Morgunblaðið - 20.11.2001, Síða 48

Morgunblaðið - 20.11.2001, Síða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. VERKFALL tónlistarskólakennara hefur nú staðið í þrjár vikur og loks er komið í ljós hver er helsta fyrirstaðan í lausn deilunnar. Það er Reykjavík- urborg með borgarstjóra í farar- broddi. Þegar tónlistarskólakennarar færðu henni áskorun um lausn deil- unnar kom hún út úr skápnum og fór að tala um breytingar á rekstrarformi tónlistarskólanna. Rekstrarform tónlistarskólanna í Rvík er annað en tíðkast úti um land. Í Rvík eru tónlistarskólarnir reknir af einkaaðilum. Þeir innheimta skóla- gjöld til að standa undir rekstri á hús- næði og öllu því sem til þarf, en laun kennara eru greidd af borginni. Að- sókn í skólana hefur stóraukist en ein af ástæðunum fyrir því er að í grunn- skólum Reykjavíkur er tónmennta- kennsla á undanhaldi, þ.e. þeim skól- um sem hafa starfandi tónmennta- kennara fer fækkandi. Því hafa tónlistarskólarnir í Rvík brugðið á það ráð að hafa forskóla fyrir yngstu nemendurna. Nú vill borgarstjóri færa þessa kennslu inn í grunn- skólana. Nokkuð sem kemur kjara- deilu kennara ekkert við. Úti á landsbyggðinni er allt annað rekstrarform á tónlistarskólunum. Sveitarfélögin reka skólana og eiga húsnæðið. Mörg sveitarfélög hafa lagt háar upphæðir í uppbyggingu á skólahúsnæði og tilheyrandi búnaði. Á þeim stöðum þar sem ekki eru starfandi tónmenntakennarar í grunnskólum hefur víða verið brugðið á það ráð að grunnskólinn kaupir ákveðna kennslu af tónlistarskóla staðarins og þannig fá grunnskóla- nemar þá kennslu sem þeim ber sam- kvæmt lögum. Almennt er lands- byggðin því betur stödd með tón- listarfræðslu barna á grunnskólastigi heldur en Reykjavík. Það er eitthvað sem landsbyggðin ætti að vera stolt af. Hver sá sem kynnir sér stöðu mála í samningum tónlistarskólakennara við sveitarfélögin sér að það er borg- arstjórinn í Reykjavík sem er drag- bítur á að samningar náist í þessari deilu. Landsbyggðin á enga samleið með Rvík í þessu máli. Vill kannski bæjarfélag eins og Vestmannaeyjar sem nýbúið er að eyða tugum milljóna í nýtt húsnæði tónlistarskóla, láta húsnæðið standa autt og hafa nemendurna heima án kennslu? Og foreldra sem búnir eru að borga skólagjöld reiða og sára? Nú hafa nemendur tónlistarskóla Vest- mannaeyja setið heima í þrjár vikur. Og það er vegna þess að borgarstjór- inn í Reykjavík vill breyta rekstrar- formi skólanna hjá sér. Reiknings- glaðir menn geta án efa skemmt sér við að finna út hversu há krafa okkar er í prósentum, ég tala nú ekki um hversu mikill kostnaðarauki sveitar- félaganna er. Kaupkröfur eru að okk- ar mati hógværar. Það sem við förum fram á er leiðrétting til samræmis við aðra kennara. Í tveimur síðastliðnum samningum hafa tónlistarskólakenn- arar verið skildir eftir og er það ástæðan fyrir hárri prósentutölu nú. Við viljum einfaldlega sömu laun og aðrir kennarar. EGGERT BJÖRGVINSSON, Vestmannaeyjum. Um verkfall tón- listarskólakennara Frá Eggerti Björgvinssyni: ÉG ER trúlega ekki ein um að undr- ast oft fréttamat dagblaða og annarra fjölmiðla sem flytja eiga okkur tíðindi af því sem markverðast gerist í heim- inum nær og fjær. En nú þykir mér þó kasta tólfunum. Mig langar að beina þeirri spurn- ingu til fréttastjóra og ritstjóra Morg- unblaðsins hvað ræður því að þegar ungur Íslendingur, Karen Björk Björgvinsdóttir, og maður hennar, Adam Reeves, ná þeim árangri að lenda í fjórða sæti í heimsmeistara- keppni atvinnudansara er það metið ámóta fréttnæmt og að eigendaskipti hafi orðið á snyrtistofu í Reykjavík. Ég vísa hér til bls. 47 í Morgun- blaðinu þriðjudaginn 6. nóvember, síðu sem að vísu er í haus kölluð frétt- ir en samanstendur af innsendum fréttatilkynningum. (Reyndar er birt mynd af Karen og Adam en ekki snyrtistofunni.) Miðað við alla þá um- fjöllun sem flestir íslenskir íþrótta- menn fá í fjölmiðlum þegar þeir taka þátt í alþjóðlegum mótum – burt séð frá árangri, finnst mér það hrein móðgun við dansparið að gera svo lít- ið úr frábærum árangri þeirra í dans- listinni. Þá má einnig spyrja hvaða skilaboð þau hundruð barna og ung- linga fá, sem leggja stund á dans í landinu, þegar fréttamat fjölmiðla er með þeim hætti sem hér er lýst. Rétt er að geta þess að Morgun- blaðið var eini fjölmiðillinn sem birti fréttatilkynningu um árangur þeirra Karenar og Adams. Það segir manni ýmislegt um fréttamat íslenskra fjöl- miðla. Morgunblaðið birti líka frétta- tilkynningu í fyrra af því að Íslend- ingar, þ.e. þau Karen og Adam (þau keppa ætíð fyrir Íslands hönd) hefðu orðið Evrópumeistarar í dansi. Ég minnist þess ekki að mikið hafi farið fyrir þeirri frétt í öðrum fjölmiðlum. Hins vegar fær öll þjóðin vel að vita af gengi íslenskra fegurðardísa, bolta- og skíðamanna jafnvel þótt viðkom- andi lendi í 100. sæti af 100 mögu- legum. En Evrópumeistaratitill í dansi þykir greinilega ekki ýkja merkilegur. Vitað er að Morgunblað- ið er álitið leiðandi í fréttamati al- mennings og annarra fjölmiðla. Ég skora því á ritstjóra og fréttastjóra blaðsins að taka málið upp á næsta ritstjórnarfundi, gera hér bragarbót og birta ítarlega umfjöllun um ein- stæðan feril þessa afreksfólks. Það er svo sannarlega kominn tími til. MARÍA ANNA ÞORSTEINSDÓTTIR, framhaldsskólakennari, Stigahlíð 2, Reykjavík. Hvað er svona merkilegt við það? Frá Maríu Önnu Þorsteinsdóttur:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.