Morgunblaðið - 20.11.2001, Side 24
ERLENT
24 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NORÐURBANDALAGIÐ sam-
þykkti á sunnudag að ræða við leið-
toga annarra afganskra fylkinga um
myndun bráðabirgðastjórnar og að
viðræðurnar færu fram í Evrópu.
Áður hafði bandalagið krafist þess
að viðræðurnar færu fram í Kabúl.
Bandaríkjastjórn hefur lagt fast
að Norðurbandalaginu að fallast á
viðræður utan yfirráðasvæða þess í
Afganistan og bandarískir embætt-
ismenn sögðu að tilslökun banda-
lagsins greiddi fyrir myndun bráða-
birgðastjórnar, sem ætlað er að
fylla valdatómarúmið í Afganistan
eftir fall talibanastjórnarinnar í
norðurhluta landsins og afstýra því
að nýtt borgarastríð blossi upp.
Utanríkisráðherra Norðurbanda-
lagsins, Abdullah, skýrði frá tilslök-
uninni eftir fund í Tashkent, höf-
uðborg Úsbekistans, með James
Dobbins, sendimanni Bandaríkja-
stjórnar. Abdullah sagði að Norður-
bandalagið gæti fallist á nokkra
fundarstaði, sem Sameinuðu þjóð-
irnar lögðu til, og nefndi Þýskaland,
Sviss og Austurríki í því sambandi.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði að Pastúnar,
stærsti þjóðflokkurinn í Afganistan,
hefðu samþykkt að taka þátt í við-
ræðum um myndun nýrrar stjórnar
en Norðurbandalagið hefði tafið
þær. Óljóst er þó enn hverjir verða
fulltrúar Pastúna í viðræðunum
vegna átaka og glundroða sem ríkir
á svæðum þeirra í suðurhluta Afg-
anistans.
Í fyrirhuguðum viðræðum í Evr-
ópu mun reyna á það hvort leiðtog-
ar þjóðarbrotanna og stríðsherrar
Afganistans geti slíðrað sverðin eft-
ir nær látlausar erjur í rúma tvo
áratugi og myndað stjórn með aðild
allra þjóðarbrotanna.
Nokkrar afgönsku fylkinganna
vilja að stjórnin verði undir forystu
Mohammeds Zahirs Shah, 87 ára
fyrrverandi konungs Afganistans.
Hann var við völd í 40 ár til ársins
1973 og er talinn eini maðurinn sem
geti sameinað Afgana.
Norðurbandalagið er laustengt
bandalag Úsbeka, Tadsjika og fleiri
fylkinga og óttast er að það neiti að
mynda stjórn með Pastúnum.
Rabbani snýr aftur til Kabúl
Leiðtogi Norðurbandalagsins,
Burhanuddin Rabbani, fyrrverandi
forseti, sneri aftur til Kabúl um
helgina, fimm árum eftir að talib-
anar hröktu hann frá höfuðborg-
inni. Rabbani var við völd á árunum
1992-96 og valdatími hans ein-
kenndist af blóðugum átökum stríð-
andi fylkinga og spillingu. Hann
neitaði því að koma hans til höf-
uðborgarinnar myndi leiða til frek-
ari blóðsúthellinga. „Við komum til
Kabúl til að hvetja til friðar,“ sagði
hann.
Abdullah sagði að viðræðurnar
kynnu að hefjast í vikunni en Pow-
ell sagði að enn hefði ekki náðst
samkomulag um fundarstaðinn. „Ég
vona að þær hefjist innan nokkurra
daga, ekki nokkurra vikna,“ sagði
Powell.
Bandaríski utanríkisráðherrann
sagði að Norðurbandalagið hefði
hagað sér „nokkuð vel“ í Kabúl.
„Það hefur haldið þorra hermanna
sinna utan við Kabúl eins og við
vonuðum og báðum bandalagið
um.“
Condoleezza Rice, þjóðaröryggis-
ráðgjafi Bandaríkjanna, sagði að
ýmislegt benti til þess að leiðtogar
Norðurbandalagsins viðurkenndu
þörfina á því að mynda breiða sam-
steypustjórn í Afganistan til að af-
stýra átökum milli þjóðarbrotanna.
BANDARÍSKAR herflugvélar
héldu í gær áfram sprengjuárásum
á Kunduz, síðasta vígi talibana í
norðurhluta Afganistans, þar sem
Norðurbandalagið hefur setið um
þúsundir hermanna talibana síð-
ustu daga. Fregnir herma að liðs-
menn al-Qaeda, samtaka sádi-arab-
íska hryðjuverkaforingjans Osama
bin Ladens, hafi myrt talibana til
að koma í veg fyrir að þeir flýðu.
Talið er að 20-30.000 talibanar
séu í Kunduz og þar af sé um þriðj-
ungurinn útlendingar, aðallega
Pakistanar, arabar og Tsjetsjenar
sem tengjast al-Qaeda.
