Morgunblaðið - 20.11.2001, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 20.11.2001, Qupperneq 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 27 þvottavél 100 0 sn. + þurrka riPakkatilboð BJARNI Guðnason, prófessor emer- itus, heldur opinberan fyrirlestur í boði heimspekideildar Háskóla Ís- lands í stofu 101 í Odda í dag kl. 17.15. Fyrirlesturinn nefnist: Heimsflótti Guðrúnar Ósvífursdóttur, og verður fjallað um Guðrúnu sem kvenskörung og trúkonu. Einkum verður reynt að skýra orsakir til þess að hún er sögð hafa orðið fyrsta nunnan og einsetu- konan á Íslandi. Lögð verður áhersla á að draga fram persónueinkenni Guðrúnar og eðli Laxdæla sögu. Bjarni Guðnason var prófessor í ís- lenskum bókmenntum Háskóla Ís- lands frá 1963–1998 en þá lét hann af störfum fyrir aldurs sakir. Hann hef- ur ritað fjölda bóka og greina um ís- lenskar miðaldabókmenntir. Fyrirlestur um Guðrúnu Ósvífursdóttur HJALLAKIRKJA er nútímaleg að formi og það sem er mikilvægt fyrir tónlistarflutning, að heyrðin í kirkju- skipinu er sérlega góð. Hið nýja orgel (vígt 25. febrúar sl.), sem smíðað er af Björgvin Tómassyni, stendur gegnt altarinu, glæsileg smíð, en einnig sér- lega hljómfallegt. Efnisskrá Hauks Guðlaugssonar var sérstaklega valin með hliðsjón af möguleikum orgelsins og var fyrri hlutinn rammaður inn með tveimur orgelforspilum, úr op. 135a eftir Max Reger, fyrst yfir lagið Vor Guð er borg á bjargi traust og það seinna Ver þú með þinni náð. Fyrra lagið var „registerað“ með traustum hljómi og það seinna tvíleik- ið með mismunandi umbúnaði og fal- legri raddskipan. Næstu þrjú verk voru af þýðari gerðinni, Adagio úr 4. orgelkonsert- inum eftir Handel, Krummhorna- bassi (Basse de Cromorne) eftir Clér- ambault og Svanurinn eftir Saint-Saëns. Adagio-þátturinn og Svanurinn voru leiknir í umritun ítalska orgelsnillingsins Fernando Germani, fallega mótuðum umritun- um, t.d. Adagio-þátturinn, sem er upprunalega aðeins fyrir „manual“, var hér útfærður með pedalrödd á mjög smekklegan máta. Krumm- hornabassinn eftir Clérambault er skemmtilegur raddleikur og var vel fluttur, sem og hin verkin og þá sér- staklega á músíkalskan máta, þar sem þýðleikinn réð ríkjum. Eftir stuttan ljóðalestur séra Írisar Kristjánsdóttur lék Haukur Prelúdíu og fúgu í C-dúr, K.553, sem er í flokki 8 vafasamra orgelverka, sem eignuð eru J.S. Bach en talin vera eftir nem- anda hans, Johann Ludwig Krebs (1713–1780). Faðir hans, Johann Tobias, var einnig orgelleikari og lærði hjá Walter og seinna hjá J.S. Bach. Prelúdían er einföld, skemmti- lega unnin, í stíl kennarans en smá í formi. Fúgan er hins vegar á engan hátt neitt í líkingu við fúgugerð meistarans. Þrátt fyrir þetta var verkið vel leikið og af öryggi. Tvær umritanir eftir Hauk Guðlaugsson, hægi þátturinn úr vetr- arhluta Árstíðanna eftir Vivaldi og Dans hinna sælu sálna úr óperunni Orfeus og Evridís eftir Gluck, eru fallega út- færðar og voru mjög vel leiknar. Að loknum lestri úr Ritningunni lék Haukur menúettinn úr Gotnesku svítunni eftir Boëllmann, þá næst umritun sína á hinu fræga vögguljóði Maríu eftir Reger og sérkennilegt útgöngu- lag (Sortie) eftir franska undrabarnið og orgel- leikarann Lefébure- Wély (1817–1869) en hann var m.a. orgelleik- ari við Madeleine-kirkj- una og gerði víðreist sem konsertorgelleik- ari. Þetta léttilega út- göngulag var mjög skemmtilega flutt. Fjórða umritun Hauks var Allegro úr Ljóð án orða eftir Mendelssohn og eftir bæn og blessun séra Írisar lék Haukur tokkötuna frægu úr Gotnesku svítunni eftir Boëllmann, nokkuð við hægari mörkin en á skýran og vel mótaðan máta. Þættirnir úr Gotnesku svítunni eftir Boëllmann, kóralforspilin eftir Reger, Krummhornabassinn eftir Clér- ambault, Prelúdían og fúgan eftir Krebs/Bach og glaðhlakkalegt út- göngulagið eftir Lefébure-Wély voru eiginlegu orgelverkin á þessum tón- leikum en umritanirnar eru eins konar þjónustuverk, sem hæfa vel við ýmsar athafnir og nýtast sérstaklega til að laða fram það blíðasta og hljómfalleg- asta í orgelregistrinu. Öll verkin lék Haukur mjög fallega og af umritunun- um voru Adagio-þátturinn eftir Hand- el, hægi kaflinn úr Vetrinum eftir Viv- aldi og Vögguljóð Maríu eftir Reger sérlega fallega mótuð og náði Haukur þar að laða fram ekta orgelandakt, enda er orgelið hans Björgvins sérlega hljómfallegt og á einnig til voldugan hljóm, sem aðeins „sást í“ í verkunum eftir Reger og Boëllmann. TÓNLIST Hjallakirkja Haukur Guðlaugsson lék orgelverk og umritanir fyrir orgel. Lék á nýtt orgel Hjallakirkju sem er smíðað af Björgvin Tómassyni. Sunnudagurinn 18. nóvember, 2001. ORGELTÓNLEIKAR Orgelandakt Haukur Guðlaugsson Jón Ásgeirsson  ELÍA nefnist ný geislaplata þar sem flutt er samnefnd óra- tóría eftir Felix Mendelssohn. Flytjendur eru Kór Íslensku óperunnar og félagar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt einsöngvurum. Kristinn Sig- mundsson syngur hlutverk Elía en með önnur einsöngshlutverk fara Hulda Björk Garðarsdóttir, Nanna María Cortes og Garðar Thór Cort- es. Stjórnandi er Garðar Cortes og konsertmeistari Sigrún Eðvalds- dóttir. Óratórían Elía fjallar um atburði í lífi spámannsins Elía, sem uppi var í byrjun níundu aldar fyrir fæðingu Krists. Honum er svo lýst að hann hafi birst samtímamönnum sínum á leyndardómsfullan hátt út úr óljósri fortíð og varist sem hermaður Guðs. Hápunktur verksins er bar- átta Elía við hina heiðnu presta falsguðsins Baals. Útgefandi er Kór íslensku óp- erunnar en Edda – miðlun og út- gáfa sér um dreifingu. Diskurinn er tvöfaldur og fóru upptökur fram á tvennum tónleikum í Langholts- kirkju í desember á síðasta ári. Upptökustjóri var Halldór Víkings- son. Verð: 2.999 kr. Óratóría ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.