Morgunblaðið - 20.11.2001, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 20.11.2001, Qupperneq 26
LISTIR 26 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Málþing í Íslensku óperunni á Degi tónlistar fimmtudaginn 22. nóvember 2001 kl. 13-17 Ópera á tímamótum DAGSKRÁ: Umræðuefni málþingsins er framtíð Íslensku óperunnar. Yfirskriftin, Ópera á tímamótum, vísar til þess að nýr samningur milli Óperunnar og ríkisins um stóraukin framlög úr ríkissjóði, ásamt aukinni þátttöku atvinnufyrirtækja í rekstrinum, markar upphafið að nýju tímabili í starfsemi Íslensku óperunnar. Jafn- framt hefur stjórn Óperunnar ákveðið að hugað skuli að nýju framtíðarhúsnæði fyrir starfsemina og hef- ur óskað eftir því að kannaðir verði möguleikar á aðild að fyrirhuguðu tónlistarhúsi í miðbænum. Á mál- þinginu verður fjallað sérstaklega um tvö áhersluatriði varðandi framtíð Íslensku óperunnar: • Staða Óperunnar sem menningarstofnunar – ein eða með öðrum? • Framtíðarhúsnæði Óperunnar – ein eða með öðrum? 13.00: Málþingið sett Jón Ásbergsson, formaður stjórnar Íslensku óperunnar 13.10: Ávarp Þórleifur Jónsson, formaður Vinafélags Íslensku óperunnar 13.20: Framtíð Íslensku óperunnar Bjarni Daníelsson, óperustjóri Ólafur Kjartan Sigurðarson óperusöngvari Kristinn Sigmundsson óperusöngvari og formaður listráðs Íslensku óperunnar 13.50: Atvinnulífið og Óperan Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar Ragnar Önundarson, framkvæmdastjóri Europay Íslands 14.10: Tónlistarhús Helgi Gunnarsson, verkfræðingur hjá VSÓ og starfsmaður verkefnisstjórnar um byggingu tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar Ólafur Hjálmarsson, hljóðverkfræðingur hjá Línuhönnun 14.30: Íslenska óperan og aðrir óperuflytjendur Jóhann Smári Sævarsson, óperusöngvari og listrænn stjórnandi Norðuróps 14.40: Kaffihlé Veitingar í boði Radisson SAS Hótels Sögu 15.10: Almennar umræður 16.45: Málþingi slitið Allir þeir sem áhuga hafa á málefninu eru velkomnir. Gert er ráð fyrir þátttöku söngvara og annars tónlistarfólks, fulltrúa menningarstofnana á sviði tónlistar og leiklistar, fulltrúa félagasamtaka um lista- og menningarstarf, fulltrúa at- vinnulífs og opinberrar stjórnsýslu, fjölmiðlafólks og almennings. Málþingsstjóri: Jón Ásbergsson, formaður stjórnar Íslensku óperunnar ÞÆR Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari og Anna Guðný Guð- mundsdóttir píanóleikari halda tón- leika í Tíbrártónleikaröðinni í Saln- um í Kópavogi í kvöld. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og á efnisskránni eru verk eftir Gaubert, Hummel, Mart- inu og Jovilet. Áshildur segir verkin á efnis- skránni vera voldug og kraftmikil ef miðað er við flautubókmenntirnar almennt. „Við flytjum til dæmis tvö verk eftir André Jovilet, sem bæði eru mjög krefjandi og kraftmikil,“ segir Áshildur. „Annað heitir „Chant de Linos“ eða „Söngur Lin- osar“, dramatískt verk, sem jafn- framt er frægt fyrir að vera mjög tæknilega krefjandi og er það oft flutt í keppni. Þá flytjum við sónötu eftir tónskáldið og hefur hún ekki verið flutt hér á landi áður svo ég viti.