Morgunblaðið - 20.11.2001, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 20.11.2001, Qupperneq 28
LISTIR 28 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ að fylgir því sannur jóla- andi að tengja jólakort við líknarmál. Jólakort eru svo miklu meira virði þegar þau geta bætt mannlífið á einhvern hátt og margir vilja nota tækifærið til að styrkja gott málefni þegar þeir kaupa jóla- kortin. Hér er komið gott tækifæri til þess. Ég vona að þetta sameiginlega framtak okkar og Krabbameinsfé- lagsins eigi eftir að skila myndar- legu framlagi í sjóði félagsins og með því að kaupa kortin okkar geta einstaklingar og fyrirtæki lagt bar- áttunni við krabbamein lið um jól- in,“ segir Daði Harðarson, fram- kvæmdastjóri Nýrra vídda. Samstarf í góða þágu Nýjar víddir og Krabbameinsfélagið gerðu nýlega með sér samning um að félagið njóti góðs af allri jólakorta- sölu fyrirtækisins í ár. Það gæti því orðið vegleg upphæð sem Nýjar vídd- ir færa Krabbameinsfélaginu eftir jól- in ef undirtektir almennings verða góðar. „Mér hefur lengi þótt rétt að jólakortasala Nýrra vídda sé tengd líknarmálum. Krabbameinsfélagið tók hugmyndinni vel og hún leiddi til samstarfs sem á vonandi eftir að skila góðum árangri. Við erum komin á fullt í undirbúningi jólakortasölunnar. Helstu söluaðilar eru Nýjar víddir, Krabbameinsfélögin um land allt og helstu bókabúðir landsins, aðallega Penninn og versl- anir Máls og menningar. Fyrirtækjaþjónusta Pennans mun ein- nig bjóða fyrirtækjum jólakort Nýrra vídda. Það er mikill hugur í okkur og við vonum svo sannarlega að fólk taki þessu framtaki okkar vel og noti þetta góða tækifæri til að styrkja Krabbameinsfélagið um leið og það sendir vandaða og fallega jólakveðju til vina og viðskiptamanna heima og erlendis.“ Kortin segja mikið um sendandann Kort Nýrra vídda hafa á sér orð fyrir að vera vönduð og búa yfir klassískri fegurð. Þau prýða fallegar vetrar- myndir af íslenskri náttúru sem í flestum tilfella eru prentaðar á báðar úthliðar kortsins, sannkölluð panora- makort. Íslensk vetrarfegurð býr yfir mikilli kyrrð og friði sem höfðar til allra yfir jólin og kortin eru einkar glæsileg þegar þau standa á borði. „Jólakortin segja mikið um sendand- ann,“ segir Daði. „Þess vegna vill fólk að kortin séu falleg og persónu- leg og hafi einhvern góðan boðskap að færa. Ég hef þá trú að við séum að bjóða allt þetta í einum pakka.“ Notaleg stemmning „Það er sífellt að aukast að fyrirtæki sendi viðskiptavinum sínum jóla- kveðju á aðventunni,“ segir Daði. „Sú ágæta hefð hefur skapast í íslenskum fyrirtækjum að stilla upp jólakortun- um á áberandi stað og þessu fylgir notaleg stemmning í desembermán- uði. Fyrirtækjaeigendur gera sér grein fyrir þeim hlýhug sem því fylgir að senda viðskiptavinum sínum jóla- kveðju. Jólakortin styrkja viðskipta- tengsl, minna á þjónustuna sem send- andinn veitir og verða til þess að vekja ánægjulegar minningar næst þegar þarf að hafa samband. Fallegt og vandað jólakort sem styrkir gott málefni ber fyrirtækinu og stjórnend- um þess gott vitni.“ Naglinn bíður! „Það er aldrei of snemmt að undirbúa jólin og stærri fyrirtæki eru þegar far- in að huga að jólakortum og -gjöfum handa viðskiptavinum sínum heima og erlendis. Einn ágætur viðskipta- vinur sem var að panta dagatöl um daginn hafði orð á því að hann hafi fengið upphringingar frá útlöndum þar sem viðskiptavinir hans voru, á mjög kurteislegan hátt auðvitað, að forvitnast um dagatölin! Einn gekk svo langt að spyrja hvort ekki væri hægt að útvega sér dagatal eins og hann væri vanur að fá, það bíði sér- stakur nagli á veggnum í skrifstof- unni hans undir „Fallegu Íslands- myndirnar“. „Stóra dagatalið okkar „Af Ljósakri“ er nánast nauðsynleg jólagjöf hjá sumum fyrirtækjum. Árgangurinn 2002 er tileinkaður Snæfellsnesi, allt frá hafnar- stemmningunni í Stykkishólmi til útsýnisins frá toppi Snæfellsjökuls. Ég er sjálfur ekki í vafa um það hver gefur út fallegustu dagatölin á Íslandi og einhver sagði við mig