morgunblaðið - 20.11.2001, Page 22

Morgunblaðið - 20.11.2001, Page 22
NEYTENDUR 22 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Daily Vits FRÁ S ta n sl a u s o rk a Inniheldur 29 tegundir af vítamínum, steinefnum og Rautt Panax Ginseng. H á g æ ð a fra m le ið sla Apótekin FRÍHÖFNIN Tilboðsdagar Ferbox Zenith hurðir og hliðar Handklæðaofnar Hvítir og krómaðir Handlaugar IFÖ-IDO-Sphinx Einnar handar tæki Neve - Feliu - Kludi Mora-Grohe Hitastillitæki Huber - Mora - Grohe WC Ifö - Ido Macro Heilir klefar Macro Rúnnaðar hurðir Ferbox - Adria Sturtuhorn Hert gler - segullokun Hurðir, stærðir 70-112 cm Tilboð frá kr. 17.666 Hliðar, stærðir 68-90 cm Tilboð frá kr. 9.692 Hæð 76.5-120-181 Breidd 50 og 60 cm Tilboð frá kr. 10.896 Sturtutæki frá kr. 11.220 Baðtæki frá kr. 12.557 Handl.tæki frá kr. 6.628 Eldhústæki frá kr. 6.036 Rúnnaðir eða hornopnun 72x92, 82x82, 82x92, 92x92 Rúnnaðir Tilboð frá kr. 56.482 Hornopnun Tilboð frá kr. 45.893 M. hurð að framan 82x82, 92x92 Tilboð frá kr. 49.031 Hert gler - segullokun Stillanleg stærð 70-80 cm Tilboð frá kr. 18.774 80-90 cm Tilboð frá kr. 19.596 Á vegg - tilboð frá kr. 4.446 Í borði - tilboð frá kr. 8.359 Hert gler - segullokun 70x90, 80x80, 80x90, 90x90 Tilboð frá kr. 36.755 Rúnnaðir botnar m. svuntu Tilboð frá 15.127 • WC IFÖ án setu frá kr. 19.752 • WC setur frá kr.1.527 til 7.563 • WC IDO gólfstútur með setu kr. 24.929 Ármúla 21 - sími 533 2020 Einnig tilboð á öðrum klefum og hreinlætis- tækjum. • Baðkör frá kr. 10.973 • Sturtubotnar frá kr. 4.385 • Stálvaskar frá kr. 4.777 HVERS vegna taka tollverðir ost sem seldur er í almennum verslunum af farþegum í Leifsstöð? Halldór Runólfsson yfirdýralæknir segir í gildi bann við innflutningi á öll- um kjöt- og mjólkurvörum. „Land- búnaðarráðuneytið getur hins vegar gefið sérstakt leyfi fyrir innflutningi á tilteknum vörum að fengnum með- mælum yfirdýralæknis. Fyrirtæki sækja þá um leyfi og leggja fram vott- orð um að varan uppfylli settar regl- ur. Farþegar geta komið með soðnar kjötvörur og gerilsneyddar mjólkur- vörur til eigin nota, en tollvörðum í Keflavík er uppálagt að leggja hald á vöru sem ekki uppfyllir þau skilyrði. Vandinn er hins vegar sá að sjaldn- ast stendur á umbúðunum að varan sé unnin úr gerilsneyddri mjólk sem gerir að verkum að tollvörðum er skylt að halda henni eftir,“ segir Hall- dór. Ostar eru gerðir úr ógerilsneyddri mjólk víða um lönd og segir hann að fræðilegur möguleiki sé á smiti, til dæmis af völdum gin- og klaufaveiki. „Þótt löndin innan Evrópu leyfi flutning á þessum vörum sín á milli er algert bann við innflutningi þeirra hluti af sjúkdómsvörnum sem ávallt hafa verið í gildi hér.“ Halldór segir jafnframt að Íslend- ingar setji strangari reglur en aðrar Evrópuþjóðir, en ekki jafn strangar reglur en lönd Norður-Ameríku og Eyjaálfu. „Við göngum lengra en ná- grannar okkar í Evrópu en ekki næst- um því jafn langt og Bandaríkin og Kanada og hvað þá Ástralía og Nýja- Sjáland, sem eru með allra ströng- ustu reglurnar, enda er um að ræða eylönd sem eiga sambærilegra hags- muna að gæta og við Íslendingar.“ Innflutningur á ógerilsneyddum mjólkurvörum er alfarið bannaður og segir Halldór ástæðuna þá að reglu- gerð um mjólk- og mjólkurvörur kveði á um að ekki sé leyfilegt að selja ógerilsneydda vöru af því tagi á Ís- landi. Sala á útlendum ógerilsneydd- um ostum væri því mismunun. Ger- ilsneyðing var gerð upphaflega vegna ótta við berklasmit og segir Halldór hana ekki úrelt fyrirbæri þótt berklar heyri sögunni til. Um þessar mundir sé hugsunin sú að varna smiti af völd- um salmonellu, kamfýlóbakter og list- eríu og gerilsneyðing á mjólkurvörum sé því fyllilega réttmæt. Ostar verða að vera úr gerilsneyddri mjólk SPURT OG SVARAÐ UM NEYTENDAMÁL FRANSKBRAUÐ er rúmlega 1.000% dýrara í Reykjavík en í Lond- on, samkvæmt könnun Neytenda- samtakanna á matvöruverði í fimm höfuðborgum Evrópu, sem gerð var 24. október síðastliðinn og greint er frá á heimasíðu samtakanna. Í könn- uninni var borið saman verð á algeng- um