Morgunblaðið - 20.11.2001, Síða 25

Morgunblaðið - 20.11.2001, Síða 25
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 25 SÍÐUSTU skoðanakannanir benda til, að jafnaðarmenn og samstarfs- flokkar þeirra í ríkisstjórn muni tapa í kosningunum í Danmörku í dag og við taki ríkisstjórn borgaraflokkanna undir forystu Venstre. Umræðan um málefni innflytjenda hefur skyggt á allt annað í kosningabaráttunni og ljóst er, að þeim flokkum, sem vilja takmarka innflytjendastrauminn sem mest, muni vegna best. Poul Nyrup Rasmussen, forsætis- ráðherra og leiðtogi jafnaðarmanna, skoraði í gær á kjósendur að kjósa með hjartanu. „Veltið því fyrir ykkur í kjörklef- anum hvað í húfi er,“ sagði Nyrup í sjónvarpsviðtali og beindi orðunum ekki síst til þeirra fjölmörgu, sem enn hafa ekki gert upp hug sinn. „Hlustið eftir hjartanu og leiðið hugann að framtíð landsins.“ Skoðanakönnun, sem birtist í gær í Jyllands-Posten, sýnir, að Venstre og leiðtogi hans, Anders Fogh Rasmus- sen, muni vinna mikinn sigur í kosn- ingunum í dag og fá um þriðjung allra atkvæða. Saman muni borgaraflokk- arnir fá 56% atkvæða á móti 44% rík- isstjórnarflokkanna. Í könnun, sem Politiken birti fá borgaraflokkarnir 58% en ríkisstjórnin 41%. Þá höfðu 14% kjósenda ekki ákveðið hvað þeir ætluðu að kjósa. Því er ekki aðeins spáð, að Venstre muni vinna verulega á, heldur einnig Danski þjóðarflokkurinn, sem spratt út úr Framfaraflokknum á sínum tíma. Vill hann ganga allra flokka lengst í því að takmarka innflytjenda- strauminn til Danmerkur og hefur oft verið sakaður um öfgar af versta tagi. Ljóst er, að borgaraflokkarnir munu ekki geta myndað ríkisstjórn án hans. Nyrup sagði í gær, að í fyrsta sinn frá árinu 1929 værri hætta á, að til valda kæmi í Danmörku ríkisstjórn, sem byggði á öfgafullri hægristefnu. Minnti hann einnig á, að efnahagur Dana hefði blómstrað eftir að hann tók við völdum 1993 og atvinnuleysi hefði ekki verið minna í 25 ár. Um þetta er raunar ekki deilt en eins og fyrr segir, þá eru það innflytjenda- málin, sem vega þyngst í þessum kosningum. Nyrup hefur reynt að beina kosn- ingabaráttunni inn á aðrar brautir en með heldur óvissum árangri. Í gær lofaði hann kjósendum skattalækkun undir lok næsta kjörtímabils svo fremi efnahagsástandið verði gott en hingað til hafa jafnaðarmenn ekki verið til tals um að lækka skatta. Gerði hann þetta raunar tilneyddur því að Marianne Jelved, leiðtogi Rad- ikale Venstre, samstarfsflokks jafn- aðarmanna, gerði honum tvo kosti. Annaðhvort yrðu skattarnir lækkaðir eða flokkur hennar hætti samstarfi við jafnaðarmenn. Ekki er víst, að Nyrup hagnist neitt á þessari yfirlýsingu því að borgara- flokkarnir, Íhaldsflokkurinn og Venstre, hafa það báðir á sinni stefnu- skrá að lækka skatta. Borgaraflokkunum spáð öruggum meirihluta í kosningunum í Danmörku í dag Líklegt að Venstre vinni stórsigur                              !     "# $        % & ' ( ) "      *!   + , , - . $ /  - 01112    ! "  !  #$%##&'() *%&'('+, -$ -!./ +/  +, +0/   1/. 23  4- 5$(6 %$56 #$*6 3.4,5 ,%6).7&8) "89,8&: ;,% < 8&:8 &= 8&:86 )*"8,>?)& + !. +-!  )78+,! 3+9+,+  +,+0/  !+  +,+1/. 0/  +:,+:, +:  +,+)8*( +1/ . +,+)878 ; + ++, !++,  +-/ :! ,- , / ++9  +,+ +9 +,--+ +,+,  +<  + -/  0 '  @    A -    B $ ' C   1 ' C  $+ D  +     ++ =. - +   ++ >>- +9  ,--! + +0/  ! 0, ,--! ++ 4- +9   ,--!++ ;    +9   ,--! +++ :.,--!+++  . ? - +++ ,    AE F 0G G+,+1/. +,+0/  ! +1/.    