fyrir nokkrum árum að dagatöl Nýrra vídda væru sérlega fallegt, en vel varðveitt leyndarmál. Mér brá svolít- ið við þá yfirlýsingu og þykir svo sannarlega tími til kominn að láta vita betur af okkur og hvernig hægt er að ná til okkar. Dagatöl Nýrra vídda gleðja augað allan ársins hring, við leggjum mikla áherslu á vandaða og hrífandi vöru. Borðdagatalið er aftur á móti hátt og mjótt og því vel sýnilegt á borði án þess að taka of mikið pláss. Borð- dagatalið spannar 14 mánuði í stað 12. Við höfum líka verið með spjalda- dagatöl nánast á sama verði og fín jólakort. Þau hafa verið vinsæl hjá sölufyrirtækjum, þessi dagatöl eru til- valin áminning til viðskiptavinarins, með símanúmerum og nöfnum sem skipta máli. Svona einfaldur glaðn- ingur um jólin getur skipt miklu máli í viðskiptum.“ Hægt er að hafa samband við okkur vegna pantana: Nýjar víddir ehf Laugarnesvegi 114, 105 Reykjavík Sími 569 4000 Netfang nv@nyjarviddir.is Vefur www.nyjarviddir.is Hinn sanni andi jólanna Daði Harðarson framkvæmdastjóri Nýrra vídda og Guðrún Agnarsdóttir forstjóri Krabbameinsfélags Íslands með jólakort Nýrra vídda, en hluti af andvirði kortanna rennur til Krabbameinsfélagsins „Þ Auglýsing EINN af máttarstólpum norð- lenskrar menningar í áratugi, Tón- listarfélag Akureyrar, gekkst fyrir orgeltónleikum í Akureyrarkirkju síðastliðið sunnudagskvöld. Við hljóðfærið var organisti Hallgríms- kirkju Hörður Áskelsson sem er Ak- ureyringur að uppruna og efnisskrá- in samanstóð af verkum eftir Bach og norræn tónskáld. Kannski vegna þess að músík Bachs, sem gjarna er talað um sem djúpa og alvarlega, á ef til vill meira sameiginlegt með hugarfari Norðurlandabúa, sem oft eru taldir þungir og lokaðir, en ann- arra. En nóg um það. Tónleikarnir hóf- ust á verkinu Súlur eftir bróður org- elleikarans Jón Hlöðver Áskelsson. (sem er auðvitað líka Akureyringur – ótrúlegt hvað er mikið af Akureyr- ingum á Akureyri) „Súlur“ var sam- ið í tilefni hátíðarinnar, Reykjavík menningarborg 2000, og er nafngift- in fengin frá fjallinu fræga ofan við Akureyri. Hörður hafði áður lýst því í upphafi tónleikanna að það minnti sig á göngu eina á fjallið frá því á menntaskólaárunum og heyra mátti að sú tenging var ekki fjarri lagi, í verkinu er góður stígandi og það endar á hápunkti eins og vellukkuð fjallganga. Það hefst á dulúðugu stefi í fótspilinu sem færist svo upp í efri raddirnar, hvar önnur stef bæt- ast við í hinni „íslensku“ lýdísku tón- tegund. Framvindan er laglega ofin og er skemmst frá því að segja að „Súlur“ var skemmtilegasta verk þessara tónleika, áheyrilegt og smekklegt og glæsilega leikið af Herði. Næsta verk var Pre- lúdía og fúga í h-moll BWV 544 (stundum nefnd „hin mikla“). Þessi tónsmíð, uppfull af tign og mikil- fengleika, er talin eitt af bestu orgelverkum J.S. Bachs. Í prelúdíunni má greina skrúðmiklar A lotur og hermiraddaðar B lotur sem tvinnast saman í pott- þétta heild. Hörður lék hana eilítið hraðar en ég hef heyrt hana leikna en stóð alveg undir því svo út- koman var mjög sannfær- andi. Fúgustefið er dregið kringum mollhljóm í grunnstöðu og minnir á lagið „undir bláum sólarsali“ (í moll). Vefurinn verður á köflum þéttur og margræður a la Bach og miklu skipt- ir að tónlitur hverrar raddar sé með þeim hætti að röddin komi skýrt fram en blandist jafnframt vel við hinar. Annars er hætta á að fúgan verði á stundum of mikill og þreyt- andi hljóðmassi. Þetta átti einstöku sinnum við en að öðru leyti var leik- ur Harðar óaðfinnanlegur. Tónleikagestir fengu að heyra annað verk eftir Bach sem var sálm- forleikurinn Schmücke dich o liebe Seele. Hann er byggður á altaris- göngusálmi eftir Johann Krüger (1598–1662) sem í kirkjum í dag er gjarna sunginn við textann „Þú sem líf af lífi gefur“. Í efnisskrá tón- leikanna var tilvitnun í skrif Schu- manns um þennan forleik þar sem segir: „Laglínan var umvafin gulln- um laufum, og himnesk sæla flæddi um hana, þú viðurkenndir sjálfur að ef lífið myndi ræna þig von og trú myndi þessi sálmur gera allt nýtt aftur.