matvörum, svo sem mjólkurvör- um, fiski, kjöti, brauði, ávöxtum, grænmeti, morgunverðarkorni, drykkjarvörum og fleiru. Könnunin náði yfir 63 vörutegundir og var hæsta verðið í Reykjavík í 28 tilvikum, en í 25 tilvikum í Kaup- mannahöfn. Borgirnar sem um ræðir eru, auk Reykjavíkur og Kaupmanna- hafnar, London, Brussel og Stokk- hólmur. Lægsta verðið var oftast í London, eða í 26 tilvikum, í 19 tilvikum í Bruss- el, í 10 tilvikum í Stokkhólmi og í 3 til- vikum í Kaupmannahöfn. Í Reykjavík var lægsta verðið í sex tilvikum. Þær vörur sem voru á lægsta verði hér voru ófrosin ýsuflök, kíví, laukur, heilhveiti, Heinz-tómatsósa og Pringles-flögur. Athygli vekur að í öll- um tilvikum nema einu, það er hvað ýsuflökin varðar, er um að ræða inn- fluttar vörur. Könnunin var gerð í sambærileg- um verslunum í löndunum fimm og ekki í svokölluðum lágvöruverðs- verslunum. Neytendasamtökin gerðu sambærilega könnun í sömu borgum hinn 20. júní á síðasta ári og kemur í ljós að verðmunur nú er minni en þá. „Einnig vekur athygli lækkun á verði svínakjöts hér á landi en á því sviði virðist samkeppnin blómstra hér,“ segir á heimasíðu NS. Jógúrt 391% dýrari í Reykjavík Eins og fyrr greinir kostaði 600 gramma franskbrauð 190 krónur í Reykjavík (hafði lækkað úr 200 krón- um frá fyrri könnun) en kostaði 17 krónur í London (13 krónur í fyrri könnun), sem er 1.018% verðmunur. Jógúrt án bragðefna er 392% dýr- ari í Reykjavík en Brussel, hvít- mygluostur 392% dýrari í Reykjavík en Stokkhólmi og frosinn kjúklingur 224% dýrari í Reykjavík en London og er þá verið að tala um muninn á hæsta og lægsta verði. Tómatar voru 301% dýrari í Reykjavík en Stokk- hólmi og blómkál 283% dýrara í Reykjavík en Brussel. Mjólk er rúmum 34% dýrari í Reykjavík en Brussel og lífræn mjólk rúmum 55% dýrari í Reykjavík en London. Aðrar vörur sem voru dýrastar í Reykjavík eru blámygluostur, jógúrt með bragðefnum, nautahakk og nautagúllas, heill frosinn og ferskur kjúklingur, beinlausar, ferskar kjúk- lingabringur og bananar. Grænmeti sem dýrast var í Reykjavík, auk tóm- ata sem fyrr var getið, er agúrkur, blómkál, sveppir og iceberg-salat. Rúnstykki eru jafnframt dýrust í Reykjavík, sem og Kellogg’s korn- flögur. Þá má nefna kaffi, sem jafn- framt var dýrast í Reykjavík, ótil- greindan ódýran kóladrykk, og Bounty, Kit Kat og Snickers. Verðdæmin sem tilgreind eru mið- ast við verð með virðisaukaskatti, sem er mismunandi eftir löndunum fimm. Umreiknað er miðað við opinbert við- miðunargengi Seðlabankans 24. októ- ber síðastliðinn. Franskbrauð 1.000% dýrara í Reykjavík Reuters Kíló af banönum kostar 131 krónu í London en 219 krónur í Reykjavík. Neytendasam- tökin kanna mat- vöruverð í fimm höfuðborgum NÓI-Síríus hefur gefið út kökubækl- inginn Gleði í bragði, og er það í áttunda sinn sem slíkur bækl- ingur kemur út á vegum fyrirtæk- isins, samkvæmt tilkynningu. Í bæklingnum eru 25 uppskriftir. Gleði í bragði kostar 139 krónur og fæst í verslunum um allt land. Komið hefur í ljós að ein villa hef- ur slæðst inn í textann, segir enn- fremur í tilkynningu frá Nóa-Síríusi. „Uppskriftin heitir Kattartungukúla og er á annarri opnu. Í stað Tia Maria búðingsdufts, eins og stendur í bókinni, á að vera Tíramísú búð- ingsduft sem fæst í öllum verslun- um.“ Kökubæklingur frá Nóa-Síríusi NÝ GERÐ af Freschetta pítsum og fleiri gerðir af pasta hafa bæst við vörulager Ó. Johnson & Kaaber. Um er að ræða pítsu með „bolognese“ áleggi og fimm gerðir af nýju pasta, þar af þrjár með fyllingu (tortellini), segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Í sömu línu eru tvær tegundir af pastasósu sem hituð er í potti áður en henni er hellt yfir. Réttirnir sem um ræðir eru fljótlegir í undirbún- ingi þar sem ekki þarf að sjóða past- að nema í 3–5 mínútur áður en það er tilbúið, segir ennfremur í tilkynn- ingu. Fyllt pasta og fleiri pítsur NÝTT G læ si le g a r g ja fa vö ru r Skál kr. 8.350 Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-14.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.