Morgunblaðið - 20.11.2001, Qupperneq 38
HESTAR
38 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BREYTILEGT er milli ára hversu mikil
spenna ríkir í kringum val á ræktunarbúi árs-
ins og knapa ársins. Nú var spennan í kringum
val á ræktunarbúinu en val á knapa ársins
þótti liggja nokkuð ljóst fyrir að þessu sinni.
Fremst í hópi jafningja á sviði hrossaræktar
þóttu vera Páll Bjarki Pálsson og Anna Sig-
urðardóttir sem stunda sína hrossarækt á
Flugumýri II. Strax í vor vöktu athygli hryss-
ur frá þeim sem Páll mætti með í dóma fyrir
norðan en allar voru þær undan Kormáki frá
Flugumýri II sem einnig er fæddur Önnu og
Páli.
Um landið þvert og endilangt
Og ekki létu þau deigan síga og mættu með
fleiri hryssur undan honum á síðsumars-
sýningar, fyrst fyrir norðan og síðar í ágúst á
Gaddstaðaflötum því stefnan var að koma
Kormáki yfir fyrstu verðlaunamörkin en til
þess þurfti fimmtán dæmd afkvæmi og sagðist
Páll hafa dustað rykið af einni hryssu sem ekki
var í þjálfun. Allt gekk þetta upp og Páll
kominn með aðra hönd á fyrstu verðlaunin
fyrir afkvæmi til handa Kormáki. Væntanlega
verður áfanganum landað á landsmótinu á
næsta ári. Framtak Önnu og Páls er gott
dæmi um hverju er hægt að áorka með góðum
efniviði. Vissulega hefðu þau getað tekið því
rólega og látið dæmið ganga betur upp af
sjálfu sér því klárinn hefði farið fyrr eða
seinna í fyrstu verðlaun. Í hinni hörðu sam-
keppni stóðhestanna er dýrmætt að ná þess-
um áfanga snemma, það eykur eftirspurnina í
hestinn, tryggir honum öruggari og betri
tekjur en það sem er kannski mikilvægast er
að það hraðar ferð hans að heiðursverðlauna-
mörkunum. Síðustu dagana fyrir útnefn-
inguna var sú skoðun útbreidd að þau Páll og
Anna myndu hljóta titilinn þetta árið og ekki
annað að sjá en góð sátt ríkti um niðurstöðuna.
Sex önnur bú voru útnefnd af fagráði fyrir
valið á ræktunarbúi ársins en þau voru ræktun
Guðlaugs Arasonar og Snjólaugar Baldvins-
dóttur á Efri-Rauðalæk, Brynjars Vilmund-
arsonar á Feti, Skapta Steinbjörnssonar og
Hildar Classen á Hafsteinsstöðum, Einars
Öder Magnússonar og Svanhvítar Kristjáns-
dóttur í Halakoti, Jónasar Jónssonar og fjöl-
skyldu í Kálfholti og Indriða Ólafssonar og
fjölskyldu í Þúfu.
Öruggur Vignir
Knapi ársins engum á óvart var valinn af
hestafréttamönnum hinn tvöfaldi heimsmeist-
ari Vignir Jónasson. Vignir skilaði glæstum
árangri á árinu og þar ber að sjálfsögðu hæst
sigur hans í fimmgangi á Klakki frá Búlandi á
heimsmeistaramótinu í Austurríki en auk þess
varð hann þar stigahæstur keppenda. Þá varð
hann þriðji í gæðingaskeiði á mótinu.
Hann varð einnig Íslandsmeistari á Klakki
og á báðum þessum mótum setti hann ein-
kunnamet. Þá keppti Vignir á fjölda annarra
móta og sýndi hross í kynbótadómi með góð-
um árangri.
Nú í fyrsta skipti voru veitt undirverðlaun í
fimm flokka sem hófapressan valdi einnig. Þar
var Vignir að sjálfsögðu með bestan árangur á
hestaíþróttamótum en Sigurður Sigurðarson
þótti bera af þeim bestu í sýningu gæðinga á
árinu og Logi Laxdal gulltryggði sér kapp-
reiðaknapaverðlaunin með Íslandsmeti í 150
metra skeiði á Þormóði ramma frá Svaðastöð-
um en þar fyrir utan var hann með sérlega
góðan árangur í skeiði á kappreiðum sumars-
ins, sérstaklega í 150 metra skeiði.
Fremstur knapa í kynbótasýningum var
valinn ókrýndur konungur kynbótasýning-
anna Þórður Þorgeirsson. Hann hefur borið
ægishjálm yfir aðra knapa á þessu sviði og
orðið löngu tímabært að veita honum viður-
kenningu á þessum vettvangi. Þá var að síð-
ustu kölluð upp Berglind Rósa Guðmundsdótt-
ir sem valin var bjartasta vonin á vetttvangi
hestamennskunnar. Hún hefur lengi verið í
eldlínunni, byrjaði í barnaflokki en er nú kom-
in í ungmennaflokk. Átti hún góðu gengi að
fagna í sumar þar sem frábær frammistaða á
Íslandsmótinu á Varmárbökkum var hápunkt-
urinn hjá henni.
Þessi aukaverðlaun eða viðurkenningar öllu
heldur voru nú reynd í tilraunaskyni mæltust
vel fyrir og má búast við að þær verði veittar
áfram.