Yfirmaður hersveita talibana í
Kunduz, Fazil, sagði í gær að meira
en 1.000 manns hefðu látið lífið í
loftárásum á Kunduz og nágrenni
borgarinnar um helgina. Hann
sagði talibana vera tilbúna að gef-
ast upp en setti það skilyrði að upp-
gjöfin yrði undir eftirliti Samein-
uðu þjóðanna.
Segjast ekki ætla að
þyrma útlendingunum
Fazil sagði að ekki kæmi til
greina að talibanar gæfu sig Norð-
urbandalaginu á vald vegna frétta
um að hermenn þess hefðu myrt
talibana í Kabúl og Mazar-e-Sharif
eftir fall borganna í vikunni sem
leið. „Við treystum þeim ekki.“
Fazil setti m.a. þau skilyrði að
afganskir liðsmenn talibana fengju
að fara til heimahéraða sinna og að
útlendingarnir, þeirra á meðal liðs-
menn al-Qaeda, yrðu fluttir til
heimalanda sinna undir vernd
Sameinuðu þjóðanna.
Nokkrir herforingja Norður-
bandalagsins sögðu að þeir myndu
þyrma afgönskum talibönum sem
gæfust upp en ekki liðsmönnum al-
Qaeda. „Við verðum að drepa út-
lendingana, menn al-Qaeda, vegna
þess að þeir eru mikil illmenni,“
sagði einn herforingjanna.
Leiðtogar Norðurbandalagsins
sögðust hafa frestað framrás inn í
Kunduz í von um að loftárásirnar
dygðu til að knýja talibana til upp-
gjafar. „Sprengjurnar féllu á réttu
staðina,“ sagði einn þeirra. „Her-
menn okkar hafa séð talibana flytja
burt særða og fallna félaga sína.“
Fregnir herma að margir af tal-
ibönunum vilji gefast upp frekar en
að berjast en útlendingarnir vilji
ekki leyfa þeim það og handtaki þá
sem grunaðir eru um að vilja flýja.
Einn af herforingjum Norður-
bandalagsins sagði að liðsmenn al-
Qaeda hefðu drepið allt að 500 tal-
ibana á síðustu dögum til að koma í
veg fyrir að þeir flýðu.
Breska blaðið The Sunday Tele-
graph sagði að arabískur foringi
liðs al-Qaeda í Kunduz hefði fyr-
irskipað dráp á 150 afgönskum tal-
ibönum á föstudag eftir að um
1.000 talibanar hefðu flúið frá borg-
inni. Liðsmenn al-Qaeda hefðu
einnig handtekið rúmlega 100 íbúa
borgarinnar og héldu þeim í gísl-
ingu.
Að sögn flóttafólks frá Kunduz
hafa liðsmenn al-Qaeda einnig
meinað íbúum borgarinnar að flýja
og neytt unga borgarbúa til að
ganga til liðs við varnarsveitir tal-
ibana.
Erlendir liðsmenn al-Qaeda eru
sagðir vilja fyrirfara sér frekar en
að gefast upp fyrir Norðurbanda-
laginu. „Einn arabanna gafst upp í
vikunni sem leið,“ sagði einn her-
foringja bandalagsins. „En hann
var með sprengiefni innan á sér og
sprengdi sig í loft upp. Fjórir
manna okkar létu lífið.“
Viðræður í Kandahar
Borgin Kandahar í suðurhluta
Afganistans virðist enn vera á valdi
talibana þrátt fyrir fregnir í vik-
unni sem leið um að leiðtogi þeirra,
Mohammed Omar, hefði samið um
að hann fengi að fara frá borginni.
Afganskir heimildarmenn í Pakist-
an sögðu að nefnd pastúna væri í
Kandahar til að reyna að semja við
talibana um að þeir afsöluðu sér
völdum.
Norðurbandalagið situr um þúsundir talibana í Kunduz
Liðsmenn al-Qaeda
sagðir myrða liðhlaupa
Kabúl. The Washington Post, AFP, AP.
Fast lagt að Norðurbandalaginu að mynda stjórn með öðrum fylkingum
Reuters
Sjónvarpið í Kabúl hóf aftur út-
sendingar á sunnudag. Hér býð-
ur Mariam Shakebar, 16 ára
gömul stúlka, áhorfendur vel-
komna að skjánum eftir fimm
ára langt bann talibana.
AP
Rabbani, fyrrverandi forseti, á blaðamannafundi í Kabúl ásamt varnarmálaráðherra sínum, Fahim.
Fellst á viðræð-
ur í Evrópu
um nýja stjórn
Washington, Íslamabad. The Washington Post, AFP.
AP
Hermenn Norðurbandalagsins skjóta á talibana í Kunduz-héraði en talið er, að 30.000 þeirra verjist þar enn.