“ Verkin samdi Jovilet um miðja tuttugustu öld og bendir Áshildur á að tónskáldið hafi sökkt sér talsvert í frumbyggjatónlist í tónsmíðum sín- um. Önnur verk á efnisskránni eru m.a. sónata eftir Hummel, „mjög vel skrifuð og klassísk sónata sem ekki heyrist oft hér á landi,“ segir Ás- hildur. „Síðan er á efnisskránni verk sem ég hef flutt nokkuð, Nocturne et Allegro Scherzando eftir Gau- bert. Það er eitt af þessum dæmi- gerðu flautustykkjum og fá þar blíð- ari hliðar flautunnar að njóta sín. Verkið er samið í byrjun blóma- skeiðs flautunnar við upphaf síðustu aldar. Gaubert var allt í senn mjög góður flautuleikari, stjórnandi og tónskáld. Hann samdi mikið af frá- bærum verkum fyrir flautu og átti hann stóran þátt í þeirri vakningu sem varð í flautuleik á þessum tíma,“ segir Áshildur og nefnir að lokum síðasta verkið á efnisskránni, sónötu eftir Martinu sem skrifuð er við lok síðari heimsstyrjaldar. „Tón- skáldið hafði flúið undan nasistum frá Prag, fyrst til Parísar en síðan til Bandaríkjanna. Sónatan er skrif- uð þegar stríðinu er nýlokið og er uppfull af von og bjartsýni.“ En hvers vegna urðu þessi ákveðnu verk fyrir valinu á þessum fyrstu tónleikum þeirra Áshildar og Önnu Guðnýjar? Áshildur segist hafa fylgst með Önnu Guðnýju í gegnum árin og alltaf hafa verið mjög hrifin af hljóðfæraleik hennar. „Við höfum spilað saman verk annað slagið en aldrei á heilum tónleikum eins og við ætlum að gera í kvöld. Mér fannst tími til kominn að við leiddum saman hesta okkar og not- aði ég tækifærið til að draga fram nokkur stór og erfið verk. Ég hafði þarna tækifæri til að spila með frá- bærum píanóleikara, í fínum sal með frábæru hljóðfæri og fannst því við hæfi að taka fyrir nokkur metnaðar- full verk,“ segir Áshildur. Samleikur flautu og píanós á Tíbrártónleikum „Voldug og kraftmikil verk“ Morgunblaðið/Ásdís „Okkur fannst tími til kominn að leiða saman hesta okkar,“ segja Áshildur Haraldsdóttir flautu- leikari og Anna Guðný Guð- mundsdóttir píanóleikari sem halda tónleika í Salnum í kvöld. Á HÁSKÓLATÓNLEIKUNUM í Norræna húsinu á morgun frum- flytur Áskell Másson slagverksleik- ari eigið verk, Tempus fugit. Tón- leikarnir hefjast kl. 12.30 og taka um það bil hálfa klukkustund. „Þetta verk er samsett úr ýms- um hugleiðing- um sem dvalið hafa með mér í allmörg ár. Tempus fugit er einskonar hugleiðsla um tímann í efninu, umhverfinu og okkur sjálf- um,“ segir Áskell en inn í þetta nýja verk fléttar hann líka tvö eldri verk. Tempus fugit er latína og þýðir strangt til tekið „tíminn flýgur“. Að sögn Áskels er hugsunin í orðasam- bandinu hins vegar „tíminn líður“, það er að segja stendur ekki í stað. „Það er svo merkilegt að í íslensku hefur orðið „flýgur“ í sér merk- inguna „hratt“. Þegar maður notar þetta orð, „flýgur“, dettur engum annað í hug en átt sé við eitthvað sem gerist og fer hratt. Það er dá- lítið sérkennilegt.“ Talandi um hraða segir Áskell honum vissulega til að dreifa í verk- inu. Þar sé farið öfganna á milli, úr mesta hraða yfir í hægan takt og jafnvel algjörlega fljótandi. „Eitt- hvað sem líður,“ eins og tónskáldið tekur til orða. „Í hægu köflunum fer ég aðeins út hugleiðingar sem svip- ar til austurlenskrar hugleiðslu. Reyni að kalla fram hljóð úr hljóð- færunum þannig að þau syngi sjálf.