Kaupmannahöfn. AFP. RÚSSAR og fulltrúar skæru- liða í Tsjetsjníu hafa hafið við- ræður með það fyrir augum að binda enda á ófriðinn í landinu. Fréttaskýrendur eru þó ekki trúaðir á, að um semjist á næstunni og benda á, að rússnesku herforingj- arnir séu andvígir öll- um samn- ingum. Akhmed Zakayev, fulltrúi Aslans Maskhadovs, leiðtoga skæruliðanna, átti við- ræður við Víktor Kazantsev, fulltrúa rússnesku stjórnarinn- ar, í Moskvu á sunnudag. Á fréttamannafundi í Istanbúl í Tyrklandi í gær sagði hann, að með þeim hefði verið brotið í blað og vonandi leiddu þær til þess, að friður kæmist á eftir blóðug átök í tvö ár. Virðast viðræðurnar mælast vel fyrir meðal Rússa almennt. Í hern- um, einkanlega meðal hers- höfðingja í Tsjetsjníu, er hins vegar annað upp á teningnum. Þeir vilja ekki semja við skæru- liða um eitt né neitt. Rugova sigraði í Kosovo LDK-flokkur Ibrahims Rug- ova vann sigur í þingkosning- unum í Kosovo, sem fram fóru á laugardag. LDK hlaut 46,29% atkvæða, en PDK-flokkur Hashims Thaci fékk 25,54% at- kvæða og AAK-flokkur Ram- ush Haradinaj 7,82%. Rugova hefur lengi verið álitinn helsti leiðtogi hófsamari aflanna í Kosovo og búist er við að þingið kjósi hann forseta. Kosningarnar voru þær fyrstu í Kosovo síðan héraðið var sett undir stjórn Samein- uðu þjóðanna árið 1999. Flugslys í Rússlandi RÚSSNESK fjögurra hreyfla skrúfuþota af gerðinni IL-18 með 18 farþega innanborðs og sex manna áhöfn hrapaði í gær í héraðinu Jaroslav í norður- hluta landsins, að sögn emb- ættismanna í Moskvu. Björg- unarmenn voru komnir á staðinn en talið var að allir hefðu farist. Vélin hrapaði um 20 kílómetra frá þorpinu Kalj- asín og hvarf hún af ratsjám skömmu fyrir hálftíu í gær- kvöldi að staðartíma. Hún var á leið frá bænum Khatanga til Moskvu. IL-18 er með sæti fyr- ir 100 farþega og var tegundin tekin í notkun 1957. Ekki var vitað hvað olli slysinu í gær. Uppsagnir hjá Alcoa BANDARÍSKA álfyrirtækið Alcoa, sem er það stærsta í heimi, ætlar að segja upp 6.500 starfsmönnum í verksmiðjum sínum í Ameríku og Evrópu. Er um að ræða 4,6% af öllum starfsmannafjöldanum, 140.000 manns. Eru uppsagnirnar sagðar hluti af endurskipulagn- ingu fyrirtækisins í kjölfar kaupa þess á álframleiðandan- um Reynolds Metals Co. STUTT Rætt um frið í Tsjetsjníu Akhmed Zakayev Moskvu. AP, AFP. GERHARD Schröder, kanslari Þýskalands, var endurkjörinn leiðtogi þýska Jafnaðarmannaflokks- ins á landsþingi flokksins í gær. Í ræðu á þinginu hvatti hann til einingar meðal jafnaðarmanna um þátttöku í herförinni gegn hryðjuverkum. Scröder kvaðst í ávarpi sínu vilja sjá Þjóðverja leika stærra hlutverk á alþjóðavettvangi. „Ef við gefum eftir mun þjóð okkar líða fyrir. Þess vegna þarfnast ég stuðnings ykkar við stefnuna sem þýska þingið samþykkti á föstudag,“ sagði kansl- arinn og vísaði til traustsyfirlýsingar við ríkis- stjórnina sem samþykkt var á þinginu. Í henni fólst stuðningur við þátttöku 3.900 þýskra hermanna í aðgerðunum í Afganistan, en nokkrir þingmenn græningja höfðu hótað að standa í vegi fyrir því. Schröder beindi jafnframt þeim skilaboðum til græningja að stjórnarsamstarfið myndi standa, en einungis ef þeir hlýddu stefnu kanslarans. Sagði hann græningja þurfa að „svara því hvort þeir væru reiðubúnir að horfast í augu við raunveruleikann eða muni láta stjórnast af fortíðarþrá og afneitun“. Landsþing Græningjaflokksins verður haldið um næstu helgi og búist er við að hófsamari armurinn með utanríkisráðherrann Joschka Fischer í farar- broddi muni leggja allt kapp á að telja róttækari arminn á að fylgja stefnu stjórnarinnar í utanríkis- málum. Schröder hvetur til einingar innan SPD Nürnberg. AP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.