Þá er ónefndur einn sigurvegari kvöldsins
nefnilega Flosi Ólafsson sem var veislustjóri
og dekkaði einnig ræðumann kvöldsins. Hann
brást ekki frekar en fyrri daginn, alltaf jafn
fyndinn og skemmtilegur. Sagði hann sögur af
sjálfum sér eins og þegar hann vann við hesta-
leiguna hjá Þorkeli Bjarnasyni en það var þeg-
ar hann var hændur að brennivíni eins og
hann orðaði það. Sagðist hann hafa verið fullur
alla daga og undrast mjög að Þorkell skyldi
líða honum þetta. Spurði hann Þorkel síðar
hvernig hafi staðið á því hann þessi staki bind-
indismaður skuli hafa þolað þetta framferði
hans. Svar Þorkels var eitthvað á þessa leið:
„Ég hélt Flosi minn að þú værir bara svona.“
Hestamenn halda uppskeruhátíð
Flugumýrarrækt-
unin á toppnum
Knapi ársins, Vignir Jónasson, fyrir miðri mynd ásamt Berglindi Rósu, Sigurði Sigurð-
arsyni, Loga Laxdal og Þórði Þorgeirssyni.
Hestamenn héldu mikla hátíð á föstudag þegar hin svokallaða uppskeruhátíð var haldin og viðurkenn-
ingar þar veittar. Fyrr um daginn hafði Fagráð í hrossarækt staðið fyrir merkri ráðstefnu undir yfir-
skriftinni „Hrossarækt 2001“ þar sem flutt voru gagnmerk erindi. Valdimar Kristinsson mætti á báða
þessa viðburði og færði í letur það helsta sem þar bar á góma.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
ATHYGLI vakti á sínum tíma
hversu margir hestamenn stund-
uðu kandídatsnám á Landbúnað-
arháskólanum á Hvanneyri und-
anfarin þrjú ár. Á ráðstefnunni
„Hrossarækt 2001“ nutu hesta-
menn afraksturs af námi og rann-
sóknum þegar fimm þeirra sem
þarna voru í námi fluttu erindi
sem byggðust á lokaverkefnum
þeirra.
Það var Ágúst Sigurðsson
hrossaræktarráðunautur sem opn-
aði ráðstefnuna með því að fara yf-
ir helstu viðburði í ræktunarstarf-
inu á árinu auk þess að kynna nýja
útreikninga á kynbótamati
Bændasamtakanna í hrossarækt.
En það voru fyrirlestrar bú-
fræðikandídatanna sem mesta at-
hygli vöktu, enda salurinn þétt-
skipaður harðlínuhestamönnum
sem hlustuðu með mikilli athygli.
Fyrsta fyrirlesturinn flutti Sveinn
Ragnarsson og fjallaði hann um
ræktun kappreiðavekringa.
Pétur Halldórsson fjallaði um
hrossafóðrun í höfuðborginni og
kom glöggt fram í erindi hans að
þar er víða pottur brotinn og þá
helst á þá leið að um offóðrun er
að ræða.
Verkefni Þorvaldar Kristjáns-
sonar fjallaði um vilja og geðslag
sem nú hefur verið slengt saman í
eitt atriði í dómsskalanum og
verkefni Eyþórs Einarssonar bar
yfirskriftina „Hverju skiluðu af-
kvæmaprófanirnar?“.
Að síðustu kynnti Elsa Alberts-
dóttir samanburðarrannsókn sína
á íslenskum kynbótadómum og
þýskum undir yfirskriftinni „Er
eitthvert vit í þýskum dómum?“
Var góður rómur gerður að er-
indum þessum og má hiklaust ætla
að þessi árgangur búfræði-
kandídata eigi eftir skila góðu til
hestamennskunnar á næstu árum
því einhverjir þeirra sem útskrif-
uðust í vor eiga eftir að leggja lag
sitt við aðaláhugamál sitt.
Þá fengu fulltrúar nokkurra
hrossaræktarbúa afhent við-
urkenningarskjöl fyrir þátttöku í
gæðastjórnunarverkefni.
Þeir sem hlutu viðurkenningu
voru Leifur Þórarinsson í Keldu-
dal, Bjarni Maronsson á Ásgeirs-
brekku, Guðrún Bjarnadóttir á
Þóreyjarnúpi, Víkingur Gunn-
arsson fyrir Hólabúið, Jón Gísla-
son á Hofi, Ingimar Ingimarsson á
Ytra-Skörðugili og Haraldur
Sveinsson og Jóhanna Ingólfs-
dóttir á Hrafnkelsstöðum.
Ráðstefnan „Hrossarækt 2001“
Morgunblaðið/Valdimar
Skeiðið er Sveini Ragnarssyni
hugleikið og fjallaði erindi hans
um ræktun kappreiðavekringa.
Hér er Sveinn í góðum fé-
lagsskap hryssunnar Rauðsíðu
sem er afkomandi mikilla vekr-
inga og má þar nefna Svart frá
Unalæk, Glókollu frá Kjarnholt-
um og Kjarval frá Sauðárkróki.
Þorvaldur Krist-
jánsson kynnti
rannsóknir sínar á
hinum nýja eig-
inleika vilja og
geðslagi og arf-
gengi hans.
Athygliverð rann-
sóknarefni kynnt