“ Leikur á sjaldheyrð hljóðfæri Áskell stendur einn að flutningn- um en hefur sér til fulltingis fjöldann allan af hljóðfærum. Þeirra á meðal sum sem sjaldan heyrast á tónleikum hér á landi. „Mörg af þessum hljóðfærum eru ættuð frá Austurlöndum, bæði nær og fjær, en þarna verður líka íslenskt járn og blikk, svo einhver dæmi séu tek- in,“ segir Áskell en leggur áherslu á að sjón og heyrn séu sögu ríkari. Áskell hefur í seinni tíð verið meira áberandi sem tónskáld en slagverksleikari. Kemur sjaldan fram. Hvað togaði í hann núna? „Í rauninni ekkert sérstakt, nema helst sú staðreynd að það er orðið langt síðan ég hef gert þetta. Ég hef alltaf æft vel og haldið mér við efnið. Það er því ágætt að halda tónleika annað veifið.“ Að áliti Áskels er alltaf erfiðast að koma einn fram. Þannig leggi menn mest undir. „Á móti kemur að þetta er alltaf jafn spennandi.“ Aðgangseyrir er 500 kr. Ókeypis er fyrir handhafa stúdentaskírtein- is. Áskell Másson á Háskólatónleikum Hugleiðsla um tímann Áskell Másson ÉG MAN hvað ég var hrifin þegar ég sá Red Rock West, myndina sem kom John Dahl á kortið sem leik- stjóra. Mér fannst þetta flott mynd og geymdi nafnið vel í minni mér. Svo sá ég lítið af því sem hann gerði þar til í hitteðfyrra að ég sá myndina Rounders með Edward Norton og Matt Damon. Þar var margt gott að sjá og þótt ég væri ekki alveg nógu ánægð með myndina hafði hún yfir sér vissan klassa. Það er ekki hægt að segja það sama um Joy Ride. Þetta er eigin- lega algjör B-mynd, þar sem engar kröfur eru gerðar aðrar en þær að áhorfendur séu spenntir allan tím- ann. Þetta er síðan auðvitað kryddað með smá húmor og örlitlum kyn- þokka og þá er pakkinn fullkominn. Fyrir mig er þetta örlítið svekkjandi, ég bjóst við meiru. Myndin byrjar á svipuðu upphafi og í Red Rock West, þar sem „panað“ er upp auglýsinga- skilti sem stendur fyrir utan dæmi- gerðan amerískan matsölustað í eyðimörkinni. Eftir það er listræn- um tilþrifum lokið. Myndin minnir fljótlega á Duel eftir Spielberg, en fljótlega kemur í ljós að þar er engu saman að líkja. Sagan fjallar um háskóladrenginn Lewis (Walker) sem ætlar sér að næla í vinkonu sína Vennu (Sobi- eski) og býðst því til að ná í hana til Colorado og keyra hana til New Jersey. Á leiðinni leysir hann bróður sinn (Zahn) út úr fangelsi í Salt Lake City. Drengirnir gera at í einmana vörubílstjóra í gegnum talstöð, en það grín á heldur betur eftir að snúast upp í hrylling þar sem sá hlær best er síðast hlær! Leikararnir standa sig ágætlega. Handritið gerir ekki miklar kröfur til Paul Walker og Leelee Sobieski, sem eru bara sæt, ung og góð. Steve Zahn, sem mér finnst mjög skemmti- legur leikari, er bróðir góða stráks- ins sem ratað hefur af réttri leið. Hann vinnur vel úr sínu, en hlutverk- ið hefði mátt vera enn kryddaðra. Ef ég á að segja myndinni eitthvað til hróss virkar hún sem spennu- mynd og þannig á það auðvitað að vera. Spennumynd sem virkar KVIKMYNDIR Regnboginn og Smárabíó Leikstjórn: John Dahl. Handrit: Clay Tarv- er og Jeffrey Abrams. Kvikm.t:. Jeff Jur. Aðahlutverk: Paul Walker, Steve Zahn og Leelee Sobieski. 96 mín. USA. 20th Century Fox 2001. JOY RIDE  (SKEMMTIFERÐIN) Hildur Loftsdóttir Úr kvikmyndinni Joy Ride. NÚ stendur yfir í Eden í Hveragerði fjórða málverkasýning Gunnþórs Guðmundssonar. Á sýningunni eru um 50 myndir í pastelkrít og akríl og eru nær 30 myndir nýjar. „Þetta eru landslagsmyndir og myndir af ýmsu tagi, sumar mætti kalla dulrænar eða andlegar. Ég legg mikið uppúr fögrum litum en vil þó hafa þær eðlilegar, enda skortir ekki litadýrð í náttúrunni,“ segir Gunnþór. Sýningin stendur til 10. desember. Pastel- og akrílmyndir í Eden ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.