“ Þetta er hægt og íhugult verk með áberandi trillum og saraböndu- keimur af því. Heldur var mikið rúb- ató í leik Harðar fyrir minn smekk en verkið hljómaði að öðru leyti vel. Tvö sönglög umrituð fyrir orgel komu næst á efnisskránni, Maríu- vers Páls Ísólfssonar úr leikritinu Gullna hliðið og Vertu Guð faðir, fað- ir minn eftir Jón Leifs. Maríuversið er einn af þessum gullmolum ís- lenskrar sönglagasmíðar sem hver einasti tónlistarunnandi hér á landi þekkir. Lagið er fallega umritað fyr- ir orgel af Hauki Guðlaugssyni í þeim einfaldleika sem hæfir efninu. „Vertu Guð faðir, faðir minn“ Jóns er þekkilegt sönglag. Í umrituninni (nafn umritara vantaði í annars vandaða efnisskrá) var laglínan var leikin í hátt liggjandi rödd í fótspili sem gefur laginu sérstæðan og skemmtilega „Leifslegan“ blæ. Bæði sönglögin voru frábærlega vel spil- uð. Síðasta verk tónleikanna var all- mikill tónbálkur Sinfonia archt- andriae eftir Norðmanninn, Kjell Mörk Karlsen. Kjell hefur verið áberandi í norsku tónlistarlífi sem kórstjóri organisti og tónskáld. 1993 fékk hann fyrstu verðlaun í sam- keppni í tilefni af vígslu nýja orgels- ins í Hallgrímskirkju fyrir verkið „Tvísöng“. Seinna bætti hann við Tvísönginn svo úr varð 4 þátta org- elverk undir áðurgreindu nafni sem þýða mætti á íslensku sem Norð- urhjarasinfónía. Fyrsti þátturinn (Tvísöngur) byggir á síendurteknum samstígum 5-undum í bassa með eins konar skiptinótustef ásamt snörpum tokktufléttum í efri tón- sviðum. Þetta er hrjóstrug en jafn- framt áhrifamikil og stílhrein músík sem Hörður reiddi fram af þeim krafti og næmni sem til þurfti. Ann- ar þáttur nefndist Gymel (Cantus gemellus eða tvíburasöngur). Gymel ku hafa verið forn norrænn söngur. Hann byggir á samstígum 3-undum og þekktist meðal Breta á miðöldum sem töldu sig hafa lært hann af nor- rænum mönnum. Samkvæmt fyrir- myndinni byggist tónvefur kaflans líka á röð 3-unda, fyrst og síðast í veikum flauturöddum með sterkum og átakameiri miðhluta þegar 3-und- irnar duna m.a. í fótspilinu. Formið verður þannig A-B-A. 3. Þátturinn var hraður þrástefskafli sem var krefst mikillar leikfærni. Hörður fór mjög örugglega í gegnum þáttinn en stundum fannst mér liggjandi forte- hljómar orgelsins ofgera mínum eyrum. Hið sama átti við um nokkra hljóma í lokakaflanum þar sem stef- ið er Liljulagið kennt við Lilju Ey- steins Ásgrímssonar. Að öðru leyti var sá kafli mjög litríkur og skemmtilegur og greinilegt að org- elleikarinn var í essinu sínu sem skil- aði sér í mikilli leikgleði og listfengi í afburða spilamennsku framúrskar- andi tónlistarmanns. Orgelleikari í góðum gír TÓNLIST Akureyrarkirkja Hörður Áskelsson flutti verk eftir Bach og norræn tónskáld. Sunnudagskvöldið 18. nóvember. ORGELTÓNLEIKAR Hörður Áskelsson Jón Hlöðver Áskelsson Ívar Aðalsteinsson JÖRG E. Sond- ermann leikur á átjándu tónleik- unum sem til- einkaðir eru Bach í Breið- holtskirkju í kvöld kl. 20.30. Þá flytur hann Prelúdíu og fúgu í c-moll (BWV 549), Sex sálm- forleiki úr „Orgelbüchlein“, O Gott, du frommer Gott, Partítu um sálmalagið (BWV 767), Tríó í c-moll Adagio-Allegro (BWV 585), Tvo sálmforleiki: Nun freut euch, lieben Christen g’mein (BWV 734), Valet will ich dir geben (BWV 736) og Prelúdíu og fúgu í c-moll (BWV 546). Aðgangseyririnn, 900 kr., rennur til Hjálparstarfs kirkjunnar. Bach í Breið- holtskirkju Jörg E. Sondermann KVÖLDSÝNING verður á ævin- týraleikritinu Bláa hnettinum í Þjóðleikhúsinu annað kvöld, mið- vikudagskvöld, kl. 20. Hljómsveitin múm samdi lögin í leikritinu, og mun hún leika lög af nýútkomnum diski. Þá mun höf- undurinn, Andri Snær Magnason, ræða við áhorfendur ásamt leik- urum úr sýningunni. Diskurinn verður til sölu á sýn- ingarkvöldi og rennur allur ágóði af sölunni til hjálparstarfs í Afgan- istan. Þá mun múm leika nokkur lög af öðrum diski sem væntanleg- ur er eftir áramót fyrir sýning- argesti. Kvöldsýning á Bláa hnettinum ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.